Alþýðublaðið - 22.12.1968, Blaðsíða 3
22. desember 1968 ALÞYÐUBLAÐIÐ' 15
Jón Guðnason:
SKÚLI THORODDSEN
Fyrra bindi.
Heimskringla 1968.
Skúli Thoroddsen er án alls
efa einhver stórbrotnasti stjórn-
málaskörungur íslendinga á síð-
ari tímum. Um fáa menn hefur
staðið annar eins styrr og hann.
Tvisvar á ævinni var hann í
fbrennidepli átaka, sem olli því,
að hið fámenna íslenzka þjóð-
félag lék á reiðiskjálfi. í fyrra
skiptið var það vegna Skúlamál.
anna svokölluðu á árunum eftir
1890. Hér var um að ræða hreina
pólitíska ofsókn á hendur Skúla,
sem var svo hatrömm og illvíg,
að helzt verður að leita til
Dreyfusmálsins franska til að
finna einhverja hliðstæðu. Þeir,
sem að þessari ofsókn stóðu,
höfðu litla gleði af sínu bram-
bolti, því að Skúli var sýknaður
ur á íslandi. Er gömlu fólki sú
kosningabarátta enn minnisstæð,
og finnst því mörgu, að allar
kosningar síðan þá hafi verið
heldur daufar og bragðlausar.
Hin síðustu &r hefur Jón
Guðnason sagnfræðingur unnið
að því að rita ævisögu Skúla,
og er nú fyrra bindi hennar
komið út. Fjallar það um æsku
Skúla og námsár og sýslumanns
störf hans á ísafirði. Meiri hluti
bókarinnar fjallar um Skúlamál-
ið, sem höfundurinn hefur
kannað mjög ýtarlega, m. a.
rannsakað fjölda dómskjala og
bréfasafna, en þessar heimildir
eru geysimiklar að vöxtum. Er
margt af því, sem hér kemur
fram stórfróðlegt, bæði frá þjóð-
félagslegu sjónarmiðj og sem
heimild um sálarlíf þeirra per-
sóna, sem léku aðalhlutverkin
í þessum hrikaleik. Og þetta er
hádramatísk saga, svo að fáar
slíkar getur á voru landi á síð-
ari tímum. Mátti heita, að styrj-
aldarástand ríkti á ísafirði og við
ísafjarðardjúp á' þessum árum.
Nú munu þeir flestallir horfn-
ir, sem muna Skúlamálin að
nokkru ráði, en maður kenndi
hinn æsilega andblæ þessara ára
í frásögn Sigurðar sýslumanns
frá Vigur, en faðir hans, séra
Sigurður Stefánsson, var einn
hinn traustasti stuðningsmaður
Skúla í þessum átökum öllum.
Eftir er að skrá sögu þessa stór-
brotna héraðshöfðingja, séra Sig-
urðar í Vigur, en til eru í hand-
riti drög að endurminningum,
sem hann ritaði sjálfur.
Frásögn Þorsteins Thoraren-
sens af Skúlamálinu í bókinni
„Eldur í æðum,” sem kom út í
fyrra, vakti mikla athygli, enda
fjörleg og skemmtileg. Hún átti
mikinn þátt í að endurvekja
áhuga manna hér á landi á þess-
um hrikalegu átökum fyrir rúm-
um sjö áratugum. Og í bók Jóns
Guðnasonar er að finna flestan
þann fróðleik, sem unnt er að
finna i heimildum um Skúla-
málið. Hér er prentaður fjöldi
frumgagna, sem ekki hefur verið
bjrtur almenningi fyrr. Frásögn
höfundar er traust og hófsöm,
rituð á kjarngóðu, en látlausu
máli, lausu við allar skrúðmælgi.
Hún er ómetanleg heimild um
þessi átök og raunar um allt ís.
lenzka þjóðfélagið á síðasta tugi
síðustu aldar. Síðara bindi bók-
arinnar mun fjaila um stjórn-
málabaráttu Skúla, en þar var
hann brautryðjandi á mörgum
sviðum, svo sem kunnugt er,
svo sem í verkalýðsmálum, fé-
lagsmálum, og kvenréttindamál-
um. Þar mun einnjg verða skýrt
frá átökunum miklu um Upp-
kastið 1908. Þeir sem lesið hafa
fyrra bindið bíða hins síðara
Skúli Tlioroddsn.
með óþreyju. SkúlJ Thoroddsen
var höfuðskörungur á mörgum
sviðum og hefur orðið íslenzku
þjóðinni harla minnisstæður. —.
Sveinn skáld í Elivogum reynd-
ist sannspár, er hann kvað við
fregnina um andlát Skúla Thor-
oddsens:
Nú er Skúla komið kvöld
kappinn horfinn vorum
sjónum.
Þó að hríði í heila öld,
harðsporarnir sjást í snjónum.
Ólafur Hansson.
af ákærunum af hæstarétti, og
vann því algeran siðferðilegan
sigur. Hins vegar tókst með þess.
um bolabrögðum að hrekja Skúla
úr embætti. í þessum átökum
hafði Skúli almenningsálitið í
landinu með sér, ef undanskild-
ar eru nokkrar fámennar klík-
ur, sem sumar hverjar litu öllu
meira á Danmörku sem sitt föð-
urland en ísland. 1908 var Skúli
Thoroddsen aftur í brennidepli
viðburðanna, er hann einn ís-
lenzku nefndarmannanna sner-
ist gegn Uppkastinu svonefnda.
Þá um haustið vann stefna Skúla
í því máli einn hinn glæsileg-
asta kosningasigur, sem um get-
ÞETTA ER R.ÉTTA
JÓLABÓKIN
LÆKNIR
segir sögii
lúkásarguðspjall
þfit tlr frmmálintt
1963-67
Frásögn Lúkasar í nýjum, ísl.
búningi. Forvitnileg, ný, mynd
skreytt bók.
Verð aðeins kr. 200.00.
Hið ísl. Biblíufélag
Guðbrandsstofu — súni 17805.
KING SíZE RLTER
Lesö núlímamannsins til ekta
tóbaksbragösins f rá Ameríku
j