Alþýðublaðið - 12.07.1968, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 12.07.1968, Blaðsíða 3
„Engin veruleg átirif frá afa“ — Ég held mér sé óhæ'ct að segja, að hér kenni engra veru- legra áhrifa frá afa, sagði Kol- brún S. Kjarval, sonardóttir Jóhannesar S. Kjarval, er hún -------------------------, Efnahagslegar gleðifréttir LONDON, 11. júlí. —- Bretar virtust í kvöld mega vænta batn- andi efnahags um sinn, er hver gleðifréttin rak aðra frá stjórn- inni. Innflutningur í júní hafði orðið minni en nokkru sinni -síðan í desember og 39 miiijón- um pundurn minni en í síðasta mánuði, en hins vegar hafði útflutningsverðmæti aukizt um 10 millj. punda, sem er fyrsta aukning síðan í janúar s.i. Hinn óhagstæðí verzlunarjöfnuður minnkaði um 36 milljónir punda, og er lægri en nokkru sinni síðustu fimm mánuði. Sterlings- Pund hækkar í verði og menn sækjast eftir því., Svo er' því áð sjá’, sem hinar hörðu ráð- stafanir stjórnarinnar, sem Bretar hafa kvartað yfir, beri á- rangur á efnahagssviðinu. „Það var sýndi blaðamönnum sýningu þá á steintaui, sem opnuð verður í Unuhúsi við Veghúsastíg klukk- an 19 í kvöld. Kolbrún útskrifaðist frá hin- um kunna listaskóla Edinborough College of Arts nú í vor og sýn- ir á þessari fyrstu sýningu sinni listaverk þau, er hún gerði í s^pihandi við nám sitt þar. Hún sýnir um 250 leirmuni og eru þeir allir til sölu við sanngjörnu verði. Sýningin verður opin til 30. þ. m. frá klukkan 10 árdegis til 22 síðdegis dag hvern. Á sýningu Kolbrúnar kennir margra grasa og mun hún án efa vekja óskipta athygli almenn- ings, enda ættu allir að geta fest sér þar listræna búsmuni unna af faglegri þekkingu^ og ósvik- inni listgáfu. Kolbrún á ekki langt að sækja þetta: Hún er svo sem gat í upphafi dóttir Sveins Kjiarvals, arkitekts, og sonar- dóttir Jóhannesar Kjarvals. — Eldri systir Kolbrúnar, Hrafn- hildur Tove Kjarval, er einnig leirkerasmiður, en bróðir henn- ar, Jóhannes, yngri, nemur úr arkitektúr erlendis. Aðspurð kvaðst Kolbrún hafa Framhald á bls. 14. Kolbrún S. Kjarval með tvo spar'ibauka unna úr leir. Mitterand oð kenna' Francois Mitterand er nú 'i orðinn sektarlamb vinstri manna í Frakklandi. Þessi 52 . ára gámli stjórnmáiamaffur, sem virtist hafa gefiff vinstri arminum nýtt andlit og álit, er hann bauff sig fram gegn de Gaulle í forsetakosningun- um og fékk svo mörg atkvæffi, aff greiffa varff atkvæffi aff nýju, er nú talinn orsök kosn ingaósigursins um daginn. Margir frambjóðendur, sem f féllu í kosningunum, segja nú: ,,Það er Mitterand að kenna“, segir 'blaðið L’Express. En skoðanakannanir hafa sýnt, að það eru ekki aðeins fallkandídatarnir, sem hafa skipt um skoðun á honum. Kjósendur, sem í forseiakosn ingunum fannst andstaða hans gegn gaulliistum hraustleg, lýsa nú framkomu hans í sjón varpinu gegn gaullistum ó- þægileg. Hann virtist metnað- 1 argjarn og hrokafullur skrum ari, segja þeir. Þeim fannst gagnrýni hans óhófleg. Enn hefur igagnrýnin þó ekki náð upp í æðstu stjórn Vinstris'ambandsins. Michele Cotla, fréttamaður L’Express, telur, að hún muni berast iþang að, en þó ekki fyrr en hægl sé að hengja hana aftan i hina .( miklu megin-ákvörðun, hvort halda skuli áfram því sam- ■ starfi við kommúnista, sem Mitterand hefur gert að stefnu máli sínu, eða rjúfa það. Stórflóð í V-Evrópu eftir ofsalegt storm og regnveður PARÍS OG LONDON, 11. júlí. Gífurlegur stormur og regn hafa gengið yfir stóra hluta Vestur-Evrópu og Bretlandseyjar í gærkvöldi og dag og hafa hjálp- arsveitir hersins verið kallaðar út hæði í Bretlandi og Vestur-Þýzkalandi. í Bretlandi fórust sex manns og frá Vestur-Þýzkalandi er tilkynnt um tvö dauðs- föll.. Hjálparsveitirnar búnar þyrl- um og sjó- og landökutækjum björguðu mörgum fjölskyldum,^ sem voru einangraðar á heimil- um sínum, er ofsalegur stormur og regnveður gekk yfir suð- vesturhluta Englands, en þar varð hið skyndilega óveður verst. Ár flóðu víða yfir bakka sína og báru burtu brýr og hús. Mörg þorp einangruðust algjörlega frá umheiminum, er flóðin rifu niður símalínur. Þrir drukknuðu í Bristol, er flóðið hreif bílinn, sem þeir voru í, með sér út í bólgna ána. Bílstjórinn slapp. 85 ára gömul rúmliggjandi kona dó, er flóðið braut hús hennar, maður nokkur dó í bílslysi, er stormur- inn var livað mestur, og ungur maður drukknaði, er hann reyndi að bjarga tveimur stúlk- um. Þorpið Pensford í Vestur- Englandi hefur verið lýst í vand- ræðaástand eftir að eitt hús hrundi og mörg önnur eru í hættu vegna flóðanna. Hjálparmenn, sem berjast við flóð, er nær þeim í öxl, hafa í hyggju að flytja líka alla burtu úr öðru þorpi í grenndinni, ef vatnsborðið lækkar ekki. í Vestur-Þýzkalandi þurfti að fara með marga á sjúkrahús í Sforzheim, er algjör glundroði kom upp vegna stormsins. Það var lýst yfir vandræðaástandi og franskir og amerískir her- menn kallaðir út til aðstoðar. Matvæli voru fiutt til einangr- aðra svæða og sterkur vörður hafður þar, sem íbúar höfðu ver- ið fluttir burtu, til að hindra rán í mannlausum húsum. í Ottenhausen dóu hjón, er stormurinn gereyddi íbúð þeirra á.þriðju hæð. Frá Frakklandi er tilkynnt um gífurlegt tjón í óveðri hvers líka enginn man. Þau svæði, sem verst urðu úti, voru svæðin ná- lægt spönsku landamærunum í suðurhluta landsins og við þýzku landamærin í norðri. — í þorpi einu í suð-vestur hluta landsins eyðilögðust öll húsin, samtals 447. 404 skráðir til Beiks á landsmótiiiu að Eiðum 404 keppendur eru skráðir til keppni á Landsmóti UMFÍ að Eiðum sem hefst á laugardags- morgun kl. 9,15. Þetta er 13. landsmót UMFÍ og í annað skipti sem það er haldið að Eið- um, en fyrra mótið var haldið þar 1952. Síðasía landsmót var haldið að Laugarvatni 1965. Keppt er í öllum helztu grein- um frjálsíþrótt og sunds. Auk þess er keppt í handknattleik, körfuknattleik og knattspyrnu. Þá skipa starfsíþróttir veglegan sess á mótinu, og eru t. d. 19 skráðir til keppni í hrossadóm- um og til keppni í dráttarvéla- aksíri. í úrslitakeppni í knattspyrnu eru lið UMSS, UMSB og HSÞ, en þau urðu sigurvegarar 1 for- keppni 11 liða, sem fram fór í fyrra. Þá ber það til nýlundu, að á mótinu verður úrslitakeppni í sveitakeppni UMFÍ í skák og keppa þar til úrslita sveitir UMSE, USD og UMSK. Leikfélag Neskaupstaðar sér um sögusýningu er nefnist A ð Krakalæk — viðnám Aust- firðinga gegn Haraldi hárfagra, eftir Kristján Ingólfsson. Heiðursgestur mótsins er Bjarni M. Gíslason, skáld og rit- höfundur. Mótinu lýkur á sunnudags- kvöld. í dag eru áætlaðar fjórar ferðir til Egilsstaða hjá Flugfé- lagi íslands, kl. 1,30, 3,30, 5 og 8,30. Á laugardag er áætluð ein ferð, kl. 3,30. 12. júlí 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ ? íliv ■’.JtiÍJti'i óJA - ’ (J.jtj. ;!’ ! .S.i

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.