Dagur - 25.01.1945, Blaðsíða 2

Dagur - 25.01.1945, Blaðsíða 2
2 ÐAGUR Fimmtudaginn 25. janáar 1945. Þjóöin fagnar, segja stjórnarblöðin. Ólafur Thors þurfti ekki nema nokkra daga til að sameinast sósíalistum. — Fæst ekki opdnber rannsókn á grunuðum heildsöl- um? — Trassaháttur ríkisstjórnarinnar í fisksölumálinu er talinn utanríkismál, sem alls ekki megi ræða. — Öll gagnrýni á stjórnina nefnd siðleysi um forystumenn Breta. — Eitt mesta nauðsynjamál landbúnaðarins stöðvað af stjórnarflokkunum. — Stjórnin og flokkar hennar auka dýrtíðina. — Allt þetta telja stjómarblöðin fagnaðarefni fyrir þjóðina. I. Því hefir verið haldið fram af miklu offorsi, að Framsóknar- menn gætu ekkert við því sagt og ekki að því fundið, að Ólafur Thors stofnaði til stjórnarsam- vinnu með sósíalistum, af því að þar heiði gerst nákvæmlega það sama og átti sér stað fyrir tveirn- ur árum, þegar fyrirliðar Fram- sóknarflokksins gengu til samn- inga við Sósíalistaflokkinn um sama efni. Hér við er nú fyrst það að at- huga, að forustumenn Sjálfstæð- isflokksins hafa alltaf haldið því fram, að samningatilraun þessi hafi verið hið mesta hneyksli og Framsóknarflokknum til stór- vansa, því að borgarlegur flokk- ur mætti aldrei svo mikið sem hugsa til samstarfs með byltinga- mönnum eins og sósíalistar væru. Það varð því að vonum hið mesta undrunarefni meðal þjóðarinnar, er Ólafur Thors réðst á þessa kenningu sjálfstæð- ismanna í verki á síðastliðnu hausti með myndun stjórnar sinnar, því að hún braut alveg í bága við fyrri fullyrðingar þeirra. Auk þess var hér sá reginmun- ur á, að Framsóknarmenn gerðu ekki annað en hugsa til sam- starfs við kommúnista, og er þeir höfðu kannað innviði þeirra, hurfu þeir'með öllu frá því ráði, því að þá kom í Ijós, að kommúnistar voru sömu byltingamenn og áður, þó þeir hefðu reynt að villa á sér heim- ildir fyrir kosningar. En Ólafur Thors og samherjar hans létu ekki staðar numið við að hugsa til stjórnarsamvinnu við komm- únista. Ólafur Thors myndaði stjórn með kommúnástum og hældi sér af því, að það tilhuga- líf hefði ekki staðið yfir nema 2—3 vikurl Stjórnarblöðin segja, að þjóð- in liafi fagnað þessum samruna íhaldsins við byltingaöflin í landinu. Réttara mun þó að orða þetta á þá leið, að meiri hluti þjóðarinnar hafi staðið orðlaus af undrun. Og sannarlega var hér undr- unarefni á ferðinni. Fjölda manna um land allt er það kunnugt, að ekki er langt síðan að Ólafur Thors var að hyggja að ráðum í þá átt, hvernig hægt væri að afmá kommúnistaflokk- inn eða að minnsta kosti að gera hann áhrifalausan og óskaðleg- an. M. a. hafði hann þá orð á því, hvort ekki mundi geta tek- izt að koma í veg fyrir, að kommúnistar fengju pappír til blaðaútgáfu sinnar. Þetta var nú á þeim tímum, þegar engar von- ir stóðu til þess, að kommúnistar styddu Ólaf Thors til forsætis- ráðherratignar. En síðan hafa tt'tnarnir br^ytzf að þessu leyti. Kommúnistar eru hinir sömu og þá, er Ólafur vildi gera þá pappírslausa. svo að þeir gætu ekki gefið Þjóðviljann út, en nú er Ólafur forsætisráðherra fyrir vikalipurð kommúnista. Þar með er afstaða Ólafs stór- breytt til bvltingamanna. Þjóðin fagnar. segja stjórnar- blöðin. II. Uppvíst hefir orðið um verð- lagsbrot tveggja heildsölufirma í Reykjavík. Verlagseftirlitið hefir kært þau, og málin eru komin í hendur sakadómara. Þessi firmu hafa verið talin standa í fremst röð að heiðar- leik. En þegar svo er.með hið græna tré, hvernig munu þá sak- ir standa með hin visnu? Fleiri heildsalar eru grunaðir um græsku. Verðlagseftirlitið krefst að fá að sjá reikninga þeirra. Heildsalarnir þverskallast við þeirri kröfu. Hvers vegna? Er þeim ekki útlátalaust að sýna reikninga sína, ef þeir hafa hreint mjöl í pokanum? Vilja þeir ekki hreinsa sig af leiðum grun, ef þeir eiga hægt með? Allar þessar spurningar vaka nú á vörum fiölda manna um allt land. Öllum landslýð kem- ur mál þetta við. Eðlilega krefj- ast menn þess, að ýtarleg rann- sókn fari fram um jjað, hvort þeir, sem bezta aðstöðu hafa til fjárgróða, hafi notað sér þá að- stöðu til að fefletta almenning á ólöglegan hátt. Opinber dómari hefir mikið fullkomnari rannsóknartæki í þessu falli en verðlagseftirlitið. Þess vegna hefir sú krafa komið fram, að ríkisstjórnin fyrirskipi opinbera rannsókn gagnvart þeirn fyrirtækjum, sem verðlags- eftirlitið hefir grunað um brot, en getur ekki fært fullar sann- anir fyrir. Þessi grunur styrkist mjög við neitun fyrirtækjanna um að sýna reikninga. Hvernig snýst nú ríkisstjórn- in við þessu hneykslismáli? F.ftir ummælum hennar og stjórnarblaðanna að dæma ætlar stjórnin ekki að eiga neitt frum- kvæði að því, að heildsalamálið verði rannsakað. Aftur á móti segist stjórnin taka þær kærur til greina, sem verðlagseftirlitið kunni að bera fram í málinu. Stjórnin ætlar m. ö. o. ekki að stinga kærum á brotlega heildsala undir stól. Þessi röggsemi(I) stjórnarinn- ar stendur líklega í sambandi við það, að hér eiga hlut að máli ýmsir máttarstólpar Sjálfstæðis- flokksins og þá um leið allrar stjórnarfylkingarinnar. Mikið má þjóðin fagna því að eiga svo röggsama stjórn! III. Fisksalan á brezkum markaði er um þessar mundir eitt mikil- verðasta alvörumál íslenzku þjóðarinnar. Fyrir alllöngu varð kunnugt um, að Bretar vildu ekki endurnýja fisksölusamning- iyn í sömu mynd og áður. Hins vegar voru þeir að sjálfsögðu reiðubúnir að hefja nýja samn- inga í þessum efniim. Stjórnin íslenzka hafði lýst Jrví yfir, að hún ætlaði einkum og sérstak- lega að vera vel á verði um af- urðasölúna á erlendum mörkuð- um. F.f nokkurt mark mátti taka á orðum henriar, mátti því bú- ast við að hún brygði fljótt við og gerði út sendimann á fund Breta til Jress að ræða við þá um fiskkaup og flutnihg á þeirri vöru á erlendan markað. Á því var hin mesta nauðsyn vegna útvegsins og frystihúsanna að fá sem fyrst niðurstöðúr um þessi mál og eitthvað fast undir fæt- ur, áður en vetrarvertíðin byrj- aði. En Jiegar sem mest reið á, virðist stjórnin liafa sofið á verð- inum. Hún hreyfir livorki hönd né fót til að hrinda af stað samn- ingsumleitunum við Breta, fyrr en Framsóknarmenn ýta við henni. Þegar svo að þessum seinagangi stjórnarinnar er fundið, hrópa stjórnarblöðin öll í einum kór um siðleysi stjórn- arandstæðunnar. Trassaskapur stjórnarinnar í fisksölumálinu er látinn heyra undir utanríkis- mál, sem ekki megi ræða. FÍestir munu nú samt líta svo á, að ó- dugnaður og sofandaháttur rík- isstjórnar íslands sé alinnlent mál, sem frjálsar umræður megi fara fram um. Enn hefir stjórnin ekki lagt bann við að ræða um sölu á kjöti, ull, gærum og fleiri útflutningsvörum. Hún virðist Jrví líta svo-á, að í því felist ekki siðleysi. En þegar kemur til fisk- sölunnar, er öðru máli að gegna. Þegar farið er að ræða um hana, Jrá er siðleysið leitt til hásætis að dómi stjórnarinnar, eftir því sem blöð hennar túlka málið. Afleiðingin af silahætti og að- gerðaleysi stjórnarinnar í fisk- sölumálinu er sú, að nú er mál- ið í óreiðu og öngþveiti, og eng- inn veit, hversu endalokin kunna að verða öríagarík fyrir þjóðina. Þjóðin fagnar, segja blöð stjórnarinnar. Því verður að vísu ekki neit- að, að á vissan hátt hafa fisksölu- samningar við Breta verið und- irbúnir. Eitt stjórnarblaðanna hefir að undanförnu hvað eftir annað skrifað svartasta níð um fórustumenn brezku þjóðarinn- ar, jafnvel stimplað þá sem mannníðinga og morðvarga. Einkum er þó veizt að núver- andi forsætisráðherra Bretlands. ÍSIýlega var t. d. það góðgæti borið á borð fyrir lesendur þessa stjórnarblaðs, að ráðamenn Bret- lands leitist við að nota flug- flotann til þess „að myrða sem mest af beztu sonum Grikklands í tillitslausri baráttu fyrir brezk* um hcimsveldishagsmununi," Ennfremur segir sama blað, áð Bretar séu f jandsamlegir í garð nýsköpunar íslendinga í sjávai- útvegsmálum, og uppsögn fisk- söslusamningsins sé einn Jráttur í þeim fjandskap. Það þarf ekki að taka Jrað fram, hvaða stjórnarblað talar í þessum tón í garð þeirrar Jrjóð- ar, sem fyrir liggur að gera við- skiptasanrning við. Allir kannast við orðbragðið og innrætið. Og utanríkisráðherra lætur þetta gott heita, eða ekki ber á öðru. En mundi þessi ruddalega ókurt- eisi vera sá rétti grundvöllur undir fisksölusamninginn við Bréta? Halda stjórnarblöðin virki- lega, að þjóðin muni fagna svona löguðum spill ingartil- raunum gagnvart hagsmunum íslands? IV. Stjórnarflokkarnir hafa stöðvað framkvæmdir í áburðarverk- smiðjumálinu. Stjórnin Jrorði ekki annað en ryðja [wí úr vegi af ótta við það, að verksmiðjan mundi reist annars staðar en í Reykjavík. Vera má þó, að .stjórnin féllist á framkvæmd verksins síðar, ef hún gæti tryggt nýja sérfræðilega áætlun um það, að utan Reykjavíkur kæmi aldrei til mála að setja verk- smiðjuna niður. Þó að áburður- inn yrði þriðjungi dýrari en ella' og þó að framleiðslan fullnægði hvergi nærri þörfum sveitanna, þá mun Jaað í augum stjórnar- innar og flokka hennar lítilfjör- legt aukaatriði, að ekki sé ástæða að taka Jrað til greina. Segi stjórnarblöðin enn, að þjóðin fagni yfir þessu, þá telja þau íbúa dreifbýlisins áreiðan- lega ekki meðal þjóðarinnar. V. Stjórnin og flokkar hennar auka dýrtíðina. Sparifé manna rýrnar stöðugt í verði. Kaup- hækkanir koma að engu gagni, [rví að verðbólgan etur þær upp til agna. Atvinnuvegir þjóðar- innar bera sig ekki og dragast því saman eða leggjast niður. Tilkostnaður við framleiðsluna verður svo nrikill, að hún verð- ur ekki samkeppnisfær á erlend- um mörkuðum, þar sem dýrtíð- inni hefir verið haldið niðri. En með hverju' á Jrá að greiða inn- flutta nauðsynjavöru, sem við getum ekki án verið? Allt þetta ástand blasir við, ef haldið verður áfram þeirri stjórnarstefnu, er nú ríkir, ef ekki á næsta ári, þá hitt árið. Þá afhjúpast blekkingar núverandi stjórnarblaða af sjálfu sér. Þá neyðást [rau til að segja: Nú fagnar þjóðin ekki. j Gefjunardúkar Ullarteppi I Kambgarnsband I Lopi I er meira og minna notað á hverju heimili | á landinu. Gefjunar-ullarvörur eru þjóðkunnar fyrir gæði. I Gefjunar-vörur fást hjá öllum kaivpfélögum 1 landsins og víðar. Ullarverksmiðjan GEFJUN1 • ^ Frá Verkamannafélaginu. Samkvæmt samþykt stjórnar og trúnaðarráðs Verka- jj mannafélags Akureyrarkaupstaðar á fundi 18. þ. m. jj skal skila framboðslistum til kosninga í félagsstjórn j| og trúnaðarráð. Á hverjum lista skulu^ vera nöfn 5 jj manna í stjórn, 5 manna í varastjórn, 6 aðalmanna í j trúnaðarráð og 6 varamanna, allt félagsmenn. Minst jj 12 (ekki 30 eins og stóð í Verkamanninum) félagsmenn jj riti sem meðmælendur á hvern lista. Listunum sé j! skilað til undirritaðs fyrir kl. 6 e. h. sunnud. 28. þ. m. j! Akureyri, 19. janúar 1945. j; F. h. Verkamannafélágs Akureyrarkaupstaðar. Marteinn Sigurðsson

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.