Alþýðublaðið - 15.01.1969, Side 7

Alþýðublaðið - 15.01.1969, Side 7
15. janúar 1968 ALÞÝÐUBLADID ' 7 Njörður P. Njarðvík, lektor: í minningu bók- menntaverðlauna Myndlista- og Handíðaskóli íslands NÝ NÁMSKEIÐ hefjast 21. janúar. Teiknun ogmálun barna í fjórum flokkum frá 6-14 ára. Teiknun og málun unglinga frá 14—16 ára. Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans sem 1958 fór Almenna bókafé- lagið flott af stað og ákvað að efna til bókmenntaverð- launa að fjárhæð kr 25 þús- und. Jafnframt gaf félag>ð sjálfu sér he mild til að tvö falda fjárhæðina ef um af- burðaverk væri að ræða. „Verðlaunin má veita e'nu sinni á ári fyrlr frumsamið íslenzkt verk, sem kemur út á árinu“, stendur í 6. Félags- bréfi, Fylgdi ennfremur sú klausa að ganga skyldu fvrir ungii- höfundar, e nkum þeir sem sendu frá sér fyrstu bók. Loksins ætlaði bókaforlagið að örva bókmenntasköpun ungra manna með myndarlt-g um verðlaunum. Sama ár var verðlaununum úthlutað í fyrsta sinn, Lofti Guðmundssyni fyrir skáld- söguna Gangr'mlahjólið, og næsta ár voru þau meira að segja tvöfölduð og veitt Hann esi Péturssyni fyrir ljóðabók hans í 'Sumardölum. Sama haust birtust óvænt ný verð laun, bókmenntaverðlaun Gunnars Gunnarssonar út- hlutað af Helgafelli. Voru þau einh'g veitt Hannesi fyr- ir sömu bók. Síðan ekki söguna meir. Saga þessara tveggja bólc- menntaverðlauna varð sem sé sorglega snubbótt. Ekki er mér kunnugt um hvað valdið hefur þessum skjóta aldur- tila eða langa þyrnirósar- svefni og er þsð tilefni þessa greinarkorns. í fljótu bragði mætti láta sér detta í bug að engin verðlaunahæf bók hafi komið út síðan 1959. Leiðir það hugann að þeirri amerísku rannsóknargerð sem einhvers staðar ku vera til og lætur í veðri vaka að 200 þúsund manna hópur geti vænzt þess að senda frá sér svo sem ems og e:na sæmi lega læsilega bók á öld. En fjarskalega er þá vonlítið fyr ir okkur að berja saman bæk ur ef sú eina læsilega er kom in út á íslandi á þessari öld. En vera má að önnur skýr ing sé til á þessari þrálátu 'syfju fyrrgreindra bókmennta verðlauna. Kannski finnst hlutaðeigandi ekki lengur taka því að úthluta þessum aurum lengur eftir að stjórn- .málamenn vorir hafa unnið svo kappsamlega á íslenzku krónunni síðastl'ðin tíu ár. En það er til ráð við því: hækka verðlaunin. Svo má ekki heldur gleyma því að þau hafa safnazt'fyrír í tiu ár. Maetti segja. mér að þessi tíu Njörður Njarðvík ára söfnun slagaði hátt vipp í upphaflegt verðgildi verðlaun anna. Kannski það hafi líka verið tilgangurinn. Annars er mál þetta raunar alvarlegra en svo að réít sé að hafa það í flimtingum. Sú þjóð sem ennþá kennir sig til bókmennta (á tyllidögum að minnsta kosti), gerir sárlega lítið t.l að örva sköpun þeirra. Listamannalaun eru eins og allir vita prívateign atvi'nnu- stjórnmálamanna (eins og flest.r hlutir hér á landi voru* og úthlutað eftir þeirra geð þótta svo sem fjöldi dæma sannar. Auk þess eru þau nú orðið varla fyrir meiru en saltinu í graut.nn. Rithöf- •undasambandið hefur stofnað sjóð sem úthlutað er úr í við urkenningarskyni. Þar taka þeir sína peninga og gefa sjá'.f um sér. Varla fitnar stéttin verulega á því tiltæki. Þar að^ auki er það alltaf dálítið an- kannalegt að veita sjálfum sér viðurkenningu. Og þá er ekki stórt mikið eftir, utan hinir hófsamlegu styrkir Rík- isútvarpsins sem deilt er á tvo -þrjá staði árlega. Jú reyndar. Gangrýnenaur dagblaðanna hafa komið sér saman um að láta steypa hross úr s lfri einu sinni á ári og afhenda fyrir það sem þeir sín á milli kalla bók árs ins. Vera má það veiti rithöf- undum nokkra gleði að hafa þessa litlu styttu uppi á hillu í stofunni hjá sér En ekki bætir hún starfsskilyrði rit- höfunda vitundarögn. Got.t ef hægt er að fá fyrir hana kind arskrokk. Nú er að vísu eng in von til þess að gagnrýnend ur dagblaðanna geti bætt sköpunarskilyrði skálda enda gera þeir varla mikið betur en draga fram lífið sjálfir. Og. sömu .sögu, er víst, að segja um blöð n, nema þá kannski helzt það þeirra sem heldur að orðið menning sé einhvers konar skammaryrði. Ekki ber að vanþakka fram lag gagnrýnendanna. En það er óneitanlega dálítið kald- hæðnislegt að einu bók- menntaverðlaun bókaþjóðar- innar eftir 1100 ára bók- menr.tasköpun skuli vera of urlít 1 hrossnefna, þó úr silíri sé. Hætt er við að Egill Skallagrímsson og Sighvatur Þórðarson hefðu látið sér fátt um finnast slíka viðurkenn- ingu. Sannleikurinn er sá að menning kostar peninga. Það er að stofna sjálfum sér og fjölskyldu sinnl í töluverða fjárhagslega tvísýnu að setj- ast niður til að skrifa «káld- sögu. Jafnvel þótt sagan tak- ist sæmilega1, jafnvel þótt hún fáist gefin út og sé sæmilega greidd, þá er ekki nokkur von til þess að hún standi und jr tdkostnaði höfundar, nema þá hún sé þýdd á fjölda tungu mála. Og það gerist því mið- ur sjaldan. Fiarstæða er að ætla að ís- lenzkir rithöfundar geti lifað af bst s nni. Eins og forfeður þeirra mega þeir láta sér nægja að sinna listsköpun sinni í ígripum á stolnom stundum. Af þe m sökum er dapurlegt til þess að vita þegar stærsta forlag landsins helgar krafta sína amerískum myndabókum og virðist ekki geta staðið við e'gin yfirlýs- ingar um smáleg bókmennta verðlaun. * Arbók Þing- eyinga Komin er út Arbók Þingeyinga 1967, myndarleg og fjölbreytt bók, gefin út af Þingeyjarsýslum og Húsa víkurkaupstað. Ritstjóri er Bjart- mar Guðmundsson, en auk hans eiga sæti i ritnefnd þeir Hclgi Kristjánsson og Þórir Friðgeirsson. Fyrsti hluti ritsins má heita helg- aður Kára Sigurjónssyni á Hall- bjarnarstöðum. Skrifa þeir um hann Karl Kristjánsson og Sigurður Þór- arinsson, en auk þess eru birt bréf og fleira efni eftir Kára. Þá er fjallað um hundrað ára ártíð sr. Helga Hjálmarssonar á Grenjaðarstað. Loks er ýmislegt efni cftir Bjartmar Guðmundsson, Arnór Sigmundsson, Þórgný Guð- mundsson, Jóhann Skaptason, Stefán Kr. Vigfússon, Jónas Jónsson, Jón ,Tí- er opin daglega frá kl. 16 — 18. vý: :M V -*V«Á,.;þÁ"Á m :Á; Á'<: Skipholti 1 - Sími 19821 Hef opnað lækningastofu í Domus Medica, Egilsgötu 3, Reykjavík. Viðtalstími eftir sam- komulagi- Viðtalsbeiðnum veitt móttaka í síma 14433. Árni Kristinsson læknir. Naubungaruppboð Eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík fer fram nauð- ungaruppboð að Súðarvogi 26, hér í borg, laugardaginn 18. janúar 1969, kl. 10,30 og verður þar seldur renni- bekkur, talinn eign Norma s.f. Greiðsla fari frarn við 'hamarshögg. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Útgerðarmenn - skipstjórar Fyrirlyggjandi 3ja og 4ra kg. netasteinn- sendi gegn póstkrötu. I HELLUSTEYPAN Garðahreppi, símar 52050 og 51551. ENSKÁN Kvöldnámskeið' fyrir fulloröna BYRJENDAFLOKKAR FRAMHALDSFLOKKAR SAMTALSFLOKKAR HJÁ ENGLENDINGUM SMÁSÖGUR FERÐALÖG BYGGING MÁLSINS VERZLUNARENSKA LESTUR LEIKRITA einnig síðdegistímar. Málaskólinn Mímir Brautarholt 4, sími 1 0004 og 1 11 09 (kl. 1—7). E

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.