Alþýðublaðið - 01.06.1968, Page 3

Alþýðublaðið - 01.06.1968, Page 3
7/2 skammbyssur hjá lögreglunni Árangur herferðarinnar mjög góður Sýni.-horn af' byssum, sem lögreglunni hafa borizt. Ákveðið hefur verið að le'ngja þann frest, sem hand- höfum ólöglegra skotvopna var gefinn fyrir skömmu til að skila þeim til lögreglu eða fá þáu skráð, til 15. júní næst- ' komandi. Bjarki Elíasson tjáði frétta- mönnum á fundi í gær, að alls hafi lögreglunni borizt 112 skammbyssur, síðan tilkynn- ing Dómsmálaráðuneytisins ' um tafarlausa afhendingu ólög 1 legra skotvopna til viðkom- andi lögregluyfirvalda vai' bort. Þá hafa einnig borizt fjór ar vélbyssur, sém gerðar hafa verið upptækar. Tvær þeirra höfðu borizt lögreglunn nokkr I um dögum áður en tilkynning Dómsmálaráðuneytisins kom til sögunnar. |V, ' • Bjarki kvað alls hafa verið gefin út 385 leyfi fyrir rifflum og haglabyssum, síðan frestur- inn var gefinn. Eins og skýrt var frá í blaðinu fyrir nokkru síðan, þá gaf dóms- málaráðuneytið út tilkynningu þess efnis, að handhöfum skot- vopna, sem ekki eru á skrá lög- regluyfirvalda, eða ef viðkom- andi hefur ekki byssuleyfi, beri skilyrðislaust að skila vopnun- um til lögregluyfirvalda, sem annað hvort gerir þau upptæk eða gefur leyfi fyrir þeim. Bjarki Elíasson yfirlögreglu- þjónn, sem hefur með að gera veitingu byssuleyfa og skrán- ingu skotvopna fyrir hönd lög- reglunnar í Reykjavik, kvað ó- löglegum byssum hafa rignt til lögreglunnar allan tímann, síðan þessi tilkynning dómsmálaráðu- neytisins var birt. Síðustu daga hafi allmargir handhafar ólög- legra skotvopna farið þess á leit, að þeir mættu koma með vöpnin eft.ir helgi, þar sem þeir gætu ekki komið því við fyrr. Því hafi orðið að ráði, að dóms- málaráðuneytið framlengdi frestinn, sem mönnum var gef- inn til að skila vopnunum án þess að viðkomandi verði sóttur til saka fyrir að hafa í fórum sínum óskráð vopn. Ásgeir Thoroddsen fulltrúi í dómsmálaráðuneytinu _ skýrði fréttamönnum frá því, að víða úti um land haff lögregluyfir- völdum borizt talsvert af ólög- legum skotvopnum og tók sem dæmi nokkra staði. Þannig hafi lögreglunni í Hafnarfirði bor- izt fimm skammbyssur og sjö rifflar. Þá hafi verið tilkynnt um tvö vopnasöfn í Hafnarfirði, en enn væri ekki búið að ákveða, hvað yrði gert við þau. í Kópa- vogi hafi safnast þrjár skamm- byssur og tvær vélbyssur, í Kefla vík hafi lögreglunni borizt ein skammbyssa og á Akureyri átta skammbyssur. Ásgeir kvað heimildina fyrir framlengingu -á frestinum til afhendingar ólöglegra skot- vopna hafa verið ákveðna í sam- ráði við saksóknara ríkisins. Þá upplýsti Ásgeir Thorodd- sen fulltrúi í dómsmálaráðu- neytinu, að í undirbúningi væri breyting og samræming á reglu gerðinni um innflutning, sölu og meðferð á skotvopnum enda væri reglugerðin, sem nú væri í gildi um þessi efni, orðin göm- ul og úr sér gengin. Þá væri sums staðar á landinu ósam- ræmi í framkvæmd reglugerðar innar, þannig, að lágmarksaldur þeirra sem leyfi fengju til að meðhöndla skotvopn væri 16 ár í staðinn fyrir 21 ár. Bjarki Elíasson kvað allmarga þeirra, sem skilað hafi rifflum og haglabyssum til lögreglunnar undanfarnar vikur, ekki hafa fengið byssuleyfi og vopnin því Framhald n 10. síðu. Hafsteinn Baldvinsson, starfs- maður Framkvæmdanefndar hægri umferðar skýrði frá því á fundi með fréttamönnum í gær, að gerðar hafi verið athug- anir á því, hvernig hinum ýmsu sérleyfishöfum hafi gengið að halda áætlun síðan hægri um- ferð tók gildi og hraðatakmark- anir voru settar á. Samkvæmt upplýsingum frá Bifreiðastöð íslands hefur sér- leyfishöfum gengið vel að halda áætlun. Tímamismunur á leið- inni Stykkishólmur — Reykja- vík hefur verið um það bil 45 mínútur og á leiðinni Reykja- vík — Hvolsvöllur um það bil ein klukkustund. Landleiðir, sem reka strætis- vagna Hafnarfjarðar, hafa not- að aukavagn á mestu annatím- unum. Að öðru leyti mun áæíl- r un Hafnarfjarðarvagnanna liafa gengið vel. Mjólkurflutningar virðast hafa gengið alveg eðlilega, þrátt fyrir hraðatakmarkanirnar, en vegir hafa verið slæmir á félags- íþróttanámsskeið fyrir börn og unglinga verða haldin eins og undanfarin ár víðs vegar um Reykjavík í júnímánuði. Verða þau á 8 stöðum, Ármannsvelli, KR-velli, við Austurbæjarskól- ann, á Víkingsvelli, gamla Golf- vellinum við Hvassaleiti, Rofa- bæ, og við Álfheimana. svæði Mjólkursamlags KEA á Akureyri. Áætlanir Strætisvagna Kópa- vogs hafa staðist áætlanir í að- alatriðum. Aka þeir færri ferðir Framhald 10. síðu. Námsskeiðin hefjast fimmtu- daginn 6. júní næstk. Á hverjum stað verða 2—3 íþróttakennarar, sem leiðbeina börnum á aldrinum 5 — 9 ára fy.rir hádegi kl. 9,30— 11,30 og börnum 9 — 12 ára eftir hádegi kl. 14—16. Skráning fer fram á hverjum stað og þátttökugjald er kr 25, Iþróttanámskeið fyrir unglinga Leioln liggur r a Snæfellsnes Búizt er við mikilli um- ferð á þjóðvegunum um hvítasunnuhelgina. Gert er ráð fyrir að fólk ferðizt mik- ið á eigin spýtur, en vitað er um 4 ferðahópa sem leggja land undir fót. Er þátttaka góð í öllum ferðunum. Verða þær allar á -Snæfellsnes, á vegum Ferðafélags íslands, Farfugla, Guðmundar Jónas- sonar og Litla ferðaklúbbs- ins. Nokkrir hópar ætluðu í Þórsmörk, en leiðir þangað er nú ófær. NYTT A ÍSLANDI Framleitt af Guðmundi Bjarnasyni með einkaleyfi A M B Oil Corp. II. S. A. Innihald flöskunnar er hæfilegt á móti 3 1. af smurolíu og eykur það smur- hæfni og endingu olíunnar um ea. 10%. • * AMB er ekki nýtt efni, en eftir margra I ára tilraunir og endurbætur má segja að fullkominn árangur hafi náðst. — A M B gerir ekki kraftaverk á ónýtri j vél, en regluleg notkun eykur mjög endingu vélarinnar og lækkar þar af leiðandi stórlega reksturskostnað bif- j reiðarinnar. 1. júní 1968 - ALÞÝÐUBLADIÐ J í i '

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.