Dagur - 06.01.1944, Síða 8
8
DAGUR
ÚR BÆ OG BYGGÐ
I.O. O. F. = 1251781/a =
Kirkjan: Messað í Akureyrar-
kirkju kl. 2,30 e. h. næstkom-
andi sunnudag.
ViStalstími lækna i bænum:
Arni Guðmundsson: kl. 2—4 e. h.
Jón Geirss.: kl. 11—12 f. h., 1—3 e. h.
Victor Gestsson (sérgr. háls-, nef- og
eymasjúkd.): kl. 1—3 og 6—7 e. h.
Pétur Jónsson: 11—12 f. h., 5—6 e. h.
Jóhann Þorkelsson héraðslæknir: kl.
10.30—11.30 f. h.
Augnlæknir, Helgi Skúlason: kl.
kl. 10—12 f. h., 6—7 e. h.
Tannlæknir, Gunnar Hallgrímsson:
kl. 10—12 f. h„ 1.30—4 e. h.
Sjúkrasamlaésskrifstofan: Opin 10
—12 f. h. og 3—6 e. h., nema á laug-
ardögum, aðeins kl. 10 f. h. til 1 e. h.
BerklavarnastöS Rauða-Krossins í
Nýja sjúkrahúsinu, opin á þriðjudög-
um og föstudögum kl. 2—4 e. h.
Næturvörður í Stjörnu-Apóteki til
næstk. mánudagskvölds. Eftir það í
Akureyrar-Apóteki.
Bankar og stofnanir í bænum.
Landsbanki íslands, útibú, Búnað-
arbanki íslands, útibú. Afgreiðslutími:
kl. 10.30—12, — 1.30—3 e. h.
nema á laugardögum aðeins kl. 10.30
—12 f. h.
Útvegsbanki íslands h.f., útibú.
Afgreiðslutími: kl. 10.30—12 f. h. —
I— 4 e. h. Laugard. kl. 10.30—12.
Sparisjóður Akureyrar. Afgreiðslu-
tími: kl. 2—3.30 e. h. Laugardaga kl.
II— 12.
Kaupfélag Eyfirðinga: Skrifstofur:
Afgreiðslutími: kl. 9—12 f. h. og 1—5
e. h. Laugardaga kl. 9—12 f. h. og
1—4 e. h.
Barnaskólinn tekur aftur til starfa
laugardaginn 8. janúar samkvæmt
stundaskrá.
áfmæfisfundur. I tilefni þess að
an Ísafold-Fjallkonan nr. 1 á 60
ára afmæli mánudaginn 10. janúar
næstkomandi, heldur hún hátíðlegan
afmælisfund að kvöldi þess dags í
bindindisheimilinu Skjaldborg.
Stúkunum Brynju nr. 99 og Til-
raun nr. 190 er boðið á fundinn. —
Dagskrá nánar auglýst á götuauglýs-
ingum.
Hjónaband: Ungfrú Jóhanna Elín
Sigurjónsdóttir og Anton S. Magnús-
son, Ak. — Ungfrú Ólöf Þ. Ólafsdótt-
ir og Om Pétursson, Ak.
Dánardægur. Hinn 31. f. m. lézt að
heimili sínu hér í bænum Sólveig
Guðmundsdóttir fyrrum ljósmóðir. —
Hinn 26. des. lézt einnig hér í bæn-
um Kristbjörg Ólafsdóttir, öldruð
kona.
Hjúskapur: Ungfrú Ingibjörg B.
Björnsdóttir frá Nolli og Karl Njáls-
son, Hvoli Glerárþorpi.
Gjafir til Elliheimilisins í Skjaldar-
vík: Frá hjónum í Glæsibæjarhreppi,
áheit, kr. 100. — Frá Soffíu og Krist-
jáni, Eyrargötu 29, áheit, kr. 200. —
Frá N. N. kr. 100. — Áheit kr. 50. —
Frá ónefndum hjónum kr. 500. —
Hjartans þakkir. — Stefán Jónsson.
Leiðréttiné. í 52. tbl. er bagaleg
prentvilla í grein Jónasar Jónssonar.
Segir í 2. d. 20. línu að ofan:
„kirkjunni sannari og ofar“, eins og
eitt af skáldum landsins hefir komizt
að orði, en á að vera, sem er „kirkj-
unni sunnar og ofar“, o. s. frv.
Reglan á íslandi 60 ára. — í til-
efni af afmæli Reglunnar fara fram
hátíðahöld á Akureyri, og víðar um
land allt, þar sem Reglan starfar. Á
Akureyri hefjast hátíðahöldin á
sunnudag, 9. janúar, með því að allir
templarar, eldri sem yngri, safnast
saman við Skjaldborg stundvíslega kl.
1. í fyrstu var gert ráð fyrir að barna-
stúkumar kæmu þangað kl. 10, en
því hefir verið breytt og er nú ætlast
tll að þær taki þátt í skrúðgöngunni
kl. 1 o. h. með elriri templurum. —
Sölveig Guðmunds-
dóttir
fyrrverandi ljósmóðir.
MINNINGARORÐ.
„örðstír deyr aldrei hveim sér
góðan getr“. — Síðastliðið gaml-
árskvöld andaðist öldruð vin-
kona mín í sjúkrahúsinu hér,
Sólveig Guðmundsdóttir, búsett
í Aðalstræti 46, hin mætasta
kona. Hún fluttist hingað ásamt
manni sínum og sonum fyrir
nokkrum árum vestan úr Húna-
vatnssýslu, þar sem hún hafði
getið sér þann orðstír, sem aldrei
deyr. Hún var ættuð af Vest-
fjörðum, en fluttist ung að
Hnausum í Austur-Húnavatns-
sýslu og kynntist þar eftirlifandi
manni sínum, Halldóri Hjálm-
arssyni, ágætis dreng. Sólveig
heitin var vel gefin kona, og bar
snemma á því, hve hún var
hneigð fyrir allt, sem laut að
hjúkrunarstörfum, og nam hún
ljósmóðurfræði í Reykjavík. —
Aldamótaárið hóf hún svo sitt
ljósmóðurstarf í Húnaþingi, sem
hún rækti alla tíð af þeirri snilld,
að rómað var um alla Húna-
vatnssýslu og víðar. Um 10 ára
skeið bjuggu þau hjón í Selhaga
á Stóra-Vatnsskarði og reyndi þá
verulega á hetjulund hennar og
fórnfýsi, að brjótast áfram yfir
fjöll í stórhríðum, til hjálpar
þeim, sem þráðu komu hennar.
Gegndi hún þá ljósmóðurstörf-
um í nálægum sveitum austan
Blöndu. Alls gegndi hún Ijós-
móðurstörfum milli 20 og 30 ár
og hennar starfi fylgdi svo mikið
lán og öryggi, að aldrei dó ein'
einasta kona, sem naut hennar
aðstoðar.
Sem eiginkona og móðir rækti
hún skyldur sínar af sömu ná-
kvæmni og festu, ög mun manni
hennar og sonum finnast stórt
skarð höggvið í hóp þeirra með
fráfalli hennar, en það mýkir
sáran trega, minningin um móð-
ir og konu, sem skilaði dagsverki
sínu með þeirri prýði eins og
hún gerði, og í hugum Húnvetn-
inga og annarra, sem nutu hjálp-
ar hennar, lifir minning hrein
og björt.
Helga Jónsdóttii' frá Öxl.
Gengið verður inn að húsi Friðbjarn-
ar sál. Steinssonar og látinna braut-
ryðjenda minnzt, en þaðan víðar um
bæinn ef veður leyfir og eftir því sem
tími vinnst til, en hátíðamessan hefst
í kirkjunni kl. 2,30, eða hálftíma síð-
ar en vanalega. Vígslubiskup, Fr. J.
Rafnar, messar.
Kl. 5 verður samkoma í Nýja-Bíó
fyrir alla sem þangað vilja koma og
inn komast og verður ekki krafið um
neinn inngangseyri. Þar leikur Lúðra-
sveit Akureyrar, undir stjóm Jakobs
Tryggvasonar, samlestur verður úr
sögu og ljóðum Reglunnar (7 eða 8
þátttakendur) og sýnd verður kvik-
mynd,'sennilega alveg ný mynd frá
bindindismótinu í Vaglaskógi 1942
og víðar að af landinu.
Kl. 8 um kvöldið verður samsæti
templara í Bindindisheimilinu Skjald-
borg.
Mánudagskvöldið 10. janúar verð-
ur að lokum hátíðafundur í stúkunni
Ísafold-Fjallkonan nr. 1 og er gert
ráð fyrir almennri þátttöku templara
þar.
Merki hátíðahaldanna verður selt
9. og 10. janúar og ánægjulegt væri
að sem flestir bæjarbúar bæru þetta
merki báða dagana.
Fertuésafmæli á n. k. laugardag
Þorkell V. Ottesen prentari. Blaðið
ámar honum allra heilla með af-
mælið, um leið og það þakkar honum
longa eg eéða fftmvlnnu,
Fimmtudaginn 6. janúar 1944
■>...... ............................■•■■■■ 1 .iiii i . i
Jarðaríör konunnar minnar, Sólveigar Guðmundsdóttur, sem lézt
31. des. s.I., ier íram frá Akureyrarkirkju laugardaginn 8. janúar
n. k., kl. 1 e. h.
Vegna mín og aðstandenda.
HaUdór Hermannsson.
Saga íslendinga
6. bindi er nýkomið.
Kaupendur eru beðnir
að vitja bókanna sem
allra fyrst.
Bókaverzlunin EDDA
Jarðarför móðursystur minnai’, KRISTBJARGAR ÓLAFS-
DÓTTUR, sem andaðist að heimili sínu, Eiðsvallagötu 4, Akur-
eyri, er ákveðin föstudaginn 7. þ. m., kl. 1 e. h.
Fyrir hönd aðstandenda.
Óli Konráðsson.
60 ÁRA AFMÆLI.
(Frarrthald af 7. síðu).
til mála kvaddur, sýnir hann hygg-
indi, dugnað og samvizkusemi.
Hann nýtur líka fyllsta trausts
sveitunga sinna, og er það að
vonum, því að hann leggur sig
allan fram til þess að verk hans
verði sem bezt af hendi leyst, og
þeim mönnum, sem þannig
hugsa og starfa, verður ætíð vel
ágengt, hvort sem þeir vinna
fyrir sjálfa sig eða aðra.
Að endingu óska eg afmælis-
barninu allra heilla og vona,
að hann eigi eftir að starfa með
okkur, og fyrir okkur, mörg ár
ennþá.
P. J. Þórðarson.
GOOD-TEMPLARAREGLAN
60 ára.
(Framhald af 1. síðu).
henni. Nú er áfengistízkan orðin
svo voldug, að flestum þykir það
samkvæmi ó]int, þar sem ekki er
áfengi á borðum. Þjóðin eyðir
mörgum miljónum króna í á-
fengi á ári hverju. Ríkið selur á-
fengið og hefir af því miklar tekj-
ur. En ríkið ver líka fé til þess
að unnið sé á móti áfengisnautn-
inni. Rikið býður öllum skólum
að kenna nemendum um skaðleg
áhrif áfengisnautnarinnar á
heilsu manna og fjárhag.
Slíkur er tvískinnungur ríkis-
valdsins. Það magnar óvin, sem
það býður svo, að barizt sé á
móti.
Vegna hinnar voldugu áfengis-
tízku eyða íslendingar stórfé á
ári hverju. Vegna áfengistízk-
unnar lenda nokkrir unglingar í
alls konar óreiðu og hafna sumir
í fangelsi. Vegna áfengistízkunn-
ar verður að verja miklu fé í
aukna lögreglu. Áfengistízkan á
sök á fjölmörgum slysförum,
bæði á sjó og landi.
Það er erfitt að rísa móti vold-
ugri tízku. Þeir, sem gera það,
eru kallaðir sérvitringar, ofstæk-
ismenn, þröngsýnismenn o.s.frv.
En það eru samt þeir mennirnir,
sem á öllum öldum hafa unnið
siðmenningu mannkynsins mest
gagn-
Á mánudaginn kemur heldur
stúkan ísafold fund á sextugsaf-
mæli sínu. Eg vil beina þeirri
spurningu til þeirra, sem lesa
kunna þessa grein, hvort ein-
hverjir þeirra, sem enn hafa ekki
gengið í regluna, vilji ekki á
þessuin degi koma inn í stúkuna
ísafold, og taka upp baráttu
sem stefni að þvi, að útrýma á-
fengisnnutn úr landi voru?
b. M. J.
Fullorðna stúlku
eða ungling vantar mig nú þegar
heilan eða hálfan daginn.
Gunnlaug Kristjánsdóttir,
Eyrarlandsveg 20.
UNGLINGSSTÚLKA
óskast nú þegar. —
Upplýs. í síma 249.
TIL SÖLU
kvenreiðhjól.
Benzínafgreiðsla KEA.
Kartöflumjöl
Citrónur
SKÁTAFÉL. AK. 5 ÁRA.
(Framhald af 1. síðu).
Snorra Sigfússon skólastjóra, sem
stutt hefir starf skátanna með
ráðum og dáð á þessu tímabili.
Að samsætinu loknu sýndu
skátarnir ýmsa þætti starfsemi
sinnar: tjaldbúðir og ferðaút-
búnað, hjálp í viðlögum o. m. fl.
Að lokum settust þeir „við varð-
eldinn'1 og skemmtu hinum
mörgu gestum sínum um stund
með söng og hljóðfæraslætti, leik
sýningum, vígslu riýliða og
mörgu fleira. Var samkoma þessi
öll sérlega ánægjuleg og bar skát-
unum og félagsskap þeirra hið
bezta vitni í hvívetna. Enda mun
það sannast orða, að skátareglan
er röskum drengjum og stúlkum
ein hin bezta og hollasta uppeld-
isstofnun og menningar, sem
hér er völ á. Eiga hinir fullorðnu
skátar, er forgöngu hafa í þessu
efni, skilið þakkir og viðurkenn-
ingu bæjarbúa fyrir mikið og ó-
eigingjarnt starf sitt í þágu æskn-
lýðs barjarini.
Bækur Menningarsjóðs
og Þjóðvinafélagsins
eru komnar
. t
Kaupendur eru beðnir
að vitja þeirra sem
fyrst.
Bókaverzlunin EDDA
HÁLFDÚNNINN
marg-eftirspurði, nýkominn
Söluturninn
við Hamarstíg
Tíin til sölu.
Upplýsingar 1 síma 4M.
NÝKOMIÐ
SVESKJUR
SÚRKÁL í DÓSUM
(Sauerkraut)
TÓMATSAFI
(Tomato Juice)
Nýlendu-
vörudeild
VEGNA ÞESS að eg hefi selt
Fornsöluna í Hafnarstræti 105,
eru allir, sem eiga muni í um-
boðssölu, beðnir að vitja þeirra
fyrir 15. þ. m.
Baldvin Sigvaldason.
r '_
sýnir i kvöld kL 9:
Söngvaeyjan
löstudag kl. 9:
Vor sólskinsár
Laugardaginn kl. 6:
Knattleikakappinn
Kl. 9:
Storm skuluð þér
uppskera
Snnnudag kl. 3 og kl. 9:
Vor sólskinsár