Alþýðublaðið - 29.03.1968, Blaðsíða 6
i
Júrí Gagarín oiursti í sovézka
llughernum íórst í ílugslysi í
íyrradag, er hann var í
í-eynsluxiugi meo nýja i'lug-
Veiargeio. iisniar maður var
með honum í véiinni og beið
nann einnig Daiia. Gagarín og
iélagi hans verða grafsettir
við múra Kremiar á kostnað
sovézka ríkísins. Nánari fregn
ir um slysiö og tildrög þess
hafa enn ekki verið birtar.
Jun uagurm var óþekklur
ílugmaðui' i xiugher Sovélrikj
anna þegar hann skyndilega
öðlaðist heimsírægð vorið
19U1. Klukkan ö,0/ að morgni
eftir íslenzkum tíma 12. apríl
það ár var fyrsta mannaða
tíeimíarinu skotið á loft í Sov
étríkjunum, og innanborðs í
þessu geimfari var Gagarín.
Hann ílaug einn hring um-
hverfis jörðu og lenti aftur
nákvæmiega 89 mínútum og
6 sekúndum síðar. Segja sam
tímairéttir að Gagarín hafi
strax eftir lendinguna beðið
fyrir kveðjur til kommúnista
floikksins, ríkisstjórnarinnar
og Nikíta Krústjoffs forsætis
ráffiherra og bað úm að honum
yrði persónulega skýrt frá
þvi, að lendingin hefði gengið
vel og hann væri ómeiddur
og við beztu heilsu.
Mikil hátíðahöld. hófust í
Moskvu og annars staðar í
Sovétríkjunum, er fregnirnar
um geimför Gagaríns bárust,
en með þessu afreki höfðu So
vétmenn náð umtalsverðu for
skoti fram yfir Bandaríkja
menn í geimferðatækni.
Var há'tíðahöldunum líkt við
1. maí hátíðahöld, en
aðrir sögðu að meiri, fögnuð
ur hefði ekki ríkt í höfuðborg
Sovétsamveldisins síðan á
frjðardaginn 1945. Mannfjöldi
safnaðist saman á götum úti
og söng þar og dansaði lengi
dags.
í Alþýðublaðinu 13. apríl
1961 er geimför Gagaríns lýst
á þessa leið:
„Dagurinn 12. apríl 1961
varð viðburðaríkur fyrir hinn
27 ára gamla rússneska flug-
majór Júrí Aleksjevitsj Gaga
rín og fjölskyldu hans, eigin
konuna Valentínu, sem er
læknisnemi og börn hans
tvö. Er talið víst að hann
verði útnefndur sovéthetja og
krossaður firnin öll með Len
inorðuna í broddi fylkingar.
Hinn viðburðaríki dagur
var á þessa leið: Mjög snemma
í morgun var hann vakinn af
svefni sínum á eða í grennd
við geimferðastöðina, sem
hann hélt síðar upp frá. Ekki
er vitað hvar hún er í Sovét
ríkjunum, en talið er að hún
sé í grennd við Kaspíahafið.
Tími var nú kominn til að
hann gerði síðustu undirbún-
ingsráðstafanir sínar áffiur en
hin sögiriega ferð hans út í
geiminn hæfist. í hinni að-
skornu ferðaflík gekk hann
út á brottfararstaðinn þar sem
risastórt margþrepa flug-
skeyti stóð. Hann fór í lyítu
ásamt nokkrum helztu vís-
indamönnunum upp að toppi
flaugarinnar, en þar var hann
bundinn niður í sérstakt
hylki með tvöföldum málm
veggjum. Þessir tvöföldu
veggir eru vörn gegn hita-
myndun á ytra borði flug-
skeytisins. Gagarín vissi, þar
sem hann lá niðurbundinn,
að hylkið hafði margsinnis
verið reynt við þau skilyrði,
er það myndi senn mæta úti
í geimnum. Hins vegar vissi
hann ekki hvernig líkami
hins fyrsta geimfara myndi
bregðast við úti í geimnum.
Hann hafði áður verið reynd
ur við öll þau skilyrði,,er tal
ið var að hann myndi mæta
uppi í himinhvolfinu. Engu
að síður stóð hann nú gagn-
vart hinu óþekkta; Nú hafði
verið gengið frá öllu og hann
hafði ekki annað samband við
umheiminn en um loftskeyta
tækin.
Sekúndurnar liðu, hann
fylgdist með mælunum og
skyndilega heyrðist ærandi
hávaði, ofsalegur titringur
flaugarinnar fylgdi og líkami
hans sökk æ dýpra niður í
beðinn. Klukkan var 9.07 eft
ir Moskvutíma, Gagarín tók
eftir því að hjartsláttur hans
örvaðist mjög og andardrátt
ur hans varð þyngri. Skyndi
lega hvarf allur þrýstingur
og likami hans varð þyngdar
laus. Hann var kominn út fyr
ir aðdráttarafl jarðar og á
braut um hana.
Júrí Gagarín er fyrsti mað
urinn, sem getur lýst þyngd
arleysi á ferð um jörðu. Stund
arfjórðungi eftir að för hans
hófst gat hann sent vísinda-
mönnunum fyrstu kveðju
sína: Mér líður vel og allt er
með eðlilegum hætti. Var
hann þá yfir Suður-Ameriku.
Síðar lét hann aftur í sér
heyra: Ég sé jörðina, útsýnið
er gott og ég' heyri vel í ykk
ur. Mér líður vel og öll tæki
eru í lagi, geimfarið vinnur
eins og til er ætlazt. Hann
var yfir Afríku 53 mínútum
síðar og lét þá enn í sér heyra.
Tíu mínútum síðar var tími
kominn til að fara að hugsa
til lendingar, sem ef til vill
var hættulegasti hluti ferðar
innar. Bremsur flaugarinnar
voru settar í gang, hinn mikli
þrýstingur þyngdarinnar kom
aftur í líkama hans, en ekk-
ert gat hann gert næsta hálf
tímann meðan flaugin hægði
á sér. Svo tók hún að halda
til jarðar.
Hann lenti og það varð
Þessar myndir af Gagarín
voru teknar á Keflavíkurflug
velli er hann kom hingað ár-
iffi 1961 á leið sinni til Kúbu.
Ljósm.: S.J.
harður árekslur. Enn mátti
hann svo bíða góða stund, þá
voru dyrnar á hylkinu opnað
ar og hann valt í arma vísinda
manna og tæknifræðinga.
Nýr kapítuli í mannkynssög
unni hafði verið skrifaður".
□
MIKIÐ var látið með Gagarín
eftir hina vel heppnuðu geim
för. Moskvuútvarpið kallaði
hann Kólumbús geimferðar-
aldar og eftír hann hafði
hvílzt og gengizt undir lækn
isskoðun að lokinni geimferð
inni kom hann opinberlega
fram í Moskvu og var þar á-
kaft hylltur bæði af leiðtog
um landsins og almenningi.
Og eins og við hafði verið bú-
izt var hann útnefndur Hetja
Sovétríkjanna, sæmdur Len-
ínorðunni og hækkaður í tign
innan flughersins.
Gagarín fór aldrei nema
þessa einu geimferð, en bins
vegar vann hann mikið við
undirbúning geimferðaráætl-
unar Sovétríkjanna, meðal
annars við þjálfun annarra
geimfara. Gagarín var við-
mótsþýður maður í fram-
göngu og vihsæll, og fyrstu
mánuðina eftir geimferðina
ferðaðist hann víða um tönd
í auglýsingaskyni fyrir Sov-
étríkin. Meðal annars kom
hann hingað til lands sunnu
daginn 23. júlí 1961 á leið
Frh. á 10. síðu.
$ 29. marz 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ