Alþýðublaðið - 24.07.1968, Page 16
SfOAfi
Enn kemst Þjóöverji
í kast við lögregluna
Þjóðverji nokkur á þýzka
’ rannsóknarskipinu Poseidon
ætlaði að gera sér dagamun
í fyrrakvöld og skemmta sér í
Þórskaffi eins og gengur. Sá
þýzki hafði fengið sér flösku
áður en hann fór í Þórskaffi
og var langt kominn niður í
flöskuna, þegar þangað kom,
og ölvaður orðinn. Vildu dyra
verðir ekki hleypa honum inn
í húsið af þessum sökum, og
varð Þjððverjinn ókvæða við
— eins og gengur.
Gekk blessaður maðuirinn
berserksgang, æddi inn í nær
stadda bíla og tók út úr þeim
lauslega hluti, sem hann náði
til, svo sem útvarpstæki og
fleira. Gekk hann þannig á
nokkra bíla. Eitthvað hefur
maðuriinin verið orðinn dasað
ur, er hann kom að síðasta
bílnum, sem hann fór inn í,
Iþví þar lagðist hann fyrir og
hefur að líkindum ætlað að
fá isér blund.
Verðir laganna sáu þó við
kauða og handtóku hann í bíln
,um og fluttu hann í geymslur
sínar og var mál hans í rann-
sókn hjá rannsóknarlögregl-
unni í gær.
20 — 30 ROLLUR SETTAR í
GÆZLUVARÐHALD.
Fyrirsögn á forsíðu Vísis í gær.
Cj
Kallinn var eitthvað að pípa í
gærkvöldi og sagði, að ég kynni
ekki að leggja saman tvo og
þrjá, en gamlinginn varð þó að
bremsa kvörnina, þegar ég skutl-
aði því á hann, að ég væri samt
braet í samanburði við kennara-
blókina, sem sagði í vor, að
75% okkar mundu falla í reikn-
ingi, og þó vorum við bara 28
í bekknum.
Þó að mér sé ekki hlýtt tll
karlmannsómyndanna, hefi ég
samt gott hjarta, en það hefur
aldrei stigið mér til höfuðsins,
hvað sem hver segir.
daglegi IIAK stur
Fari saubkindsn...
Æ rennur það betur upp fyrir mönnum, hvert skaðræðis-
kvikindi sauðkindin í rauninni ier. Maður fer jafnvel að velba
fyrir sér í fullri alvöru, tovort ekki sé rétt að söðla um, gera
rolluna réttdræpa, og temja refinn til systematískrar útrým-
ingar á skjátum landsmanna.
Og flest er nú Iþjóðleigt í Árbæ, annað jen sauðkindin vifca-
skuld, segja menn hver upp í opið geðið á öðrum. Ekki eru
það dægileg þjóðleghieit >að ösla um garða manna og éta
blóm, eða naga veikburða trjágræðinga.
(Þó að mínum eyrum þyki þetta nýstárleg kenning, vegna
þeiss að landsmenn hafa alltaf og allstaðar verið að troða
garða hver fyrir öðrum, stela úr görðum hvers annars og
yfirleitt ekki verið með nein blíðuhót hvers í annars garð,
Þá verðia nýstárlegar kenningar að njóta málfrelsis, eins
og hjá iþeim í Tjekkó).
Ekki nóg með það, heldur hefur hin styrka göfuiga bænda-
stétt þessa l'ands, — já þessa fagra lands, alið við brjóst sitt
her manns, sem nú linna ekki látum og taeppast um að kenna
siauðfcindinni allar vammir og 'sfcammir íslandissögunnar nema
Njálsbrennu og víg Snorra.
Þannig halda þessir menn frarn í fullri alvöru, að ef hrút-
lambi verður á að 'lmerra utan í þúfu einhverssttaðar á heiðum
uppi.fjúki þó nofckurt slángur af fósturjörðinni á haf út.
Enginn hefur hinsvegar ýjaS lað Iþví einu orði, að fretið í
útiga'njgshrossum geiti við 'hagstæðar aðstæður, verið fullt eins
'áhrifamikið!
Annað hvort 'eru þeissir mienn allir HúnVetnin^ar 'og Sfcag-
firðingar, eðla þá að hrútgknbur 'hefur hrætt mömimur þeirra
'þegar þeir voru enn í frumreifum.
En allt sitiefnir íþetta nú í -rétfba áfct. Niðurskurður vofir yfir
um ai'lt land (og var efcki seinna vænna, segja þeir). Allir
verða heylauisir í haust nema Reykvíikingar.
Alit um það hefur lenginn fjúkfræðingur ýjað lað því einu
orði að rétt væri að isfcera niður hross, og styður þetifca -enn
taenningu mína um Húnvetninga í spilinu, nema þá að Fákur
sé farin að -grassóra í búnaðarmálum.
Árbæingar þunfa- því leikflki tannað en hafa dálítið langluhd-
'argeð rnieð hæ-gfara Iþróunarlögmálinu, sem nú þokar öllu í
rétta átrfc hvað skepnuskap -lands-man-na -viðkemur.
Góðir menn: Eyðið ekki fé og fyrirhöfn í girðingar,
sem verða gagnslausar teftir nokfcur ár. Munið -eftir vesialinga
hrossunum, sem ganga á -landi, rótnöguðu af sauðkindum.
iRlessaðir hestarnir verða svo glaðir, ef þeir toara fá -einn
og einn túlípana með sitjúpmæðrum!
— Gaddur.
Flugfrákt
Vöruflutningar í lofti fara stöðugt
vaxandi um allan heim. Flugfraktin
er lyftistöng nútíma-
viðskipta, svo á
íslandi sem annars
staðar í heiminurn.
Flugfélagið veitir beztu þjónustu
í vöruflutningum innanlands og milli
landa.Hinar tíðu ferðir
félagsins auðvelda og flýta
fyrir viðskiptum heima
fyrir og við umheiminn.
ÞOTUFRAGT
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
FORYSTA í ÍSLENZKUM FLUGMÁLUM
©AUGLtSiNGASTOFAN