Alþýðublaðið - 08.01.1969, Síða 4
4 AU>ÝtWBtAÐíÐ 8- janúar 1969
ATHUGIÐ
Geri gamlar hurðir sem nýjar, skef upp, olíuber og
lakkai. Olíuber einnig nýjar hurðir og viðarklæðning
íigar utanhúss. Fjarlægi málningu af útihurðum og
harðviðarlita þær.
GUÐMUNDUR DAVÍÐSSON.
Sími 36857.
ÖDÝRIR SKRIFBORÐSSTÓLAR
Fallegir. þægilegir og vandaðir.
VerS aðeins kr- 2.500.00
G. Skúlason og Hlíðberg h f.
Þóroddsstöðum
Sími 19597-
Hugleiðing um sjómannakjör
Nú standa sjómenn andspæn
is þeirri staðreynd, að á herðar
þeirna er verið að leggja megin
þungann af þeirri byrði, sem
leggja verður á þjóðina vegna
yfirstandandi efnahagsörðu-
leika. Aflatregða, verðfall af-
urða á heimsmarkaði sl. tvö ár,
hesfux 'haft mjög neikvæð áhrif
á afkomu skipastólsins og kjör
sjómanna. En vafalaust á ríkis
stjómin stóran hlut að þessu
máli, með því fyrst og fremst
að taka ekki til hendi fyrr en
gert var, hvort iþað hefur verið
af hræðslu við hina almennu
kjósendur í landinu, eða við
ýmsa sífcerfca f jármálamenn, sem
stöðugt græða á gengislækkun
og verðbólgu, eða þá að þeir
hafa um eitthvað annað að
'hugsa en iþjóðarhag. Má á það
ibenda, að ntíklu fyrr hefði mátt
heifja stíft eftirlit með gjald-
eyri þjóðarinnar, sem nú er
upptékið. Hefði á undanfömum
árum mátt spara margs konar
jnnflutning, svo sem óhóflegan
ibílainnflutning. sem fólk hefur
í rauninni ekki efni á að kaupa,
og marga aðra vöruflokka, sem
ýmist hefði verið hægt að kom
ast af án, eða framleiða í land
inu sjálfu.
Þá hefur fjárfesting hins op
inbera verið úr hófi fram m.
a. byggingar bankanna, bústað
ir opinberra embættismanna, en
slíkra hlunninda nýtur engin
önnur sítétt í þjóðfélaginu. Þeg
ar á það er litið, að láglauna-
stéttir þjóðfélagsins, þar á með
al sjómenn, verða sjálfir að
sjá sér fyrir húsnæði, sem mörg
um reynist ærið erfið raun.
Við, sem höfum stundað sjó
um árabil, teljum, að við höf
um sýnt þá þjóðhollustu, að
við ættum ekkj skilið þessa hirt
ingu gagnvart okkar lífskjörum,
sem voru þegar orðin óþol-
andi fyrir gengisfellingu, þar
sem lágmarkslaun okkar voru
14.000 á mánuði, sem hefur á
þessu ári verið hámarkslaun í
flestum tilfellum, vegna afla
brests. Af þessari upphæð
þurfa menn að greiða c.a.
4.000,00 á mánuði í fæði á sjó
og auk þess dýr vinnuföt og
hjá síldarsjómönnum kom dýr
ferðakostnaður. Og þá sér hver
maður, að þessi laun hafa eng
anveginn verið viðunandi, nema
þeir, sem ætlast til, að fjöl-
skylda sjómannsins hafi&t við
á hjarninu með skattseðil likis-
og bæja í eftirmat
Og táknrænt er það, að á
sama tíma, sem við sjómenn eig
um að sýna þessa frábæru þjóð
holiustu við þessar aðstæður,
telja sumir þingmenn sér ekki
unnt að þjóna þjóð sinni eins
og vert væri og hægt væri, nema
með hækkun sinna launa,
kannski allt að helmingi, á
(þessum alvöru tímum, svo að
motuð séu þeirra eigin orð. Og
annar þingmaður fér fram á, að
atvinnurekendur fengju 2% af
innheimtum af opihberum gjöld
um starfsmanna sinna, sem'þeir
halda eftir samkvæmt lögum.
En sennilega hefur þessum hátt
virta þingmanni láðst, að bjóða
atvinnurekendum 2% af þeim
upphæðum, sem starfsfó-lk hef
ur alloft átt inni hjá þeim og
stundum aldrei fengið.
Ég, sem sjómaður, sé ekki
annað en þessi lausn á málun
um, sem ríkisstjórnin hefur
ætlað sér til lausnar á vanda
sjávarútvegsins á kostnað sjó
manna, bjóði heim verkföllum at
ivinnuleysi, fjárhagstjóni og
stjórnleysi, sem aldrei verður
úr bætt.
Sjáifsagt verðum við öll fyrir
einhverjum kjaraskerðingum.
Þá fyndist mér, að þeir. sem
ibreiðust hafa bökin og eiga
kannski mestan þátt í að skapa
núverandi ástand, taki á sig
bróðurpartinn af óumflýjanlegri
kjaraskerðingu, eins og t.d.
ráðherrar, efnahagsráðunautar
ríkisstjómarinnar, þingmenn og
bankiistjórar, enda veit ég, að
þeir hafa bæði vilja og þjóð
hollustu til þess að léfta byrð
um af alþýðu manna á þessum
erfiðleikatímum.
Við sjómenn vildi ég segja
Iþetta að endingu. Standið- sam
an í þessu -máli og látið það
ekki um ykkur spyrjast, að þið
■látið hafa ykkur að sk;immsýn
um þrælum í ykkar eigin kjara
imálum, því að ef þið gerið það,
iþá hafið þið engan svikið nema
ykkur sjálfa, og þá seun hafa
'treyst ykkur bezit fyrir velferð
'sinni, ykkár eigin fjölskyídu.
Hallgrímur Ottósson'.
Frá Raznoexport, U.S.S.R.
A „ A t,,, MarsTradingCompanylif
AOgBgæðaflokkar Laugaveg 103 3 síml 1 73 73
STOFNFUNDUR STOFNFUNDUR
FÉLAGS ÁHUGAMANNA UM SJÁVARÚTVEG
D A G S K R Á :
Ávörp flytja:
Jón Sigurðsson formaffur Sjómannasambands
íslands.
Guffmiindur H. Oddsson form. Farmanna-
og fiskimannasambands íslands.
Jón Sveinsson forstjóri skipasmíffastövar-
innar Stálvíkur.
NEFNDIN.
Kosiff í stjórn FÉLAGS ÁHUGAMANNA
UM SJÁVARÚTVEGINN,
Fundarstjóri: Guðlaugur Tryggvi Karlsson
framkvæmdastjóri Almenna útgerffarfélags.
jns h. f.
ALLIR ÁHUGAMENN UM SJÁVARÚTVEGS-
MÁL IIVATTIR TIL ÞESS AÐ MÆTA.