Alþýðublaðið - 22.06.1968, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 22.06.1968, Blaðsíða 6
Minning: STURLAUGUR JÓNSSON JARÐSUNGINN verður í dag frá Fossvogskirkju Sturlaugur Jónsson stórkaupmaður, en hann andaðist í sjúkrahúsi Hvíta- bandsins 13. júní eftir stutta legu. Sturlaugur var af merkum sunnlenzkum ættum, fæddist að Skipum í Stokkseyrarhreppi 10. desember 1895, sonur Jóns hafn- sögumanns í Vinaminni á /iðalfundur líaupféfags fsfirðlnga. A.ÐALFUNDUR Kaupfélags ísfirðinga var haldinn í fund- arsal K.í. sunnudaginn 9. þ. m. Var hann að venju fjöl- sót'ur og rædd ýmis mál fé- lagsmanna. Reksturshalli varð á árinu, þrátt fyrir sölu á hús- eign félagsins við Silfurgötu. Kaupfélagsstjóri er Jóhann T. Bjarnason, en formaður félags- ins er Marías Þ. Guðmunds- son, forstjóri. Stokksejrri Sturlaugssonar í Starkaðarhúsum Jónssonar á Syðsta-Kekki Sturlaugssonar í Eystri-Rauðarhól Jónssonar á Grjótlæk Bergssonar og konu hans, Vilborgar Hannesdóttur frá Skipum Runólfssonar í Rana- koti efra. Föðurætt Sturlaugs Jónssonar er víðkunn fyrir dugn- að og gáfur. Bróðir afa hans og naína, Sturlaugs I Starkaðar- húsum, var Páll á Syðra-Seli, faðir Bjarna organista í Götu, Jóns bankagjaldkera og rithöf- undar og ísólfs tónskálds. Móð- urkynið er' einnig þekkt að tápi og farsæld, og Sturlaugur sór sig í báðar ættimar. Jón Sturlaugsson í Vinaminni var frægur sægarpur og Vilborg Hannesdóttir í hópi prúðustu og vinsælustu kvenna á Stokks- eyri. Börn þeirra voru mörg og efnileg. Sturlaugur fetaði brátt í spor feðra sinna og stundaði ungur vélstjórn og formennsku á Stokkseyri og í Vestmanna- eyjum, en hugði senn á nýjan frama. Hann nam við Verzlun- arskóla íslands tvo vetur og lauk þaðan glæsilegu prófi. Vann hann eftir það skamma hríð hjá leðurvöruverzlun Jóns Brynj- ólfssonar í Reykjavík, en stofn- aði 1925 heildsölu og umboðs- verzlun, er hann rak fyrst i byggingu Nathan & Olsen, þá í Ellingssenshúsinu og loks að Vesturgötu 16. Framan af átti hann fyrirtækj sitt í félagi við aðra, en Iengst af einn. Verzl- aði hann sér í lagi með vélar og tæki í skip og báta og átti ríkan þátt í umsvifum og þróun sjóvarútvegsins. Kona Sturlaugs var Guðborg Þórðardóttir í Laugabóli vestur Jónssonar og Höllu Eyjólfsdóttur skáldkonu, en hún lézt í fyrravor. Synir þeirra tveir, Jón og Þórður, starfa báðir við fyrirtæki föður síns. Sturlaugur rækti dyggilega skyldur við átthaga og uppruna. Hann stofnaði Stokkseyringafé- Iagið í Reykjavík á sínum tíma og var fyrsti formaður þess lengi. Man ég hann frá bernsku- dögunum austur á Stokkseyri og kynntist honum fljótt í Reykjavík. Var Sturlaugur um margt einstakur maður, prýði- lega gáfaður og menntaður, Sturlaugur Jónsson, sjálfstæður í skoðunum, en sér- lundaður, fróður af lestri og lífsreynslu, glettinn í samtali og gæddur næmu skopskyni, dár lítið háðskur og beinskeyttur í ályktunum og tilsvörum, en raungóður og tryggur vinum og kunningjum, hamhleypa til vinnu, ef hann vildi eða þurfti, en samt varfærinn og gætinn. Gaman var að deila við hann geði, en þó grunar mig, að hann léti ekki uppi nema hug sinn hálfan. Sturlaugur mun hafa verið dulur í skapi, en hann harkaði gjarnan af sér alvöru og mótlæti á góðri stund og glöðum fundi. Hann verður sam- tíðarmönnum harla minnisstæð- ur. Með okkur Sturlaugi var ágæt- ur kimningsskapur, þó að við værum ólíkir. H)mn reyndist mér sannur drengur, er miklu skipti, og fæ ég það aldrei þakkað. Ógleymanlegt var að rifjá upp með honum minning- ar um fólk og atburði austur á Stokkseyri. Þá fannst mér stundum, að Jón faðir hans sæti hjá okkur og reykti pípu ' sína, en í henni kveikti hann . Úti á víðavarigi í öllum veðrum, og var shkt ein af íþröttum hans. Mat Sturlaugur mikils siði og hætti fortíðarinnar og gein aldrei við nýjungum, þó að hann hagnýtti sér tækifæri nýrrar aldar og reyndist henni vænn þegn. Líktist hann í því efni forfeðrum sínum, er sóttu sjó af kappi og fyrirhyggju og létu fátt koma sér á óvart, hvort sem móti blés eða í lyndi lék. Þeir höfðu áhættuna á valdi sínu. Ekki veit ég skoðanir Stur- laugs á lifi og dauða, en hann átti til hjátrú. Fannst honum til dæmis talan þrettán óheilla- vænleg, og er því skrýtin hend- ing, að hann skyldi deyja einmitt 13. júní. Hann hverfur af sjón- arsviðinu um aldur fram, en enginn má sköpum renna. Mað- ur hittir hann ekki í pósthúsinu eða á götunni framar, en Stur- laugur Jónsson er þó ekki all- ur, því að minningin blífur, og starfa hans mun enn lengi gæta. Helgi Sæmundsson. LKYNNING um hverfis- og ýsingaskrifstofur ristjáns Eldjárns Ausfurbæjarskó! Sjómannaskól Laugarnesskó! Langholtsskól Breiðagerðisskól Árbæjarskól Álftamýrarskól Melaskól Miðbæjarskól Mýrarhúsaskól Veghúsastíg 7, símar 42627, 42628. Brautarholt 18, símar 42630, 42631. Laugarnesvegur 62, símar 83914, 83915. Langholtsvegur 86, símar 84730, 84731. Grensásveg 50, símar 83906, 83907. Hraunbæ 20. 3.h. símar 84734, 84735. Síðumúla 17, símar 83990, 83991. Hjarðarhaga 47, símar auglýstir síðar. Bankastræti 6, símar 83802, 83803. Vallarbraut 16, símar 13206, 10655. Ofantaldar skrifstofur verða opnar alla n daginn frá og með sunnudegi 23. júní. SjálfboðaliSar, sem unnið geta fram að kjördegt eða á kjördag, ásamt þeim, sem iánað geta bifrelðar eru vinsamlegast beðnir að láta skrásigá viðkomandi hverffjsskrifstofu hið allra fyrsta. ameiginiegt átak tryggir sigur 0 22. júní 1963 ALÞÝÐUBLAÐI0

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.