Alþýðublaðið - 15.09.1968, Blaðsíða 14
Smátt ufflý.sinffav
ökukennsla
' LæriS að aka bíl þar sem
bflaörvalið er mest.
Volkswagen eða Taunus, 12m.
þér getið valið hvort þér viljið
karl eða kven.ökukennara.
Útvega ÖU gögn varðandi
bílpróí.
GEIB P. ÞORMAU, ölcukennarl.
Símar 19896, 21772, 84182 og
19015. SkUaboð um Guíunes.
radíó. Simi 22384.
ökukennsla
Létt, Upur 6 manna blfrelð.
VauxhaU Velox
Guðjón Jónsson.
Síml 3 66 59.
ökukennsla —
æfingatímar —
Volkswagenbifreið. Tímar eftir
samkomulagl. Jón Sævaldsson.
Síml 37896.
Heimilistækja-
viðgerðir
I»vottavélar, hrærivélar og önn-
ur heimilistæki. Sækjum, send
um.
BafvélaverksæBi
H. B. ÓLASON,
Hringbraut 99. Síml 30476.
S j ón varpslof tnet
Tek að mér uppsetningar, við
gerðir og breytingar á sjón-
varpsloftnetum (einnig útvarps
loftnetum). Útvega ailt efni ef
óskað er. Sanngjarnt verð.
Fljótt at hendi leyst. Simi 16541
kl. 9-6 og 14897 eftir kl. 6.
Kenni ákstur
og meðferð blfreiða, Ný
kennslubifreið, Taunus M.
Uppl. f sfma 32954.
Valviður — Sólbekkir
Afgreiðslutími 3 dagar. Fast
verð á lengdarmetra. Valviður,
smfðastofa Dugguvogl 5, sirni
30260. — Verzlun Suðurlands
braut 12, sími 82218.
Er bíllinn bilaður?
Þá önnumst við allar almennar
bílaviðgerðir, réttingar og ryð,
bætingar. Sótt og sent ef óskað
er. Bílaverkstæðið Fossagötu 4,
Skerjafirði sími 22118.
Ökukennsla
Hörður Ragnarsson.
Sími 35481 og 17601
Heimilistæk j aþj ón-
ustan
Sæviðarsundi 86. Sími 30593.—
Tökum að okkur viðgerðir á
hvers konar heimilistækjum. —
Simi 30593.
Hand hreingemingar
Tökum að okkur að gera
hreinar íbúðir og fl. Sköffum
ábreiður yfir teppi og hös.
gögn. Sama gjald hvaða tima
sólarhrings sem er.
Simar 32772 — 36683.
f’Voga-þvottahúsið
Afgreiðum allan þvott
með stutum fyrirvara.
V oga-þ vottahúsið
Gnoðavogi 72. Sími 33 4 60.
Húsgagnaviðgerðir
Viðgerðir á alls konar gömlum
húsgöguum, bæsuð, póleruð og
máluð. Vönduð vinna.
Húsgagnaviðgerðir
KNUD SALLING
Höfðavík við Sætún.
Simi 23912. (Var áður
Laufásvegi 19 og Guðrúnar
götu 4).
Loftpressur til leigu
í öll minni og stærri verk.
Vanir menn.
JACOB JACOBSSON.
Sími 17604.
H N O T A N
Selur
VEGGHÚSGÖGN
mikið úrval.
NÝTT
Hóifaðir plötuskápar.
H N O T A N
Þórsgötu 1. — Sími 20 8 20.
WESTINGHOUSE.
KITCHEN AID
FRIGIDARIRE —
WASCOMAT
vlðgerðaumboð. Við önnumst
viðgerðlr á öllum heimilis.
tækjum. Rafvéiaverkstæði
Axels Sölvasonar, Ármúla 4.
Simi 83865.
V élhremgeming.
Gólfteppa. og húsgagnahreins
;un. Vanir og vandvirkir menn.
Ódýr og örugg þjónusta. —
ÞVEGíLLINN,
sími 34052 og 42181.
Húsviðgerðir s.f.
Húsráðendur — Byggingamenn.
Við önnumst alls konar viðgerð
ir húsa, járnklæðningar, gler-
ísetningu, sprunguviðgerðir alls
konar. Ryðbætingar, þakmáln.,
ingu o.m.fl. Símar: 11896, 81271
og 21753.
Ný trésmíðaþjónusta
Trésmiðaþjónusta tii reiðu, fyr.
ir verzlanir, fyrirtæki og eín.
staklinga. — Veitir fullkomna
viðgcrðar. og viðhaldsþjónustu
ásamt brcytingum og nýsmíði.
— Sími 41055, eftir kl. 7 s.d.
Tímakennsla
í Hafnarfirði
Tek 6 ára börn I tímakennslu í
lestri í vetur.
Byrja 1. október.
Upplýsingar í síma 52143.
Helga Friðfinnsdóttir.
Arnarhrauni 29.
Húsbyggjendur
Við gerum tilboð í eldhús-
innréttingar, fataskápa og
sólbekki og fleira. Smíðum
í ný og eldri hús. Veitum
greiðslufrest. Simi 32074.
Innrömmun
HJALLAVEGI 1.
Opið frá kl. 1—6 nema laugar
daga. Fijót afgreiðsla.
ÍNNANHÚSSMÍÐI
Gerum tilboð í eldhúsinnrétt.
ingar, svefnherbergisskápa,
sólbekki, veggklæðningar^ útl
hurðir, bílskúrshurðir og
gluggsmíði. Stuttur afgreiðslu.
frestur. Góðir greiðsluskilmál.
ar. —
Timburiðjan. Sími 36710.
Jarðýtur — Traktors-
gröfur
Höfum til leigu litlar og stórar
jarðýtur, traktorsgröfur, bílkrana
og flutningatæki til allra frain
kvæmda, innan sem utan borgar
innar. — Jarðvinnslan s. f. Siðu
múla 15. Símar 32480 og 31080.
Takið eftir
Breytum gömlum kæliskápum
í frystiskápa. Kaupum einnig vel
með farna kæliskápa.
Upplýsingar í síma 52073.
Enskir rafgeymar
Úrvals tegund, L. B. London
Battery fyrirliggjandi. Gott verð.
Lárus Ingimarsson, heildverzlun
Vitastíg 8A. Sími 16205.
Heimilistæk j avið-
gerðir
Þvottavélar, hrærivélar og
önnur heimilistæki. Sækjum
sendum. Rafvélaverkstæði H. B.
Ólason, Hringbraut 99. Sími.
30470.
Viötal við GuÖjón
Framh.ald af bls. 7.
út undir Seyðisfjarðarál, bátarn-
ir réru þangað í þá daga, en
utar fóru þeir ekki. Það var
svarta þoka og hann sá' ekki
til miða.
— Með hvaða bát var hann
þá?
— Sæfarann.
— Og hvaða ár var þetta?
— Það var 1911, fyrsta árið
sem hann var með Sæfarann.
Hann stímaði auðvitað út eftir
kompásnum vegna þokunnar. En
þegar hann er kominn þrjá og
hálfan tíma út' birti svolítið upp
þokuna og þá' sá hann mikið af
Færeyingum. Þeir voru allir á
færum, en hann ætlaði að
leggja línu, og af því að hann
vildi ekki að þeir væru að
krunka í kringum línuna færði
hann sig utar. Sumir formenn
PITTSBURGH: Bandaríska
varnarmálaráðuneytíð
hefur skýrt frá iþví, að á
síðastl.ðnum þremur og
hálfu ári, eða frá 1955,
hafi að minnsta kosti 315.
000 óvinahermenn verið
felldir í styrjöldinni í
Vietnam.
14 14. sept. 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
voru svo nákvæmir að þeir vildu
ekki einu sinni leyfa manninum
sem passaði baujurnar meðan
legið var yfir línunni að renna
færi, því þeir sögðu að það
dragi fiskinn upp í sjó frá lín-
unni. Þegar Tómasi fannst að
hann væri kominn vel út fyrir
Færeyingana, lagði hann línua
og fiskaði svona prýðilega.
— Og þetta var Gullkistan?
— Já, þetta var Gullkistan.
Hann réri einskipa þarna út
fyrst, :og þlnir formennirnii''
vissu ekki gerla hvert hann fór.
Ég var þá farinn að róa, svo ég
fylgdist vel með þessu. Hann
sagði mér, að hann hefði verið
þrjár mílur frá kantinum og
kallast það ekki mikið. En þó
að ég sé sannfærður um, að það
var hann, sem fann Kistuna, þá
hef ég nú heyrt nefnda fjóra
fyrirmyndar formenn og einn
færeyskan skipstjóra, sem allir
eiga að hafa fundið hana. Mér
finnst það heldur flott. Eg heyrði
það fyrst haft eftir þessum fær,
eyska skipstjóra, sem þá var með
árabát hjá Pálma heitnum
Pálmasyni, annað hvort á ára-
bát sem Pálmi átti eða hann
sjálfur, að Tómas sækti út á
Glettinganesgrunn. En nú er
Glettinganesgrunnið' stórt, og
það er enginn staður að nefna
það, en maðurinn vissi ekki
annað. Hann var á næstu
bryggju við Tómas, svo liann
hafði góða aðstöðu til að fylgj-
ast með hvert Tómas færi. En
hann hefði ekki farið út í Kistu
á þessum árabát, þótt verið
hefði hægt að komast þangað á
fjöl, m. a. vegna þess, að slík-
ur bátur hefur ekki gang til að
komast þangað. Ef Tómas hefði
nú ekki fundið Kistuna, þá þyk.
ir mér afar skrýtið að ég skyldi
aldrei heyra neina af þessum
mönnum minnast á það að þeir
hefðu fundið hana — menn eins
og Bjarni Hávarðsson sem ég
var gagnkunnugur, ég var með
honum bæði á sjó og landi. —
Bjarni fór ekkert' dult með það
að Tómas hefði fundið Kistuna.
En svo gerist það einn góðan
veðurdag, þegar Tómas stend-
ur í þessum róðrum sínum, að
það er eins og formennirnir fái
sagnaranda og þeir fara hver
af öðrum langt út í Seyðis-
fjarðarál. En hvers. vegna fara
þeir út í Seyðisfjarðarál, ef
þeir halda að Tómas hafi verið
upp á Flakinu? Þetta sannar
það, að Tómas var ekxi langt
upp á Flakinu. En hvað sem því
líður, þá fór það bara eftir því
hvernig fiskurinn stóð. Þegar
maður var t. d. í júlímánuði úti
í Kistu þá var fiskurinn alltaf
meira upp á Flakinu og uppi í
sjó, og þá höfðu Færeyingar það
ágætt. En svo dró hann sig allt
af meira að álnum og ofan í ál-
inn eftir því sem haustaði. Þetta
ættu allir þeír að vita, sem í
Kistuna hafa róið. Þess vegna
vil ég að það leiki ekki neinn
vafi á því, að það var Tómas
sem Gullkistuna fann.
' — Hvað er þetta langt?
— Þetta er um 25—30 mílur,
það kölluðum við Innri.Kistuna.
Sæfarinn gekk svona 6 mílur,
og Tómas sagðist hafa verið 5
klukkustundir í land. En hann
mundi ekki hve lengi hann
hafði verið út, af því að hann
lenti í Færeyingaþvögunní. Um
Ytri-Kistuna hefði ég nú sagt, að
allir og enginn hafi fundið
hana, því bátarnir mjökuðust
smátt og smátt utar. Ég get sagt
þér dæmi um það. Árið 1914
réri ég með Tómasi á Sæfara og
þegar við vorum búnir að róa
nokkra róðra í Kistuna meiddi
hann sig í hendi, nann setti
öngul í fingurinn á sér og fékk
blóðeitrun og fór ekki meira á
sjó það haustið; ég tók við
bátnum fyrir hann. En með Sæ-
björgina var þá Einar M. Ein-
arsson, sem varð skipherra á
gamla, góða Ægi. Hann var á.
gætur fiskimaður og ekki vant-
aði dugnaðinn. Yið fórum hálf-
tíma stím lengra út með kant-
inum heldur en Tómas hafði
farið og þannig gekk þetta. Við
fiskuðum ágætlega. Næsta
haust tók Tómas við Sæfara,
en ég var með Sæbjörgu, og þá
fórum við enn lengra heldur en
við Einar höfðum farið haustið
áður. Svona þreifuðu bátarnir
sig áfram út með kantinum, og
svona gekk það yfirleitt alls
staðar. Maður leitaði alltaf á'
dýpri og dýpri mið. Þegar kom.
in voru spil, bátarnir dekkaðir
og komið stýrishús, þá þóttu
þetta nú aldeílis vera fleytur.
— Viltu geta einhverra manna
umfram það, sem þegar er
komið?
.— Já, mig Iangar til að geta
þriggja, útvegsmanna sérstak-
lega. Ég get auðvitað ekki talið
upp alla menn og alla báta. En
þessir menn eru: Gísli Hjálm-
arsson, Konráð Hjálmarsson og
Sigfús Sveinsson. Gísli átti sex
mótorbáta, og það var nú ekki
lítið ílag í litlu þorpi. Hann
hefði áreiðanlega gert mikið, ef
hann hefði ekki farið fljótt að
heiman. Svo var það bróðir
hans, Konráð Hjálmarsson; —*
hann var líka mikill útgerðar-
maður og kaupmaður, og svo
Sigfús Sveinsson. Ég álít að Sig.
fús og Konráð hafi haldið út-
gerðinni uppi. Þeir lánuðu út á
fiskinn, ekki einungs í húsun-
um þegar búið var að fiska
liann, heldur bara í sjónum, til
þess að geta komið bátunum af
stað. Og þeir gerðu auðvitað út
og allir í þá daga upp á sína
iábyrgð en ekki rí|dssíjórnar-
innar. Það þekktist ekki. Þess
vegna finnst mér, að þeir hafi
verið það mikils virði, að það
ætti að gera þeirra nokkrum
orðum. Ég veit ekki til, að það
hafi verið skrifuð um þá eft-
irmæli. Og það má mikið vera,
ef hver króna sem þeir láh-
uðu hefur komið til skila. Eng-
ir samningar voru til þá. Mér
er það betur kunnugt hjá Sig-
fúsi, ég var þar mikið, og þar
var mörg krónan strikuð út.
Því eins og Sigfús sagði: — Á
einhverju þarf fólkið að
lifa. - S. H.