Alþýðublaðið - 30.08.1968, Síða 10
itiinnimii la* m*«u m«**> >nnutnitmnmMt<iíf» ftt ihih»uihiiihih tt; HmnHnnu* >»; t u ;; i >; j $ s * u t ■ * -? l f •■ *« ::
11 : 111 i 11 ítllllfl l
I I n H t
Marceau
Framhald af bls. 3.
færast út á götuna. Fólkið vill
taka þátt í leiknum. Það gerir
það til að berjast gegn ein-
manaleikanum. Við geturn
bráðum átt von á því að menn
taki upp á því að mála sig t.
d. rauða ef hugarfarið er rautt.
ffippíaírlnir í Bandaríkjunum
eru farnir að tileinka sér lát
bargðslistina.
— Nei. Ég færi ekki þættina
mína í letur. Þeir verða smám
saman ti.l í huga mínum, og
svo leik ég fyrir framan speg
il.
Hann kvaðst ekki hafa í
hyggju að hætta að leika og
snúa sér að kennslu í látbragðs
Ijst a. m. k. ekki á næstunni
— Ejns og Bernhard Shaw
sagði: „Meðan þú kennir get
urðu ekki leikið, og þegar þú
leikur, geturðu ekki kennt.“
Sýningar Marceaus í Rvík
er að því leyti 'sögulegar, að
í Þjóðleikhúsinu verður helms
frumsýning, ef svo má orða
það, á fjórum nýjum þáttum
snillingsins, og hér hefst nýtt
sýningarferðalag, sem lýkur í
maí 1969. Héðan fer hann til
Norðurlanda og síðan til
Bandaríkjanna, Frakklands,
Sviss, Belgíu, Hollands, Þýzka-
lands og Austurríkis og ítalíu.
Og svo byrjar hann aftur í
París í október 1969.
— Hestarníilr ykkar eru af-
skaplega fallegir. Ég vildi
gjarnan komast á hestbak hér.
— Það má koma því í kring.
Það upplýstist að Þjóðleik
hússstjóri átti í miklum erfið
leikum með að ná sambandi
við Marceau á sínum tíma, en
tókst þó að lokum fyrir milli
göngu kunningja Marceaus að
fá hann hingað 1966. Og til að
tryggja það, að íslenzkir aðdá
endur hans mættu fá að sjá
hann öðru sinni, samdi þjóð-
leikhússtjóri við hann um að
koma hingað aftur er þeir
voru samferða í flugvél héðan
eftir heimsókn Marceaus 1966.
Og nú er Marcel Marceau
sem sagt hiþigað kominn eins
og um var samið, og að lok-
um fylgja hér með skilaboð
hans til áhorfenda, sem koma
í leikhúsið tll að njóta listar
hans: Þið verðið að finna það
sem ég geri.
Ritsko^un
Framhald af bls. 1.
ræðu, að Tékkar hefðu neyðst til
þess að fórna miklu f Moskvu.
— Við kusum samkomulag, sagði
hann, ;— en það var ekki auð-
velt. Þér verðið að trúa því að
við beittum öllum röksemdum til
að sannfæra Rússana.
Þing slóvakískra kommúnista
í Bratislava kaus í gær Gustav
Husak sem aðalritara, en Vsil
Bilak, sem gengdi því embætti
áður, var vikið frá fyrir sam-
vinnulipurð við Rússa. Husak
sagði sig í fyrradag úr hinni
nýju miðstjórn kommúnist'a-
flokksins á þeim forsendum, að
flokksþingið í Prag á dögunum
hefði verið ólöglegt. Tók þingið
í Bratislava í sama streng, en
lagði jafnframt á það áherzlu
að þessi áfstaða væri ekki ætluð
til þess að rjúfa éiningu flokks-
ins, enda styddu Slóvakar að fullu
flokksstjórnina undir forystu
Dubceks. Þá kom flokksþingið
til liðs við Dubcek í gær, er það
samþykktí Moskvusamkomulag-
ið.
Talið er líklegt að Dubcek
ætli sér að kalla bráðlega sam-
an nýtt flokksþing, en bæði Slóv
akar og Rússar segja flökks-
þingið í Prag ólöglegt. Á þessu
þingi er búizt við að Dubeek
reyni að mynda nýja miðstjórn
og taka inn í hana menn, sem
eru hliðhollir Sovétríkjunum.
Starfsmenn við málgagn rit-
höfundasamtakanna dreifðu í
gær dreifiblaði á götum Prag.
Þar sögðu þeir að ritskoðun
vildu þeir ekki hafa. Þeirbættu
því við að útgáfu tímaritsins
yrði því aðeins haldið áfram, að
þeir gætu starfað eftri sam
vizku sinni.
Michel Debré, utnríkisráð-(
herra Frakka, talaði um Tékkósló
vakíumálið á fundi í utanríkis-
málanefnd franska þingsins í
gær og gaf til kynna að Frakkar
myndu ekki samþykkja neinar
refsiaðgerðir gegn Sovétríkjun-
um. Hann sagði að Frakkland
fordæmdi innrásina, en landið
myndi halda áfram að berjast
gegn eflingu hernaðarblokkakerf
isins. — Við lifum á þýðingar-
miklu skeiði evrópskrar sögu,
sagði Debré, — en árekstur á
ákveðnum vegi má ekki leiða
til þess að öll umferð á' veginum
verði bönnuð. Sáttastefnan ein
kemur til greina, af því að kalt
strfð leysir ekki nein af vanda-
málum Evrópu.
Brúðkaup
Framhald af bls. 1.
dómkirkjunnar voru alls átj
án bílar og komu þeir í fjór
um hópum. Fjórir lögreglu
menn á vélhjólum fylgdu
hverjum hóp.
Annar hópurinn, en í hinum
voru sjö bílar, kom til kirkj
unnar fimm mínútum síðar en
krónprinsinn eða klukkan
16.35. í fremsta bílnum sátu
Carl Bernadotte prins og greifa
hjónin Ultens de Schooten. Síð
an komu Ástríður prinsessa,
frú Ferner og Johan Martin
ferner forstjóri, Ragnhildur
prinsessa, frú Lorentzen, Erl
ing Lorentzen og sonur þeirra
Haakon Lorentzen. í sama
hóp óku einn g dönsku ríkjs
arfahjónin, Margrét prinsessa
og Hendrik prins, prins Valus
af Niðurlöndum ásamt Rut.h
greifynju af Rosenborg. Þá
komu dönsku konungshjónín,
Fnjðrik konungur og Ingrid
drottning, Gustaf Svíakonung
ur, Margxét prinsessa, Baudou
in konungur Belgíu og stórher
togahjónin af Lúxemborg,
forseti. Finnlands Urho Kekk
onen og frú, forseti íslands
Kristján Eldjárn og frú og fjór
ar brúðarmeyjar.
Meðan gestir gengu ínn í
kirkjuna var ledkin norsk org
eltónrst eftir mörg tónskáld.
Dómorganistjnn Rolf Karpsen
lék á orgelið, á meðan gestini
ir gengu til sæta sinna.
Þegar brúðurin gekk inn í
kirkjuna við hlið Ólafs kon
ungs var lejkið lag eftir Henry
Ourcell. Það var í orðsins
fyllstu merkjngu hvít brúður,
sem gekk upp að altari dóm
kirkjunnar í Osló. Það var að
eins lítil græn myrtugrein,
sem skildi að hinn stílhreina
hvíta brúðarkjól og brúðar
vöndinn. Brúðarvöndurinn var
einnig hvítur — uppáhalds
blóm brúðarlfnnar hvítar fres
íur, hvítar rósir og ork'deur.
Hin aldna dómkirkja í Osló
hefur sennilega aldrei verið
eins fallega skreytt og nú við
þetta brúðkaup, en hún var
sett blómum hátt og lágt.
Athöfnin í kirkjunni hófst
með sálmasöng norskra stú
denta.
Það var dr. Fridtjov Birkeli
biskup, sem gaf upgu hjónin
saman og lagðL hann út af sjö'
unda versi, 15. kafla í bréfi
Páls postula til Rómverja.
íþróttir
Framhald af bls. 11.
dómarinn flautaði, og tók bolt-
ann með höndunum innan vjta-
teigs.Rétt fyrir leikslok jafnaði
Hermann, 3-3, með atórfallegu
marki af löngu færi, má' segja
óverjaridi fyrir markvörðinn.
Fyrirliði UL, Jón Pétursson,
Óskar, Marteinn og Rúnar áttu
allir mjög góðan leik, enþað
má reyndar segja um allt liðið
sem heild.
Leikinn dæmdi Baldur Þórðar-
son.
Heitnskringla
Framh. af bls. 3.
verð fyrir blaðið er kr. 450 á
ári og burðargjald innifalið.
Er fólk hvatt til að gerast á
skrifendur að þessu málgagni
Vestur íslendinga og stuðla
þannig að því, að eina blaðið,
sem gefið er út á íslenzku er
lendis, hverfi ekki af sjónar
sviðinu.
Afgreiðslan er opin alla
virka daga frá kl. 10 til 7 e.
h., sími 17779.
Demókratar
Framhald 3. síðu.
glæpamiannaforinginn A1 Capo-
ne.
í gær Var að mestu kyrrt í
Chieagoborg, en sveitir þjóð
varðliða voru á verði í borginni
og þá sérstaklega í grennd við
bústað Humphreys og McCart-
hys.
Yfirvöld í Chioago upplýstu
í gær að 267 manns hafi verið
handteknir og 27 lögregluþjón
ar særzt í átökunum.
ÞAÐ
BORGAR
SIG AÐ
AUGLÝSA
I
Alþýðu-
blaðinu
Tilboð ós'kast í innanhússsmíði fyrir Rann-
sóknarstofnun byggilngariðnaöarins, Keldna-
holti.
Útboðsigögn verða lafhent á skrifstofu Inn-
'kaupastofnunar ríkiisins, Borgartúni 7, Rvík,
gegn 1.000,00 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð mánudaginn 9. sept.
n.k. kl. 11 f.h.
Söngkennarar
Staða söngkennara við barna- og gagn-
fræðaskólann á Isafirði, er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur til 10. september.
Umsóknir skulu sendar til formanns
fræðsluráðs ísafjarðar, Bjarna Guðbjörns-
sonar, Engjaveg 12, ísafirði.
FræÓsluráð ísafjaróar.
FULLORÐIÐ FÓLK
Fullorðið fólk óskast til blaðadreifingar víðsvegar um borgina, til
dreifingar á Alþýðublaðinu, Þjóðviljanum og Tímanum.
Upplýsingar afgr. Alþýðublaðsins. — Sími 14900.
10 ;30. ágúst Í968 - ALÞÝÐUbLÁÖIÖ0Í