Alþýðublaðið - 08.01.1969, Qupperneq 8
8 ALÞYflUBLAÐlÐ 8- janúar 196?
.
•..
iörn Wirkola, Noregi sigraði í þýzk-austurrísk u stökkvikunni, sem lauk um lielgina
ritstj. ÖRN í
EIÐSSON I
Dýrt er að efna
til iandsleikja
ijejikimir við Tékíka fara
kl. 16 og þriðjudaginn 14.
fram sunnudaginn 12. janúar,
janúar, kl. 20,15.
Dómarar verða Knud Hjul-
er og Henning Svensson frá
Danmörku.
Þessir leikir verða nr. 5 og
6 við Tékkóslóvakíu, fyrri
leikir voru þessir:
Margir hafa
leikið hér
Sjö af leikmönnum tékk-
neska landsliðsins, sem ieika
hér í Reykjavík á sunnn-
dag og þriðjudag hafa leikið
hér áður. I>eir verða taldir
hér upp fyrstir, Arnorst,
Skarvan, Benes, Duda, Hav-
lik, Herman, Barcs, Doniack,
Klimci, Konecny, Knunnt,
Mares, Podrygala, og Sat-
rapa. Fararstjóri er Knotek,
formaður landsliðsnefndar
Tékka og þjálfarinn König,
auk tveggja annarra.
27. 2. ’58 ísland — Tékkó-
slóvakía 17:27 í Magdeburg.
5. 3. ’61 ísland — Tékkó-
slóvakía 15:15 í Stuttgart
3. 12. ’67 ísland — Tékkó-
slóvakía 17:19 í Reykjavík.
4. 12. '67 ísland — Tékkó-
slóvakía 14:18 í Reykjavík.
Forsala aðgöngum.ða verð-
ur í Bókaverzlunum Lárusar
Blöndal í Vesturveri og við
Skólavörðustíg fram til kl.
12 n.k. laugardag. Aðgöngu-
miðar verða eir.nig seldir í
íþróttahöllinni milli kl. 2 og
6 á laugardag og frá kl. 11
á sunnudagsmorgun. Verð
aðgöngumiða er hið sama og
áður kr. 150,00 fyrir fullorðna
og kr. 50,00 fyrir böm.
Það kom fram í viðtali
stjórnendur Handknattleiks-
sambandsins, að það er mjki.1
fjárhagsleg áhætta að efr.a til
landsleikja nú eftir hinar
miklu hækkanir, sem orð.ð
hafa á fargjöldum og öðrum
kostnaði í sambandi við slíka
leiki. Stjórnendur 'HSÍ áiíta,
að hækkunin frá í fyrra nerni
a.m.k. á annað hundrað þús-
und krónum.
Skozkur kennari h]á
Golfklúbb Reykjavikur
Golfklúbbur Reykjavíkur hef-
ur nú fengið tjl sín skozkan leið-
beinanda í golfi, Mr. Norman
Wood, sem hefur áður kennt hér
við góðan orðstír. Hann mun
kenna hér byrjendum og lengra
komnum. Daglega verða haldin
námskeið í Suðurverj v/Stiga-
hlíð, fyrir alla sem hafa áhuga
á að ná betri tökum á íþróttinni,
á' tímanum frá kl. 9 — 6,30.
Á miðvikudögum og föstudögum
verða haldin námskeið og innan
hússæfingar hjá GR í Laugardal
frá kl. 18,50 til 22,10. Mjög marg.
ir hafa þegar pantað tíma hjá
Mr. Norman.
Starfsemi Golfklúbbs Reykja-
víkur er í miklum blóma og ört
vaxandi. Samkvæmt efnahags-
reikningj eru eignir skráðar á
kr. 9.150.000,oo. Helsta eignin er
Idúbbhúsið við Grafarholt, sem
þó er enn ekki fullgert. Þó hafa
meðlimir full not af húsinu bæði
fyrir fundi og félagsskemmtan.
ir. Er ætlunin að hafa þar
skemmtifundi í vetur. Hr. Hall-
grímuc. Er. Hallgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Skeljungs h.f., hef
ur góðfúslega boðizt til að lána
klúbbnum kvikmyndir, sem
Shell-olíufélagið hefir látið gera,
en þær eru frá ýmsum skemmti-
legustu golfvöllum heims og
leika þá jafnan færustu golfleik
arar.
Stjóm Golfklúbbs Reykjavík-
ur telur ástæðu til að benda á,
að golfíþróttin er fyrir jafnt
unga og gamla, konur og karla.
Árgjöld eru sem hér segir:
Unglingar yngri en 15 ára
Kr.: 100,oo
Unglingar frá 15 tjl 18 ára
Kr.: 500,oo
Kr'.: 500,oo
til 21 órs
Kr.: 2.500,oo
Konur
Karlmenn frá 18
Karlmenn eldri en 21 árs
Kr.: 2.500,00
(en þeir taka einnig þátt í fram-
kvæmdagjaldi Kr.: 2.500,oo)
Um greiðslufyrirkomulag má
semja við framkvæmdastjóra
klúbbs’ins, Hafstein Þorgeirsson.
Nýjr meðlimir greiða einnjg inn-
tökugjald kr. 5.000,00, sem einn
ig má semja um greiðslu á til
5 ára.
Á aðalfundi klúbbsins voru
eftirtaldir félagar kosnir í
stjórn:
Formaður:
Ólafur Bjarki Ragnarsson
Varaformaður:
Vilhjálmur Árnason
Gjaldkeri:
Jóhann Eyjólfsson
Ritarj:
Jóhann Níelsson
Meðstjórnendur:
Árni Brynjólfsson
Guðmundur Ófeigsson
Halldór S;gmundsson
Kristinn Hallsson
VELJUM íf iINZKT-
ÍSLENZKÁ óNAÐ
•um
er Seglanov,
gjnnum var stokldð og þrívegls vann Björn. Len gst til liægri er Wirkola, í miðið
Soyél og Grini, Noregi. ■■■- .í.:;., í\
■ r, - : .... ■) ?. W Í'i-'Z s.\. ' -íöstiotx'.T
->' ‘ $ ' wtev i/t&ktJVþ ,«w ^ flMí
íþróttafélag kvenna
Ný fimleika-námskeið eru að hefjast hjá félaginu, bæði
frúarflokkar og fyrir stúlkur á aldrinum 16—20 ára. Kennt
verðúr í Miðbæjarskólanum mánudaga og fimmtudaga.
Kennari í öllum flokkum verður ungfrú Hlín Torfadóttir
Allar nánari upplýsingar í síma 14087.
STJÓRNIN. ,