Alþýðublaðið - 22.06.1968, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 22.06.1968, Blaðsíða 4
HRINGANÓRINN Fyrir skömmu birtum við mynd af fallegum 2ja mánaða gömlum Hringanóra sem var á leið til Vestmannaeyja frá ísafirði. Kópurinn náðist með þeim hætti að báturinn Gull faxi frá ísafirði fann hann um 12 mílur út af Vestfjörðum og buðu skipstjórinn Ægir Ólafs son og vélstjórinn Sigurður Helgason sjóminja- og nátt úrugripasafninu í Vestmanna eyjum kópinn. Flugfélag ís- lands sýndi mikla hjálpsemi í þessu máli og flutti kópinn frá ísafirðj til Vestmannae'yja og sá um að hann hlyti beztu iTækin athuguð og rætt um fyrirkomulag keppninn >r. A myndinni eru auk keppenda nokknr ahuga- samir félagsmenn i golfklúbbninn, sem notuðu góða veðrið þennan dag. reyndar sést ekki á myndhmi. Frá vinstri: Hallur, Jón og Iljörtur. Urslit urðu annars sem hér segir: högg i. Atli Steinarss., Mbl. .. 33 2. Hallur Símn., Tím. .. 38 3. Kristm. Eiðss.Alþbl. .. 42 4. Jón B. Pét., Vísi ., , . . 44 5. Hjörtur Gunn. Þjv. .. 54 6. Sig. Hreiðar, Vik. ., ...59 7. Alf., Tímanum ..., ...72 umönnun á leiðinni. Blaðamenn í golfi fslandsmynd í Litlabíói ÞAÐ er nú orðinn fastur liður í starfsemi Golfklúbbs Ness að standa fyrir meistara- móti blaðamanna í golfi, ef nota má stór orð um lítinn en skemmtilegan viðburð. Síðast- liðin þrjú ár hafa reykvískir blaðamenn leitt saman hesta sína og háð harða og tvísýna bar- áttu í hinni göfugu íþrótt, golfi. Víst er þetta göfug íþrótt, því að hún fer ekki í manngreinar- álit. Allir, sem á annað borð geta vettlingi valdið og limi hrært, eru golftækir, en það er meira en hægt er að segja um ýmsar greinir íþrótta. Eins og fyrr getur, hafa blaða menn þrívegis háð innbyrðis keppni í golfi, og fór sú síðasta fram á miðvikudaginn var á vclli Golfklúbbs Ness í blíðskapar- veðri. Þátttakendur voru fleiri en nokkru sinni fyrr, eða sjö frá sex blöðum, og einnig voru leiknar fleiri holur en áður eða sex. — Frammistaða keppenda var einn- ig mun betri en á fyrstu tveimur mótunum, og til mar.ks um það er sú staðreynd, að vindhögg voru með fæsta móti, og þrir keppenda komust reyndar svo langt að leika eina til þrjár hol- ur í aðeins einu höggi yfir pari, en það vill segja, að þeir komu kúlum sínum í höfn með aðeins einu höggi meira en talið er eðlilegt. Blaðamönnum til afböt- unar skal þó tekið fram, að marg- ir þjálfaðir kylfingar nota „ó- eðlilega” mörg högg á stundum. En snúum okkur aftur að meistaramóti blaðamanna. Eftir fyrstu holu leiddi Morgunblaðs- maðurinn og hélt hann naumu forskoti það sem eftir var keppninnar. í öðru sæti varð Tímamaður- inn, en hann var sigurvegari á síðasta ári. í þriðja sæti hafn- aði svo fulltrúi þessa blaðs, en síðan komu keppendur Vísis, Þjóðviljans, Vikunnar og auka- keppandi Tímans í nefndri röð. Að keppni lokinni afhenti Pétur Björnsson, formaður Golf- klúbbs Ness, sigurvegaranum, Atla Steinarssyni, fagra styttu til eignar og tilkynnti um leið, að á næsta móti, sem fer fram að ári liðnu, yrðu leiknar níu holur. Og hér er verið að „pútta” í síðustu holuna. Það eru kepp endur Alþ.bl. og Mbl. (að ofan) sem eru að greiða síðustu högg in. Starfsemi kvikmyndaklúbbs- ins í Litlabíó heldur áfram við sívaxandi aðsókn og vin- sældir. Þar e'ru tvær sýning ar daglega og jafnaðarlega tvær myndir, eða prógrömm í gangi í einu. Hvern föstu dag hefjast sýningar á nýrri mynd eða myndaseríu. í gær áttu aðhefjast sýningar á franskri mynd: L’Atalante eft ir Jean Vigo. Mynd þessi hef- ur enn ekki borizt til lands ins vegna tru.flana í samgöng um við Frakkland, og því verður að gera þær breyting ar á dagskrá klúbbsins þessa að ístað myndar V"igos kemur safn stuttra mynda frá ýmsum löndum, sem ráðgert hafði verið síðar á sumrinu en hin myndin flytzt aftur. Myndir þær sem sýningar hófust á í gær, föstudag eru þrjár og ber þar hæst danska íslandskvikmynd frá árinu 1938 ,,Billeder fra Is- land“ gerð af Kapt. Dam. Mynd þessi er ekki einasta fróð leg og skemmtileg heimild um ísiand fyrirstríðsáranna held- ur einnig furðanlega gott kvik myndaverk og vissulega er þónokkur leit að betur gerð um heimildarmyndum um ís- land, ef slík mynd hefur þá verið gerð. Til marks um heim ildargildi þessarar myndar mætti t-d. benda á það að í henni eru myndir frá sundlaug unum gömlu, sem nú er ver ið að loka, en textinn með þeim myndum hljóðar svo: ,,í Reykjavík hefur verið komið upp nútíma sundlaug“. Með íslandsmyndinni eru eru sýndar tvær aðrar stutt- ar myndir. Önnur er tékknesk gamanmynd, gerð árið 1964 eftir smásögu Jaroslavs Has- Fíamhald á 9. siðu. HEYRT&’ SÉÐ 1,4 '!■ júní 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.