Alþýðublaðið - 12.02.1969, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 12. febrúar 1969 3
Stjórnarfrumvarp um hækkun á bótum Almannatrygginga:
annarra 17%
I í gær var lagt fram stjórnarfrumvarp um hækk-
un á bótum almannatrygginga. Helztu ákvæði frum
varpsins eru þau, að frá jan. 1969 skulu fjölskyldu-
skyldubætur hækka um 10% frá því sem þær voru
á árinu 1968. Fæðingarstyrkur skal frá sama tíma
vera kr. 10.200 við hverja fæðingu. Aðrar bætur
skulu eftir því sem við getur áít, hækka um 17%
frá sama tíma, Hækkunin skal, að því er við kem-
FLOKKSSTARF
ur bótum fyrir janúar og febrúar, greidd með bót-
um marzmánaðar 1969.
í lathjugase'mduní segir m.a.
að við afgreiðslu fjárlaga fyrir
árið 1969 ‘hafi ríkisstjórnin beitt
sér fyrir iþví, að framla'g ríkis
sjóðs til almannatrygginga yrði
hækkað um 90 millj. kr. frá
jþví sem það var áætlað, er frum
varp til fjárlaga var lagf fram
í þingbyrjun. Sé lagt til að af
þeirri fjárhæð verði 29,2 millj.
kr. varið til hækikunar fjölskyldu
ibó'ta, en 60.8 millj. kr. til 'hækk
usnar. á öðrum bótum lífeyristrygg
inga. Síðan hafi verið gert
ráð fyrir, að hlutur anniaiTa
framlagsaðila 'hækkaði í hlut-
falli við síðarnefndu fjárhæð
ina, og samkvœmt því verði
heildanlæk'kun fnamlaga til líf
■eyristrygginga 198,1 milljón
króna.
Málverka-
I
sýning
Á Mokkakaffi við Skólavörðustjg
sýnir Eyjólfur Einarsson listmálari
13 olíukrítarmyndir, scm hann njál-
aði fyrir skemmstu í „einu temp-
ói“, eins og hann segir sjálfur.
Eyjólfur hóf sitt myndlistarnám
í kvöldskóla sjá Sigurði Sigurðs-
syni og fór árið 1962 til Kaup-
mannahafnar, þar sem hann lærði
við Listakademíuna næstu fimm
árin. Síðan hefur hann farið ýmsar
„ævintýraferðir“ til úrlanda, eins
og hann orðar það.
þíðasta sýning hans var í Boga-
sal Þjóðminjasáfnsins árið 1964, ;en
hann kveðst aldrei hafa átt verk á
samsýningum, hvorki hér né er-
lendjs.
Verð málverkanna er frá 2000
til 3 200 krónur og þau verða s|nd
á Mokka næsta hálfa mánuðinn.
FÉLAGSVIST
Fyrsta spilakvöld Albýðuflokksfélags Reykjavíkur á þessu ári
verður haldið að Hótei Borg næstkomandi fimmtudagskvöld kl.
8.30 stttndvíslega- (IMunið að þeir' sem em mættir fyrir kl. 8.30
þurfa ekki að borga rúllugjald.) Veitt verða góð kvöldverðlaun.
iStjórnandi verður Gunnar Vagnsson- Fólk er hva't til að fjöl-
mcnna, mæta stundvíslega og taka með sér gesti. Stjómin.,
leikin vestan hafs
Iteykjavík — St. S.
Þjóðleikhúsið mun halda í sýn-
ingarför til Vesturheims með Is-
landsklukkuna þann 16. júní næst-
komandi. Guðni Þórðarson, forstjóri
ferðaskrifstofunnar Sögu, hefur gert
Þjóðleikihúsinu ferðina mögulega
með því að taka á leigu flugvél,
sem jafnframt mun flytja ferða-
menn. Séra Olafur Skúlason verð-
ur fararstjóri allrar ferðarinnar.
Dr. Gylfi Þ. Gíslason, mennta-
málaráðherra, mun væntanlega taka
þátt í ferðinni.
Á fundi með fréttamönnum
kvaðst Þjóðleikhússtjóri þegar hafa
skrifað forseta Þjóðræknisfélagsins
ytra og ýmsum öðrum forystumönn
um um þessa för. Elefðu undirtekt-
ir verið mjög góðar.
Islandsklukkan verður fyrst sýnd
17. júní í Winnipeg, en þá heldur
fólk þar af íslenzkum ættum dag-
in hátíðlegan. Sjö sýningar til við-
bótar þessari verða að líkindum
haldnar og tvær síðustu utan Is-
lendingabyggða, eða í Chigaco og
New York.
Verkið verður flutt stytt. Um það
bil klukkutími hefur verið skorinn
af sýningunni frá því, sem hér var.
Auk þess verður saminn á ensku
útdráttur úr leikritinu til að auð-
velda áhorfendum að fylgjast með.
Leikurum hefur verið fækkað, en
margir þeirra leika fleiri en eitt
hlutverk. 16 leikarar verða f förinni,
sem Guðlaugur Rósinkranz, Þjóð-
leikhússtjóri, stjórnar fyrir hönd
Þjóðleikhússins.
Flogið verður vestur í DC-6-B
flugvél, sem tekur 90 manns, en
ferðin er hugsuð sem hópferð á
vegum Sunnu. Hún mun kosta
47.900 krónur, en tekið verður upp
nýtt greiðslufyrirkomulag á henni
fyrir þá, sem láta skrá sig fyrir
1. marz. Þeir geta fengið að borga
út mánaðarlega 8.000 krónur af
andvirði fargjaldsins. Auk þessa er
áríðandi, að menn láti skrá sig
fljótt vegna þess, að í Lögberg-
Heimskringlu verða birtir listar yfir
þá, sem verða með i ferðinni,
HINN 7. jan. sl. var auglýst laus
staða bókafulltrúa ríkisins. Af því
tilefni sendi Bókavarðafélag Islands
menntamálaráðherra, dr. Gylfa Þ.
Gíslasyni, eftirfarandi ályktun:
„Fundur í Bókavarðafélagi Is-
lands 19. janúar 1969 lítur svo á,
að við skipun í starf Bókafulltrúa
ríkisins, sem nú er auglýst til um-
sóknar, beri að velja þann mann
einan, er starfað hefur í bókasafni,
er gjörkunnugur bókasafnsmálum
og með nægilega þekkingu á al-
mennum bókasafnsfræðum. Við
viljum ennfremur benda á 28. grein
laga um almenningsbókasöfn, sam-
þykkt á Alþingi 19. apríl 1963, sem
hljóðar þannig:
„Menntamálaráðherra skal skipa
hókafulltrúa ríkisins. Bókafulltrúí
skal hafa eftirlit með öllum almenn-
ingsbókasöfnum landsins, leiðbeina
stjórnum þeirra og bókavörðum um
bókaval, húsbyggingar, ráðningu
starfsmanna og allt, sem lýtur að
rekstri bókasafna. Hann skal efla
menntun bókavarðastéttarinnar í
samráði við Háskóla Islands og
Bóakvarðafélag Islands með nám-
skeiðum og útgáfu fræðslurita.
Einnig skal bókafulltrúi vera ráðu-
nautur menntamálaráðuneytisins
um öll málefni almenningsbóka-
safna.“
Hér eru þær skyldur lagðar á
herðar bókafulltrúa ríkisins, sem að
eins bókasafnsmanni með reynslu
og þekkingu er unnt að leysa af
hendi.“ -
Umsóknarfrestur rann út 25. }an,
og reyndttst þá hafa sótt um stöð-
una þrír starfandi bókaverðir og
fjórir aðrir, sem annað hvort hafa
mjög litla reynslu af bókasafns-
rekstri eða alls enga. Hinn 9. febr.
var tilkynnt, að Stefáni Júlíussyni
rithöfundi hafi verið veitt staðan,
þrátt fyrir ótvíræða yfirburði ann-
arra umsækjenda, að því er varðar
sérmenntun og reynslu. Því hefur
Bókavarðafélag Islands ákveðið að
gera opinberiega grein fyrir fjórum
af umsækjendunum, bókavörðunum
þremur og þeim, sem staðan var
veitt. Verður rakinn starfsferill
þeirra í þágu bókasafna og mennt-
un á því sviði.
Anna Guðmundsdóttír hóf störf
í Bókasafni Hafnarfjarðar árið 1941
og starfaði þar sem aðstoðarmaður
til 1955. Síðustu fimm ár þess tíma-
bils mátti þó heita, að hún hefði
alla umsjón með -safninu. Árið 1955
var hún ráðin forstöðumaður safns-
ins og hefur gegnt því starfi síðan.
Á þeim árum hefur bókakostur
þess vaxið úr 11 þús. bindum í 35
þús. bindi. Sumarið 1956 dvaldist
Anna í Danmörku og kynnti sér
rekstur almenningsbókasafna. Síð-
an hefur hún fjórum sinnum farið
til Norðurlanda sömu erinda, síðast
sem fulltrúi Bókavarðafélags íslands
á þing norrænna bókavarða í Björg-
vin. Anna hefur ritað bækling um
þróun og rekstur íslepzkra almenn-
ingsbókasafna, sem bráðlega kemur
út í Danmörku, svo og greinar um
íslenzk bókasafnsmál í norræn bóka-
safnsrit. Anna átti um skeið sæti
1 stjórn Bókavarðafélags íslands.
Hilmar Jónsson hefur verið bóka-
vörður við Bæjar- og héraðsbóka-
safn Keflavíkur frá 1958. Þegar
hann tók við safninu, voru í því
um 1600 bindi, en bókakosturinn
hefur vaxið síðan upp í 13 500-bindi,
og hafa afnot safnsins aukizt að
sama skapi. Áður en Hilmar tók
við bókasafninu í Keflavík, hafði
hann starfað tvö ár við Borgar-
bókasafn Reykjavíkur. Hilmar var
um skeið í stjórn Bókavarðafélags
Islands.
Kristín H. Pétursdóttir stundaði
nám í bókasafnsfræði við Háskóla
íslands árið 1964 og 1965 og lauk
þar prófum 1. og 2. stigs í þeirri
grein. Sama ár hóf hún framhalds-
nám við Pratt Institute í New York,
sem er annar elzti bókavarðaskóli
í Norður-Ameríku, og lauk þaðan
meistaraprófi í bókasafnsfræði. 1
New York sat hún einnig lándsþing
bókavarða, sem um 4—5 þús. bóka-
verðir sóttu. Sumarið 1968 dvaldist
Kristín um tíma í Englandi til að
kynna sér bókasöfn. Kristín veitti
forstöðu bókasafni Upplýsingaþjón-
ustu Bandaríkjanna 1962—65, Má
segja, að hún hafi byggt upp starf-
semi þess, sem er að mörgu leyti
nútímalegri en annarra almennings
bókasafna hérlendis. I ársbyrjun
1967 tók hún við starfi sem bóka-
vörður Borgarspítalans í Reykjavík
og hefur nú unnið í rúmlega tvö ár
að skipulagningu tvenns konar
bókasafnsþjónustu þar — fyrir
starfslið og sjúklinga. Auk þess
hefur hún verið mjög til ráðuneytis
um allsherjar endurskipulagningu.
bókasafnsþjónustu í þágu heilbrigð-
ismála. Af öðrum störfum Kristín-
ar í þágu bókasafna ber að nefna,
að hún sá urn bókasafn Siglufjarð-
ar um skeið í fjarveru bókavarðar
árið 1955 og vann um tíma viff
Fiskesafnið í Cornell árið 1966. Hún
er formaður nefndar innan Bpka-
varðafélags Islands, er vinnur að
kynningu bókasafna, og f jan. s.l.
hóf hún kennslustörf í bókasafns-
fræði við Háskóla Islands.
Stefán Júlíusson starfaði við Bóka
safn Hafnarfjarðar árin 1938—41,
síðasta árið sem bókavörður. Hann
sat í stjórn Bókasafns Hafnarfjarð-
ar Lrá 1950 til 1962, frá 1954 sem
Framhald á 10. sið«