Alþýðublaðið - 25.08.1968, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 25.08.1968, Qupperneq 3
MYNDIR: T. v. Halldór Laxness flytur aðalræð- una. — T. h. dr. Gylfi 1». Gíslason menntamálaráð- herra flytur ávarp Að neð- an: Forsetafrúin Halldóra Ingólfsdóttir ritar í sresta- bók. Eftnnig sjást forset- inn, dr. Kristján Eldjárn og háskólarektor, dr. Ár- mann Snævar. legu starfsviði norræns sam- starfs, sem í hafi verið ráðizt til þessa. , Er forseti Norðurlandaráðs hafði lokið máli sínu, tólc Halldór Laxness, rithöfundur Framhald á bls. 15. var snörp gola við Norræna husið, þegar opnunarathöfnin hófst og blöktu fánar íslands, Færeyja, Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar og Finnlands frjáls- lega í andvaranum. Er fánarnir höfðu verið dregnir að húni, opnaði pró- fessor Alvar Aalto aðaldyr hússins og gestir gengu inn. Ivar Eskeland, forstöðumað- ur Norræna hússins, opnaði vígsluathöfnina með stuttu ávarpi. Að því búnu færði hann forsetafrúnni, frú Hall- dóru Eldjárn blómvönd, en síðan tók forseti íslands, herra Kristján Eldjárn, til máls og flutti stutt ávarp. Flutti for- setinn öllum þeim, sem að byggingu Norræna hússins hafa stuðlað, beztu þakkir fyr ir hið merka starf. Þá flutti forseti Norræna ráðsins, norski stó/>ingsmaðurinn Svenn Stray ræðu. Sagði hann, að bygging Norræna hússins værj stærsta verkefni á menningar- Myrkur yfir Prag ÞEIR sögðust koma meff nýjan dag en þaff var um nótt og þeir báru nótt meff skriðdrekum sínum, já svörtustu nótt, um nótt þeir komu og nálguðust Prag. Þú. smáa þjóff, viltu vera frjáls? Svo lát okkur binda þér sveig um háls. Sjá, viff höfum kenningu og relknivél sem reiknaffi út hve þeir sóma sér vel skriðdrekar okkar sem boffa dag. Þeir komu um nótt og nálguffust Prag og þeir báru nótt, já svörtustu nótt. Hann Dúbsék vildi ekki segja já, aff nótt vær'i dagur og dagur nótt, og þjóffin stóff bak viff hann maffur viff n ann, hann vissi aff hann stóff ekki einn þá nótt, og aff þjóðin var hugrökk, þaff vissi hann, þá nótt sem skriffdrekar nálguffust Prag. Hann viss'i sín örlög, hann brást ekki samt, liann var reyrffur í fjötra og fluttur burt þegar nótt var komin og svívirt jurt frelsisins troffin á rnyrkri nótt. En andi hans er ekki fallinn frá, sá andi sem ne'itar aff segja já við myrkriff sem ekki þolir dag. I*eir sögffust korna meff nýjan dag. Þeir helltu svörtu myrkri yfir Prag. Jén Óskar. Norræna húsiff í Reykjavík var opnaff' viff hátífflega at. höfn í gær og þar með fyrsta stofnun sinnar tegundar í heiminum. Norðurlöndin hafa nú eignazt reisulega og sam- boðna byggingu fyrir hið marg þætta, gagnkvæma samstarf sitt. Norræna húsíff er menn- sngarmiffstöff Norðurlandanna allra og lætur stofnunin sig varffa hvers konar mtnningar- starfsemi. Norræna húsíð á aff vera fyrir alla. Klukkan 9 í gærmorgun hófst opnunarathöfnin við Norræna húsið. Lúðrasveit Reykjavíkur lék í hálfa klukku istund, á meðan gestir streymdu að. Fjöldi íslenzkra embættis- og forystumanna og fulltrúa Irá hinum Norður- löndunum voru viðstaddir hina hátíðlega athöfn, er þessi merka stofnun var vígð. Klukkan 10 gengu helztu fulltrúi hverrar þjóðar að hin um sex fánastöngum, sem kom ið hefur verið fyrir framan við húsið, og voru fánar þjóð- anna dregnir að húni. Veður var fremur kalt og 25. ágúst 1968 - ALÞÝÐUBLAÐID J,

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.