Dagur - 03.08.1944, Page 4
4
D A G U R
Fimmtudaginn 3. ágúst 1944
DAGUR
Þýzkir herfangar í Cherbourg.
Ritstjóm: Inglmar Eydal.
Jóhann Frímann.
Haukur Snorrason.
Aígreiðslu og innheimtu annast:
Sigfús SigvarSsson.
Skrifstofa við Kaupvangstorg. — Sími 96.
Blaðið kemur út á hverjum fimmtudegi.
Árgangurinn kostar kr. 15.00.
Prentverk Odds Björnssonar.
„Litli bróðir“ og „stóri bróðiru
gKIPULAGSNEFND ATVINNUMÁLA telur,
í áliti sínu og tillögum 1936, að 35,8% lands-
manna stundi þá landbúnað. Þessi hlutfallstala
landbúnaðarins hefir alltaf verið að lækka hin
síðari árin, og má líklegt teljast, að nú sé svo
komið, að aðeins tæpur þriðjungur landsmanna
stundi þessa atvinnugrein. Samkvæmt athugun-
um Kristins bónda að Núpi — í grein þeirri, sem
gerð var að umræðuefni hér í síðasta blaði — hef-
ir þessi þriðjungur þjóðarinnar þó árið 1941
íramleitt verðmæti í þjóðarbúið fyrir nálægt því
eitt hundrað og þrjár miljónir króna. Er þá mið-
að við útsöluverð aðahlandbúnaðarvaranna eins
og það var í Reykjavík haustið 1941, en þó fært
niður um 20% vegna sölu- og dreifingarkostnað-
ar. Er sá frádráttur þó allvafasamur, því að þessi
kostnaðarliður er að langmestu leyti fólginn í at-
vinnu, sem landbúnaðurinn lætur í té innan-
lands, auk allrar þeirrar miklu vinnu, sem flýtur
af verksmiðjurekstri þeim, sem vinnur úr land-
búnaðarvörum, mjólk, ull, skinnum, görnum o.
fl. Hins vegar má líta svo á, að sölukostnaður
hvíli ekki á þeim hluta varanna ,sem framleið-
endur nota á heimilum sínum. Væri þessi frá-
dráttur ekki gerður, telur Kristinn, að það myndi
hækka þessa heildartölu landbúnaðarins nálægt
20 milj. króna.
JþAÐ ER EFTIRTEKTARVERT til sarnan-
burðar, að þetta sama ár, sem athugun Krist-
ins er miðuð við (þ. e. 1941), nam verð útfluttra
sjávarafurða um 180 milj. króna, samkv. verzl-
unarskýrslum þess árs. Sé innanlandsneyzlan
áætluð með tilsvarandi hætti eins og þegar land-
búnaðurinn á í hlut (þ. e. miðað við smásöluverð
í Rvík -f- 20%) nemur sú upphæð kr. 6,12 milj.
króna. Ætti þá verðmæti allra sjávarafurða lands-
ins að hafa verið rúmar 186 milj. kr. þetta ár.
Síðan hafa þessar heildartölur beggja atvinnu-
veganna auðvitað hækkað að mun sökum auk-
innar dýrtíðar í landinu, en lilutföllin ættu þó
ekki að hafa haggast að neinu verulegu ráði og
þó sfzt landbúnaðinum í óhag.
J^ANDBÚNAÐURINN hefir stundum verið
nefndur „litli bróðir" við hliðina á „stóra
bróðir" — sjávarútveginum. Þótt sú nafngift sé
að vísu góðlátleg, er ljóst, að með henni er átt
við lítinn mátt og litla getu þessa atvinnuvegar —
og litla þýðingu hans fyrir þjóðfélagið. Þótt töl-
ur þær, sem hér hafa nú verið nefndar, leiði auð-
vitað í ljós, að sjávarútvegurinn sé mun hærri en
landbúnaðurinn við þetta próf, er hitt jafnvíst,
að hlutfallið er landbúnaðinum stórum hagstæð-
ara en margur mun hafa ætlað — a. m. k. þeir,
sem hafa kallað landbúnaðinn ómaga á þjóðar-
búinu — þýðingarlausan lim, sem að skaðlausu
mætti sníða af og kasta í glatkistuna. — Það er
auðvitað mikið fagnaðarefni, að sjávarútvegur-
inn hefir verið rekinn með miklum dugnaði og
góðri forsjá í mörgum greinum af hinni ötulu
sjómanna- og útvegsmannastétt landsins. En eng-
um skyldi þó af þeim sökum sjást yfir hinn geysi-'
verðmæta hlut, senr landbóndinn dregur í þjóð-
arbúið, og renna þó mörg og gild rök — sem hér
verða að bíða ótalin — undir þá skoðun, að þýð-
ing landbúnaðarins sé stórum meiri og víðtækari
en ráða má af tölunum einum — hvort heldur til
málsins er horft frá þjóðhagslegu eða menningar-
legu sjónarmiði.
Bandamenn tóku milli 20 og 30 þús. fanga í Cherburg.
Hér sjást þeir á leið til skips.
„Öll þjóðin verður að sjá sögu-
sýninguna".
ÝNING SÚ úr sögu íslenzku þjóð-
arinnar, er lýðveldishátíðarnefnd-
in efndi til og opin var í Menntaskól-
anum í Rvík í fullan mánuð nú í
sumar, hefir vakið mikla athygli, ver-
ið mikið sótt og yfirleitt hlotið góða
dóma. Sú tillaga hefir komið fram, að
henni verði ekki sundrað aftur, held-
ur verði henni ætlaður staður í þjóð-
minjasafninu eftirleiðis og þá efld
þar og bætt með nýjum og ítarlegri
sýningaratriðum og sögulegum mun-
um eftir því, sem við verður komið,
er stundir líða fram. Nú hefir einn
sýningargesta, Hannes Jónsson, skrif-
að „Degi“ bréf um sýninguna, þar
sem hann beinir þeirri tillögu til
stjórnarvalda bæjar og sýslu, að sýn-
ingin verði fengin hingað norður á
næsta vori, svo að almenningi hér
gefist einnig kostur að sjá hana og
njóta þeirrar þjóðernislegu hvatn-
ingár, sem í henni er fólgin. Fer bréf
Hannesar hér á eftir:
„Sögusýningunni í Reykjavík var
lokiö nú lyrir siuttu. Þúsundir
manna hala sótt hana og skoðað,
og allir þeir, sem þangað koma, og
eé hefi átt tal við um hana, eru á
einu máli um það, að hún hafi ver-
ið hin fróðlegasta og prýðilegasta.
Af því að e£ var einn af þeim,
sem var svo heppinn að geta séð
hana og skoðað, langar mig til að
segja örfá orð, ekki til að lýsa
henni, því að til þess tel efj mié
ekki færan, svo vel væri, enda
þess ekki þörf, þar sem það hefit
verið éjört allrækileéa í blöðum oé
útvarpi, heldur til þess að lýsa
ánæéju minni yfir þessum þætti
lýðveldishátíðarinnar; að vísu var
mér það Ijóst, að í sýninéuna eru
maréar eyður, oé um ýmisleét má
þar deila, en það hverfur í skuéé-
ann, er litið er yfir heildina. Eg er
heldur ekki í vafa um, að þeir
mætu menn, sem að henni unnu,
muni smátt oé smátt fylla í þau
skörð, er tími vinnst til, en því
miður mun undirbúninéstíminn
hafa verið ónóéur.
En mér finnst, að það sé ekki
nóé, að nokkrar þúsundir íslend-
inéa sjái hana. — Allir landsmenn,
sem komnir eru til vits og ára,
konur oé karlar, verða að skoða
hana, ef möéuleikar eru til, oé eé
hyéé, aö enéan muni iðra þess.
Sýninéin er hvortveééi3 « senn;
stórskemmtileé oé afburða
fmfaluéja/i um sðgu og htatti
þjóðarinnar frá landnámstíð. —
Finnst mér, að við íslendinéar
mééum vera montnir af henni, því
að ekki mun líkleét, að nokkur
þjóð um víða veröld éeti sýnt eins
vel söéu sína oé menninéu frá upp-
hafi.
Eé saéði hér að ofan, að ekki
væri nóé að nokkrar þúsundir
sæju hana. — Nei, þjóðin þarí
helzt OLL að sjá oé skoða hana
érandéaefileéa. — Eé vona, að all-
ir éeti orðið mér sammála að
þessu leyti. — Væri þá til ofmik-
ils mælzt, að beina því til hæjar-
stjórnar Akureyrar oé sýslunefnd-
ar Eyjafjarðarsýslu, að þessi mátt-
arvöld tækju höndum saman oé
fenéju sýninéuna hinéað norður á
næsta vor? — Að vísu er mér
Ijóst, að á því muni ýmsir ann-
markar. — „En mikið má, ef vel
vill.
Hannes Jónsson".
Enn um útgáfu fornritanna.
pRÁ JÓNI ÁSBJÖRNSSYNI,
hæstaréttarlögmanni í Rvík, for-
manni Hins ísl. fornritafélags, hefir
blaðinu borizt svohljóðandi athuga-
semd:
/ Deéi, sem út kom 29. f. m.,
eru okkur foréönéumönnum Hins
ísl. fornritafélaés sendar kveðjur,
litt vinsamleéar. Er slíkt að vísu
ekki einsdæmi, oé hefi eé yíirleitt
ekki laét í vana minn að elta ólar
við það. En í umræddri érein, sem
1 í heild virðist byéé0 á misskiln-
inéi oé ókunnuéleika, er eitt atriði,
sem eé tel rétt að leiðrétta. Grein-
arhöf. seéir, að flest bindi ísl. forn-
rita hafi selzt því nær strax upp.
Þetta er ALGERLEGA RANGT.
Ritin seldust fremur dræmt allt
fram á síðustu ár. Varð það þess
valdandi, að upplaéið var ekki
stækkað, því að áerf var ráð fyrir,
að ódýrara mundi að láta ljós-
prenta bindin, er frumupplaéið
væri þrotið, heldur en að Iiééia e-
t. v. í áratuéi með stórt upplaé,
sem bakað hefði félaéinu kostnað
oé óþæéindi á ýmsan hátt.
Mér skildist höf. vera einn
þeirra manna, sem ekki hafa haft
forsjá til að kaupa Ísí. fornrit frá
upphafi veéa þeirra. En þessir
mertn meéa sjálfum sér um kerma,
ef þeir verða nú að kaupa þau af
einstaklinéum fyrir okurverð.
Hefðu þeir rumskað fyrr og keypt
ritin jafnóðum og þau komu út,
(Framhald á 8. síSu).
U ngbar naþáttur.
Ekkert er eðlilegra en að ung móðir, senr enga
eða sára litla reynslu hefir, sé oft í vanda stödd
gagnvart gráti nýfædda angans, Jregar barnið er
bæði mett og þurrt, en hljóðar samt. Hvað á þá
gera? Það er sannarlega ekki alltaf létt að leysa
úr hinum ýmsu vandamálúm viðvíkjandi með-
ferð ungbarnsins fyrir unga og óreynda móður.
Reynslan verður eflaust bezti skólinn, en oft er
henni ekki til að dreifa, eins og að líkum lætur.
Eg ætla að leyfa mér að birta hér nokkra kafla úr
bók eftir danskan barnalækni, dr. Sven Mon-
rad, ef ske kynni, að einhverri ungri móður vrði
að gagni. — í formála, sem höfundur ritar, segir
svo: Tilgangur með bók þessari, er hér kemur
fyrir almenningssjónir og fyrst og fremst snvr sér
að mæðrunum, á að vera sá að leggja á ráðin og
gefa leiðbeiningar um næringu og hirðingu
heilbrigðra barna til þess að tryggja þeim á þann
hátt hin beztu lífsskilyrði og reisa Jreim öflugt
vígi gegn yfirvofandi hættu. Hins vegar verður
örsjaldan minnzt á hið sjúka barn og meðferð
þess, og Jrá ekki nema með örfáum orðum. Eg sný
mér þá að athugasemdum læknisins og gef hon-
um orðið:
★
Svefninn:
Ungbarnið sefur óslitið fyrstu 4 til 5 vikurnar
og vaknar aðeins, þegar það þarfnast matar eða
er þvegið og snyrt. Næstu mánuðina sefur það
siimuleiðis meira en Jrað vakir, og jafnvel fram-
undir lok fyrsta ársins sofa flest heilbrigð börn
12 til 14 tíma á sólarhring.
★
Ef barnið hl]óðar:
Þegar barnið, sem annars er heilbrigt, verður
órótt allt í einu og fer að hljóða hástöfum, þá
skal ávallt reyna fyrst að komast fyrir, hver ástæð-
an kunni að vera, hvort rýjan er vot, eða óhreink-
uð, hvort fötin þrengja að því, eða hvort fluga
er að ónáða Jrað o. s. frv. Sé því ekki til að dreifa,
er bezt að láta sem ekkert sé og lofa barninu að
liljóða, enda þótt það kunni að virðast ómannúð-
legt í svipinn. En er Jrá ekki skaðlegt að láta barn-
ið hljóða til þrautar? Þar til er Jrví að svara, að
flest heilbrigð börn liljóða varla nokkurn tíma
meira en Jrau geta afborið og liætta því brátt,
jregar þau verða þess vör, að ekki er látið undan
þeim. Það er afar sjaldgæft að liitta fyri.r börn,
sem eru svo óvær og taugaslök, að Jrau linna aldr-
ei á hljóðum, og getur þá verið óumflýjanlegt að
vægja eitthvað til við þau, því að allt of miklar
og sífelldar hrynur geta hnekkt almennri vellíð-
an og þroska barnsins og geta valdið kviðsliti.
★
Uppsala og hiksti:
Mörgum brjóstmylkingum hættir við að selja
upp dálitlu af mjólkinni, þegar þau eru tekin af
brjósti. Þetta stafar annað hvort af því, að barn-
ið hefir drukkið of ört, eða of mikið, gleypt í sig
loft, meðan það var á brjóstinu, eða farið hefir
verið of harkalega með það á eftir máltíðinni.
Þessi uppsala kemur sjaldan að neinni sök, eða
eins og gamla þýzka máltækið segir: ,,Nur
speikinder sind gedeihkinder" (Þ. e. uppsölu-
börn eru efnisbörn). En sé þessi uppsala til muna,
verður að sjá um, að barnið drekki hvorki of ört
né of rnikið, og að það sé látið varlega í rúmið,
þegar Jrað er tekið af brjóstinu, og eins er bezt að
skipta um rýju, áður en barnið er lagt á brjóstið.
Hiksti sá, sem margir brjóstmylkingar fá stund-
um, er jafn ósaknæmur og orsakast .af því, að það
drekkur of ört, eða að kuldi kemst snögglega að
kviðnum. Slíkur hósti hættir af sjálfu sér, hvort
sem barninu er gefið hið marglofaða sykurvatn
eða ekki!
- „Puella",