Alþýðublaðið - 30.08.1968, Blaðsíða 8
fc^/\/W/W\A/WV\/\/W\/W/\A/V/V/V^/WVV^<WN^^A/NA/S/V/W\AA^A^NA/WV^/V\A/V/WNAA/\/\^/V\^AAA<WV\AA/VNAA/VWN^A/VWS<W
— LANDBÚNAÐUR, iðnaður
og alvirmurekstur vegna fyrir-
greiðslu ferðamanna verður
sýnilega þeir þættir sem munu
standa undir atvinnu og afkomu
í HúnavatnssýsXu í framtíðinni.
Þetta sagði sýslumiaður Hún-
vetninga, Jón ísberg, í viðtali
fyrir skemmstu er tíðindamaður
blaðsins ræddi við hann fram-
tíðarmöguleifea ihéraðsins.
— Þið 'hafið auðvitað tröllatrú
á landbúnaðinum.
— Já, Húnivatnsisýsla hefur
'alla tíð verið landbúnlaðarhérað.
Skilyrði fyrir iandbúnað mega
teljast hér góð. Við ierum hér
oft á miili veðra, 'eins og kom.
izt er stundum að orði. Norð-
austan Verðrin ná ekki svo mjög
Itil okkar, hér er afar snjólétt,
nlema helzt í úthéraðinu austan
Blöndu. Héraðið er ákaflega
iþurrviðrasamit. Ég minnist þess
að í gamila daga Iþiegar veður-
lathuganir voru á Blönduósi var
mainmi sagt að hér væri minnst
'úrkoma landið um fering. Þá vil
ég lifea leyfa mér að telja það
Húnavatnssýslu ti'l gildis að sam
kvæmt athugunum sem Páll heit
inn Zophóníasson gerði hér á
árunum var hieyfengur af dag-
slattu ræktaðs lands mestur hér.
Þannig teljum við að mögu-
leikar fyrir landbúnað séu prýði
legir hér og fimnst sjálfsagt að
byggja á því að sá atvinnuVeg-
iðnað og feroamannastraum
ur verði aðalatvinmuvegur í
héraðinu.
— Það er 'þá fcanmski ein-
hverra nýjumga að vænta úr
landbúnaðarmálum hér.
— Bfeki er ég nú viss um það,
ekki fremur Ihér en annars stað-
ar. En margir Húnvetningar
hafa ákveðnar skoðanir á því
OFNm
að hverju stefna beri. Við lít-
um 'held ég margir svo á að
b'etra sé að ihafa jarðimar stór-
ar, a.m.k. nokkuð stórar, betra
sé að búa stórt. Sumir telja
nýbýliastefnuna mjög 'heimsku-
ilega, það 'sé ágætt fyrir bónd-
ann að hafa evona 500—1000
fjár eða nokkuð margar kýr,
en notfæra sér bara allra nýj-
ustu tækni, því lítil bú fram-
fley.ta illa venjulegri fjölskyldu
með þeim kröfum sem gerðar
eru itil 'lífsins, að fólik geti átit
bíla og allt annað tilheyrandi
nútíma lífi. Líti'l bú þýða bara
skuldabasl. Það er þá hægt,
(þegar mi'kið (er um að veria, t.d.
á vorin, að fá menn og bocrga
þeim bara vel. Við vitum að það
er hægur vandi að hirða 500—
1000 fjár í þeim húsum sem
nú er verið að byggja og þá er
bara mikið 'að gera mcSan gauð-
burður stendur yfir og á haust-
in, faufc þess sem tafea verður
tiílit ti'l þéss að landið 'þolir
ekki mjög mikinn bústofn, nema
miklu meira sé ræktað.
— Stefnan ler þá sú að fækka
hýlum en stækkla þau.
— Ég held að menn hugsi
sér það margiir. Ég meina nú
samt ekki að íþað eigi 'að rjúka
í að fækka bændum. en hins
vegar að smátt og srnátt muni
síga í þessa áttina.
— Kemur þá ekki til greina
s'amvinna miili bænda um að
rækta 'allar þessar geysilega
ffallegu mýrar héma suðvest-
ur undan sem eru einhverjar
fallegustu mýrar <á landinu,
rækta iþær bara eins og þær
ileggja sig, fá þar slægjur, en
beitia svo upp til dalan'ma þar
sem sauðland er bert? Það er
'hvort sem er ekki orðið svo
mikið vandamál að flytja heyið.
— Það getur vel verið, en
'bændur eru miklir einstaklings-
hyggju menn og ýmislegt ann-
að getur líka staðið í vegi fyrir
Iþví. Hins vegar má benda á
að þrír bændur í Vaitnsdal sem
eiga erfitt með ræktunarland
fóru fram á og fengu vi'lyrði fyr-
ir um 60 hektara spi'ldu úr landi
Skinnastaða, sem átti 'að búta
niður í fjögur smábýli, til þess
■að rækta og flytja heyið fram
eftir.
— Það var nú eiginlega þetta
sem ég meinti.
— Já, ég veit ekki hvort húið
Var að ganga formlega frá þvi,
enm þá risu hreppsbúar í Torfa-
lækjarhreppi upp og töldu það
óheppilegit fyrir hreppsfélagið
'að rækta land og flytja heyið
af því fram í Áshrepp. Það eru
því ýmis sjómarmið sem koma
■til greina. Hins vegar ler þetta
vafaiaust skymsamlegt. Þá má
benda 'á það að jörðin Krókur
í Þorkelshóls'hreppi 'siem liggur
fram af V.íðidalstumgu er að fara
í eyði, en ábúandinn þar flytur
á jörð niðri í lágsveit, og það
er ekkert ómögulegt að hann
ný'ti Krók þannig að 'hann hafi
fé þar bæði vor og haust.
— Er íyrirgreiðsla vegna
ferðamannastraums orðin veru-
legur aívinnuvegur hér?
— Þar fer vaxandi. Það er
rekið sumarhótel vestur ó
Reykj'askóla í Hrútafirði á veg-
um Ferðaskrifstofu ríkisins. —
Þar er sund'laug og þar er
byggðasafn Húnvetninga og
Strandamanna sem hvort tveggja
dregur að. Þá er verið að reisa
nýjan skóla lað Reykjum á
Reyk.jabraut, og 'hamn er hugs-
aður sem hótel að sumrinu. Þar
ler ætlunin að bjóða dvalarg'esit-
um að vera, og þeim mundi þá
standa til boða að fá veiðileyfi
í Svínavatni og lei'gja sér báta.
Þeir eiga líka að geta fengið
léða hesta, it.d. til ferða fram
á fjöll. Á það má líka benda að
bílvegurinn yfir Kjöl kemur til
byggða í Húimava'tnssýslu. Og
ferðamanmastraumur hlýtur að
vera töluverður Ihér af því hve
sýslan liggur miðsvæðis á land-
in-u.
•S/WAAAA/WA/WAAA/WAA^^SA/W/SAAAAAAAA/SAAA/SAA/SAA/SA/SAAAAAAA^^^SAAA/S/SA/SA/WAAAAA/SAA/S/SAAA/S/WAAAAAAAA/SA/
8 30. ágúst 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ