Alþýðublaðið - 21.08.1968, Síða 5
Sniit.i
'
)«««♦»« ...................
'♦ • \
Haraldur Ómar Vilhelmsson:
Ferðamaður, sem hefur viðdvöl í Keflavík, getur
ekki sagt að hann hafi kynnzt íslandi. Hann hefur
þó litið það hom landsins augum, sem að verulega
leyti kemur við nú^ímasögu þjóðarinnar. Svipuðu
máli gegnir, þegar gestur stígur fæti á land í Tang
er: hann dvelur um stund í anddyri vestasta ríkis
Araba, en Tanger hefur þar nokkuð sérstaka sögu-
lega þróun.
Skipið heitir Ibn Batouta eftir
landkönnuði og ferðalangi, sem
fæddist á fjórtándu öld í Tang-
er og ferðaðist víða í 28 ár,
meðal annars til Kína. Ferju-
skip þetta, ein af skrautfjöðrum
hins unga marokkanska skipa-
stóls, er nær tvisvar sinnum
stærra en „Gullfoss” okkar. Bif-
reiðar aka inn í búk þess að aft-
an og við komustað út að framan
þurfa þvf ekki að snúa við, og
er þetta mikill kostur. Ferðin frá
Malaga á suðurströnd Spánar til
Tanger tekur 5 klukkustundir
og kostar fram og aftur um 600
pesetur, Aðhlynning um borð
(en þar er aðeins eitt farrými)
er góð, enda gera Marokkanar
sér mikið far um að laða til sín
ferðamenn. Skipstjóri er Norð-
maður, farþegar a£ mörgu þjóð-
erni, en aðallega er þó töluð
franska. Sólskin bregzt nær
aldrei á þessum tima árs við
mynni Miðjarðarhafs. í nær al-
sléttum sjó sjá'st hjarðir af höfr-
ungum, þessum gáfuðu og
skemmtilegu spendýrum, 'reka
stoltir bakugga sína upp úr sjón
um á hraðri ferð, stundum að-
eins steinsnar frá skipinu. Að
líkindum fá þessi lífsglöðu dýr
að leika sér áfram. í friði af því
að kjöt þeirra þykir óætt.
Gjaldmiðill heitir dirhan og
jafngildir einum frönskum ný-
franka. Hann má hvorki flytja
inn í landið né út. Erlendir ferða
menn fá að skipta mynt sinni á'
forgangsgengi (120% ). Þegar ég
fór úr landi aftur, fékk, ég af-
ganginum af dirhan- bankaseðl-
unum auðveldlega skipt aftur í
spanska peseta- en á slíku vill
stundum verða brestur í öðrum
löndum við brottf erð ferðamanna
Nú vil ég ekki þreyta lesanda á
ártölum, við skulum láta okkur
nægja fáein atriði: borgin Tang-
er er um 3000 ára gömul, var
undir yfirráðum Fönikiumanna
fyrst, síðan bækistöð Rómverja
á valdatíma þeirra, síðar varð
hún ásamt upplendi öllu hluti
Arabaríkis, sem á áttundu öld
þandist frá Arabíuskaga allt vest-
ur til Norðurspánar. Síðan Bret-
ar náðu fótfestu á' Gibraltar,
fékk syðri hluti hliðsins, að Mið-
jarðarhafi, aukna þýðingu fyrir
aðrar þjóðir, sérstaklega Portú-
gala, Spánverja og síðast Frakka.
Stóð lengi í ýfingum þeirra á
milli, og loks þegar aðilarnir
reyndust nokkurn veginn jafn
sterkir, náðist samkomulag um
að gera Tanger að borg undir
alþjóðlegri stjórn, og tókst Bret
um að skipta völdum með Spán
verjum og Frökkum, en mikið
hafði þá þegar dregið úr heims
veldi Portúgala. Samkomulag
hér að lútanöi var undirritað
svo seint sem 1925. Lengst af
hafðj Tanger verið fremur lítil
borg, en síðan byggðist nútíma
borg að evrópskri fyrirmynd,
svo að komumaður nú þarf að
ieita að medína, gömlu Araba-
borginni, sem liggur umlokin
gömlum múrvegg í norðvestur-
horni þessarar snyrtilegu borgar.
Tanger hefur um 130.000 íbúa,
en byggingar 'hennar mundu
sæma sér í hverri heimsborg-
Lífið í þessari alþjóðaborg síð-
astliðna áratugi fékk á sig æ
sterkari blæ laga- og siðleysis:
spilavíti, gleðihús, rán og mann-
dráp jafnvel um miðjan dag,
uppáhalds felustaður eftirlýstra
glæpamanna, og embættismanna
stéttinni var hægt að múta til
hvers sem vera skyldi. Vafalaust
hefur þessi samloka ólíkra afla
og þjóða undir fremur dular-
fullri yfirstjórn sogað til sín alls
kyns æfintýramenn, svo að mörg-
um stóð stuggur af þessari borg.
— t skjóli viðburða heimsstyrj-
aldar síðari hertóku Spánverjar
svo Tanger og innlimuðu í yfir-
ráðasvæði sitt í Norður-Morokko.
í stríðslok 1945 var svo aftur
komið á sama skipulagi og fyrir
1941. Það var ekki fyrr en 1956
þegar Marokko hafði fengið sjálf
stæði sitt viðurkennt bæði af
Frökkum og Spánverjum, að
Tanger sameinaðist föðurlandinu
gamla. Þessi sérkennilega borg,.
sem samkvæmt alþjóðasamþykkt
hafði ekki mátt hafa neinar víg-
girðingar, varð þannig ásamt að-
liggjandj héraði að sérstakri
sýslu konungsríkisins Marokko.
Mér fannst lítið sem ekkert eima
eftir að áður lýstum skuggaleik-
en eftir sem áður mun Tanger
tilvalinn bakgrunnur í þriðja
flokks reyfurum. Allir embættis-
menn og allflestir íbúar tala
frönsku vel, margir einnig
spönsku, en mjög fáir tala ensku
Framhald á bls. 10.
21. ágúst 1968 — ALÞYÐUBLAÐIÐ 5