Alþýðublaðið - 01.06.1968, Síða 2

Alþýðublaðið - 01.06.1968, Síða 2
I m ^GOJCtaOŒC^SÍM) Ritstjórar: Kristján Becsi Ólafsson (áb.) og BenediKt Gröndal. Símar: 14900 — 14903. — Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Sími 14905. — Áskriftargjald kr. 120,00. — í lausasölu kr. 7,00 eintakið. — Útgefandi: Nýja útgáfufélagið - hf. f FRAKKLAND Frakkland er nú sýnilega á barmi byltingar. Ríkisstjórnin hefur reynt að ná samkomulagi við; verkalýðshreyfinguna og taka gætilega á stúdentum til þess að ekki sjóði uppúr og verri átök hefjist en verið hafa. Þessi gæfni virði'st þó ekki ætla að befa tilætlaðan árangur. Verka- menn sinna ekki því samkomu- lagi, er foringjar þeirra hafa gert við ríkisstjórnina og halda áfram 'verkföllum. Innanlandsfriður var mjög ó- tryggur í Frakklandi allt frá lok um heimsstyrjaldar til valdatöku de Gaulles. Voru verkföll og upp þot tíð og jaðraði við enn meiri átök. Óttuðust margir, að komm únistar myndu fyrr eða síðar not færa sér þetta ástand og koma af stað byltingu, enda voru þeir og eru mjög sterkir. Svo fór þó ekki. Síðasta áratug hefur þetta á- stand verið _ gerbreytt undir stjórn de Gaulles. Ýmsir hafa dregið í efa, að kalla mætti Frakk land hreint lýðræðisríki, þar sem stjórn de Gaulles hefur tryggt sér mikið vald og beitt því ó- spart. Sem dæml má nefna franska útvarpið og sjónvarpið, sem hefur verið tæki í höndum stjórnarherranna. Myndir af stúd entauppþotum í París voru sýnd ar í íslenzka sjónvarpinu og um 'allan heim, en mjög lítið sást af þeim í franska sjónvarpinu sjálfu. Hafa starfsmenn sjónvarpsins í París nú hafið gagnsókn og krefj ast þess, að fréttaflutningur verði gefinn frjáls. Fyrr eða síðar hlaut iað fara svo, að franska þjóðin risi gegn hinum einræðiskenndari þætti í stjórnarfari de Gaulles. Þetta hef ur nú gerzt og ekki séð fyrir end- ann á þeim atburðum. Stúdentar við hinn fornfálega Svartaskóla kveiktu eldinn, en verkalýðurinn hefur borið kyndla um gervallt landið. Úrelt háskólaskipulag og þröng- ur efnahagur verkaíólks hafa haft áhrif á gang mál'a, en barátta gegn stjórn de Gaulles er þó án efa aðaiástæðan fyrir því upp- reisnarástandi, sem ríkir. Þetta skilur de Gaulle og þess vegna efnir hann til kosninga. Hann treystir á íhaldssemi sveitafólks- ins og ótta margra Fralcka við kommúnistíska byltingu, og ger- ir sér þannig vonir um meiri- hluta. Skal á þessu stigi engu um það spáð, hvort þær vonir for- setans rætast. Frakklandsforseti getur tekið sér ei'nræðisvald í l'andinu, og hann hefur sennilega herinn að baki sér. Hins vegar má de Gaulle ekki beita hernum fyrr en í fulla hnefana, það gæti aukið upplausn ina í landinu og hleypt 'af stað þeirri borgarastyrjöld, sem flest- ir vildu forðast. Stuðningsmenn GUNNARS THORODDSENS efna til almenns fundar í Stykkishólmsbíói, STYKKISHÓLMI, þriðjudaginn 4. júní kl, 20.30. Gunnar Thoroddsen og kona lians koma á fundinn. . Stuðningsmenn GUNNARS THORODDSENS efna til almenns fundar í Röst, HELLISSANDI, miðvikudaginn 5. júní kl^ 20.30. Gunnar Thoroddsen og kona hans koma á fundinn 2 1. júní 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ mammmmmm filRCð BELTI og BELTAH LUTIR ABELTAVÉLAR Keðjur Spyrnur Framhjói Bofnrúílur Topprúllur Drifhjól Bolfar og Rær jafnan fyrirliggjandi BERCO ér úrvals gæðavara ó hagsfæðu verði EINKAUMBOÐ ALMENNA VERZLUNARFÉLAGIÐf SKIPHOLT 15 — SÍMI 10199 Bréfa—• KASSBNN Hugleilngar um hvítasunnu. NÚ FER í hönd ein af þremur stórhátíðum kristinna manna, hvítasunnan, samnefnd hátíð oss íslendingum í fleiri en ein- um skilningi. — Hún boðar oss hækkandi sól, livíta sól og bjart sumar. Er oss sannarlega ekki vanþörf ó' góðu sumri með tilliti til hins myx-ka og snjóa- þunga vetrar, er nii hefur kvatt. Þá yrðu og ýmsir sorgaratburð- ir á innlendum og erlendurri vettvangi til að gei'a oss þennan vetur enn myrkai'i og lengri en ella, og er óþarft að rekja þá hér. Hvítasunnuhelgin er löng helgi og góð. Gefst mönnum þá vonandi tækifæri til að létta heimdraganum, stíga upp í bif- reiðar sínar og þeysa um í h-umferð með konur, börn og kunningja — eða þá slappa bara af, láta sér líða í brjóst og dreyma sig burt frá daganna amstri. Verði gott veður, er ekki að efa, að þjóðvegir verða þéttsetnir bílum og skyldi þá enginn gleyma að gá að sér í samræmi við breytta ökuhætti. Og þá er ekki annað eftir en að óska mönnum ánægjulegrar hátíðar og vænta að hver og einn noti hana á sem hagkvæm- astan hátt. Alltof margir góðir dagar fara í súginn hjá oss á! ári hverju af margvíslegum á- stæðum — dýrmætur tími aí skammri ævi. Vér lifum á tím- um hraða og anna. Slíkt skapar nauðsyn á næðisstundum, vín- lausum flótta frá hversdagsleík- anum. Eyðileggið nú ekki ykkar hvítasunnuhelgi og annarra meS fylliríisför í einhvern Þjórsár- dalinn! „Hvítasunnumaður.” Apótekarinn eftir Joseph Haydn. • ; Einnig atriði úr j Ráðskonuríki, Fidelio og La traviata. Stjórnandi Ragnar Björnsson. Leikstj. EyVindur Erlendsson. FRUMSÝNING í Tjarnarbæ þiiðjudaginn 4. júní ki 20.30. Aðgöngiímiðasala í Tjarnarbæ laugardag og þriðjudag frá kl. 5—7. Sími 15171. Aðeins fjórar. sýningar.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.