Alþýðublaðið - 05.04.1968, Síða 2
Ritstjórar: Kristján Bersi Ólafsson (áb.) og BenediKt Gröndal. Símar: 14900 —
14903. - Auglýsingasími: 14906. _ Aðsetur: AlþýðuMsiS við Hverfisgötu,
Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Síml 14905. — Áskriftargjald kr.
120,00. - f lausasölu kr. 7,00 eintakið. — Útgefandi: Nýja útgáfufélagið hf.
iGRÆNLAND
f
Sendinefnd frá grænlenzku
lanásstjórninni er stödd hér^á
landi um þessar mundir. Er hér
um atvi’nnumálanefnd að ræð’a,
og mun hún kynna sér íslenzk
atvinnumál, meðan hún dvelst
hér;
Þessi sendinefnd frá Grænlandi
er velkomin til íslands. Sambúð
okkar við þessa næstú nágranna
hefur verið allt of lítil og þarf að
aukast til muna. Nábýlið eitt er
næg ástæða til þess, að gagnkvæm
skipti eigi að vera mikil. Ýms
sameiginleg áhugamál gefa auk
þess ástæðu til gagnkvæmra
skipta, sem gætu orðið báðum að
gagni.
íslendingar hafa sérstakan á-
huga á fornum sögustöðvum á
Grænlandi - rétt eins og þeir
rækja slíka staði í sínu eigin
landi. En það er ekki síður for-
vitnilegt að kynnast núverandi
íbúum Grænlands, menningu
þeirra og lífsbaráttu.
Á einu sviði ættu íslendingar
og Grænlendingar nú þegar að
undirbúa víðtækt samstarf. Það
eru ferðamál. Sá tími er ekki
fjarri, er Grænland og fsland
gætu sa/meiginlegá, orðið m,ikið
ferðamannasvæði, og mundi auð
veldara að lokka fólk til ferða
ef bæði' löndin væru saman. Hér
er um að rseða svo mikla tekju-
möguleika, að leggja verður á-
herzlu á að koma á nánu sam-
bandi til að nýta þá.
íslendingar þurfa að leggja
meiri áherzlu á margvíslegt sam
starf við Grænlendinga. Slíkt sam
starf getur orðið báðum aðilum
til góðs.
KANADA
Handan við Grænland er Kan-
ada næsti nágranni íslendinga í
vestri. Þar býr hundrað sinnum
stærri þjóð en íslendingar í
hundrað sinnum stærra landi - og
þykir strjálbýlt, sérstaklega norð
urhéruðin. En þar bíður fram-
tíðin.
Íslendingar hafa haft margvís
legt samneyti við Kanadamenn,
sérstaklega vegna þess fjölda
fólks af íslenzkum . ættum, sem
býr þar í landi. En ástæða væri
til að auka samskipti við kana-
disku þjóðina, bæði á sviði við-
skipfca og menningar. Er góður
grundvöllur fyrir því, þar eð ís-
lendingar njóta án efa hvergi
eins mikils álits og í Kanada.
Það er landnemunum og afkom-
endum þeirra fyrir að þákka, og
getur enginn fullmetið þennan
hlýhug, sem ekki hefur fundið
hann af eigin raun.
Grundvaliarskilyrði fyrir
auknum samskiptum íslands og
Kanada eru beinar samgöngur
milli landanna. Væri sannarlega
ástæða til þess, að það mál yrði
rannsakað ítarlega. Kanadamenn
eru göfug þjóð og mundi sam-
neyti við þá gefca orðið íslend-
ingum til mikils góðs.
Um 170 íslendingar fara til
sólarlanda um páskana
Þrátt fyrir minni fjárráð hjá almenningi ætlar fólk
að spara eitthvað annað en ferðalög til útlanda. Hjá
Sunnu og Útsýn er þátttaka góð, en aðrar ferða-
skrifstofur eru ekki með sérstakar páskaferðir til
útlanda að þessu sinni.
Sunna
Þar er ekki hægt að gera
öllu belur í sambandi við
páskaferðir, fullbókað er í
tvær ferðir. í annarri ferðinni
er dvalið 14 daga á Mallorea
og 2 daga á heimleið í Lond.on.
Lagt er af stað í þá ferð n.k.
miðvikudagskvöld. Þessi ferð
er upphafið á föstum ferðum
sumarsins. í hinni ferðinni er
dvalið vikutíma á Mallorca og
viku á Kanaríeyjum og kom
ið við í London á heimleið.
Alls fara 120 manns í þessar
ferðir.
Eg spurði Guðna Þórðar-
son, forsljóra Sunnu, hvort
versnandi lífskjör almennings
hefðu teljandi áhrif á ferðalög
sumarsins og svaraði hann því
til, að svo virtist sem fólk hug
leiddi betur hvernig hagkvæm
ast væri að ferðast og bókar
sig því í ódýrustu hópferðirn-
ar; hagar sér sem sagt eins og
túristar annarra landa hafa
gert um árabil. Þesar ferðir
kosta frá u. m. þ. b. 10 þús-
und krónum, en venjulegt flug
far til Mallorca og heim aftur
myndi kosta 18.240 krónur.
í ár fara heldur fleiri með
S”nnu í páskaferðir en í
fyrra, og ekki er að sjá annað
en sumarið lofi góðu.
Útsýn
Farþegar í páskaferðinni
munu sóla sig á Cosla del Sol
á Spáni. Þátttaka er góð,
milli 40-50 manns taka sér 17
daga frí og þeir koma einnig
við í London á heimleiðinni.
Útsýn býður upp á fyrsta
flokks hótel og kosta ferðirn-
ar frá kr. 16.900 til um 20 þús
und krónur eftir gseði hótel-
anna.
— Það er helzt til snemmt
að spá um sumarið, sagði Ing-
ólfur GuðbrandssOn, en við
verðum ekki varir við sam-
drátt. Aftur á móti reynir
fjölskyldufólk að komast í
sem ódýrastar ferðir, og gef-
ur sér því góðan tíma til að
komast að sem beztum kjör-
FERÐA~
MAL
um. Þeir sem fara í hópferðir
fá 50 punda yfirfærslu, — en
fengu 110 pund í fyrra. Þeir
sem greiða sjálfir uppihald
ytra fá 80 pund.
— Verðlag á Spáni er mjög
stöðugt, sagði Ingólfur, og við
bjóðum mjög gott úrval ferða-
þangað — til Costa Brava,
Mallorcka, Benidorm og Costa
del Sol. Farþegum í póskaferð-
inni gefst kostur á ferðum til
Afríku, Granada, Andalúsíu
og fleiri staða. Um helgina eru
allra síðustu forvöð að bóka
sig í Spánarferð með Útsýn.
Saga
Að þessu sinni er ekki um
að ræða neina páskaferð tii
útlanda, heldur snýr ferða-
skrifstofan sér að þjónustu í
sambandi við Skíðamótið á Ak
ureyri um páskana. Skrifstof-
an býður ferðir fram og til
baka með gistingu á Hóte’
KEA fyrir 3.500 — 3.900 krónur
fyrir 5 daga dvöl og verður
það að teljast ódýrt miðað við
ferðalagakostnað innanlands.
Fólk er talsvert farið að
spyrja eftir ferðum sumars-
ins og virðist aðaláhuginn
vera á ferðum til Spánar og
Framhald á 14. siðu.
Bréfa—
IKASSINN
Um vei'ð-
hækkun lyfja
Eitt er þatf meðal, er ég
samkvæmt læknisráði hefi nofc
að í 8 ár. Síðast keypti ég eina
dós af ,,Senokot“ — en svo
heitir lyf þetta — fyrir kr 28
en nú nýlega keyþti ég eina
1 dós og kostaði hún þá 39 kr.
Ég held ég hafi lesið í opin-
hti’u málgagni að meðul mættu
hækka um 20%, en hér er
hækkunin um 40%. Ég beini
þeirri spurningu til þeirra
sem eiga að sjá um verðlag
lyfja, hverju þessi verðhækk-
un sæti, eða hafa þá öll með-
ul hækkað um 40% ?
Ég nota gervisykur í stað
venjulegs sykurs, einnig að
læknisráði. Kaupi ég dósirnar
ýmist hér heima e'ða úti í Dan
mörku. 500 töflur í dós kost-
uðu s.l. sumar út í Kaupmanna
höfn ca. 10-11 kr. ísl., en fyr
ir nokkrum misserum keypti
ég samskonar dósir hér heima
fyrir 28 til 33 kr. dýrast.
Sjálfsagt kostar þetta mikið
meira nú í apótekum. Allir
sykursjúkir — og þeir eru lík
lega nú nokkuð margir, lík-
lega tíundi hver eldri maður
— þurfa að nota gervísykur
og væri nauðsynlegt að setja
þetta Iyf, því lyf er það, undir
verðlagseftirlit, og reyna að
hefta þetta okur.
Þetta eru mín kynni —
þau helztu af viðskiptum við
apótek, og ekki get ég sagt
að þau séu glæsileg.
Öldungur.
Jl IIIIIIIII IKNIItll III11111111111111II llltl II llll II11111111111| IIIIK
I MATUR
[ OG MJÓLK I
i SAMKVÆMT upplýsingum í \
i nýútkomnu hefti Frjálsrar |
| vtTzlunar voru um það bil 1
1 533 íbúar á hverja matvöru- f
i verzlun, en um það bil 1095 |
= íbúar á hvern mjólkursölu- |
i stað í Reykjavík hinn 1. des- I
i vissulega athyglisverðar töl- |
1 ember síðastliðinn. Eru þetta i
i ur. 1
................... in ii 111111111111111111,,,, ,1,,,,,,^
£ 5. apr/l 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ