Alþýðublaðið - 08.01.1969, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 08.01.1969, Blaðsíða 12
■ Anna órabelgur Skammastu þín að fara svona með dúkkuna. Hvað mundir þú segja ef einhver stór risi færi að rífa í sig húlminn úr þcr? Þessi mynd hér að ofan var tekin einu sinni, þegar hers- höfðingi einn kom í heim- sókn til vinaríkis lands síns. Auðvitað var honum fagnað með kostum og kynjum og dátai' látnir stilla sér upp honum til 'heiðurs. En hvað skyldu þessir menn vera að hugsa, þegar öllu er á botn- inn hvolft? Það skulum við nú segja ykkur. 1. hermaður: Flýtið ykkur, ég er orðinn leiður á þessu. 2. hermaður: Hlaupið! Reyn ið að drullast úr sporunum. 3. hermaður: Mikið væri gott að eiga einn bjór í hitan- um. 4. hermaður: Skelfilegur sauðasvipur er á þessum hershöfðingja. 5. hermaður: Hvað skyldi verða að éta í kvöld? Maðurinn með hvítu húf- una: Nei, nei, það er flasa á herðunum á hershöfðingjan um. Já og svo er hann ábyggi^ lega ekki með axlabönd. Dátinn við hlið hershöfð- ingjans: Ég get svarið að hershöfðinginn er innskejfur á annarri en útskeifur á hinni. Hann hefur skorið sig þegar hánn rakaði sig í morgun. Það væri nú -svö sem ekki nema gaman að þessu ef hel- vítis hælsærið væri ekki að gera útaf við mig. Hermennimir til hægri á myndinni: Asskoti var að snúa ekki hinsegin. Þá hefði Hinn fullkomni eiginmað'ur er sá sem lýtur forsjá konu sinn ar í efnu og öllu. þbyggj lega komið mynd af manni í Alþýðublaðinu. Hershöfðinginn sjálfur: Ef þið haldið að það sé gaman að vera hershöfðingi, þá er það mesti m sskilnmgur. Sjá- ið nú bara þessa kúta sem ég verð að horfa uppá eins og ekkert sé og brosa ef svo ber undir. Ég skil ekkert í því hvernig ég hef farið að því að gleyma axlaböndun- um mínum. ÆDKMSKmaíDDÍP SfOflfi Einhvers staðar lásum við... AÐ 30 þiísund eintök umbúða um hljómplötu skötuhjúanna Johns Lennon bítils og hjákonu ihans Yoko Ono frá Japan, hefðu Sengið snotran stimpil í Banda ríkjunum, semisé stfmpilinn „KLÁM.” Á framhlið umbúð- anna er sem kunnugt er Ijós- mynd af hjúunum kviknöktum, Tal?maður Bítlanna í London sagði við fréftamenn fyrir skömmu að þessi sama hljóm- plata, með umræddum umbiið um, hefði verið seld þegjandi og hljóðalaust í Bretlandi. ,,Kannski er nú svo komið að sjálfir Ameríkanar séu orðnir afturhaldsamari en við“’, sagði þessi frjálslyndi talsmaður að lokum. (WMVWWMWMVWWMiWVWWMWVMMVMMWMMWMW Laun dyggðarinnar er volæði. Þefta kemur meðal annars.fram í því að gefa rétt upp til skatts. liWVVVVVWWVVWVVVWWWVWVVWVVWWWVVVVVVWVVVVHVVWWVVW Er Birgitte Bardot þjófur, eðo hvað? Allar líkur eru nú á því að kynsprengjan Brigitte Bardot verði dreg'.n. fvrir dómstólana áður en langt um líður. Það er tízkugosinn frægi, Paco Rabannes sem á- kærir sprengjuna og það fyr- ir þjófnað. Málsatvik eru þau, er við bezt vitum, að Brigitte tók þátt í tízkusýn- ingu á vegum tízkublaðsins Vogue. Sprengjan kom fram á sýningunni í kjól frá áður- nefndum gosa og leizt henni ekki ver á kjólinn en svo, að hún neitaði að fara úr hon- um og hvarf heim til París- ar í kjólnum. Gosinn hefur hringsnúizt í kringum sprengjuna eins og köttur í kringum heitan graut og heimtað kjólinn sinn aítur, en sprengjan Brigitte Bardot setur bara stút ' á munninn, stynur og ekur sér og segir þetta allt mikinn misskilningi. Og á myndinni er þokkadísin i kjólmun fræga. MMMWVMWMMVWMMMMVW Nei. smithætta er jöfn fyrir alla. Hóparnir, sem bóluefnið er búið tii fyrir, þeir, sem eru í mestu hættu, eru e>íá líklegri til að smitast en aðrir, heidur er það fóik, sem líklegra er til að deyja úr veikinhi en. aðrir, er hana fá. MOGGI. Hvað skyldu þejr gera með pen inga í fríhöfninni? Ég eem hélfc að þar væri allt frítt. Kallinn datt í það á þrettánd- anum og í gær líka. Kellingin varð bálill og spurði í æði hveru ig hann vogaði sér þetta. Kall inn svarað'i um hæl og sagÖLt vera að halda upp á fjórtánd- ann.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.