Alþýðublaðið - 25.08.1968, Qupperneq 15

Alþýðublaðið - 25.08.1968, Qupperneq 15
JOAN V ,-*i UNÐIR SOt 11. HLUTI liana, -en svo heyrði hún hreyf- ingu í runnanum fyrir utan hús- ið og án tillits til öryggis sjálfrar sin, hljóp hún út að glugganum. Hún sá innfæddan mann, sem stefndi inn í runnana. Hann leit við og hún sá framan í hann í tunglsskininu. Nikalí! Jean var viss í sinni sök, þó að þetta væri óhugsandi. Don liafði fullvissað hana um, að Nikalí myndi aldrei dirfast að stíga fæt'i sínum á Tarakóa. Hún var á' leið til dyra til að sækja hjálp, þegar hún heyrði stunur frá rúminu. Hún gekk þangað. Sai’a bærði á sér og hvíslaði: — Ungfrú Jean... nú getur enginn hjálpað mér, en sonur minn ... sonur minn er Sydn- ey ... hjá systur minni. Segðu Túan Bruce ... hann veit um það ... segðu, að hann verði að hjálpa og... Rödd Söru dó út. Höfuð henn í ar féll niðúr á sængina og and- lit hennar varð friðsælt'. Jean rótti úr sér. Hún varð að komast' út úr herberginu. Ef hún yrði þar stundinni lengur, yrði hún vitskert. Á ganginum rakst hún á Cart- BARNALEIKTÆKI ÍÞRÓTTATÆKI Vélaverkstæði Bernharðs Hanness., Suðurla-ndsbraut 12. Sími 35810. er Sims, sem studdi hana, þegar lá við að liði yfir hana. Hún 4agð;i honum stamandi, hvað hefði komið fyrir. — Það var Nikalí . . . ég sá það út um gluggann, stundi hún. Hún fann, hvernig hann stirðn aði upp. En áður en henni hafði tekizt, að líta aftur framan í hann, en svipur hans hafði hing að til verið bjartur og þrunginn samúð, virtist hann draga sig inn í skel sína. Nú var ekkert annað að' sjá en kæruieysissvipinn, sem venjulega var á Sims. Jean greip krampataki í hand legg hahs og reyndi að vekja hann til dáða. — Þér verðið að reyna að finna hann.. .. Nikalí. Hann er morðingi og hann getur ekki verið langt undan. Sims hrist'i höfuðið. — Ég get ekki skilið yður eftir eina hér, sagði hann, ekki með henni. — Jú, jú... ég skal kalla á Púkk hingað inn, sagði hún. Don hafði neytt innfædda drenginn til að sofá hjá hinum vinnumönnúnum. Sims yppti öxlum, tók skamm- byssuna sína og fór út. Það var ekki fyrr en hann var farinn, að Jean skildi. hvað það var undar- legt, að Carter Sims skyldi vera á fótum og alklæddur klukkan tvö um nótt. Jean fór út og kallaði á Púkk. Hún skalf öll og nötraði. Það var gott, að Púkk sýndi henni mikla umhyggju. Hann fór með hana inn í stofu og hitaði te handa henni. Það var ekki fyrr en þá, sem Jean sagði Púkk, að hún væri sannfærð um, að Nikalí hefði myrt Söru. Púkk yppti öxlum. — Hann hefur alltaf verið á eftir Söru, illmennið það arna, en hún hló bara að honum og gerði hatin reiðan. Hann sagði, að hún skyldi fá það borgað fyrr eða síðar. Það fór hrollur um Jean. Svo datt henni í hug, að Púkk vissi eitthvað um son Söru. En þegar hún spurði hann, varð hann svartur á svipinn og leit undan. — Ég veit ekkert um hann, taut aði hann. Jean var sannfærð um, að hann vissi heilmikið, en hún vissi líka, að hún fengi hann aldrei til að segja sér allt af létta. En hún var svo æst á taugum, að hún gat ekki setið kyrr stund inni lengur. Hún gekk órólega um gólf. Svo stirðnaði hún upp, taka um hönd hans og sagði al- varlega: — Það hefur dálítið voða- legt komið fyrir, Don. Sara kom hingað í nótt og meðan hún var að tala vdð mig, var hún stungin með hnífi. Hon- um var hent inn um gluggann og ég hljóp að honum og leit út. Ég sá morðingjann flýja í tunglsljósinu og ég þékkti hann. Það var Nikalí! Don stirðnaði upp og það kom vantrúarsvipur á andlit ihans. — Vitleyisa! Hann er ekki hér á eyjunni! Þú hlýtur, að hafá ímyndað þér þetta! — Nei, ég sá hann greini- lega, sagði Jean og það fór hrollur um hana. — Ég sendi Sims út til að leita að hon- um. Don virtist hafa jafnað sig ögn. Hann sagði aðeins: — Ég held, að þú hafir feng- ið Nikalí á heilann! Hann er enn á Flamingóeyju. Ég hefði vitað það, ef hann hefði kom- því að hún hafði séð öskubakka, sem stóð við hliðina á tveim tómum glösum. Sígaretta með því merki sem Carter Sims reykti lá á öskubakkanum og það log aði enn í henni. Við hliðina á henni lágu stubbar af ódýru vindlingunum, sem hinir inn- fæddu reyktu. Það logaði ekki lengur í þeim. Það var augljóst, að það hafði verið innfæddur gestur hjá Carter Sims og það klukkan tvö um nótt. Þess vegna hafði hann verið á fótum. Skelfingin greip Jean. Hafði það verið Nikalí? Var félagi Dons illmenni,. sem ekki var unnt að treysta? Tíminn léið. Púk-k hafði hnip rað sig saman í stól og sofnað. Jean gerði slikt hið sama löngu seinna. Mörgum klukkutímum seinna, var tekið um handlegginn á henni. Það var orðið bjart af degi. ! —Elsku Don, sagði hún, þeg ar hún sá, hver var kominn. — Ertu loksins kominn aftur? En hann faðmaði hana ekki að sér eins og hún hafði átt von á og' nú sá hún, hvað hann var reiðilegur á svipinn og spurði: — Er eitthvað að, Don? Það voru skeggbroddar á höku hans og hún sá, að hann var mjög fölur. Hann settist í stól. — Við náðum ekki í Kabala sagði hann biturlega. — Hann er sennilega nú þegar kominn upp í fjöllin. Þegar hann sagði þessi síðustu orð, kom hatursglampi í augu hans og Jean leið enn verr á eft ir en henni hafði liðið áður en hann kom. Skyndilega fannst henni Don vera ókunnur og alls ekki sami maðurinn og hún hafði orðið ástfanginn af. En liún hrinti öllum sínum hugsun um frá sér. og laut áfram til að Framhald af bls. 6. Limoges. Árið 1943 kom hann fyrst til Parísar þar var hann fyrst kennari á heimili flótta- barna og kenndi þeim m.a. málaralist og leiklist. Ári síð- ar innritaðist hann í leiklist- arskóla og laigði aðallega stund á nám í látbragðsLeik. Meðal kennara hans voru: Jean Uouis Barrault og Jean Vilar. í byrj- un deildi Marceau tíma sínum milli tveggja leikhúsa í París, en það mun hafa verið árið 1949, sem Marceau stofnaði sinn eiginn flokk, og sýndu þeir einvörðungu látbragðs- leiki, sem frægt er orðið. Hann varð. á ótrúlega skömmum tíma heimsfrægur. Þekktasta hlutverk Marceau. er tvímælalaust flækingurinn Bip, sem er nú orðinn ein af sígildum fígúrum í látbragðs- listinni. Efcki er að efa að sýningar Marceau í Þjóðleikhúsinu eiga eftir að vekja mikla og verð- skuldaða athygli, Myndin er af listamannin- um. Norrænahúsið Framh. af bls. 3. ræðuna við opnunina. Þá afhenti fonmaður bygg- ingarnefndiar Norræna) húss- ins, Eigil Thrane, ráðuneytis- istjóri frá Danmörku, mennta- málaráðherra íslands, Gylfa Þ. Gíslasyni, lykilinn að hinu nýbyggða húsi, en hann af- henti síðan Ármanni Snævarr, rektor Háskóla íslands, lykil- inn, en Ármann er formaður stjórnar Norræna hússins. — Þessir þrír aðilar fluttu allir stutt ávörp. Erik Eriksen fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur flutti ræðu sem fulltrúi fyrir „Foreningen Norden“, en Sig- urður Bjarnason, alþingismað- ur, flutti ræðu fyrir hönd Norræna félagsins á íslandi. Fulltrúar ríkisstjórna tveggja Norðurlanda fluttlf ræður, Kjeld Bondevik, mennta- og kirkjumálaráð- herra Noregs og Bjarni Bene- diktsson, forsætisráðherra ís- lands. Strengjahljómsveit lék 1 Norræna húsinu á milli ávarp anna, sem flutt voru. Að lokinni sjálfri opnunar- athöfninni snæddu gestir há. degisverð að Hótel Sögu í boði stjórnar Norræna hússins. — Þar fluttu ávörp fulltrúi Finna og Svía. Eftir hádegi var samnorræn- listiðnaðarsýning opnuð, en é sýningunni eru fjölmargir listiðnaðargripir eftir listafóllB frá öllum Norðurlöndunum. Klúkkan 17 hófst í Þjóðlélfe- húsinu sérstök hátíðardagskrí í tilefni opnunar norræna liúsg ins. Komu þar fram listamenö frá öllum Norðurlöndunum sex. BryiXjólfur Jóhannessoni, leikari, flutti þœtti úr Gullná hliðinu eftir Davíð Stefánssort, Anne Olsen frá Færeyjum söng 'fæireyskþ sönigvía. Per Aabel frá Nbregi flutti bundið og óbundið mál eftir Björnstjernö Björnsson, Nils Kjær, Johan; Herman Wessel og Andrí Bjerke. Gunnar Turesson frá Svíþjóð söng söngva með text- um eftir Bellmann og fleiri. Balletdansararnir frá Dari- mörku Arne Bech og Solveg Östergárd sýndu dansa Pas da deux úr Blómahátíðinni f Genzano og Zuav Galoppen, ea undirleik annaðist Carl Billiclt Finnsku hjónin Kaisa Korhon- en og Kaj Chydenius kynntu finnska söngva með textunt eftir finnska höfunida. Guörún Á. Símonar, óperusöngkona, söng m.a. söngva úr „Gullna hliðinu“ við lög ieftir Pál ísólfsson. J Orðsending til húsmæöra Þaer húsmæður sem anda gjörið svo vel, fyrst. ætla að taka að sér blaðútburð nú í vetur kom- og hafið samband við afgr.blaðsins sem allra 25. ágúst 1968 - ALÞÝÐUBLABIÐ 15

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.