Dagur - 11.05.1944, Page 1
■ ■ K- ■ ■ ■
ANNÁLL
DAGS
Frá Vestmaiuxaeyjum er blað-
inu símað:
Lifrarsamlag Vestmannaeyja
ákvað í síðustu viku endanlegt
lifrarverð ársins 1943 og er það
kr. 1.47 hvert kg. Heildar lifrar-
magn var 1100 tonn. Kílóverð
lifrar 1942 var kr. 1.90. Sjómenn
og útgerðarmenn fá um 500 þús.
kr. minna útborgunarverð fyrir
lifrina 1943 en 1942 vegna auk-
ins vinnslukostnaðar í landi
þrátt fyrir hliðstætt útflutnings-
verð lýsisins. — H. B.
★
Kjartan Bergmann Guðjóns-
son, glímukennari, var hér á ferð
í fyni viku, hafði „Dagur“ tal af
honum. Kjartan hefir dvalið í
Mývatnssveit um þriggja vikna
skeið og kennt þar glímu á veg-
um ungmennafélagsins. Segir
hann .glímuáhuga og dugnað
Mývetninga dæmafáan. Þátttak-
endur á námskeiðinu voru 41
talsins. Á sumarmálafundi Mý-
vetninga var haldin kappglíma
um Geirfinnsbikarinn, en það er
gripur gefinn Mývetningum til
glímukeppni af Guðmundi Hof-
dal í Reykjavík. Skal keppt um
gripinn 25 sinnum og hlýtur sá
til eignar, er oftast vinnur hann.
Sigurvegari að þessu sinni varð
Hallgrímur Þórhallsson frá Vog-
um. Er hann glímumaður ágæt-
ur og væntanlegur þátttakandi í
Íslandsglímunni. — Mývetningar
sýndu glímu á Húsavík, að nám-
skeiðinu loknu.. Var háð bænda-
glíma og sýnd fegurðarglíma. —
Rómar Kjartan Mývetninga
mjög fyrir íþróttaáhuga, ge*t-
risni og dugnað.
★
Búnaðarfélag Amamesshrepps
hafði hið árlega námskeið og
skemmtun fyrir konur félags-
manna, að Reistará, um fyrri
helgi. — Vom þar flutt erindi
um margvísleg efni og til
skemmtana var kvikmyndasýn-
ing m. a. — Erindi fluttu Jóhann
Þorkelsson héraðslæknir, Egilí
Þórláksson kennari, Edvald B.
Malmquist búnaðarráðunautur,
Halldóra Bjamadóttir og Jónas
Jónsson frá Brekknakoti. — Bxxn-
aðarfélag Amarnesshrepps hefir
gengist fyrir slíkum fræðslu- og
skemmtifundum undanfarin ár.
Er þetta mjög til fyrirmyndar.
Verkamenn segja upp
kaupsamningum frá
1. júlí n. k.
Verkamannafélag Akureyrar-
kaupstaðar hefir ritað Kaupfé-
lagi Eyfirðinga og Vinnuveit-
endafélagi Akureyrar bréf, þar
sem félagið segir upp gildandi
samningum um kaup og kjör í
verkamannavinnu hér í bænum
frá 1. júlí næstk. Jafnframt ósk-
ar félagið þess, að teknir verði
upp samningar á nýjan leik.
Atkvæðagreiðsla fór fram fyrir
skemmstu í félaginu og varupp-
sögn samþykkt af mikl-
um meiri hluta þeirra er þátt
tóku í atkvæðagreiðslunni, en
þátttakan var haldur litil.
SENDIHERRARNIR
LEIKFELAGIÐ SYNIR ,BRUÐUHEIM-
ROMA FEGURÐ NORÐURLANÐS
Ánægðir yfir að hafa fengið tækifæri til |) ess að
heimsækja Norðiendinga í góðu veðri
ILID' EFTIR HENRIKIBSEN í HAUST
Frú Gerd Grieg annast leikstjórn
^INS og lauslega var frá skýrt í síðasta blaði komu sendiherrar
Bandaríkjanna, Sovétríkjanna og Noregs, ásamt frú Fr. le
Sage de Fontenay og syni, Vilhjálmi Þór, utanríkisráðherra og frú
hans og Toxirtellott, flughershöfðingja í stutta heimsókn norður
hingað sl. miðvikxxdag og héldu til Reykjavíkur aftur síðdegis á
fimmtudag. — Tíðindamaður Dags hitti sendiherrana að máli
skömmxx áður en þeir stigu á flugvélina, sem flutti þá suður og
ræddi við þá litla stund um förina norður og dvöl þeirra hér á
landi. Létxx þeir allir hið bezta yfir því, sem þer höfðu séð hér.
Leland B. Morris sendiherra
Bandaríkjanna sagði m. a.:
— Það er mér gleðiefni að
fá tækifæri til þess að lýsa því
yfir, að dvöl mín á íslandi hefir
verið ánægjurík í alla staði, en
hún er nú senn á enda. Hefi ver-
ið kallaður til annarra starfa.
Mér fannst þó mikið á vanta, ef
eg hefði þurft að hverfa héðan
án þess að heimsækja Norður-
land. Eg fagnaði því sérstaklega
þessu tækifæri til þess að koma
hingað, enda þótt dvölin hafi
verið stutt. Og eg hefi ekki orðið
fyrir vonbrigðum. Eg þykist nú
skilja ástæðuna fyrir því, að
landar mínir og aðrir í Reykja-
vík tala með svo mikilli aðdáun
um Akureyri, Eyjafjörð og
Norðurland allt. Mér hefir litist
prýðilega á bæinn og umhverfið
og það sem eg hefi séð hér hefir
enn aukið aðdáun mína á ís-
landi og einlægan hlýhug minn
til lands og þjóðar. —
Sendiherra Noregs, August
Esmarch, lét svo um mælt:
— Eg hefi alltaf harmað það,
að eg hefi ekki haft tíma né
tækifæri til þess að heimsækja
Norðurland, og þá sérstaklega
Akureyri, fyrr en nú, þar sem
allir Norðmenn, sem hér hafa
dvalið, hafa talað um bæinn og
umhverfið með mikilli aðdáun.
En mér hefir ekki tekist að l^ta
verða af þessari fyrirætlun
minni um heimsókn norður,
fyrr en nú, vegna þess að sendi-
sveitin er næsta fáliðuð. I fyrra
sumar hafi eg ráðgert för hing-
að norður, en því miður gat
ekki af henni orðið, þar sem eg:
var þá kvaddur til London. En
nú er það fastur ásetningur
minn að koma hingað norður í
sumar og dvelja hér nokkurn
tíma. Við höfum reynt að nota
tækifærið til þess að litast um
hér nú og skoða það sem við
höfum haft tækifæri til að sjá
og við höfum ekki orðið fyrir
vonbrigðum. — Akureyri minn-
ir mig á svo margan hátt á okk-
ar eigin norsku strandbæi. Eg
get þess vegna vel skiiið gleði
þeirra Norðmanna sem hér hafa
dvalið. —
Hinn nýkomni sendiherra
Sovétríkjanna, Alexei N. Krass-
ilrúkov lét svo um mælt:
— Eg hefi ekki dvalið hér á
landi nema í tvo mánuði og
ekki haft tækifæri til þess að
ferðast neitt um fyrr en nú. Mér
var því sérstakt gleðiefni að fá
tækifæri til þess að koma norð-
ur hingað og heimsækja Akur-
eyri. Förin hefir verið í alla
staði ánægjuleg. Veðrið mjög
fagurt og útsýnið úr flugvélinni
tignarlegt. Eg hefi gengið hér
um bæinn ykkar og skoðað
hann og hreinskilnislega sagt
lízt mér ljómandi vel á mig.
Bærinn minnir mig á margan
hátt á litla, snotra bæi í mínu
eigin landi og sjálfur kann eg>
ævinlega betur við mig í smábæ
en stórborg. Veðrið hér hefir
verið skemmtilegt undrunar-
efni. Eg hefi sjálfur ekki haft
tækifæri ennþá til þess að sjá
nema lítið af íslandi með eigin
augum, en eg hefi lesið mikið
um landið og í bókum er margt
sagt um veðrið hér sem ekki
kemur heim við það, sem eg hefi
séð til þessa.
Strax og tækifæri gefst og
vonandi á þessu sumri, hefi eg í
hyggju að ferðast um landið og
kynna mér af eigin sjón og
raun. —
Kantötukór Akureyrar
undir stjórn Björgvins Guð-
mundssonar tónskálds efndi til
hljómleika í Nýja-Bíó sl.
sunnudag. Við hljóðfærið var
Jakob Tryggvason.
Á söngskránni voru lög eftir
söngstjórann, Sigfús Einarsson,
Jóhartn Ó. Haraldsson og fleiri
íslenzka höfunda, auk laga eftir
erlend tónskáld svo sem Schu-
bert, Wagner og Hándel. Frú
Helga Jónsðóttir söng einsöng,
en frú Björg Baldvinsdóttir og
ungfrú Anna Helgadóttir sungu
tvísöng. Var söng þeirra og
kórsins vel fagnað af áheyrend-
um, sem því miður voru færri
en skyldi. Er það ekki vansa-
laust, að við Akureyringar skul-
um ekki troðfylla húsið í hvert
sinn, er Kantötukórinn lætur
(Framhald á 8. síðu).
„Dagux“ hafði fregnir af því, að í ráði væri, að frú Gerd Grieg
annaðist leikstjórn fyrir Leikfélag Akureyrar á komandi hausti. —
Blaðið sneri sér því til stjórnar Leikfélagsns og spurðist fyrir um
hvort þetta væri rétt hermt.
BANDAMANNAHER að
BAKI JAPANA í BURMA.
7 iregnum að undanförnu hefir verið
saét irá her, sem Bandamenn haia
tlutt í flaévélum til Mið-Burma. —
Myndin sýnir fluévöll, sem búinn hef-
ir verið til í miðjum frumskóéinum.
Iðnskólanum á Akureyri
sagt upp
19 iðnnemar brottskráðir
Iðnskólanum' á Akureyri var
slitið sl. laugardag. Flutti skóla-
stjórinn, Jóhann Frímann, við
það tækifæri ávarp til hinna
brottskráðu nemenda og afhenti
þeim prófskírteini þeirra. 114
nemendur stunduðu nám í skól-
anum í vetur og 12 kennarar
voru þar starfandi, auk skóla-
stjóra. — 19 nemendur, allir í
4. bekk skólans, luku burtfarar-
prófi. Fara nöfn þeirra og aðal-
einkunnir hér á eftir.
Ágúst Ólafsson, húsgagnasm.
II. 7.24.
Benedikt Hermannsson, húsgagna-
sm. II. 6.58.
Bergsveinn Breiðfjörð Gíslason,
skipasm. I. 7. 75.
Bragi Guðjónsson, klæðskeri
II. 6.65.
Garðar Björnsson, bakari II. 6.24.
Herdís Sigurjónsdóttir, hárgreiðslu-
mær I. 8.10.
Hreiðar Eyfjörð Jónsson, bifvéla-
virki I. 7.50.
Jóhann Magnús Jóhannesson, jám-
smiður III. 5.68.
Jón Sigfús Einarsson, húsasm.
I. 7.57.
Karolína S. Halldórsdóttir, hár-
greiðslumær I. 7.50.
(Framhald á 8. síðu),
„Leikfélagið hefir gert samn-
ing við frú Gerd Grieg um leik-
stjórn hér á komandi hausti,“
sagði ritari félagisns, Hólmgeir
Pálmason. — „Ákveðið hefir
verið að taka til sýningar
„Brúðuheimilið" eftir Henrik
Ibsen og mun Alda Möller, leik-
kona úr Reykjavík, leika aðal-
hlutverkið, sem gestur Leikfé-
lagsins. Um önnur hlutverk er
allt óráðið ennþá. Svo er ráð
fyrir gert að frú Grieg komi
hingað norður seinni hluta
ágústmánaðar og sýningar hef j-
ist í októberbyrjun. — Eins og
kunnugt er hefir frú Grieg ann-
ast leikstjórn í Reykjavík að
undanförnu, hefir sett þar á
svið Veizluna á Sólhaugum og
Pétur Gaut. Frúin sá sýningu
Leikfélagsins hér á „Gullna
hliðinu". Þótti henni mjög mik-
ið til þeirrar sýningar koma. —
Um líkt leyti bauð hún leik-
félaginu að taka að sér leik-
stjóm hér á næsta hausti og
setja norskt leikrit á svið hér.
En það er starf frúarinnar hér
að vinna að aukinni kynningu
íslendinga á norskri leiklist. —
Leikfélagið tók þessu kostaboði
með þökkum og væntir þess, að
þetta ár verði fyrir allra hluta
sakir eitt hið eftirminnilegasta
í leiksögu Akureyrar.“
Lýðveldiskosningunum
valið sérstakt merki
Landsnefnd lýðveldiskosning-
anna hefir ákveðið að láta gera
sérstakt merki, sem notað verð-
ur til auðkenningar á starfs-
mönnum og tækjum lýðveldis-
kosninganna.
Sams konar merki verður af-
hent hverjum kjósanda, sem
hefir lokið kosningunni, til að-
greiningar frá þeim, sem eftir
eiga að greiða atkvæði.
JVIerki þetta eru þrjú bjark-
arlauf á hvítum grunni, og hef-
ir Jörundur Pálsson teiknað
það.
Landsnefnd lýðveldiskosning-
anna hefir skýrt svo frá, að hún
hafi valið þetta merki til að
„vekja þann vorhug meðal þjóð-
arinnar við þau einstæðu tíma-
mót, sem framundan eru, að
hún vilji framkvæma eitthvað,
sém má verða landinu og henni
(Framhald á 8. síðu).