Alþýðublaðið - 23.03.1968, Blaðsíða 3
f gær Var enn mjög slæmt
veður í Vestmannaeyjum. Um
fimmleytið í gær, þegar hlað-
ið hafði sambanit við fréttarit
ara sinn í Vestmannaeyjum,
Eggert Sigurlásson, sá þar ekki
út úr augum fyrir skafrenn-
ingi. Þá var mikill stormur
þar, um e'ða yfir 12 vindstig.
Þannig var veðrið í alian gær
dag. í fyrrinótt snjóaði enn í
Vestmannaeyjum. Er nú óvíða
jafnmikill snjór á landinu og
í Eyjum.
í gær var ekki kennt í barna-
og gagnfræðaskólanum vegna
veðurhamsins. í fyrradag urðu
bátarnir að hætta að draga um
miðjan dag, þar sem ekki sá
út úr augum fyrir veðrinu.
Enginn Vestmannaeyjabátur
fór á sjó í gær.
Flestar götur í Eyjum eru
ófærar, enda skóf snjóinn
mjög í rokinu. Allt flug ligg
ur niðri til Vestmannaeyja.
Herjólfur kom þangað um ell
efiuleytið í gærmorgim, og var
hann þremur til f jórum klukku
stundum á eflir áætlun.
í gærmorgun var unnið að
því að moka snjóinn af götun
um í miðbænum, en allar göt
ur voru annars ófærar, eink
Mæsfa verkefni t^jóðleíkfoússisiss
Nýjar þorsk-
veiðiregín
Samkvæmt tillögum Fiski
félags íslands og Hafrann
sóknastofnunarinnar hefur
ráo'uneytið í dag gefið út
auglýsingu um breytingu
á auglýsingu nr. 40 5. febr
úar 1963, um verndun fiski
miða fyrir veiði með þorska
netjum, þannig að til 15.
apríl þessa árs, skuli ó-
heimilt að leggja þorska-
net á svæði, sem takmark
ast af eftirgreindum lín-
um:
1. Að suðaustan af línu, ■
sem hugsast dregin misvís
andi suðvestur áð vestri
frá Beykjanesvita.
2. Að norðaustan af línu,
sem hugsast dregin misvís
andj norðvestur að norðri
frá Eeykjanesvita.
3. Að norðvestan af línu,
sem hugsast dregin misvís
andi vestur að suðri- frá
Garðskagavita.
4. Til hafa takmarkast
svæðið sjálfkrafa af 12
mílna fiskveiðimörkunum.
Sjávarútvegsmálaráðu-
neytið, 22. marz 1968.
Hádegisíundur
um varnir hér
í dag, laugardaginn 23. marz
halda VARÐBERG og SAMTÓK
UM VESTRÆNA SAMVINNU
sameiginlegan hádegisfund fyr
ir félagsmenn og gesti þeirra-
Fundurinn er haldinn í Þjóð
leikhúskjallaranum og hefst
kl. 12.10. Ræðumaður fundar-
ins er yfirmaður varnarliðsins
á Keflavíkurflugvelli, Rear-
Admiral Frank B. Slone, og
ræðir hann um Varnir íslands.
Að erindi sínu loknu mun
ræðumaður svara fyrirspurn-
um fundarmanna- Frank Brad-
ford Stone flotaforingi, varð
yfirmaður varnarliðsins á ís-
landi hinn 14. janúar 1967.
Þjóðleikhúsið frumsýnir n.k|
íöstudag, 29. marz, bandarísk
an gamanleik, Makalausa sam
búð eftir Neil Simon í þýð-
ingu Ragnars Jóhannessonar.
Leikstjlóri) er Eriii^gur Gísla
son, og er þetta fyrsta sýning
in sem hann stjórnar á stóra
sviði leikhússins. Með aðalhlut
verk í leiknum fara Rúrik Har
aldsson og Róbert Arnfinnsson,
en aðrir leikendur eru Be'ssi
Neil Simon.
Bjarnasön, Árni Tryggvason,
Ævar Kvaran, Sverrir Guð-
mundsson, Ilerdís Þorvaldsdótt
ir og Brynja Benediktsdóttir.
Lárus Ingólfsson gerði leik-
myndir og búningateikningar. |
<5>-
Frétta-
Hætti loftárásum
Fulltrúi Hanoi stjórnar'innar,
sem undanfarið hefur verið í
Sviss í boði stjórnarinnar þar,
hefur látið uppi að stjórnin
í Hanoi sé reiðubúin til friö
arviðræðna, fallizt Bandaríkja-
menn á að hætta skilyrðislaust
Ioftárásum á Norður-Vietnam.
í viðtali við fréttamenn gat
Erlingur Gíslason leikstjóri
þess að fyrir nokkrum árum
hefði annar leikur eftir Sim-
on, Hlauptu af þér hornin, ver
ið sýndur hér á landi í sum-
arferð um landið og síðan í
Reykjavík, og tekizt allvel.
Fyrir leikritið sem Þjóðleikhús
ið sýnir nú fékk höfundurinn
verðlaun sem bezti leikritahöf
undur ársins 1966 á Broadway,
og hefur hann síðan verið sýnd
Ur víða við miklar vinsældir.
Þetta er mjög goitt tækifæri
fyrir leikarana sein taka þátt
í sýningunni, sag^i Erlingur,
því að Neil Simdn er mjög
leikinn höfundur og Makalaus
sambúð verulega snjall gam-
anleikur. Auk gamanleikja
sinna hefur Neil Simon samið
söngleiki, sem nú eru sýndir
bæði í New York og London, og
skrifað fyrir sjónvarp og kvik
myndir.
AFMÆLISHOF
Ákveðið hefur verið að Lög-
fræðingafélag íslands minnist
10 ára afmælis síns með hófi
að Hótel Borg sunnudaginn cty.
marz 1968. Félagsmönnum verð
ur nánar tilkynnt um tilhög-
un hófsins bréflega.
Vill árás
Ky, varaforseti Suður-V'ietnam,
hefur livatt til innrásar í Norö
ur-Vietnam.
Lætur af embætti
Miðstjórn kommúnistaflokks
Tékkóslóvakíu hefur fallizt á
lausnarbeiön'i Novotnys, fyrrv.
fcrseta, en liann vék úr for-
sæti miðstjórnarinnar fyrir Du
beck, sem er -líiltrúi frjáls-
lyndari afla í Tékkóslóvakíu.
Vill Saab þotur?
Varnarmálaráðherra Dana hef-
ur farið þess á Ie'it við danska
þjóðþingið, að það veiti lieim
um uppi í bænum.
Þrátt fyrir veðurofsann mun
hafa verið unnið í fiskvinnslu
stöðvunum í Vestmannaeyjum
í gær.
Marceati
sumar
Tveir gestaleikir eru ráðgerð
ir í Þjóðleikhúsinu á næsta leik
ári sem beðið mun með eftir-
væntingu. Franski látbragsleik-
arinn Marcel Marceau sem
vakti mikla hrifningu leikhúss-
gesta í heimsókn sinni hingað
vorið 1966 kemur aftur til lands
ins og hefur tvær, ef til vill
þrjár, sýningar í Þjóðleikhúsinu
um mánaðamótin ágúst-septem-
ber. í fyrri heimsókn Marceaus
tók Þjóðleikhússtjóri af honum
loforð um að koma afur sem nú
verður efnt, en Marcel Marc-
eau hefur getið þess að þetta
verði sín síðasta leikför um
heiminn. —- Síðar á leikárinu
Frh. á 10. síðu.
Þessir kappklæddu sjómenn
eru hásetar á austur-þýzka verk
smiðjutogaranum sem sagt var
frá hér í blaðinu í gær. Senni-
lega eru þetta óþægilegar vinnu
flíkur, en hlýjar virðast þær
vera.
íkonat
Á Mokka eru nú til sýnis
og sölu eftirprentanir af
rússneskum helgimyndum
eða íkonum, sem algengir
voru á heimilum áhang-
enda koptisku kirkjunnar
rússnesku, Eftirprentanir
þessar eru gerðar af pólsk
um handverkamönnum og
unnar á sérstakan hátt.
Eftirprentanirnar eru af
myndum, sem gerðar voru
allt frá árinu 1299 og fram
á 17. öld og voru þær gerð
ar af listrænum alþýðs.
mönnum, sem urðu fyrir
áhrifum frá myndlistarverk
um kirkjunnar.
ild til þess að keyptar verði
sænskar Saab herþotur.
Mótmæli í Peking
Um 200 Kínverjar brenndu s.I.
m'iðvikudag myndir af Ian
Smith og Elísabetu Englands-
drottningu fyrir framan aðset
ursstað brezku sendinefndar-
innar í Peking.
HerliS verði aukiS
S.I. fimmtudag tilkynntí Thieu,
fórseti S.-Vietnam að stjórnar
her landsins yrði aukinn um
13500 manns. Verða þá alls
815000 hermenn í stjórninní í
Saigon til ráðstöfunar.
Tala fallinna
Alls hafa nú 20 þúsund stjórn
arhermenn og 314460 skæru-
liðar hafa misst lífið frá 1961
skv. upplýsingum Saigonstjórn
ai'innar í Vietnamstyrjöldinni.
ÞióSnýtiug
Um 50000 einkafyrirtæki á
Kúbu hafa verið þjóðnýtt und
anfarnar 2 vikur og allar vín
stofur og næturklúbbar hafa
verið lokaðir.
Fallnir í Qnang Nam
122 skæruliðar voru drepnir í
gær í Quang Nam héraðinu í
viðureign Bandaríkjamanna og
skæruliða að sögn talsmanna
Bandaríkjanna.
- ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3
23. marz 1968