Alþýðublaðið - 22.06.1968, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 22.06.1968, Blaðsíða 3
Slysafjöldi telst „eglilegur”, 81 slys í þriðju viku H-umferðar Framkvæmdanefnd hægri um- ferðar hefur safnað saman upp- lýsingum í lögsagnarumdæmum landsins um umferðarslys, sem þar urðu þriðju vikuna sem hægri umferð var í giidi. Er þá átt við umferðarslys, sem lög- reglumenn gerðu skýrslur um. í vikunni urðu 68 umferðar- slys á vegum í þéttbýli en 13 á vegum í dreifbýli, alls 81 slys. Af þeim urðu 47 í Reykjavík. Samkvæmt reynslu frá 1966 og 1967 eru 90% líkur á því, að slysatalan í þétbýli sé á milli 58 og 92 en í dreifbýli milli 10 og 32. Slysatölurnar í þriðju vik- unni (68 og 13) eru þá milli vik marka. Eru þær því á £ann veg, sem búast hefði mátt við, ef um ferðarbreytingin hefði ekki átt sér stað. Urðu 29 umferðarslys öku- tækja á vegamótum í þéttbýli. Vikmörk fyrir þess háttar slys eru 11 og 33. Slysaíalan er því milli vikmarkanna. Á vegum í dreifbýli urðu 9 um ferðarslys við það að bifreiðir ætl uðu að mætast. Vikmörk fyrir þá' tegund slysa eru 0 og 9. Slysatal an fer því ekki upp fyrir mörk- in. Alls urðu 8 umferðarslys þar sem menn urðu fyrir meiðslum. Meiddust 9 rnenn. Af þeim voru 3 ökumenn, 2 farþegar, 3 hjól- reiðamenn og 1 gangandi mað- ur. Samkvæmt reynslu frá árinu 1967 eru 90% líkur á því, að á umferðarslys á landinu, þar sem viku hverri verði milli 3 og 14 einn eða fleiri menn meiðast, ef umferðarástand héldist óbreytt frá því sem þá var. Slík slys urðu nú átta. Slysatölur, sem hér hafa ver ið nefndar, eru því allar á þann veg, sem búast hefðí mátt við, þótt hægri umferð hefði ekki ver ið tekin upp hér á landi. HÉR VÁNTAR UÐSINNI KARLMANNA í BARÁTTU KVENRÉTTINDASAMTAKA Byrjað oð rífa Sundlaugarnar Nú er fiinm manana flokkur und'ir stjórn Sigurjóns Kjart- anssonar byrjaffur aff' rífa nið ur húsakynnin í gömlu Sund laugrunum. Áætlaff er aff verk iff muni taka um hálfan mán uff. Innviffir eru nýtilegir en gólf fúin. í stuttu spjalli v'iff Alþýðublaðiff kvaffst Sigurjón alvanur að rífa gömul hús - hefffi m.a. rififf gamla Landa kotsspitalann og hótel Heklu. Hann hóf þessa iffju í striffs- Iokin með því aff rífa brágga, og þá hefffi hungriff í bygg’ing arefni veriff slíkt aff kaupcnd ur hefffu næstum rififf jafnóð um hverja spýtu sem losnaði. Nú er aftur á móti ekki gefiff aff tímbrið úr Sundlaugarhús inu gangi strax út. Vinnuflokkur frá bænum mun brjóta niffur veggi sund laugartnnar og síffan kemur vegavinnuflckkur og leggur Framhald á bls. 10. Dagana 12-16. júní var 12. fundur norrænna kvenréttinda- félaga haldinn á íslandi. í til- efin að því var kallað til blaða- mannafundar, þar sem meðal við staddra voru frú Lára. Sigur- björnsdóttir, formaður Kvenrétt- indasambands íslands, og tvær danskar athafnakonur, sem taka virkan þátt í dönsku kvenrétt- indastarfi. Önnur þeirra heitir Mette Groes, og er hún félags- ráðgjafi á dönsku sjúkrahúsi. Nokkrir íslendingar liafa verið meðal nemenda hennar. Báðar létu þær vel yfir dvöl sinni hér og sögðust hafa ferðazt Umikið ura, m. a. til Mývatns. Er þær voru spurðar um helzta mun á starfi dönsku og íslenzku kven- réttindasamtakanna, tóku þær einkum til þess, að hér störfuðu engir karlmenn í hreyfingunni, en tækju aftur á móti talsverðan þátt í henni í Danmörku. Þær voru spurðar, hvort dansk ar konur hefðu í frammi róttæk ar aðgerðir til að koma málum sínum fram, líkt og franskir stú dentar. Þær kváðu það ekki hafa verið reynt ennþá, en væri at- hugandi, bætti frú Groes við og brosti. Þeirra baráttuleiðir væru helztar alls kyns samþykktir og undirskriftir, líkt og hér. Að lokum varð það uppvíst, að frú Láta Sigurbjörnsdóttir liafði boðað á sinn fund nokkrar ung ar, íslenzkar konur þá síðar um daginn til skrafs og ráðagerð um, hvernig lielzt megi fá ungt fólk til að taka sem virkastan þátt í starfi Kvenréítindafélags íslands, og þá auðvitað jafnt karl menn sem konur. Læknar á ráðstefnu um málefni heyrnardaufra A fimmtudag hófst í Reykjavík affalfundur „Nordisk Audiologisk Selskap“, sem eru samtök ýmissa félaga á Norffurlöndum, sem vinna aff málefnum heyrnardaufra. Fimmtán erlendir fulltrúar sitja fundinn, fulltrúar félags háls-, nef- og eymalækna, fulltrúar félaga heyrnardaufs fólks og heymaruppeldisfræðingar. Erlingur Þorsteinsson Iæknir er fulltrúi félags háls-, nef. og eymalækna á íslandi, en það er eina íslenzka félagiff, sem er affili að samtökun- um. sagði á fundi með fréttamönn- um, að vandamál heyrnardaufra á íslandi væru ekki sama eðlis og á hinum þéttbýlli Norðurlönd um. Hann sagði það hafa komið í Ijós á fundinum á fimmtudag, að mikið hafi verið gert hér á Franihald á bls. 10. Fyrri hluti fundarins er helg- aður íslenzkum heyrnarmálum, m. a. stofnun háls-, nef- og eyrna deildar við sjúkrahús í Reykja vík. A. Fransson varaformaður „Nordisk Audiologisk Selskab“ BÆTT VIÐ TVEIMUR I STJÓRN SAMBANDSINS Aðalfundi Sambands íslenzkra samvinnufélaga að Bifröst í Borg arfirðj lauk í gær, föstudag. Síð asta mál á dagskrá var kosning í Sambandsstjórn. Sú breyting hafði verið gerð á lögum Sam- bandsins, að í stjórninni skyldu íramvegis sitja níu menn í stað sjö. Úr stjórninni gengu að þessu sinni Eysteinn Jónsson og Guðmundur Guðmundsson bóndi Efri-Brú, og baðst hinn síðar- nefndi undan endurkosningu. Ey steinn Jónsson var endurkjörinn, en í stað Guðmundar var kjör- inn Þórarinn Sigurjónsson á Laugadælum. í sæti hinna tveggja nýju manna í stjórninni voru kosnir Ragnar Ólafsson, R- vík, og Ólafur Þ. Kristjánsson, Hafnarfirði. í varastjórn Sam- bandsins voru kjörnir Ólafur Sverrisson, Borgarnesi, Ólafur E. Ólafsson, Króksfjarðarnesi, og Ingólfur Ólafsson, Reykjavík. Fyrir í stjórninni eru: Jakob Frí mannsson, Akureyri, Finnur Kristjánsson, Húsavík, Þórður Pálmason, Borgarnesi, Skúli Guð mundsson, Hvammstanga, og Guðröður Jónsson, Neskaupstað. Endurskoðendur voru kosnir Björn Stefánsson og Tómas Árna son. NÝTT A ISLANDI .,A # Olíubæíiefni ■ Framleitt af Guðmundi Bjarnasjmi með. einkaleyfi A M B Oil Corp. U. S. A. 3 22. júní 1968 - ALÞÝÐUBLAÐLÐ 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.