Dagur - 23.03.1944, Síða 8

Dagur - 23.03.1944, Síða 8
DAGUR Fimmtudagur 23. marz 1944 ÚR BÆ OC BYCGÐ Kirkjan. Messað í Akureyrar- kirkju næstk. sunnudag kl. 2 e. h. Séra Benjamín Kristjánsson prédikar. Guðsþjónuatur í Grunclarþinga- prestakalli: Kaupangi, Pálmasunnu- dag, 2 e. h. — Munkaþverá, Skírdag, kl. 1 e. h. — Möðruvöllum, Föstudag- inn langa, kl. 1 e. h. — Hólum, Páska- dag, kl. 12 á hád. — Saurbæ, sama dag, kl. 3 e. h. — Grund, 2. pásadag, kl. 1 e. h. Barnastúkan „Samúð" heldur fund næstk. sunnudag kl. 10 f. h. í bind- indisheimilinu Skjaldborg. C-flokkur skemmtir og fræðir. Allir á fund! Vinnusjóði Kristneshælis hafa bor- izt þessar gjafir: Kvenfél. Þistilfjarð- ar 30 kr. — Frú X. kr. 100. — A. S. 100 kr. — Áheit kr. 20. — Frú G. R. 200 kr. — Áheit 50 kr. — Hótel Norðurland, ágóði af kvikmyndasýn- ingu 1. marz kr. 200. — Ingunn Ei- ríksdóttir, Ak., 50 kr. — Beztu þakk- ir. — Jónas Rafnar. Framsóknarfélag Akureyrar heldur fund í Skjaldborg næstk. mánudags- kvöld kl. 8.30 Þar fer fram kosning fulltrúa á flokksþing. Kvikmynd verð- ur sýnd til skemmtunar. — Þá efnir félagið til dansleiks í Samkomuhúsi bæjarins næstk. laugardagskvöld fyr- ir félagsmenn og gesti og hefst kl. 10.30. Hljómsveit Óskars Ósbergs leikur. Aðgöngumiðar í Samkomuhús- inu frá kl. 4 á laugardag. Hjónaefni. Ungfrú Hrönn Krist- jánsdóttir frá Dalvík og Karl Jóna- tansson hljómsveitarstjóri. Kvenfélaéið Voröld efnir til skemmtisamkomu í þinghúsi Önguls- staðahrepps, að Þverá, laugardaginn 25. marz næstk. Hefst kl. 9 e. h. — Ágæt músik. Kaffi verður til sölu á staðnum. Kvermadeild Slysavarnaféla£sins heldur fund í Verzlunarmannahúsinu 31. marz næ^tk. kl. 9 e. h. — Kosning fulltrúa á landsþing. Skemmtiatriði. Aðalfundur Starfsmannafél. K. E. A. verður haldinn í starfsmannasaln- um næstk. þriðjudagskvöld kl. 8.30. Iðnaðarmannafélagið (Framhald af 1. s(ðu.) skuldlaus eign þess um síðustu áramót kr. 71.682.52. Svohljóðandi ályktun var samþykkt á fundinum með sam- hljóða atkvæðum allra fundar- manna: „Aðalfundur Iðnaðarmanna- félags Akureyrar, haldinn 18. marz 1944, lítur svo á, að svo einhliða ráðstafanir sem þær, er ríkisvaldið hefir nú gert til skipakaupa erlendis, muni, — ef framkvæmdar verða svo sem nú horfir án nægilegs tillits til íslenzks iðnaðar og atvinnu- lífs, — leiða af sér mjög alvar- lega hnekki fyrir skipasmíða- iðnað landsmanna. Mótmælir fundurinn því eindregið þeirri stefnu, að varið verði stórfé úr ríkissjóði til styrktar slíkum skipakaupum til samkeppni við íslenzkar skipasmíðastöðvar. Skorar fundurinn því á ríkis- stjóm og Alþingi, að opinberar ráðstafanir verði gerðar til styrktar innlendum skipasmíða- iðnaði, svo að hann eigi falli niður á yfirstandandi erfiðleika- tímum, svo sem með: 1. Eftirgjöf á tollum af efni- vöru. 2. Lækkun farmgjalda. 3. Verðjöfnun á þeim skip- um, sem nú er samið um kaup á erlendis og hinum, sem heegt veeri að byggja innanlands,“ Skipasmíðarnar (Framhald a£ 1. síðu.) lognaðist málið út af. Ekki mun þó leika vafi á, að aukin tækni og betri vinnubrögð, mundu gera hlut þessa iðnaðar mun betri í samkeppni við erlendar stöðvar. Það virðist augljóst, að nauð- synlegt sé, að gera gagngerðar breytingar á þeirri aðstöðu, sem íslenzkir skipasmiðir eiga nú við að búa. Afnám tolla, ívilnun með farmgjöld, og allsherjar skipulag á efnisútvegun, álagn- ingu og nauðsynlegri aukningu á skipastólnum yfir vist árabil, eru verkefni sem bíða úrlausnar. Landsmenn og stjórnarvöld verða að ákveða hvort þessi iðn- aður eigi að lifa í landinu. Ef ekkert verður að gert annað en vinna að útvegun erlendra fiski- skipa, er ekki annað sýnt, en þessi vísir til blómlegs og þjóð- nauðsynlegs iðnaðar muni falla og eyðast á næstu árum. Leikfélag Dalvíkur (Framhald af 7. síðu). enda nær Kristín Stefánsdóttir föstum tökum á því og fer vel með, en óhætt hefði virzt að lofa hinum viðkvæma streng að hljóma, þegar tækifærið kom. Hlutverk Erlu er hluíverk mögu- leikanna í leik þessum, en við- sjárvert og tekst Bergþóru Jóns- dóttur vel að sneiða hjá hættun- um og ber furðu lítið á ,,dauð- um blettum", sem annars vilja koma fram, þegar leikur verður að vera „sterkur" með köflum. Marinó Þorsteiusson hefir auð- sjáanlega komizt í vanda með vandræðamanninn V?l, en Mari- nó er orðinn leiksviðsvanur og engin raun verður honum að fótakefli. Hlutverk Gríms er lít- ið, en laglega meðfarið hjá Hjálmari Júlíussyni. Auðséð er að leikendur hafa skilið hlut- verk sín rétt og samleikur er góður og leikurinn gengur jafnt og snurðulaust á sviðinu. Leik-^ stjórn annast Sigtýr Sigurðsson. Sviðin eru tvö, beiiingaskúr og eldhús, og eru þau eðlilega út- búin. Sama er að segja um veðra- gný og brimhljóð. Það má óska L. D. til ham- ingju með góða byrjun og höf- undi leiksins bera þakkir fyrir verkefnið. Áhorfandi. AKTYGI Verð kr. 300.00 Jám- og glervörudeild. Ný kjólföt á meðalmann til sölu í VERZLUNINNI ESJU NÝK0MIÐ fyrir börn: Peysur, Goltreyjur, Leistar, Buxur (jessy og flónel), Nærskyrtur (Jessy og ull), Náttföt, Kjólar, Pils (fellt), Gallar, fl. st. Kot, Skriðföt, o. m. fl. VERZLUNIN L0ND0N ril sölu notaður miðstöðvar- ketill (meðalstærð). Sverrir Þór, sími 112. Vélb. Hermann, sem stendur á landi í Húsavík, er til sölu. Bátur og vél nýlegt. Björn Halldórsson, lögfræðingur. BLIKKBAUKAR SUPUJURTIR nýkomnar. Fást í bréfum á kr. 1.50 og kr. 2.00 Kaupfélag Eyfirðinga Nýlenduvörudeild 4 kýr, síðbærar og 17 ær til sölu í vor. EGILL ÁSKELSSON. Þrastarhóli. Hefi til sölu nokkra fola og reiðhesta. Get einnig útvegað dráttarhesta. GESTUR IÓNSSON, Gránufólagsgötu 53. miðstöðvarketill (Logana) til sölu og sýnis í Ámesi.'Glerárþorpi. GÍ5U EIRÍKSSON VEGNA AUKiNNAR AÐSÓKNAR geta nokkrar stúlkur fengið atvinnu nú þegar. Sömuleiðis vantar konur til þess að gera hreint. hreint. Gildaskáli K.G.A. plefi opnað > nýja bóka og ritfangaverzlun fBÓKABÚÐ RIKKU Aí Hafnarstræti 83. Nýjar íslenzkar bækur í úrvali; einnig< ýmsar eldri bækur með lága verðinu.' Friðrika Friðriksdóttir. TIL SÖLU Tilboð óskast í eftirfarandi fasteignir Jóhönnu Sigurðar- dóttur, Brekkugötu 7, Akureyri: 1. Hamarkotstún. 2. Tún við Þórunnarstræti. 3. Lóðir og fjós við Oddeyrargötu. Tilboðum sé skilað til dr. Kristins Guðmundssonar fyrir 15. apríl n. k. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum. FOKDREIFAR. (Framhald af 4. síðu). bæjarins. Þessum hluta gilsins virðist sjálfvalið nafn: Laugarskarð ó garð- urinn að heita, — ekki í höfuðið á hinum fræga sögustað Forn-Grikkja, heldur til minningar um heilsulind bæjarbúa, sundlaugina, sem er þama efst í gilinu. Þeim enda gilsins, er að henni veit, á að loka með veglegri og stílfagurri byggingu, yfirbyggðri sund- laug til kennslu að vetrinum og nauð- synlegum búnings- og snyrtiklefum fyrir báðar laugarnar. Þak þeirrar byggingar ætti að framanverðu að mynda göngubrú, er tengdi saman Suður- og Norðurbrekkuna, og tæki af mönnum þann mikla og bagalega krók, sem nú er á þeirri leið. Neðan við þessa byggingu ætti svo að koma stílhreinn og eðlilegur skrúðgarður með miklum trjá- og blómgróðri. All- vatnsmikill lækur rennur þarna um gilið. Farvegi hans ætti að breyta sem minnst, aðeins að hreinsa hann og bæta í hann vellöguðu hraungrýti til prýðis og jafnvel og setja þar smáfossa og tjarnir til augnagamans og yndisauka. Þau fáu hús og ljótu skúra, sem nú eru til óprýði og þrengsla á þessu svæði, þurfa að hverfa sem allra fyrst, eins og raun- ar mun vera ráð fyrir gert á skipu- lagsuppdrætti bæjarins. En umfram allt: Það þarf að hefjast handa um að prýða og friða þennan stað — ein- mitt í sambandi við þau mannvirki, sem nú er verið að gera þarna. Skóla- fólkið í bænum myndi vafalaust fúst til að leggja á sig mikið starf í þessu skyni, ef forráðamenn bæjarins láta aðeins ekki sinn hlut eftir liggja að skipuleggja framkvæmdirnar og láta því í té hæfilega og örugga verk- stjórn. r*G ER SANNFÆRÐUR UM, að Laugarskarð mun í framtíðinni verða einhver fegursta og dýrmæt- asta perlan í hópi allra garða og op- inna svæðí í þessum bæ, ef rétt og Amerískar bækur og tímarit Bókabúð Rikku Hafnarstrœti 83 Decora Colors litakassar fyrir alls konar taumálningu, strokleður, teiknibólur o. m. fl. fæst í Bókabúð Rikku Hafnarstrœti 83 Aladin-lampar Glóðarnet Glös Kveikir K. E. A. Jám- og glervörudeildin. skynsamlega er haldið á þeim mögu- leikum, sem þar eru til reiðu frá nátt- úrunnar hendi, og deyfð og sinnuleysi draga ekki enn allar framkvæmdir á langinn og úr hófi fram.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.