Alþýðublaðið - 12.02.1969, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 12.02.1969, Blaðsíða 4
, 4 ALÞ 'fÖUBLAEH) 12. febrúar 1969 í Úf - orgeirs Þorgeirssonar ,,lvliaöur og verksmiðja”. SLENZK KVLKMYND FÆR ERLENDA VIDURKENNINGU Nýlega fékk Þorgeir Þorgeirsson, ' :vikmyndagerðarmaður, viðurkenp- ngarskjal fyrir mynd sína „Maður og verksmiðja", en hún var sýnd á kvikmyndahátíð í Locarno í Sviss, í o'któber s.l. Myndirnar á hátíðinni í Locarno voru allar eftir unga höfunda, 1. eða 2. mynd þeirra. Myndunum var skipt í tvo flokka, leiknar myndir og heimildarmynd- ir (dokumentar), og fékk mynd Þorgeirs viðurkenningu sem næst bezta heimildarmyndin. I ágúst s.l. fór Þorgeir með mynd- ina, „Maður og verksmiðja" á kvikmyndahátíðina í Edinborg, og þar vakti hún geysilega athygli. Segir svo í sýningarskrá hátíðar- innar um myndina: Ljótar, stynj- andi vélar eru aðalatriðið í þessari áhrifamiklu verksmiðjulýsingu. — Þessi stórsnjalla mynd er um dauð- leiðinlega verksmiðju, en sjálf er Itún allt annað en leiðinleg. A hátíð þessari, sem er orðin ein mesta kvikmyndahátíð í heim- inum, var mynd Þorgeirs valin til að fara á Los Angeles County Museum of Art, en þangað fer úrvalið úr myndunum á Edinborg- arhátíðinni. Fyrir skemmstu barst Þorgeiri bréf, þar sem óskað var eftir mynd- itini á kvikmyndahátíðina í Mel- bourne, sem haldin verður í júní í sumar. Markmið þessarar hátíðar er að kynna það bezta úr nýrri kvikmyndaframleiðslu fréttamönn- um Ltlaða, útvarps og sjónvarps og framleiðendum og dreifendum kvikmynda í Astralíu. Og síðast en ekki sízt að vekja athygli á verkum ungra kvikmyndahöfunda. Það má teljazt til stórviðburða, er íslenzkur listamaður fær slíka viðurkenningu úti um heim, ekki sízt þar sem um kvikmyndagerðar- menn er að ræða, því að í kvik- myndalistinni erum við byrjendur. Ættu þessar viðurkenningar á Manni og verksmiðju að vera íslenzkum kvikiriyndagerðarmönnum mikil hvatning og auka möguleika þeirra á að komá myndum sínum á fram- færi á erlendum vettvangi. 50 ÁRA EIN AF STOFNUNUM, ríkisins, löggildingarstofan, var 50 ára þann 1. janúar síðastliðinn. Hún var stofnuð 1. janúar 1919 samkvæmt lögum frá 14. nóvember 1917 og hefur starfað óslitið síðan. Löggildingarstofan hefur frá stofnun starfað að eftirliti og lög- gildingu mælitækja og vogaráhalda fyrir allt landið. wnoi wxainsi ^jwgJ-jDiZNaisj wnnáX TRICITY HEIMILÍSTÆKÍ B SBVGGJEnDUR ÍSLENZKUR IÐNAÐUR ALLT TRÉVERK A EINUfVI STAÐ Eldhúsinnréttingsr, raf* tæki, ísskápar, stálvaski ar, svefnherbergisskáp- ar. harðviSarklæðning- ar, inni- og útihurðir. NY VERZLUN NYVIDHORF OÐINSTOROhe Skólavöröustíg 16, — sími 14275 ,Til eru sjóðir af ýmsum gerð- Frueringsve’t. En þo:s hafði um, en sjóður til s yrktar sex- látsj aö geta í „Berliner Morg tugum jómfrúm sem ljfa við enpost-” kröpp kjör og hafa á sér gott4--------------------------------" orð, er líkast til einsdæmi. Þessi sjóður var stofnaður fyrfr áttatíu árum síðan og það gerði Jiens Jensen, som bjó í Fruering við Skanderborg. Á síðasta ári sóljti engin sex- tug jómfrú um styrkinn og þá var lagt til, að lionum yrði var- i,ð til kaupa á kirkjuorgeli. Ekki fékk það þó neinn hljóm- grunn- Og svo las sextug jómifrú, þýzk_ um þetta í „Berliner Morgenpost,” og iþar sem hún Iþóttist uppfylla skilyrðin til styrks úr sjóðnum, skrifaði hún herra borgarstjóranum í Skand- erborg: , — Kæri herra borgarstjóri. Hjálagða úrklippu rakst ég á í „Berliner Morgenpost”. Þar eð ég uppfylli öll sktlyrði (verð brátt 61 árs er enn jómfrú og Ihef 'lítil eftirliaiun), vlldi ég spyrja, livort elkki væri hægt að veita einhverri, upphæð úr sjóðnum til þess, iað ég gæti dvalið mér að kosítnaðarlausu í borg yðar- Gæti það kannski orðið í sumar? Því miður varð 'hierra borgar- stjórinn að svara henni þvf til, að hann vantaði iað vísu enga sextuga jómfxú, heldur hefði oddvitinn auglýst 'eftir slíkri. Því er nefnilega þannig far- i.ð áð styrkur er aðeins veitt- ur þeim, sem búsettiar em, í BORGARSTJÓRNIN í KÍel mun veita íslenzkum stúdent styrk til námsdvalar við háskólann þar 1 borg næsta vetur. Styrkurinn nemur DM 350,00 á mánuði í 10 mánuði, til dvalar 1 Kiel FRÁ 1. OKT. 1969 TIL 31. JÚLÍ 1970, auk þess sem kennslu- gjöld eru gefin eftir. Um styrk þennan geta sótt allir stúdentar, sem hafa stundað há- skólanám í a.m.k. þrjú misseri í guðfræði, lögfpæði, hagfræði, lækn- isfræði, málvísindum, náttúruvís- indum, heimspeki, sagnfræði og landbúnaðarvxsindum. Ef styrkhafi óskar eftir því, verð- ur honum kornið fyrir í stúdenta- garði, þar sem fæði og húsnæði kostar um DM 250,00 á mánuði. Styrkhafi skal vera kominn, til háskólans eigi síðar en 15. okt. 1969 til undirbúnings undir námið, en kennsla hefst 1. nóvember. Umsækjendur verða að hafa nægilega kunnáttu i þýzku. Umsóknir um styrk þennan skal senda skrifstofu Háskóla Islands EIGI SÍÐAR EN 1. MAÍ N.K. — Umsóknum skulu fylgja vottoi'3 a.m.k. tveggja manna um nárns- ástundun og námsárangur og a.m.k. eins manns, sem er persónulega kunnugur umsækjanda. Umsóknir og vottorð skulu vera á þýzku. Próf frá H f::n:vv: 'v:,v:;f: ' ■ I LOK haustmisseris luku eftir- taldir stúdentar prófurn við Há- skólia íilands: - Embættispróf í gnðfræði: Guðmundur Oskar ' í" Embættlspróf í læknisfræði: Ástráður B. Hreiðarsson Bergþóra Á. Ragnarsd. Geir Olafsson Helga Hannesdóttir Jón E. Gunnlaugsson Jósef Skaftason Magnús Jóhannsson Þorkell Bjarnason Kandídatspróf í tann- lækningrum: Bragi Ásgeirsíon Haukur F. Filippusson Hermann Jón Ásgeirsson Kristján Kristjánsson Embættispróf í lög-fræði: Guðmundar K«rl Jónsson Hjálnw V. Hjáimarsson Páll Skúlason Rúnar Guðjónsson Kandídatspróf í vi ískipta- fræðrm: F.ggert ITauksson Gunnar Kárason Gunnar Valdimarsson Gylfi Þór Magnússon Jónas Blöndal Kristjón Kolbeins Olafur Geirsson Ragnar Pálsson . Tömas Zöéga Kandídatspróf í sagtifræði: Olafur Rafn Einarsson B.A-próf: Arndís H. Biörnsdóttir Guðný Jónasdóttir Sigríður Gunnarsdóttir Sigurður Bjarnason Stína Gísladóttir i íslenzktipróf fyrir erlenda stúdenía: .......... f

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.