Alþýðublaðið - 25.05.1968, Blaðsíða 1
35% sjónvarpsefnis
er nú orðið innlent
DAGSKRÁ Sjónvarpsins mán-
uðina janúar til apríl skiptist
þannig, að 35,3% cfnisins var
innlend/ en 64,7% erlent. Þeg-
ar þess er gœtt, að allmikill
hluti erlenda efnisins er með
íslenzku tali, verður efni á' ís-
lenzku um eða yfir 50%.
Þetta verður að telja mjög
gott hlutfall miðað við þá að-
stöðu, sem íslenzka sjónvarpið
býr við, takmarkaðan starfs-
mannahóp, og einn sjónvarps-
sai. Ekki eru líkur á, að unnt
verði að bæta þessa aðstöðu að
marki á næstunni, og veldur því
mikill kostnaður. Verður því að
gera ráð fyrir, að meginskipting
dagskrárinnar iverði um sinn.
eitthvað svipuð því, sem verið
hcfur á þessu ári.
Langmest af hinu erlenda
efni kemur frá' Bretlandi, en
þarnæst frá Bandaríkjunum. —
Þessi tvö lönd ráða ríkjum á
heimsmarkaði fyrir sjónvarps-
efni, bjóða, langmest og með
beztum kjörum. Næst koma
Norðurlöndin, ef þau eru t'ek-
in öll saman í „Nordvision,”
með 13.44%. Þau eru sundur-
greind í skýrslunni. Þarnæst er
Frakkland, sem hefur lágt ,sig
mjög fram um að bjóða sjón-
varpsefni. Merkilegast við töfl-
una er raunar, hve Þýzkaland
er lágt með aðeins 0,89%. Pól-
land, Tékkóslóvakía og Sovét-
ríkin verða líklega með held-
ur vaxandi tölu í framtíðinni.
Sérstakt efni eins og ólymp-
ísku vetrarleikirnir og brezka
knattspy.rnan liafa að sjálf-
sögðu veruleg áhrif á skýrslu
sem þessa, þegar mikið magn
af svipuðu efni er sfent út.
DAGSKRÁ SJÓNVARPSINS
SKIPTIST ÞANNIG :
Mín. %
Erlent efni .... 14.984 64.70
Innl. efni .... 8.175 35.30
Samtals : .... 28.159 100,00
hérlendis
Lönd Mín. %
England .... .. 5.749 38.37
U. S. A .. 4.382 29.24
Frakkland .... . . 1.796 11.99
Danmörk .... 685 4.57
Svíþjóð .... . . 651 4.34
Kanada 441 2.94
Noregur . .. . 388 2.59
Finnland .... 291 1.94
Rússland .... . . 159 1.06
Pólland .... 156 1.04
Þýzkaland .... 134 0.89
Tékkóslóvakía 79 0.54
Ítalía 49 0.33
Austurríki 24 0.16
Samtals . 14.984 100.00
Efni: Mín. %
Erlent .... 12.656 54.65
Innlent .. .. 4.839 20.89
Fréttir . . . . 2.696 11.64
íþróttir 2.968 12.82
Samtals . . . 23.159 100.00