Alþýðublaðið - 09.08.1968, Page 10
#
DR. VICTOR URBANCIC
rrtinnzt á 65 ára atmælisdegi
Þegar minnast á þe&sa mæta
manns með örfáum orðum, er
af svo miklu að taka að örð-
ugt er að gera það upp við
sig hvers helzt ber að minn-
ast. Fyrst vil ég þó hverfa
Dr. Victor Urbancic
20 ár aftur í tímann. Ég er
staddur á sviðinu i Konung-
lega lei'khúsinu í Kaupmanna-
höfn á sólbjörtum sumardegi
ártð 1948 sem einn þátttak-
t andi í söngflokki Tónlistarfé-
lagskórsins á norrænu söng-
móti. Húsið er þéttskipað á-
heyrendum og dönsku kon-
ungshjónin eru meðal áheyr-
enda ásamt fríðu föruneyti og
sendiherrum erlendra ríkja.
íslenzki söngflokkudinn er fá-
mennur, 40-50 manna kór, en
á sviðinu eru alls 1000 söng-
menn. Við syngjum hvert lag-
, ið eftir annað og leggjum alla
O'kkar orku í sönginn, að lok-
um syngja allir kórarnir sam-
I eiginlega h'nn tignarlega þjóð
söng íslands. Um hljómsprot-
I ann heldur hár og tignarleg-
ur maður á bezta aldri. Það
dylst engum að hér er mikill
, listamaöur. Þetta var dr.
Victor Urbancic. För þessa
litla kórs varð þjóð okkar og
landi t 1 sæmdarauíka, eins og
bezt má marka af því, að
dönsku blöðin töldu ísl. kór-
inn ásamt hinum finnska
beztu söngflokka mótsins og
sum þeirra hikuðu ekki við
að úthluta okkar kór fyrsta
isætinu. Hér átti dr. Urbancic
framar öllum öðrum heiður-
inn. Hann var fæddur í Vín-
arborg 9. ágúst 1903 og alinn
þar upp, en af júgóslavnesk-
um stofni. Strax á unga aldri
helgaði hann sig listinni enda
var hún honum í blóð boi'in.
Listnáminu lauk hann á ótrú-
lega skömmum tíma. Og eftir
að hafa numið alhliða tónlist-
arnám, píanó- og orgelleik,
hljómsveitarstjórn og tónfræði
undir handleiðslu frægustu
tónlistamanna þar, tók hann
doktorspróf við háskólann í
Vínarborg 1925, þá aðeins 22
ára, og fjallaði ritgerð hans
um verk tónskáldsins Jóh.
Brahms. Sjálfur hafði dr. Ur-
bancic fengist við tónsmíðar
frá barnæsku. Eftir þennan
glæsilegan námsferil biðu dr.
Urbancic margþætt hljómlist-
störf við hin frægu óperu-
hús í Þýzkalandi, Austurríki,
Júgóslavíu o.íl. löndum. Þeg-
ar hann fluttist til íslands
með fjölskyldu sína 35 ára að
aldri varð hann strax mik'il
stoð hinu fábrotna tónlistar-
lífi voru. Hann varð sem van-
ur óperustjórnandi brautryðj-
andi fyrir óperuflutning á ís-
landi og vann oft margra
' manna verk Við undirbúning
að snögleikjaisýningum Þjóð-
leikhússins, en þar var hann
hljómsveitarstjóri og söng-
stjóri Þjóðleikhússkórsins frá
upphafi og fr-am að andláti
sínu. Ennfremur flutt'; hann
hér í fyrsta sinn hin miklu kór-
verk meistaranna, oratóríum
og guðspjallaverk og vann;
m.a. það afrek að færa fyrst-
ur upp Jóhannesar-passíuna
og jólaoratóríum eftir Bach
með íslenzkum textum sem
hann setti við verkin. Þetta
mó ekki gleymast. A.uk þess,
var hann kennai1' við Tnólist-
arskólann hér í borg, st.jórn-
andi Sinfóníuhljcmsveitar
Reykjavíkur og síðar Sinfóníu
hljómsveitar íslands, organleik
ari og kórstjóri við Krists-
kirkju í Landakot', eftirsóttur
píanóleikari og tónskáld gott.
Hér er fátt eitt talið, því m.a.
mætti og geta þess, að hann
var formaður söngmálaráðs
L.B.K. um hríð, en hér verður
að láta staðar numið, verk-
efnin eru svo mörg að tugum
og hundruðum skiptir. Þótt
dr. Urbancic væri fæddur
Austurríkismaður öðlaðist
hann mikinn skilning á ís-
lenzkum þjóðlögum og safnaði
þeim og útsetti fyrir kór.
enda var hann sannur íslands-
vinur, öðlaðist íslenzkan rík-
isborgararétt og helgaði alla
krafta sína hinu nýja föður-
landj sín.u, enda hlaut hann
hina íslenzku fálkaorðu fyrir
störf sín. Hann féll frá fyrir
10 árum langt fyrir aldur
fram, aðe'ns 54 ára að aldri,
en hann hafði þá mótað sér
óbrotgjarnan minnisvarða í
íslenzkri tónlistarsögu. Hinn
ljúfi listamaður var lagður í
íslenzka mold. Kór hans söng
hann að síðustu inn í þá Para
dís, sem hann hafði svo títt
látið prísa í söng og hljóðfæra
slætti. Minningarsjóðurinn
sem Þjóðleikhúskórinn stofn-
aði um hann ber vott um þá
ást og virðingu er hann naut.
Og kórinn var ekki einn um
það. Þjóðin öll harmaði and-
lát þessa hámenntaða lista-
manns, sem vakt' aðdáun allra
er til þekktu. Þegar ég því
lít yfir ævibraut dr. Urban-
cic hér á: landi minn.ist ég
hans ekki einasta sem lista-
manns, heldur líka sem frá-
bærs drengskaparmanns sem
vann hljóður sín m'klu verk,
hins trúsækna ljúfmennis og
sanna vinar.
Slíkra manna er gott að
minnast.
Þorsteinn Sveinsson.
SMURT BRAUÐ
SNITTUR
BRAUPTERTUR
BRAUÐHUSir
___SNACK BAR_
Laugavegi 126,
sími 24631.
May Fair vinyT-veggfóðrið komið aftúr.
Glæsiieg mynztur.
P'antanir óskast sóttar s'em fyrst.
KLÆÐNING HF.
Laugavegi 164
MÁLNINGARVINNA
Get bætt v'ið mig innan- og utanhússmálningu.
Leitið upnlýsinga í síma 15974.
Athugið opið frá kl. I — 8 e.h.
SNYRTINGl
FYRIR HELGINA
ANDLITSBÖÐ
KVÖLD.
SNVRTING
DIATERMI
HAND
SNYRTING
BÓLU
AÐGERÐIR
STELLA ÞORKELSSON
snyrtisérfræðingur.
Hlégerði 14, Kópavogi. Sími 40613.
Skólavöfðustíg 21a. — Sími 17762.
ONDULA
Skólavörðust. 18
hæð. Sími 13852.
VALHÖLL
Kjörgarði. Sími 19216.
Laugavegi 25.
Simar 22138 - 146G2.
2169 aíri-. rGó,
o A o
SNYRTING
'4fo ágúst 1968
- ALÞÝÐUBLAÐIÐ