Dagur - 26.03.1942, Blaðsíða 4

Dagur - 26.03.1942, Blaðsíða 4
4 DAGUR Fimmtudaginn 26. marz 1942 Jóhannes Elíasson, stud. jur.: Sfúdentar samein* aðir uiii endurheimt Garðs Þeir iiiunu lála 1 í 1 skarar skríða Þegar Bretar hertóku land vort, fyrir tæpum tveim árum, gáfu þeir hátíðleg loforð um að blanda sér ekki í innanlands- málefni og ennfremur að láta sem minnstar truflanir verða á daglegu lífi landsmanna, af þeim hernaðaraðgerðum, sem þeir teldu sig þurfa að gera. Samt sem áður kröfðust hern- aðaryfirvöldin þess, að ýmsar opinberar byggingar yrðu fengnar þeim í hendur til af- nota um stundarsakir. Urðu af þessu, sem vænta má, mjög mikil óþægindi, ekki sízt þar sem mörg þessara húsa voru skólahús og heimavistaríbúðir. En samt horfðu menn vonglaðir fram á við í trausti þess, að Bretar, ein hin mesta og voldug- asta þjóð heimsins, sú þjóð, sem berst fyrir menningu og réttar- öryggi smáþjóðanna, stæði við gefin loforð. Nú eru nær tvö ár liðin. Nokkrum þessara bygginga hef- ir verið skilað aftur, en í mörg- um sitja Bretar og bandamenn þeirra enn. Þar á meðal má telja Menntaskólahúsið í Reykjavík og heimili háskóla- stúdenta „Garð“. Það er skiljanlegt, að íslend- ingum var það ljóst, að nauð- synlegt væri, að herliðið tæki til afnota allmikið húsrúm fyrst í stað, en hitt er með öllu óskilj- anlegt, og næstum því hlægi- legt, að slík stórþjóð sem Bretar þuríi að halda slíkum smákofa á þeirra mælikvarða og Garður er. Mér er tjáð, að nú fyrir skemmstu hafi Bretar gefið skriflega yfirlýsingu um, að þeir ætli að rýma Menntaskólahúsið í tæka tíð, svo hægt verði að hefja kennslu í því á komandi hausti. Megum vér fagna þyí, þó mikið og dýrt verk sé fyrir höndum að hreinsa til eftir það athæfi, sem þar hefir farið fram. Er hörmulegt til þess að vita, að svo frægur staður í sögu landsins, sem Menntaskólahús- ið í Reykjavík er, skuli vera notað fyrir brezka knæpu. Stúdentaheimilið Garður var reistur fyrir sameiginleg átök allra landsmanna — framlög úr öllum sýslum og bæjarfélögum — og reistur sem minnisvarði um fengið fullveldi íslenzku þjóðarinnar. í þessu húsi sitja nú Bretar, og hafa þeir nú ný- lega gefið yfirlýsingu um, að þsir muni ekki láta hann lausan iyrr en að stríðinu loknu. — Kæruleysi sem þetta nálgast mjög að vera hrein og bein óvirðing í garð íslenzkra stú- denta og íslenzku þjóðarinnar í heild. Þegar Bretar hertóku Garð, skömmu eftir komu fyrstu her- flokkanna, vorið 1940, áður en stúdentar höfðu lokið prófi, hóf Garðstjórn þegar samningaum- leitanir við hernaðaryfirvöldin hér. Var henni tekið vel og gefið ákveðið loforð um, að Garður yrði rýmdur um haustið 1940. En hvað skeður? Brezka her- stjórnin telur sig ekki geta stað- ið við gefin loforð og fer ekki af Garði um haustið. Stúdentar urðu að leita húsnæðis annars- staðar og gekk það vonum framar, þar sem húsnæðisvand- ræði voru ekki orðin eins mikil þá og þau nú eru. Samt sem áður var samn- ingaumleitunum haldið áfram af Breta hálfu, vildu þeir fá Garð leigðan áfram, en Garð- stjórn neitaði að gera nokkra samninga. Þá fór málið fyrir ísl- brezku samninganefndina og í samningsuppkasti því, er hún gerir, er tekið fram, að brezka herstjórnin geti sagt Garði upp með eins mánaðar fyrirvara, en af Garðstjórnar hálfu er hann alls ekki uppsegjanlegur. Enn- fremur fylgdu þær upplýsingar samningsuppkasti þessu frá herstjórninni, að Garður yrði hernuminn áfram, hvort sem Garðstjórn skrifaði undir þstta eða ekki, en ef hún skrifaði ekki undir, fengi hún engar bætur. í Morgunblaðinu, sunnudag- inn 8. marz, dirfist svo her- stjórnin að bera það fram fyrir íslenzku þjóðina, að hún hafi stúdentagarðinn á leigu með frjálsum samningum við Garð- stjórn. Þegar til slíkra ráða er tekið, er samvizkan farin að gruggast. Á síðastliðnu hausti keyrði úr hófi með húsnæðisvandræði stúdenta. Brezka herstjórnin lagði þá fram boð um að láta reisa skála fyrir stúdenta, með líku sniði og hermannaskála, til að hafast við í um veturinn. Þó áttu íslendingar að annast all- an kostnað af byggingum þess- um. — Þessum smánartilboð- um var auðvitað hafnað af hálfu Garðstjórnar. Að lokum var ákveðið að stúdentar skyldu fá húsnæði í kjallara Háskólans, þar sem áð- ur var líkskurðarstofa og hjálp- arstöð Rauða krossins. Þarna komust aðeins fáir stúdentar fyrir, og verða þeir að víkja það- an strax og þörf er fyrir húsrúm þetta til hinna fyrri afnota, t. d. ef kryfja þyrfti lík. — En það er .á meðan er. — Margir stú- dentar hafast við úti í bæ hjá skyldfólki sínu, því til mikilla óþæginda og án þess að hafa nægilegt næði til lestrar. Sumir hafast við úti á Seltjarnarnesi eða jafnvel í Hafnarfirði. Alltaf öðru hvoru hafa Bret- ar verið beðnir að hverfa af Garði. Hafa þeir alltaf lofað hálft um hálft að verða við þeirri ósk, og nú í vetur, laust fyrir jól, fór fulltrúi brezku stjórnarinnar til London til þess að gefa brezku stjórninni skýrslu. Meðal annarra mála átti Garður að vera á dagskrá. En nú um daginn kom svo þessi fulltrúi Breta. hingað aftur og með þær upplýsingar, sem fyrr getur, að herstjórnin telji sig ekki geta látið Garð lausan fyrr en að stríði loknu. Þetta varð þá árangurinn af þeim ummælum Winstons Churchill, forsætisráðherra, að vilji Breta væri, að menningar- samband tækist milli Breta og Islendinga. Og þetta varð þá árangurinn af þeim loforðum Breta, að þeir skyldu ekki blanda sér í innanlandsmálefni. Þegar stúdentum urðu þessi málalok kunn, héldu þéir mjög fjölmennan stúdentafund í Há- skólanum og ræddu Garðsmál- in. Var þar borin upp og sam- þykkt í einu hljóði eftirfarandi ályktun: „Þar eð brezka herstjórnin hefir nú neitað réttmætum kröf- um stúdenta um, að Garður væri rýmdur, eftir að hafa dregið málið á langinn með sí- felldum loforðum nú í nær tvö ár, þá samþykkir fundurinn að hefja nú þegar markvissa ‘og einhuga baráttu fyrir þessu mikla hagsmunamáli stúdenta. Telur fundurinn, að eigi sé með nokkurri sanngimi hægt að krefjast þess, að stúdentar sýni frekara langlundargeð í þessu máli^ þar sem þau loforð, er þeim hafa verið gefin á samn- ingsgrundvelli, hafa verið að engu höfð. Fundurinn skorar því á stú- dentaráð að beita sér fyrir því: 1. Að stúdentar fari kröfu- göngu á hendur stjórnar- valda Breta hér á landi og mótmæli hernámi Garðs og annarra menntastofnana landsins. 2. Að skora á íslenzk stjórnar- völd, yfirherstjórn og sendi- herra Bandaríkjanna, sem nú hafa tekið að sér her- vernd landsins og íslenzkra hagsmuna, að beita sér fyr- ir því, að Garður og aðrar menntastofnanir landsins verði rýmdar sem fyrst. 3. Að skora á ríkisstjórnina að láta sendiherra sinn í Lon- don mótmæla harðlega her- námi Garðs, Menntaskólans og annarra íslenzkra menntastofnana, sem al- geru broti á gefnum loforð- um enskra umboðsmanna, sem og freklegri móðgun við æðstu menntastofnun landsins og þjóðina í heild. Fundurinn skorar á dagblöð, vikublöð og tímarit landsins og alla góða íslendinga, að styðja háskólastúdenta í baráttunni fyrir heimtun Garðs og ann- arra menntastofnana landsins úr höndum brezka setuliðsins, enda er hér um að ræða sjálf- sagða menningar- og réttarbar- áttu. Fundurinn lýsir því að lok- um yfir, að ákvarðanir þessa fundar, sem og allar frekari ráð- stafanir, beinast á engan hátt að því, að vinna gegn eðlileg- um og réttmætum, brezkum hagsmunum, né á nokkurn hátt að torvelda nauðsynlegar hern- aðarráðstafanir setuliðsmanna hér, heldur miða þær eingöngu að því, að fá framgengt óvé- fengjanlegum rétti íslenzkra stúdenta og vernda íslenzka hagsmuni11. Stúdentar! Vér verðum að hafa það hugfast, að standa ein- huga í þessari hagsmunabaráttu vorri. Það eru takmörk fyrir því, hve mikla þolinmæði vér getum sýnt erlendu setuliði. Islendingar! Stöndum ein- huga að endurheimt minnis- varða þess kærasta — minnis- varða fullveldis þjóðar vorrar. cr sápa liinna vaiullálu N ý k om i ð: Efnií FERMINGARFÖT, KVENDRAGTIR, PEY SUF ATAKÁPUR. flnoa & Ffeyja. Dr Pingejj- arsýslu Fréttaritari blaðsins á Húsavík skriíar: ' . . .« - - J * ■ ’ • j^ÝLEGA er dáinn Björn Helgason í Ytritungu á Tjörnesi, nálega hálfáttræður að aldri. Hann bjó lengi að iftritungu, en synir hans voru nú teknir við búskapnum, Jó- hannes og Steingrímur. Björn var mikill dugnaðar- maður og að góðu kunnur. Kona Björns, Guðrún Jóhannesdóttir, iifir mann sinn og dvelur hjá börnum þeirra að Ytritungu. Börn þeirra eru: Jóhannes, bóndi að Ytritungu. Stein- grímur, bóndi að Ytritungu. Jóhanna, gift Katli Indriðasyni, oónda að Ytrafjalli. Helga, ógift, bústýra hjá Steingrími að * tritungu. Líney, gift Ulfi Ind- riðasyni, oddvita að Héðins- nöfða. Aðalbjörg, ekkja Loga rielgasonar frá Saltvík. j] HÚSAVÍK hafa bátar fiskað anvei í pe^sum manudx, peg- ar á sjo nenr genó. aiunn nær- cækur. JARÐSKJÁLFTA hefir orðið J vart í nusavik og grennd í pessum mánudi. henr peirra oroid vart soiarnring eítir soiar- nrmg. Engar skemmair hafa uroio áf voiaum peirra. En ein- aver röskun nelir oröið í göml- um eldsumbrotasprungum í xiúsavíkurhöfða, sem er norðan við kauptúnið. Kemur 20 til 30 gráða heit gufa upp úr þeim sprungum, en heitt vatn hefir í omunatíð komið þar fram í ilæðarmáli. Minnir þetta sterklega á mál- afni, sem Húsvíkingar hafa nugsað mikið um síðustu árin,} 3n það er borun eftir heitu' /atni norðan við kauptúnið og nitaveita þaðan í kauptúnið. Gangið í Geffunar- I fölum Á síðustu árum hefir íslenzkum iðnaði fleygt fram, jjj ekki sízt hefir ullariðnaðurinn aukizt og batnað og á : : iij: ullarverksmiðjan Gefjun á Akureyri mikinn þátt í þess- iii um framförum. : Gefjunardúkarnir eru nú löngu orðnir landskunnir \]\ ií; fyrir gæði. |ij Ullarverksmiðjan vinnur úr íslenzkri ull, fjölmargar i: tegundir af bandi og dúkum til fata á karla og konur, jíj jjjj börn og unglinga. :ij Gefjun starfrækir saumastofur í Reykjavík og á Ak- jjj ureyri. Gefjunarföt eru smekkleg, haldgóð og hlý. Gefjunarvörur fást um land allt hjá kaupfélögum og j kaupmönnum. | Gef jun ?5$4$4S444$4S$$$$$$S$4$44$$4$4$$4$44$4$$44$44$4$$4S$4$44$$$4$$4$$$4$4S$44$4'/.£

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.