Alþýðublaðið - 05.04.1968, Blaðsíða 4
;
■ •fllll>M>MfllMMfllllflf|llll||lll|||l||||IM|Íll||||IM(l|||U||||||||||||||||||||UIIIII(Mlllllllltll|l 1111II IffllUIUUfflUUUIf III tMff lllllf I Ullff lllf Itll III11111 U f I llf II11 If II llf f • >11M11II1111111 If f MM'
I NANCY SINATRA OG BRÚÐGUMINN |
Kaþólskum prestum fjölgar
- guðfræðistúdentum fækkar
□ í ársskýrslu Vatikansins
segir að árið 1966 hafi kaþólikk
ar verið 485 milljónir og hafi
þeim fjölgað um 5,5 milljónir
frá árinu 1964.
Fjöldi kaþólskra presta var
351.624 árið 1966 og hafði þeim
þá fjölgað um 5000 á tveimur
árum. Guðfrœðistúdentum fækk
aði aftur á móti á þessum tveim
ur árum um 1100 og voru þeir
25.000 árið 1966. Heimspeki-
stúdentum fækkaði um 200 á
þessum tíma.
Biskupsdæmi voru 1225 árið
1966 og hafði fjölgað um 13.
Meðal annars sem fram kem
ur í skýrslu Vatikansins er að
páfi hélt hvorki meira né minna
en 284 ræður á síðasta ári.
eldrar hans, Beatrix prinsessa
og Claus prins ýttu á undan sér
milli snæviþakinno trjánna og
þá var nú gaman að lifa, En
amma gamla Júlíana drottning,
vildi ekki verða eftirbátur ann
arra í skíðaíþróttinni eins og
sjá má á meðfylgjandi mynd, en
eitthvað virðist nú litli prins-
inn tortrygginn á svipinn, þar
sem hann horfir á ömmu sína
bruna af stað.
Nú hafa þær fregnir borizt
frá Haag að Willem litli Alek-
ander verði ekki einkabam
nema til hausts, en þá fái hann
systur eða bróður.
„Falskur vinur er eins og
skugginn. Meðan sólin skín og
allt leikur í lyndi er ómögulegt
að losna við hann en um leið
og dimmir yfir hverfur hann
sporlaust.”
Kóngafólk
í snjó
□ Willem Alexander, verð-
andi Hollandskonungur, er orð
inn mesti myndarpiltur, enda
er hann nú að verða ársgamall.
Eins og hefðarfólki sæmir, fór
hann í skíðaferð til Austurríkis
fyrir skömmu, og stóð sig eins
og hetja þótt ekki spreytti hann
sig á skíðaíþróttinni í þetta
skiptið. Aftur á móti fékk hann
forkunnarfínan sleða, sem for
R IDGESTONE
□ Þegar nafn Nancy Sinatra er nefnt dett
ur víst flestum aðeins ein Nancy í huga, sú í
stígvélunum. En það er til önnur Nancy Sinatra
og hún er enginn önnur en móðir stígvéluðu
Nancy og fyrrverandi eiginkona Frank Sinatra.
Nú er það af henni að frétta að hún hefur tek-
ið hjónabandstilboði kvikmyndaframleiðandans
Ross Hunter. Síðast þegar fréttist kvaðst hún
þó ekki vilja gifta sig fyrr en öll börn hennar
væru búin að koma sér vel fyrir, því að þeirra
hamingja yrði að ganga fyrir hennar eigin ham
ingju. Hér sjáum við hjónaefnin og ber ekki. á
öðru en þau séu „yfirmáta ástfangin".
HEYRT &
m
SEÐ
Elísabet nægir
□ Pilturinn á myndinni heit
ir Sean og er sonur leikarans
Erijol Flynn. Þessi mynd var
tekin á Lundúnaflugvelli fyrjr
nokkru og er unga síúlkan sem
var í fylgd með Sean var spurð
nafns vildi hún ekki láta það
uppi en Sean svaraði ljósmynd
urunum: „Kallið hana bara
Elísabetu - það nægir“.
□ En hvað’ hún er virðuleg
þessi roskna dama á myndinni.
Hver skyldi hún vera? Jú, á
fjölum eins af le'ikhúsum Lund
úna nefnist hún frú Artminst-
er og á hcima í leikriiinu „Wice
Child“, en utan leikhússins er
hún engrin önnur en liann Alec
Guiness.
gandarískar jurtaætur, sem
ekki hafa viljað setja
dýrafitú inn fyrir sínar varir,
geta nú á ný drukkið mjólk -
mjólk, sem bragðast alveg eins
og kúamjólk en er unnin úr
jurtum. Hefur framleiðsla
jurtamjólkurinnar farið vax-
andi í Bandaríkjunum undan
farið og er nú svo komið að
(kúa) mjólkurframleiðendur
eru orðnir alvarlega hræddir
um að jurtamjólkin kunni að
kippa stoðunum undan atvinnu
vegi þeirra. í Ariznafylki er
jurtamjólkursalan um 4% af
allri mjólkursölu og jókst sal
an þrefalt á síðasta ári.
Fjölmargar drykkjategundir
hafa verið framleiddar með
það fyrir augum að koma í
stað kúamjólkur, en jurtamjólk
in er sú eina, sem virðist eiga
framtíð fyrir sér.
Ein aðalástæðan fyrir bví að
eftirspurnin eftir jurtamjólk
inni hefur orðið þetta mikil.
og fer stöðugt vaxandi, er sú
að jurtamjólkin er ódvrari en
kúamjólkin. Jurtamjólkin hef
ur einnig þann kost (sumir
kalla það ef til vill ókost) að
hún inniheldur mun færri hita
einingar en kúamjólk, en hita
einingar eru einn versti ó-
vinur bandarískra liúsmæðra
og þótt víðar væri leitað.
Neyzla dýrafitu hefur minnk
Jurtamjólk
í stað
kúamjólkur
á sama tíma og smjörát hefur
minnkað um 40%, þannig að
þeir sem hneigjast að jurta-
fitu taka jurtamjólkinni fegins
hendi.
að stórum í Bandaríkjunum á
undanförnum árum og hefur
smjörlíkisát aukizt um 60%
í sambandi við framleiðslu
jurtamjólkurinnar þarf ekki að
óttast gerla að því er fram-
leiðendur segja. Fitulaus þurr
mjólk er leyst upp í vatni og
jurtaolía og fleiri efni sett
út í. Það verður að halda jurta
mjólkinni vel kældri, bæði
meðan á framleiðslu stend-
ur og eftir að hún er komin
í verzlanir. Jurtamjólkin á að
geta geymzt í allt að þrjár
vikur.
Mjólkurframleiðendur í Banda
ríkjunum eru þegar farnir að
kvíða því, sem þessi þróun
kann að hafa í för með sér.
Að vísu þanna tvö af hverj
um þremur rík.ium í Banda-
ríkjanna framleiðslu og dreif
ingu gervimjólkur. en óttast er
að breyting geti orðið á þeim
lögum. Framleiðslukostnaður
mjólkur vex stöðugt og bænd
urnir þurfa hærra verð fyrir
afurðir sínar til þess áð íram
leiðslan standi undir sér, og
því bíða þeir kvíðafullir beirra
ákvarðana sem landbúnaðar-
yfirvöld llika í sambandi við
framleiðslu jurtamjólkurinn-
4 5. apríl 1968 —■
ALÞÝÐUBLAÐIÐ