Alþýðublaðið - 17.02.1968, Blaðsíða 7
UMFERÐARNEFND
REYKJAViKUR
LD'GREGLAN í
REYKJAViK
Eins og fram kemur í textanum í þessum fræðsluþætti, er heml.
unarvegalengd bifreiða misjafnlega löng eft'ir aðstæðum. Eitt
þe'irra atriða, sem mikil áhrif hefur á hemlunarvegalengdina er
gerð götunnar eða vegarins. B’ifreið þarf mun Iengri vegalengd
til að nema staðar sé gatan eða vegurinn malborinn heldur en
ef um malbikun er að ræða.
Vegalengd sú, sem bifreið
fer frá því að ökumaðurinn
skynjar skynctilega þörf á heml
un cg þar til hún hefur numið
staðar, er kölluð stöðvunar-
vegalengd.
Stöðvunarvegalengd bifreið-
ar er misjafnlega löng effir
aðstæðum. Auðvelt er að gera
sér grein fyrir því, að stöðvun
arvegalengdin eykst við auk-
inn hraða bifreiðarinnar, en
minnkar við minni hraða bif
reiðar Sem dæmj má t.d.
nefna, að stöðvunarvegalelngd
bifreiðar sem ekið er með 70
km. hraða á klst. eftir þurrum
malarvegj er G6V2 m., en sé
hraði bifreiðarinnar aftur á
mcti helmingi minni, eða 35
km. á klst., er stöðvunarvega.
lengdin ,,aðeins“ 21 m.
Stöðvunarvegalengd = við-
bragðsvegalengd -(- hemlunar-
vegalengd.
Stöðvunarvegalengdinni er
venjulega skipt í tvo hluta þ.e.
viðbragðsvegalengd og hemlun
arvegalengd. Viðbragðsvega-
lengdin er raunverulega mæli
kvarði á viðbragðsflýti eða
snarræði ökumanns. Allir öku-
menn vita aftur á móti, að það
eru margvísleg og margs kcn-
ar atriði, sem hafa áhrif á snar
ræði þeirra. Þireyta, áfengis-
naut o.fl. sljógvar öll skilning-
arvit og dregur stórlega úr at-
hyglinni, sem aftur dregur stór
lega úr snarræði ökumanns-
Þekking manna á urnferðarrcgf
um og gott líkamlegt ástand
■þeirra, eykur snarræði þeirra
og athyglisgúfu og minnkar þar
með viðbragðsvegalengdina.
Athuganir eftir árekstra hafa
leitt í ljós, að allt að 9 sek.
gota liðið frá því ökumaður
skynjair hættu og þar til hann
stígur á fóthemil.
Gott líkamlegrt ástand öku-
manna, ásamt hugarjafnvægi
þeirra, minnkar því viðbragðs-
vegalengdina.
Hemlunarvegalengdin er aft
ur á móti mælikvarði á hæíni
og útbúnað bifreiðarinnar og
ástand vegarins. Ýmis augljós
atriði hafa áhrif á hemlunar-
vegalengdina og má þar m.a.
nefna hraða ökutækisins, er
hemlun hefst, halla vegarins,
gerð hemlabúnaðar, tala þeirra
Ihjóla sem hemlað er, gerð hjól
barða eíc. Nú iá: þessum tíma
ársins eru það einkum þrjú
atriði, sem ökumenn ættu að
athuga gaumgæfilega varð-
andi hemlun og hemlunarvega
lengdir. Eitt þessara atriða á
reyndar bæði við vetrarakstur
og sumarakstur, en það er
hraði ökutækisins.
Með auknum hraða ökutækis
ins eykst hemlunarvegalengd,
en hún njinnkar, sé hraði öku
tækisins minnkaður. Sem
dæmi má nefna, að sé bifreið
ekið með hraðanum 70 km. á
klst. er hemlunarvegalengd
hennar undjr ákveðnum kring
umstæðum 49 m., en sé hrað-
inn minnkaður um helming,
niður í 35 km. á klst., en aðrar
aðstæðuir haldast óbreyttar,
minnkar hemlunarvegalengdin
í 12,25 m.
Samband braða bifreiðarinn
ar og hemlunarvegalengdar
liennar ættu ökumenn því á-
vallt að hafa í huga.
Ástand vegar befur mjög
mikil áhrif á hemlunarvega-
lengdir bifreiðar, sem eftir
honum ekur. Auðvelt er að egra
sér í hugarlund, að bifreið
stöðvast á skemmri vegalengd
á þurru malbiki en t.d. á ísuð-
um vegi. Staðreyndin er, að
ísing á vegi, hvort sem hann
Framhald á bls. 11.
TRÚARLÍF UNGS FÓLKS
dr. Jakob
Jónsson
ÉG SIT Á TAI.I við nngan
mann. Hann hefur nýlega orð-
ið fyrir þeirri reynslu, sem
allir verða fyrir einhvern tíma
á ævinni. Maður honum nákom-
inn hefur dáið, gamalmenni,
sem var búið að bíða lengi eft-
ir lausninni. En þessi atburS-
ur gaf tilefni til umræðu um
þau vandamál, sem öldum sam-
an hafa kvatt dyra í hugar-
heimi mannsins, en hver ein-
staklingur verður að bregðast
við á sinn hátt, þegar röðin
kemur að honum. En þvi r.efni
ég þennan unga mann, að við-
talið við hann varð mér nýr
vitnisburður um það, sem ég
raunar vissi áður, að ungt fólk
er yfirleitt ekki eins hugsun-
arlaust eða kærulaust um þessi
efni og sumir vilja vera láta.
Það hefur allt frá því ég man
eftir mér, verið viðkvæði eldri
kynslóðarinnar, að yngra fólk-
ið sækti illa messur og sýndi
ekki mikinn áhuga á' starfi
kirkjunnar. Mér finnst þessar
ásakanir ranglátar. Af því fólki
sem sækir messur, held ég, að
yngri kynslóðin sé að mir.nsta
kosti fjórðungur, og þá tel ég
að það hafi skilað sér, ,,mið-
f að við fóiksfjölda.” Hitt er
annað mál, að þjóðin í heild
sinni sækir illa flesta mann-
fundi, t. d. félagsfundi, sem
ekki eru beinlínis haldnir til
skemmtunar, og á það ekki síð-
ur við um miðaldra fólk en hið
yngra. Félög, sem teljá marga
meðlimi, fá ef til vill ekki nema
sárafáa á hvern fund, að
Framhald á 11. síðu.
BYGGINGAMEISTARI
Framkivæmdanefnd byggingaráætlunar í Sauð |
árkrókskaupstað, vill ráða til sín byggingar-
meistara, til að annast áætlunar- og undirbún
ingsstörf að byggingarframkvæmdum nefnd-
arinnar á Sauðárkióki.
Upplýsingar veitir formaður og nefndarmenn
aðrir. Umsóknir sendist Erlendi Hansen Hóla
vegi 34 Sauðárkróki sími 118 fyrir 1. marz n.k.
Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar
í Sauðárkrókskaupsstað.
V erkamannaf élagið
DAGSBRÚN
Félagsfundur
vefður haldinn í Tjarnarbæ, Tjarnargötu,
sunnudaginn 18. febrúar kl. 2 e.h,
D a g s k r á :
Kjara- og atvinnumálin.
STJÓRNIN.
TILBOÐ
BIFREIÐAR TIL SÖLU:
Fiat 1800 árgerð 1959.
Merzedes Benz 190D árgerð 1960.
Merzedes Benz 180D árgerð 1957.
Bifreiðarnar eru til sýnis á bifreiðaverkstæð*
inu
VESTURÁS H F.
SÍMI 35740.
Keflavík Suðurnes
Hvað boða viðburðir
Austursins?
nefnist erindi, sem O. J. Olsen
flytur í hinu nýja safnaöar-
heimili við Blikabraut sunnu-
daginn 18. febrúar kl. 5.
Ailir velkomnir.
i mmmmmamm
17. febrúar 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7,