Alþýðublaðið - 15.01.1969, Qupperneq 3
JL5.janúar 1968 ALÞÝSUBLAÐID 3
119 íkveikjur
í Reykjavík á
síðastliðnu ári
Lang algengasta orsök eldsvoða á árinu 1968 var
íkveikja. A£ 351 eldsvoða var um að ræða 119 í-
kveikjur, og voru þær flestar í maí. Á árinu var
slökkviliðið narrað út í 33 skipti. Hvorttveggja eru
þetta óhugnanlegar staðreyndir, sem sýna eins
og svo margt annað, hversu alvarleg sú afbrotaalda,
sem gengur yfir borgina, er orðin.
Slökkviliðlð í Reykjavík var kvatt
tit 422 sinnum á árinu 1968. Flestar
kvaðningar voru í maímánuði, eða
ítíls 47, en næst koma júlí og septem
ber með 40 kvaðningar hver.
Athyglisvert er að athuga, að
slökkviliðið var aðeins kvatt út 27
sinnum í desembermánuði, aðeins
tveir mánuðir hafa færri kvaðninga-
fjölda, þ.e. nóvember með 24 og
febrúar með 20. Flestar kvaðning-
ar í desember voru á tímabilinu
kl. 21—24. 1 maí voru flestar kvaðn
ingar á tímabilinu kl. 18—21 eða
13, júlí frá kl. 15 til 18, eða 11 og
september sömuleiðis á tímabilinu
frá kl. 15—18, eða 10.
Flestar kvaðningar komu í gegn-
um síma, eða 384. 29 kvaðningar
komu í gegnum brunaboða, en 9
með sendiboða.
A'lls fór slökkviliðið 71 sinni af
stað án þess að um eld væri að
ræða, og reyndist það vera narr i
33 skipti, en grunur um eld, sem
síðan reyndist rangur, 36 sinnum.
I>ví var um cld að ræða í 351
kvaðningu af þessum 422.
Tíðast var, að kviknaði í íbúðar-
húsum eða 113. Eklur kom upp í
41 bifreið 36 verkstæðum, 42 úti-
húsum og 14 skiputn.
Það er óhugnanleg staðreynd, að
tíðasta orsök eldsvoða á árinu 1968
var íkveikja, eða 119. Tíðastar voru
þær í maí, eða 23. Tíðasta orsök
eldsvoða í desember var lika
íkveikja, eða 7, annars bera íkveikj-
urnar hæst í flestum mánuðum árs-
ins, nema í marz, þá var aðeins ein
íkveikja. Rafmagnstæki urðu völd
að bruna í 36 skipti, oftast i maí,
eða 7 sinum. Ut frá raflögnum
kviknaði eldur alls 26 sinnum, en
ókunnugt var um upptök elds í 91
bruna.
Aðeins í fjórum brunum varð
mikið tjón, en í 165 brunum varð
ekkert tjón, lítið í 147 og talsvert í
36 brunum.
Umdæmi Slökkvistöðvarinnar í
Reykjavík natr yfir Kópavog og
Se’ltjarnarneshrepp, auk Reykjavík-
ur sjálfrar. Flest voru útköllin að
sjálfsögðu í Revkjavík, eða 389,
næst í Kópavogi, eða 27, og 6 brun-
ar voru í Seltjarnarneshreppi.
Slökkvistöðin sér einnig um
siúkraflutninga og voru farnnr á
árinu 1968 alls 6.875 ferðir með
sjúklinga. Af því eru 654 slysatil-
felli, liitt almennir sjúkraflutning-
ar. Flestir voru sjúkraflutningar í
janúar, 611 og desember 649. Flina
mánuðina voru flutningarnir nokk-
uð jafnir, cða milli 5 og 600 á
mánuði. Flest slys urðu í október,
66 og nóvember, 68, en fæst í apríl,
eða 44.
UNDRANDI YFIR VINNU-
BRÖGÐUM YFIRNEFNDAR
í fréttatilkynningu frá
Skipstjóra- og stýr mannafé-
laginu Verðanda í Vestmanna
eyjum segir:
„Fjölmennur fundur í Skip
stjóra- og stýrimannafélaginu
Verðanda Vestmannaevjum
hald'nn 11. jan. 1969 lýsir
undrun sinni á þeim vinnu-
brögðum, sem enn eiga sér
stað í Verðlagsráði sjávarút-
vegsins og yflrnefnd.
Fundarmenn sjá ekki að
um samningsgrundvöll sé að
ræða milli sjómanna og út-
vegsmanna á meðan verð hef
ur ekki verið ákveðlð.
iFundurin'n vítir harðlega þá
aðila sem sæti eiga í verðlags
ráð. og yfirnefnd, fyrir þann
seinagang, sem á sér stað við
verðlagningu, og mótmæiir
einnig harðlega að nokkrum
mönnum leyfíst að brjóta
hvað eft'r annað landslög svo
sem lög um verðlagsráð án
viðurlaga“.
VELJUM ÍSLENZKT-
ÍSLENZKAN IÐNAÐ
(H>
M p 13 H B r gr itg
ikio tjon i brun-
raumsvík
Reykjavík Þ.G.
Um klukkan hálf níu í
gærkvöldi var slökkvihðið í
'Hafnarfirði kvatt suður í
Straumsvík. Kv.knað hafði í
birgðageymslum Hochtief, og
voru þær alelda að innan, er
slökkviliðið kom á vettvang.
Kviknað hafð_ í norðurenda
geymslunnar, svo að eldur-
inn breiddist hratt út í r.oið
aðgarðinum, og var ekki viðlit
að ráða við hann. Lögð var að
aláherzla á að bjarga skúrum,
sem eru í kringum geymslur.a
og spennistöð, sem er áföst
við hana. Slökkviliðið á
Keflavíkurflugvelli bauð að-
stoð sína, en slökkv.stjórinn
í Hafnarfirði áleit, að það
væri til einskis. Slökkv.liðið
í Reykjavík lánaði Hafnfirð
ingum e nn af sínum bílum til
þess að vera t_l taks á slökkvi
stöðinni í Hafnarfirði á með-
an á slökkvistarfinu stóð
Um miðnættl var skemman.
fallin, en slökkviliðið vann
að því fram til kl. 3 að ganga
4 að slökkva í glæðum, en
var á staðnum fram undir
morgun. Erf tt var að ná í
vatn, en aðeins einn bruna-
ihanj. á svæðmu er tengdur.
Þrátt fyrir mikið frost, fraus
ekk.. í slöngunum, en að sjálf
sögðu er mjög erfitt að at-
hafna sig við slökkvistarfið í
Framhald á 10. siðu.