Alþýðublaðið - 29.09.1968, Blaðsíða 8
8 ALÞYÐUBLflÐlÐ 29- september 1968
SKÓLAKERFIÐ
Framhald af bls. 3.
það komi fyrir í strjálbýlum
sveitum. ítarleg greining hef-
ur verið gerð á nemendum
skólaárið 1966/67 eftdr námi
og aldri og skólasókn árganga,
og kemur þar Eram, að af 7
ára börnum þetta ár sótti 91,8%
skóla, af 8 ára börnum 94,5%
af 9 ára börnum 98%, af 10
ára börnum 98,6%, af 11 ára
toörnum 99,3% og af 12 ára
börnum 99,5%. Sést af þessu
að nokkuð skortir á fyrstu ár
barnaskólans að allur árgang
urinn skili sér í skólana, en
til þess kunna að sjálfsögðu
að 1 ggja margar ástæður.
TJngljnga- mið- og gagn
fræðaskólar taka við af barna
skólum, ofg er nafng'iftin
breytileg eft'r því hve margra
vetra skólinn er. Unglinga-
skólar eru tveggja vetra skól-
ar og lýkur námi þar með ung
lingaprófi, og er skólaskylda
þar með úti. Það sem á eftir
fer, er frjálst nám. M'ð- og
gagnfræðaskólar veita einnig
unglingapróf, en miðskólar eru
þriggja vetra skólar, sem lýk-
ur með míðskólaprófi, en
gagnfræðaskólarn'r fjögurra
vetra og lýkur þeim með gagn
fræðaprófi.
Skólaskyldunni lýkur með
unglingaprófi á því ári, sem
nemendur verða 15 ára. Ung-
lingapróf veitir nemendum
rétt til inngöngu í 3. bekk mið-
og gagnfræðaskóla og nokkra
sérskóla, þ.e. húsmæðraskóla,
stýrimannaskóla og búnaðar-
skóla.
Miðskólapróf, sem tekið er
eftir 3. bekk mjð- og gagn-
fræðaskóla opnar nemendurn
fleiri brautir en unglingapróf
ið eitt. Miðskólapróf getur ver
ið með mismunandi móti, og
er landsprófið nafntogaðasta
grei-n þess, en auk landsprófs-
deilda eru til í 3. bekkjum al-
mennar deildir, bóklegar eða
verklegar, verknámsdeild'r,
sjóvinnudeild'r og verzlunar-
deildir, en sumar þessara
deilda eru þó aðeins í fáum
skólum eða jafnvel sérstökum
skólum. Landspróf ve'tir rétt
til setu í menntaskólum og
kennaraskóla, en almennt mið-
skólapróf þarf til inngöngu í
eftirtalda skóla: iðnskóla, vél-
skóla, hjúkrunarskóla, ljós-
mæðraskóla, fóstruskóla, flug-
skóla, loftskeytaskóla, Mat-
sveina- og veit'ngaþjónaskól-
ann og Myndlista- og handíða-
skólann. Sumir þessara skóla
setja þó sérstök aldursskilyrði
um inntöku, þannig að nem-
enduj- geta ekki hafið n-ám f
þeim þegar að loknu miðskóla
prófi. Þannig er þess kraf;zt
til inngöngu í hjúkrunarskóla,
fóstruskóla og flugskóla að
nemendur hafi náð 18 ára
aldr'- og til inngöngu í ljós-
mæðraskóla að nemandi sé
orðinn 20 ára að aldri.
Gagnfræðapróf er tekið eft-
ir 4. bekk gagnfræðaskóla og
veitir það nokkru meiri rétt-
indi en miðskólapróf, annað
en landspróf. Gagnfræðapróf
veitir rétt t'l setu í tækniskóla,
en nemandi með gagnfræða-
próf eitt þarf þó að sitja þar
einn vetur í undirbúnings-
de'ld. Þá hafa nemendur ver-
ið teknir í kennarskólann með
gagnfræðapróf, en aðrir skól-
ar munu ekki krefjast gagn-
fræðaprófs sérstaklega fram
yfir miðskólapróf.
Gagnfræðastigsskólar eru
BALl fl S K 1 SIORÍÐAR Ll ÁRMANN
SKÚLAGÖTU 3« 4. HÆD
FORELDRAR
Til þess að sem beztur árangur náist í skólastarfinu þarf
-barnið gott skrifborð og heppilegar bókahillur
B jfi /m bókahillur
VIÐ BJÓÐUM: M B B/fi
B § ff M m SKRIFBORÐ
GERIÐ SAMANBURÐ
HÚS OG SKIP HF.
Ármúla 5, símar: 84415 — 84416.
langflestir allra framhalds-
skóla á landinu og eru í þeirra
hópi bæði heimavistar- og
heimangönguskólar. Skólaárið
1966/67 voru 95,5% allra 13
ára barna í skóla, flest í gagn
fræðaskólum, en 315 þó í fulln
aðarprófsbekk eftir gömlu
fræðslulögunum. 91,2% 14 ára
barna voru þá í skóla, en sé
lit'.ð á skólasókn 13 og 14 ára
unglinga eftir búsetu í land-
inu kemur í ljós, að talsverð-
ur m-unur er á henni eftir hér
öðum. í Reykjavík eru 95%
þessara árganga í gagnfræða-
skólum og svipuð hlutföll í
nágrenni höfuðstaðarlns og í
kaupstöðum úti um land. í
sumum sýslum er þetta hlut-
fall talsvert lægra, lægst í
Vestur-Húnavatnssýslu 55%, en
þess ber auðvitað að gæta í
þessu sambandi að þau byggð
arlög sem hafa lægsta skóla-
sókn hlutfallslega eru um
leið fámenn byggðarlog, þar
sem meira munar prósentvis
um hvem einstakling en í
þéttbýllnu.
Skólasókn minnkar til muna,
þegar skólaskyldu sleppir. Af
15 ára 'unglingum eru 77,8%
á skólabekk, af 16 ára ungling
um 64,8% og af 17 ára 36,9%,
en þá er líka komið upp fyrir
gagnfræðaskólana að mennta-
skólum, kennaraskóla og sér-
skólum.
Menntaskólar eru 4 vetra
skólar, og er landspróf með
meðaleinkunn'nni 6,0 hið
minnsta inntökuskilyrði í þá.
Menntaskólum lý-kur með stú
dentsprófi, en þeir greinast í
4 de ldir eftir að fyrsta bekk
sleppjr, sem er óskiptur. Deild
irnar eru: máladeild, nýmála
deild, stærðfræðideild og nátt
úrufræð deild, en ekki eru þó
allar deildirnar til við alla
menntaskólana. Stúdentspróf
veitir réttindi til inngöngu í
háskóla.
Kennaraskóli er eþm á land-
inu og er landsprófs krafizt til
inngöngu í hann, en undan-
þága- hefur þó verið gerð með
nemendur með gott gagnfræða
próf. Kennarapróf er tekið eft
ir 4 vetra nám, en stúdents-
próf er unnt að taka úr Kenn
araskólanum eftir 1 vetrar við
bótarnám frá kennara
prófi. í skólanum er einnig
starfandi kennaradeild, sem
útskrifar stúdenta með kenn-
ararprófi eftir eins vetrar
nám, og ennfremur er þar
framhaldsdeild í tvo vetur eft
ir kennarapróf eða stúdents-
próf -kennara. í skólanum er
e nnig handa-vinnukennara-
deild, og er námstími þar jafn
langur og í almennri kennara
deild og inntökuskilyrði hin
sömu.
Aðrfr skólar sem veita
kennsluréttindi eru Háskóli
íslands, sem útskrifar kennara
fyrir æðri skóla, íþvóttakenn
araskóli íslands, Tónlistarskól
i-nn í Reykjavík, Húsmæðra-
kennarskóli íslands og Mynd-
lista- og handíðaskólinn. Inn-
tökuskilyrði í þessa skóla
sjást á skýringarmyndinni,
sem fylgir hér að neðan.
Framhald á bls. 9.
KENNARAMENNTUN
Stúdentspróf
Gagnfrœðnpróf
Landspróf msk,1
Miðskólapróf
1 M 2
Undirbúningsd. sérnóms
ii 5 ■■(
Menntadeild
Hondavinnukennaradeild
H 1
■ 2 »0 íÞRÓTTAKENNARASKÓLI
Söngkennaradeild
MZHZJ-
TÓHLISTARSKÓLINH
i REYKJAVfK
Forskóli
Teiknikennaradeild
fCHD:
Vefnaðarkennaradeild
MYNDLISTA- OG
HANDÍÐASK Ó LI
Húsmœðraskólil
HÚSMÆDRAKENNARASKÓLI
iHCHIHD:
□
i Skólaór
Deildarskipting
Valfrelsi nómsgreina
O Lokapróf
4 Réttur til háskólanóms
Þ Réttur til sérfrœðinóms
X Inntökupróf
Verkleg þjá
m.'.fb