Dagur - 04.11.1927, Side 2

Dagur - 04.11.1927, Side 2
 176 DAGUR 46. tbí. son, Jón ólafsson, Jóhann Skafta- son, Jóhann Þorkelsson, Sigfús Sigúrhjartarsort, Bjarni Sigurðs- osn, Jón Geirsson, Kristinn Stef- ánsson, Árni Guðmundsson.« ------o----- Heilsuhœli Norðurlands vígt Hinn 1. þ. m. fór fram vígsla á Heilsuhæli Norðurlands í Krist- nesi. Var þar saman komin fjöldi fólks úr Eyjafirði og af Akureyri og nokkuð margir úr Þingeyjar- sýslu — alls um 400 manns. — Vígslan hófst kl. 1 e. h. Fór hún fram á 2. hæð hússins. Var reist- ur ræðustóll á öðrum enda gangs- ins, en fólkið safnaðist þar að og í stofurnar til hliðar við ganginn. Fjöldi fólks var í tröppunum'og á neðri hæð, og heyrði varla það sem fram fór. — Samkoman hófst á því, að söngflokkurinn Geysir söng sálminn: »Faðir andanna«. Því næst flutti séra Gunnar Benediktsson mjög góða prédik- un. — Á eftir henni var sunginn sálmurinn: »Á hendur fel þú hon- um«. Ræða Ragnars Ólafssonar. Norðurland hefir ekk farið var- hluta af því, að eiga um sárt að binda af völdum »hvíta dauða«. Enginn hefir verið óhultur fyrir fyrir sigð hans. Öll íslenzka þjóð- in hefii' stunið undan þeim svöðusárum og holundar, sem hann hefir veitt, bæði beint og ó- beint. Árum saman var lítið um viðnám. Loks kom að því að þekk- ing og mannræna þjóðarinnar veitti viðnám gegn óvininum. Heilsuhælið á Vífilsstöðum var bygt og sjúkrahúsum fjölgaði. Þar urðu vígin. Árangurinn af þeim er svo góður, að þjóðin þyk- ist fullviss, að hún muni að lokum sigra »hvíta dauða«. Og þann sig- ur ætlar hún að reyna að vinna sem fyrst. Á æskuárum mínum voru ungl- ingar látnir lesa íslendingasögur. Mig langar til að rifja hér upp eina setningu úr þeim. Menn muna frásögn Njálu um víg Þrá- ins. Skarphéðinn hljóp yfir vök- ina í Markarfljóti, er féll »meðal höfuðísa«, og hjó Þráinn bana- högg. Félögum Skai'phéðins þótti mikið að gert. Og þá svaraði Skarphéðinn: »Eftir er enn yðvar hluti«. Þessi setning dettur mér í hug nú. Norðlendingar fundu oft sárt til þessv að eftir var enn þeirra hluti, í baráttu fslendinga við »hvíta dauða«. En svo var þó komið fyrir rúmlega tveimur ár- um síðan, að þeir hófust handa og ákváðu að byggja Heilsuhælið í Kristnesi, sem hér má nú sjá. — »Samband norðlenzkra kvenna« hóf fyrst framkvæmdir að stofn- un heilsuhælisins; á aðalfundi Samb. á Akureyri 1918, var sam- þykt tillaga um stofnun hælisins og hafin fjársöfnun á félagssvæð- inu. Söfnuðust þá kr. 11004,06 og auk þess lofaði U. M. F. A. 1000 kr. og Kaupfélag Eyfirðinga lb þús. kr. — Á næsta aðalfundi S. N. K. var samþykt hvöt til allra kvenfélaga og ungmennafélaga á Norðurlandi,. að hafa einn fjár- söfnunardag á ári fyrir væntan- legt heilsuhæli og stungið upp á 17. Júní. Félögin tóku þessu vel. U. M. F. Akureyrar skaraði þó langt fram úr öllum félögum, með því að safna alls um 20 þús. kr. til hælisins. Árið 1919 voru prentuð minningarspjöld til ágóða fyrir hælið, er ávalt hafa verið til sölu síðan. Aðalútsölu þeirra á Akur- eyri hafa annast Baldvin Ryel kaupm. og Hallgr. Davíðsson verzlunarstj. Þau hafa og verið seld á fleiri stöðum á Norðurl. Alls mun heilsuhælissjóðnum hafa áskotnast fyrir sölu þeirra um 15 þús. kr. — Vonandi er að sala þeirra gangi eins greiðlega hér eftir, því að stjórn heilsuhælisfé- lagsins ætlast til að ágóðinn renni í sérstakan sjóð, er notaður verði til að gleðja og hressa sjúklinga þá, sem á hælinu dvelja. — Á aðalfundi S. N. K. 1920, voru valdar í sjóðnefnd: frú Laufey Pálsdóttir, ungfrú Anna Magnúsdóttir og ungfrú Ivrist- björg Jónatansdóttir. Heilsuhælis- sjóðurinn var þá orðinn kr. 31,698.44 að meðtöldum áður- nefndum loforðum. Nefndin samdi skipulagsskrá fyrir sjóðinn, er var samþykt á næsta fundí S. N. K., og sá um ávöxtun hans, unz sjóðurinn var afhentur »Heilsu- hælisfélagi Norðurlands«. — Þá var sjóðurinn orðinn um 70 þús. krónur, og auk þess hafði Eim- skipafél. íslands lofað 10 þús. kr. og Magnús sál. Sigurðsson á Grund 20 þús. kr., með skilyrðum, er síðar breyttust í þá átt, að Heilsuhælisíélagið fékk peninga þessa, en ákvað að eitt af minni sj úkraherbergj um hælisins skyldi bera nafn þeirra Grundarhjóna. Og verður vestasta herbergið niðri að sunnan helgað minningu þeirra. »Heilsuhælisfélag Norðurlands« var stofnað á alménnum fundi á Akureyri 22. Febr. 1925, er hald- jnn var samkvæmt fundarboði frá 18 borgurum í Akureyrarbæ. Fundarstjóri var Steingrímur Jónsson bæjarfógeti, en Jónas Þorbergsson ritstjóri reifaði mál- ið. Að lokinni ágætri ræðu hans, var félagið stofnað og lÖg þess samþykt. Stofnendur voru 340. Þá var kosin stjórn fél. og varastjórn og framkvæmdanefnd. Daginn eftir, 23. Febr. héldu stjórnin og framkvæmdanefndin fyrsta fund sinn, var þá ákveðið að biðja rík-, isstjórnina að senda húsameistara ríkisins hið fyrsta norður, til þess a,ð v^ra í ráðum um val á stað I Byssingar oörur | fy r ir l iggjan d i. §§• Skólpvaskar email. hvítir fleiri stærðir. Skólpleiðslur. — Vatnsleiðslurör. — — Linoleum dúkar. — Pakjárn. — Kaupfélag Eyfirðinga. fyrir liælið, ákveða stærð þess og fyrirkomulag og síðar gera teikn- ing af því og áætlun um bygging- arkostnað. Ennfremur í símskeyti til Alþingis farið fram á 150 þús. kr. á fjárlögum 1926 til bygging- ar hælisins, gegn jafnmiklu fram- lagi frá félaginu. Um miðjan Marz kom húsameistari norður til þessara athugana. 17. Marz var landlækni ritað rökstutt erindi um málið. Um 20. Júlí 1925 komu þeir landlæknir og húsameistari norður og rannsökuðu þá, ásamt ^stjórn og framkvæmdanefnd Ileilsuhælisfél. alla þá staði í grend við Akureyri, er líklegir þóttu fyrir hælið. Hinn 24. Júlí var ákveðið, að hælið yrði bygt í Kristnesi — hinni fornu land- námsjörð Helga magra. Urn haustið var byrjað að undirbúa byggingu og vegur lagður frá þjóðbrautinni upp að hælisstaðn- um. Jafnframt var stöðugt unnið að fjársöfnun til hælisins og hafði félagið handbært, og í loforðum í árslok, um 200 þús. krónur. Hinn 26. Apríl 1926, var sam- þykt að taka tilboði Jóns Guð- mundssonar og Einars Jóhanns- sonar um bygging á hælinu sjálfu fyrir 222 þús. kr. auk leguskála fyrir 12 þús. kr. — Höfðu komið fram 4 tilboð um að byggja það samkvæmt uppdrætti húsameist- ara og var þetta langlægst. En 17. Apríl hafði ríkisstj. samþykt að Ilinn 2. Okt. síðastl. tók stjórn Iieilsuhælisfél. við byggingunni af þeim Jóni Guðmundssyni og Einari Jóhannssyni. Það lýsir að nokkru, hvern hug Norðlendingar alment hafa borið til hælisbyggingarinnar, að við nálega öll »útboð« er snerta bygg- inguna, eða eitt eða annað til hennar, reyndist ávalt svo að lægstu »tilboðin« voru frá þeim. Það er og öllum, sem starfað hafa að þessari byggingu hið mesta gleðiefni, að svo mun reynast, að sú áætlun er húsameistari í fyrstu gerði um kostnaðinn, verði mjög nærri hinu raunverulega. Áður en skilið verður við kostn- aðarhlið málsins, er rétt að skýra frá samskotum og fjársöfnun til hælisins, meðal almennings. Eru það kr. 255,186,36, sem hælinu hafa áskotnast í gjöfum og tillög- um ásamt vöxtum, og er það fé að mestu greitt til Heilsuhælisfélags- ins, eða nákvæmlega sagt kr. 223,957,52. (Ræðumaður las upp samskotalista sem eigi birtist nú sökum rúmleysis). Þegar »Heilsuhælisfél. Norður- lands« var stofnað, voru þau Kristbjörg Jónatansdóttir, Böðvar Bjarkan og Ragnar ólafsson kos- in í stjórn fél. og endurkosin síð- an. í Ágústmán. síðastl. skipaði ríkisstjórnin í stjórn hælisins* etir að ríkið hafði tekið við því, þá Ragnar ólafsson, Böðvar hælið yrði bygt í Kristnesi og—|Bjarkan og Vilhjálm Þór. jafnframt sarnþ. teikningar ogQ Hinn síðastnefndi hefir verið kostnaðaráætlun húsameistara umgífoi’maður framkvæmdanefndar fé- bygginguna o. fl. — Áætlunin varMlagSins frá byrjun og int mikið að öllu meðtöldu 512 þús. kr. —'j/starf af höndum. Læknir hælisins var í fyrra 'settur Jónas Rafnar. Fór hann ut- an í fyrrahaust og dvaldi erlendis víðsvegar í Skandinavíu og Þýzkalandi, fram á sumar, til þess að kynna sér síðustu nýjungar í lækningum berkla, og jafnframt fyrirkomulag, rekstur og tilhögun á hinum beztu og fullkomnustu berklahælum í nágrannalöndun- um. Heilsuhælið í Kristnesi stendur í mikilli þakkarskuld — ef svo mætti að orði kveða — við mörg Var svo byrjað á byggingunni, og 25. Maí 1926 lagði varaformaður Steingr. Jónsson bæjarf., niður hornstein að heilsuhælisbygging- unni, í fjarveru formanns, er þá var staddur erlendis. Var áætlað að byggingin yrði fullger 1. Okt. 1927. Stöðugt var unnið að henni, allir veggir steyptir, húsinu kom- ið undir þak, lýsingartæki og jarðhitunarleiðslur lagðar í hælið það málað o. s. frv. — Verkinu miðaði áfram jafnt og þétt, án nokkurra óhappa, fyr eða síðar, i

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.