Alþýðublaðið - 11.02.1969, Side 12
Þjóðfélagsmáíin
HWHHMmMHVMUMUMMmMUUHmUUMMMMIMVMM
Á föstudaginn kom Alþingi aftur saman
aö efla þjóðarhaginn og viðreisnarframann.
Og þingmenn brostu og buðu hver öðrum í nefið
úr baukum og hornum eins og allt væri fyrirgefið-
Og alþingi götunnar einnig kom saman til funda
á Austurvelli, þjóðfélagsmálin að grunda.
Og kveðju guðs og sína sendu þeir Bjarna
og sögðu, að Ijótt væri ástandið atarna.
Ogs eflaust verður öllu til hagsældar breytt.
En álengdar stóð Jón forseti og sagði ekki neitt-
— Anna óralsdgiir
—1 Þetta er nú ekkert manneskja- Þú ætitir að sjá herbergið
Ihennar Guggu í mínum bekk.
NÝIR STJÓRNENDUR
STUNDARINNAR OKKAR
Nú hafa börnin fengið nýjan um til ánægju, að væntanlega kæmi
kynni í barnatímann í sjónvarp-
inu. Hún Rannveig er farin, en
Svanhildur Kaaber komin í staðinn.
Við náðum sambandi við Svanhildi
í gær og spjölluðum stutta stund
við hana. Kom upp úr kafinu að
Birgir Albertsson
hún er kennari að mennt og kennir
ensku í framhaldsdeild Langholts-
skólans. Svanhildur og samkennari
hennar, Birgir Albertsson, hafa tek-
ið að sér að sjá um Stundina okkar
um óákveðinn tíma. Verður sú
breydng á, að þau Svanhildur og
Birgir annast allt efni í þáttinn, en
að undanförnu hefur Taagc Am-
mendrup séð um efnið og Rann-
veig síðan kynnt það.
krummi fram á sjónarsviðið a ný
og þá í fylgd með vinkonu sinni,
Rannveigu.
Svanhildur tjáði okkur að þau
Birgir myndu reyna að gera sem
flestum börnum til hæfis í Stund-
inni okkar. Væru þau nú tvö um
efnisval, en það gæti haft í för með
sér meiri fjölbreytni. Þau hafa ekki
í hyggju að gera neina byltingu
hvað varðar þáttinn, en vilja gjarn-
an fá meira íslenzkt efni x hann.
Svanhildur Kaaber
Af tvennu illu bá held ég
það hljóti að' vera skárra að
hafa slæmt minni en slæmar
minningar-
Ég. er handviss um, að ef
maður gæti gert allt sem
mann langar til að gera lang
aði mann ekkert til þess.
Eina óbrjálaða ráðið til að
verða milljónamæringur er að
hafa góða fyrlrviimu.
Við spurðum Svanhildi urri hann
kriimrria, hvort hann kæmi ekki
aftur eins og börnunum var lofað
fyrir hátíðarnár. Svarið var, börn-
/ KVÖLD
I sjónvarpinu { kvöld eru þeir
Halldór Blöndal, kennari og Már
Pétursson, dómarafulltrúi á önd-
verðum meiði um unga fólkið og
varnarmálin. Þátturinn hefst kl. 20.30
og er samkvæmt venju undir stjórn
Dr. Gunnars Schram. Munið, að
það eru sögulok þáttarins um kín-
verska hnífinn!
I útvarpinu er rétt að benda
sérstaklega á þátt sem Guðmundur
H. Garðarsson, viðskiptafræðingur,
flytur um framtíðarmöguleika á
sölu hraðfrystra sjávarafurða. Erind
ið hefst kl. 9. Þá má ekki gleyma
þvj að Sigurður Sigurðsson lýsir
kl. 19.55 bæjakeppni í handknatt-
leik milli Kaupmannahafnar og
Reykjavík, þ.e.a. s. síðari hálfleik-
Vonandi verður sæsíminn í lagi.
Guðmundur II. Garöarsson og Gunnar Schram verð'a í hljóðvarpl
og sjónvarpj í kvöld.