Alþýðublaðið - 15.02.1968, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 15.02.1968, Blaðsíða 9
HUÓÐVARP Fimmtudagur 15. febrúar. t.OO Morgunútvarp. Veðurfregnir. Tónleikar. 7.30 Fréttir. Tónleikar. 7.55 Bæn. S.00 Morgunleikfimi. Tónleikar. 8.30 Fréttir og veðurfregnir. Tónleik. ar. 8.55 Fréttaágrip og útdráttur úr forustugreinum dagblaðanna. 9.10 Veðurfregnir. Tónleikar. 9.30 Tilkynningar. Húsmæðraþáttur: Dagrún Kristjánsdóttir húsmæðra kennari talar um upphaf hús, mæðrafræðslu hérlendis. 9.50 I>ing fréttir. 10.10 Fréttir. Tónleikar. 12.00 Hádegisútvarp. Tónleikar. 12.15 Tílkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tii. kynningar. Tónleikar. 13.00 Á frívaktinni. Eydís Eyþórsdóttir stjórnar óska lagaþætti sjómanna. 14.40 Við, sem heima sitjum. „Eyjan græna“: Ferðasaga eftir Drífu Viðar. Katrín Fjeldsted les. 15.00 Miðdegisútvarp. Fréttir. Tilkynningar. Létt lög. Mantovani og hljómsveit hans leika lög eftir Victor Herbert. Luis Alberto Ded Parana og Para guayos tríóið syngja og leika. Noel Trevlac leikur á trompet og Oscar Petersen á píanó. 16.00 Veðurfregnir. Síðdegistónleikar. Páll Kr. Pálsson leikur á orgel Stef með tilbrigðum í bmoll eftir Sigursvein D. Kristinsson. Artur Rubinstein leikur Carneval op. 9 eftir Robert Schumann. 16.40 Framburðarkennsla í frönsku og spænsku. 17.00 Fréttir. Á hvítum reitum og svörtum. Guðmundur Arnlaugsson flytur skákþátt. 17.40 Tónlistartími barnanna. Egill Friðleifsson annast þáttinn. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.20 Tilkynningar. 19.30 Thor Vilhjálmsson rithöfundur flytur erindi. 19.45 Framhaldsleikritið. „Ambrose í Lundúnum“ eftir Philip Levene. Sakamálaleikrit í átta þáttum. Þriðji þáttur: Róm anski lundurinn. Þýðandi: Árni Gunnarsson. Leikstjórl: Klemenz Jónsson. 20.25 Tónleikar. 21.25 Útvarpssagan. „Maður og kona“ eftir Jón Thor oddsen. Brynjólfur Jóhannesson leikari les (21). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.15 Lestur Passíusálma (4). 22.25 Viðdvöl í Lyngbæ. Stefán Júlíusson rithöfundur flyl ur þriðja frásöguþátt sinn. 22.45 Barroktónlist frá Versölum. Þorkell Sigurbjörnsson kynnir. 23.30 Fréttir í stuttu máli. Dagskrárlok. Lærið aðaka BÍL ÞAR SEM ÚRVALIÐ ER MEST- BÍLATEGUNDIR og KENNARAR Geir p; Þormar (W.Vagen R.958) S. 21772, 1S*9S Gígja Sif■rjónsdóttir (W.Vage« R.1822) S. 19*15 Hörður Ragnarsson (W.Vagen R.6873) S. 354*1 Hannes Wihler (W.Vage» R.3132) S. 3*773 Júlíus ■alldórsson (Taunus 17M R.5943) S. 32954 Jðel B. Jacolissen (Tauaus 12M) RJ2116) S. 3**41 Gnðmuiiir G. PéturssM (Rambler Am.) R.7560) S.3459* Níels JÍB9MB (í'ord Cust. R.1770) S. 1**22 Auk fraHaagreindra bdla: Volga, Vaaxhall og Taunus 12M. Rinnig iaaaahúsæfiBgar á •kuhjálfama. Upplýsingar í símum: 19S96 21772 34590 ■■ Okukennslan hf. Sími 1989« og 21772. Dr. Gannlaugur Þórðarson hrl. iDunhaga 19. ViStalstímar eftir sam- komulagi. Sími 16410. SMURT BRAUÐ SNITTUR BRAUÐTERTUR BRAUÐHUSm SNACK BAR Laugavegi 126, sími 24631. ÖSKUBUSKA — Heim, endurtók hann og .leit á' hana. — Þú ert asni, ef þú heldur, að þú getir búið þarna. Lögum samkvæmt er það ólögmætt að þú sért í þessum kofa og ég get látið varpa þér á dyr. Hún sleit sig lausa og fálm- aði niður í töskuna sína eftir pundinu, sem kráareigandinn liafði rétt henni. Hérna, taktu við þessu! Hún neyddi hann til að taka við því. — Hérna eru vikulaun fyrir kofann. — Ég vil ekki sjá peninga hjá þér, sagði Steven lágt og reiði- lega. Hún rétti stolt úr sér. — Og ég vil umfram allt ekki láta sjá. mig með þér! Hún snérist á hæl og fór sína leið. Það var dásamlegt, já, dásaiu- legt, að Steven Mannering skyldi neyðast til «ð taka við pening- um, sem hún hafði ekki efni á að missa. Það var ekki til neins fyrir hana að leita á vfnnumiðl- unarskrifstofurnar daginn eftii'. Steven sæi áreiðanlega um að hún yrði rekin, ef hún þá fengi nokkra stöðu. Það var svo auð- velt að láta undan og leyfa fjöl- skyldunni að ausa yfir hana góð- gerðum eins og hingað til. En í þetta skipti v*eri ekki beint hægt að nefna það „góðgerðarstarf- semi.” Nú yrði það niðurlæging. ,,Ég svelt frekar” sagði hún við sjálfa sig og gekk að kofanum. Hún ætlaöi að heimsækja fólk- ið, sem Kevin hafði skrifað niður í vasabók sína, en hún gat ekki gert þaö strax. Þau áttu öll heima langt frá Dan- borough og hún hafði hvorki efni á að íara með strætisvagni né lest. ,,Ég verð að fá mér vinnu” hugsaði hún örvæntingarfull. „Ég verð að ganga fimm kíló- metra til Finton á morgun. Þar fæ ég kannski vinnu.” Það var dimmt og kofinn var óhugnanlegur. Það brakaði í trjábolunum á arninum. Henni fannst hún heyrast einhvern læðast um fyrir utan og augna- bliki síðar birtist Steven Mann- ering í gættinni með’stóran poka í fanginu. — Hvað ertu að gera hingað, sagði Rhona og gleymdi hræðslu sinni; — ég heyrði ekki í bíln- um. — Ég kom gangandi. Hann lét hurðina falla að stöfum með fæt- inum og kom inn fyrir. — Það gleður mig, að þú varðst hrædd. Þá sannfæristu kannski um, hvað það er erfitt að búa á af- skekktum stað án nokkurra þæg- inda. — Ef þú ert að koma til að reka mig á dyr, sagði hún þrjózkulega og virti hann fyrir sér. — Leyfist mér kannski að benda þér á, að ég hef greitt viku húsaleigu. Hann tók pundsseðil upp úr vasanum og lagði hann á borð- ið fyrir framan hana. Gjörðu svo vel, sagðj hann. — Xvofinn er ekki til leigu. Hún hörfaði upp að veggnum. Ef þú reynir að ræna mér. .. — Ég snerjj þig ekki; ég koro bara með mat handa þér. — Ég þigg hann ekki; ég hendi honum beint í öskutunnuna. Hann leit á hana og í svip hans var blanda af biturð og gleði. — Ef þú ætlar að gera það, sagði hann, — er ég að hugsa um að borða hann sjálfur. Ég vil ekki láta henda góðum mat. Auk þess fékk ég engan miðdegisverð og það er þér að kenna. Hann fór úr jakkanum, bretti upp ermarrtar og snéri sér að stóra bréfpokanum. Hann tók upp stórt buff og tók stóru gam- aldags steikarpönnuna við elda- vélina og lagði kjötið á hana. Svo kveikti hann upp í vélinni. Rhona horfði á hann með eftir- sjá. Buffið snarkaði á pönn- unni og ilminn lagði fyrir vit liennar unz feitin skvettist ofan í eldinn og logar spýttust upp. — Farðu varlega, lirópaði Rhona og ýtti honum frá elda- vélinni. — Ætlarðu að kveikja í kofanum. — Ég er ekki sérlega góður matsveinn, sagði hann rólega. Viltu taka við? Ég skal laga sal- atið, það hentar mér betur. Henni fannst að hann hefði leikið á hana. Hún 'eit yfir öxl sér og á hann. Hann var búinn að taka franskbrauð og smjör upp úr pokanum og nú var hann að blanda salat í skál. r- Steikin er til, sagði liún stuttaralega. Hann dró fram stól handa henni. — Við skulum skipta á milli okkar, sagði liann og beið eftir að hún settist. Hún hikaði. — Ég vil ekki þiggja góðgerðir. — Þetta er ekki góðgerðar- starfsemi, sagði hann bJíðlega. Ef það hefði átt að vera það, hefði ég fengið nýlenduvöru- kaupmann til að senda þér vör- urnar með sendli og pantað þær símleiðis. Þar sem ég kom með þær hingað vonaði ég innilega að þú byðir mér að borða með þér. — Af hverju? spurði hún. — Það kom undarlegur blær á augu hans en hann sagði létt- um tón: — Ég er að reyna að forðast að borða heima sem stendur. Andrúmsloftið er ó- venjulega þvingandi þessa dag- ana. Seztu nú niður, ég er svang- ur og við skulum borða steikina meðan hún er heit. Eftir þetta hefði það verið barnalegt af henni að neita. Auk þess var hún alltof svöng til að hálda áfram að vera þrjózk. Hún séttist því hlýðin niður. Hann hafði líka tekið með sér vínflösku og tvö glös. Þau borð- uðu og drukku þegjandi en skyndilega fannst Rhonu þetta allt ósegjanlega hlægilegt. Mat- urinn var góður, vínið það bezta sem fékkst; þau sátu við borð, sem stóð upp við gluggakistuna af því að það var þrífætt og einn fótinn vantaði undir það og þar sem að hvorki var rafmagn né gasljós í kofanum var herberg- ið lýst upp af kertum, sem stóðu í sultukrukkum. Rliona skellti upp úr. Steven leit á hana. — Hvað er svona hlægilegt? - Ég var bara að hugsa — ef Laura og mamma hennar sæju okkur nú hérna! Hann brosti. — Það færi ekki beint vel. — Er það ástæðan fyrir því að þú komst ekki með Lauru í kvöld? Brosið hvarf af vörum hans. — Nei, svaraði hann stuttara- lega. Þegar þau voru búin að borða, þvoðu þaU upp saman í sprungn- um vaskinum. Rhona fann ó- venjulega mikinn frið í huga sínum. Þetta var þó aðeins vopna hlé. A morgun væru þau aftur fjandmenn en það var gott að hætta að berjast um stundar- sakir. Hún sá hvernig hann þurrkaði diskana og hugsaði brosartdi: Þetta þori ég að veðja að Laura hefur aldrei séð hann gera. — Af hverju ætlarðu að gift- ast Lauru? spurði hún skyndi- lega. 1. HEFTI — SJÁLF- STÆÐ HEFTI Svarta höndin kemur út mánaðarlega. — Kr. 30,00 í lausasölu, en þeir, sem gerast áskrifend- ur að þessum 10 heftum fá heftið á kr. 20.00 og greiði öll heftin strax. — Fást í öllum blaðsölum og bóka- búðum. Útsýnisútgáfan Ilverfisgötu 45 Reykjavík. eftir Christina Laffeafy . . * 15. febrúar 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ 0

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.