Alþýðublaðið - 07.09.1968, Síða 5

Alþýðublaðið - 07.09.1968, Síða 5
Ný bíblíuútgáfa í 5000 eintökum í haust kemur sýnishom af endurskoðaðri bibhuþýðingu Um þessar mundir er að koma á' markað á vegum Hins ís- lenzka biblíufélags ný prentun biblíunnar, prentuð í Prenthúsi Hafsteins Guðmundssonar eftir leturplötum Brezka og erlenda biblíufélagsins, sem hefur ann- azt prentun ísienzku biblíunn. ar um langt skeið. Einnig kemur nú út ný prentun Nýja testá- ---------------------------1 Björgvin Bjarna- son hlaut bæjar- fógetaembættið í gær veitti forseti íslands, að tillögu dómsmólaráðherra, Björgvin Bjarnasyni, sýslu- manni í Strandasýslu, bæjar- fógetaembættið á ísaf.rði frá 1. október að telja. Um embættið sóttu auk Bjövg vins Ásmundur St. Jóhanns- son, bæjarfógetafuiltrúi á Ak- ureyri, Bragi Steinarsson, full trúi tsafirði og Enar Odds- 'G. Einarsson, bæjarfógetafull trúi ísafirð. og Einar Odds- son, sýslumaður Vík. mentisins, prentuð í Bretlandi, en Nýja testamentið hefur ekki verið fáanlegt' undanfarið í út- gáfu biblíufélagsins. Hins vegar hefur Gideon-félagið dreift Nýja testamentinu meðal skólabarna undanfarið, nú síðast ellefu ára barna. Báðar þessar prentanir koma út í 5000 eintaka upplagi, og verða væntanlega fáanlegar eftirleiðis. í haust er í ráði að gefa út sýnishorn nýrrar end. urskoðaðrar biblíuþýðingar, sem uilnið er að á vegum félagsins, og verður það Lúkasarguðspjall. Frá' þessu sagði Hermann Þor- steinsson framkvæmdastjóri fé- lagsins á fundi með stjórn biblíufélagsins og fleiri gestum í tilefni af heimsókn Sverre Smaadahl, fulltrúa Sameinaða biblíufélagsins — United Bible Societies — hingað til lands. — Smaadahl er ritari Evrópudeild- ar félagsins, en verkefni hans er að samræma störf hinna ýmsu biblíufélaga og efla sam. vinnu þeirra. Kvað Smaadahl mikið verk óunnið við biblíuút. gáfu, þýðingar og prentun á öll- um 3000 tungum heims. Nú kæmu út 105 milljónir eintaka af á ári. AGA KHANIREYKJAVÍK Hér á landi er nú staddur ein hver frægasti prins Múhameðs trúarmanna, Sadruddin Aga Khan, forstjóri flóttamanna- hjálpar Sameinu'ðu þjóðanna. I gær ræddi prinsinn við ís- lenzka ráðamenn um starfsemi flóttamannabjálpar’nnar og vakti athygli á vandamáluin flóttamanna í heiminum í dag. M.a. ræddi hann við dr. Gylfa Þ. Gíslason, mennta- og viðskiptamálaráðherra, en hann gegnir um stundar sak- ír störfum utanríkisráðhevra í fjarveru Emjls Jónssonar, ut- anríkisráðherra. Flóttamanna hjálp Sameinuðu þjóðanna hefur á umFðnum árum veitt hundruðum þúsunda flótta- manna aðstoð, aðallega fólki —-----------------------i „Hroki og vankunnátta" Katólskir stúdentar í V-Þýzka- landi hafa að undanförnu látið til sfn heyra í sambandi við páf. ann og pilluna. Þeir segja að afstaða páfa lýsi hroka og van- kunnáttu. Stúdentarnir hafa haft í frammi mikinn áróður í sam- bandi við 82. þing katólskra, sem nú er haldið í Essen. í Asíu og Afríku. Sadruddin Aga Khan kom til íslands í gær, en heldur áfram til Norð urlanda í dag. Hann mun leggja leið sina til allra Norð urlandianna næstu daga og ræða við ráðamenn þar um störf flóttamannahjálparinn- ar og verkefni. Sadruddin Aga Khan kom flugleiðis til Keflavíkurflugvall- ar um klukkan 14 i gær. Þar tók á móti honum Pétur Eggerz déildarstjóri í utanrikisráðu- ráðuneytinu. Þegar til Reykja- víkur kom gekk prinsinn á fund; islenzkra ráðherra, dr. Gylfa Þ. Gíslasonar og dr. Bjarna Bene. diktssonar forsætisráðherra. ■ Síðdegis í gær heimsótti Aga Khan forseta íslands, herra Kristján Eldjárn, að Bessastöð- um, í gærkvöldi sat hann kvöld- verðarboð utanríkisráðherra. Prinsinn dvaldi á Hótel Sögu í nótt. t dag er gert ráð fyrir, að hann skoði Reykjavík og ræði við forystumenn „Herferðar gegn hungri” hér á landi og fleiri aðila. í förinni með Sadruddin Aga Khan, forstjóra flóttamanna- hjálpar Sameinuðu þjóðanna, er Ole Volfing, starfsmaður stofn. unarinnar. Prinsinn heldur för sinni áfram síðari hluta dags í dag til hinna Norðurlandanna. yöstudaginn 6 september heimsótti forseti íslands, Kristján Eldjám og frú Halldóra Eldjám sýningu Húsgagnaarkitektafélags íslands. Á meðfylgjandi mynd sjást hússgagnaarkitektar sýna þeim hús- gögn'ui á sýningunni. Sýningunni lýkur á sunnndagskvöld. Hún hefur verið mjög vel sótt. Utanríkisráð- herrafundurinn Alþýðublaðinu liefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning um fund utanríkisráðherra Norðurlanda. sem nýlega var haldinn í Stokk- hólmi: Hinn árlegi haustfundur utan- ríkisráðherra Norðurlanda var haldinn í Stokkhólmi dagana 3. og 4. september s.l. Fréttatilkynning um störf ráð- herrafundarins fer hér á eftir: „Hinn venjulegi haustfundur utanrikisráðherra Norðurlanda fór fram í Stokkhólmi 3. og 4. september 1968. Ráðherrarnir áttu ýtarlegar viðræður um ástand alþjóðamála, einkum hina hörjnulegu atburði í Tékkóslóvakíu, og er { þvi sambandi 'vísað til sérstakra yfir- lýsinga norrænu ríkisstjórnanna vegna hernáms Tékkóslóvakíu. Ráðlierrarnir ræddu ýtarlega aðgerðir Norðurlanda tii að létta þjáningar almennings af völdum átakanna i Nigeríu. Ákváðu þeir að senda framkvæmdastjóra Sam einuðu þjóðanna, U Thant, sér. Magnús Sigurðsson talar um atburðina Magnús Sigurðzson, blaða- maður, talar um alburðima í Tékkó3lÓviSk9u( á sameiginlíegt- ium ’hádegisfundi, sem Varðberg og Samfcök um vestraana sam- vinnu halda í Þjóðleikihúskjall- 'aranum í dag, laugard'ag. Eins og kunnugt er, dvaldist Magnús í Tékkóslóvakíu nú í isumar. Hann mun svara fyrir- spurnum félagsmann'a í fundar- lok. staka orðsendingu viðvjkjandi þessu máli. Ráðherrarnir voru sammála um, að sem allra flest ríki þyrftu að gerast aðilar að alþjóðasamn- ingum um bann við frekari dreif- ingu kjarnorkuvopna, sem yfir 70 ríki hafa þegar undirritað - þeirra á meðal öil Norðurlöndin. Það samkomulag sem tekizt hef- ur að ná, ætti að auðvelda frek- ari aðgerðir á' sviði afvopnunar- mála. Utanríkisráðherrarnir lýstu á- • nægju sinni yfir því, að viðræð. ur skuli nú fara fram milli Banda ríkjanna og Norður-Vietnam og Jétu í Jjós von um, að þær við- ræður mundu brátt leiða til ár- angursríkra samninga um enda. lok styrjaldarinnar í Vietnam. Undirbúningur að þátttöku Norðurianda í hjálparráðstöfun- um eftir lok styrjaldarátakanna svo og aðgerðum til uppbygging- ar í Vietnam eftir lok stríðsins var einnig tekinn til umræðu. Norræna undirbúningsnefndin lagði fram bráðabirgðaskýrslu um uppbyggingaraðstoð við Viet- nam. Fólu utanríkisráðherrar nefndinni að lialda áfram störf. um. í umræðum um þau ágrein- ingsmál, sem eru á dagskrá næsta allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna, lögðu ráðherrarnir sér staka áherzlu á hinar óleystu deilur fyrir botni Miðjarðarhafs. Þyrftu deiluaðilar að leggja sitt af mörkum til þess að umleitan- ir Jarrings sendiherra geti bor- ið árangur til styrktar friði. Ástandið í Suður.Afriku er enn áhyggjuefni, einkum vegna stefnunnar í kynþáttamálum, sem iþar er fylgt. Að því er snert ir framkvæmd ályktana Öryggis- ráðsins um Rhodesíu, þá hafa Norðurlöndin stöðugt samráð sín í miHi í því skyni að tryggja sem mestan árangur refsiaðgerð. anna. Ráðherrarnir fjölluðu um fram- vindu Grikklandsmálsins á vett. vangi Evrópuráðsins. Eru kærur skandinavísku landanna nú til efnislegrar meðferðar hjá Mann- réttindanefnd Evrópu. Hin margvíslegu vandamál mannlegs umhverfis verða tekin til meðferðar á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna á þessu hausti. Ráðherrarnir voru sam- mála um, að á haustfundi alls- herjarþingsins vtSrðj (að igfra ráðstafanir til að fylgja eftir frumkvæði Efnahags. og félags- málaráðsins um að kvödd verði saman al'þjóðaráðstefnia um mannlegt umhverfi. Hagnýtíng hafsbotnsins, seni verið hefur tii meðferðar hjá sérstakri nefnd Sameinuðu þjóð- anna, var einnig rædd á fund- inum. Ráðherrarnir voru sam- mála um að náttúruauðæfi hafs. botnsins. verði að hagnýta mann. kyninújitil heilla. í því sambandi sé rétt að gefa sérstakan gaum að fjármagn,þörf þróunarríkj- anna til efnahags- og félagsmála. uppbyggingar þeirra. Ráðherrarnir lýstu ánægju yf- ir því, að kjör Finnlands í Örygg ráðið fyrir tímabilið 1969-1970 virðist nú fullvíst. Fundinn sátu: Utanríkisráð. herra Danmerkur, Poul Hartling, utanríkisráðherra Finnlands, Em il Jónsson, utanríkisráðhr. Nor- egs, John Lyng, og utanríkisráð- herra Svíþjóðar, Torsten Nils- son. Að boði danska utaríkisráð. herrans mun næsti utanríkis- ráðherrafundur Norðuriandí verða haldinn í Káupmannahöf). 23. og 24. apríl 1969. Utanríkisráðuneytið Reykjavík, 5. septembsr 1969. 7. sept. 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.