Dagur - 17.05.1945, Side 3
D AGUR
Fimmtudaginn 17. maí 1945
S
Karl Kristjánsson
fimmtugur
Karl Kristjánsson ocldviti í
Húsavík varð fimmtugur 10. maí
síðastl. Hefir hann öðrum frem-
ur hér í byggð gerzt til þess, að
minnast fimmtugra. Er þá ekki
nema rétt, að hann sæti sams
konar meðferð, jafnskjótt og
hann gefur á sér færi.
Af ættum hans kann eg að
nefna Sýrness- og lllugastaðaætt-
ir. Hljóta það að vera góðar ætt-
ir. Um ætterni hans kann eg
ennfremur frá þessu að segja:
Maður er nefndur Helgi Bene-
diktsson, prestur í Húsavík.
Hann var talinn vitur nraður og
forspár. Ein dóttir hans var
Björg, gáfuð kona og skáld gott.
Hún var amma Jakobínu Bjarg-
ar, móður Karls.
Maðu'r er nefndur Hallbjarn-
arstaða-Sveinn, kenndur við
Hallbjarnarstaði á Tjörnesi. Til
hans rekur ætt sína margt gáfað
og glæsilegt fólk í Þingeyjar-
sýslu, eða þaðan flutt. Frá hon-
um er Karl að föðurnum fjórði
maður.
Karl er, eins og áar hans, Tjör-
nesingur. Hann fæddist að Kald-
bak við Húsavík. Foreldrar hans
voru hjónin Kristján Sigfússon
og Jakobína Jósíasdóttir. Krist-
ján er dáinn fyrir mörgum ár-
um, en Jakobína er á lífi og ern
vel, og dvelur hjá syni sínum.
Sem barn átti Karl heima á Hall-
bjarnarstöðum, síðar að Saltvík,
en ólst að mestu upp í Eyvík. —
1916 lauk hann gagnfræðaprófi
. við þáv. Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar. Stundaði þá í nokkur ár
barnakennslu á vetrum og þótti
afburða kennari. Kvæntist 1920
frændkonu sinni Pálínu Jóhann-
esdóttur, og bjuggu þau í Eyvík
í 15 ár. Þau hafa eignast 6 börn,
en misst 2 þeirra, dreng korn-
ungan og stúlku 13 ára, vel gefna
og elskulega.
1935 fluttist Karl með fjöl-
skyldu sinni til Húsavíkur, og
hefir átt þar annríkt síðan.
Ekki lofa allir Karl Kristjáns-
son,-----sem ekki er heldur von,
eins og síðar skal sýnt fram á. En
engum dylst, að hann er gæddur
óvenjulega fjölþættu atgervi.
Sagt er mér, að hann sé einn af
mestu kraftamönnum héraðsins,
og hygg eg rétt vera, þótt aldrei
hafi eg boðið honurn út. Sem
sparisjóðsstjóri, oddviti, stjórn-
arnefndarmaður Kaupfélags
Þingeyinga í mörg ár og héraðs-
foringi stjórnmálaflokks, m. m.,
hefir hann heyjað sér mikinn
forða þekkingar á fjármálum og
félagsmálum. Hefir hann á þess-
um vettvangi hinna raunhæfu
úrlausnarefna eytt starfsorku
sinni að mestu fram að þessu.
Samt munu kunnugir telja, að
hans ríkasta hneigð, og jafnvel
mestu hæfileikar, viti inn á þau
svæði, sem ofar liggja átökum
og annaþrasi daglega lífsins. Á
bókmenntum og öðrum vits-
munalegum hugðarefnum hefir
hann mikinn áhuga og rökfasta
dómgreind. Smekk ,hans og
minni á úrvalsljóð má'telja með
ágætum. I.íklega hefði hann get-
að klifið eitthvað upp eftir
launastiga (annars hvors) rithöf-
undafélagsins, ef hann hefði
lagt á það kapp. Því að hann er
skáld gott, þótt hann yrki ekki —
nema þá helzt lausavísur, flestar
prýðilegar. Þær fáu greinar, sem
birzt hafa eftir harui í blöðum og
tímaritum, bera vott um frá-
bæra stílgáfu.
Hafi hin ríkasta hneigð hans
lítt notið sín i hans eigin lífi,
mætti það verða honum nokkur
úrbót, að Kristján sonur lrans,
stálgreindur strákur, er nú að
ljúka bókmenntaprófi við há-
skólann í Berkeley, Californíu.
Draumamaðurinn Karl Krist-
jánsson kvað ekki alls fyrir löngu
þessar vísur:
Hillir upp við hæsta tind
hugsarsjóna þinna
eina draumadýra mynd,
drottning allra hinna.
Hvort sú mynd er mikils verð,
meira en þínum draumi,
það fer eftir þinni gerð,
þroska og aldarstraumi.
Skömmu síðar var oddvitinn
Karl Kristjánsson að blaða í
skjölum hreppsskrifstofunnar, og
varð þá að orði:
Fylgiskjalafargan senn
fyllir hverja smugu.
Votta og kvitta verða menn
vegna þeirra, er lugu.
Hér eru nokkrar vísur Karls,
sem eg lrefi klófest, og allar eru
eru ortar á síðastl. tveim árum
við ýmis tækifæri:
Tíbrá skreytir hæsta hnjúk.
Heiðló syngur gleðilag.
Sumarið hefir hendi mjúka,
— hana réttir oss í dag.
Losnar fjall við leiðan sjá.
Laekir falla, gjalla.
Heyrist varla vonzkuspá.
— Vorið kallar alla.
Loksins eru launin séð:
Laxness vænstur sjóður.
En hvernig verður Gunnars geð?
Gleðst hann yfir bróður?
/
Undarlegt er upplag manns;
ekki er því að treysta.
Jafnvel guðdómshungur hans
heljarríki freista.
Einn er státinn. Annar lætur
undan fátæklegur.
Einn er kátur. Annar grætur.
— Enginn mátulegur.
Kætin ei til allra nær;
eru sumir háðir.
Valtur oft að höltum hlær.
— Hlæja mættu báðir.
Einn ég þekki æstan hest,
er í hlaði ber sig mest,
frísar, krafsar, illur og ör,
— úthaldslaus í hverri för.
Eftir mikið mail og jag,
meting, ýtni, skjall og rag,
lýgi, pretti, nagg og nag,
nú eru menn að flytja í dag.
(Ur gerðabók húsaleigunefndar)
Gleðina skaltu glæða þér;
sú gáfa má ekki dvína.
Treginn kemur af sjálfu sér;
hann situr um lundu þína.
Enginn veit hvar öngul tekur illur
dráttur.
A þessu flestir þreifa og kenna
þeir, sem blint í sjóinn renna.
Ekki er sök, þótt öngul taki illur
dráttur.
En ekki þarf hann inn að byrða,
upp að bera, hátt að virða.
ITILIF 0G
ÍÞRÖTTIR
Leikari ertu. En hver og hvar?
Hugur þinn spyr og svellur.
Um það fær þú ekki svar
áður en tjaldið fellur.
Hvað er lífið? Líttu, maður,
litla barnsins auga.
Og spurðu þann, er þrekraunaður
areytir fang við drauga.
Dauðinn kemur. Dýrt er fjör.
Dagsins stutt að njóta.
Sá, sem hefir eina ör,
ei má gálaust skjóta.
Margra geði miðlar yl,
mörgum háska bægir frá,
dulheimsgleði, von í vil,
vakin páskadaginn á.
Einveruna ýmsir þrá;
— er þeim návist leiði.
En gott er að mæta manni á
miðri viliuheiði.
Oft er sama sagan það,
sögð án skyldrar hlýju:
Sá, sem fyrstur fann hér vað,
fórst í leit að nýju.
Vöggu þó að vaki hjá
vonaraugu fögur,
móðurhjartað mæna á
mannlífs döpru sögur.
Upp við loftin hrein og heið
hillir þráðu brúna.
Þú kemst aldrei á þá leið,
ef þig vantar trúna.
„Engum hafa guðirnir gefið
allt,“ sagði forðum einn af hers-
höfðingjum Hannibals.
Og þá ekki heldur Karli.
Því að eitt er það, sem ýmsir
mætir menn munu aldrei fyrir-
gefa honum. Alla sína starfsævi
hefir' hann verið eindreginn sam-
vinnu- og kaupfélagsmaður. og
nú í mörg ár formaður Fram-
sóknarfélags Þingeyjarsýslu. —
Þessa mun Karl lengLgjalda, en
naumast annars. Því að það er
upplag hans, að búa í sátt og
góðvild við granna sína, er hjálp-
samur maður, líka við andstæð-
inga sína, kann vel að stilla skap
sitt, og notar sér höggfæri furðu
sjaldan. Hygg eg því, þrátt fyrir
ágreiningsmálin, sem voru og
verða, að sambyggðarmenn hans
allflestir, þeir, sem kynnst hafa
honum vel í meðstarfi og mót-
starfi, gefi nú á þessum tímamót-
um ævi hans hugsað til hans vin-
gjarnlega og óskað honum láns
og lífdaga.
Sjálfur hefi eg haft af honum
náin kynni í mörg ár, og á hon-
um ýmiss konar vinsemd og fyr-
irgreiðslu að þakka, og margar
ánægjustundir. Tel eg mér það
ávinning, að hafa kynnst svo nýt-
um dreng og góðum.
Friðrik A. Friðriksson.
Kjólföt
Smokingföt
Verzlun
B. Laxdal.
2 — 3 stúlkur
vandvirkar og vanar
saumum, geta komist
að strax.
B.LAXDAL
Úr Þingeyjarsýslu.
Þaðan er skrifað, að fyrir
skömmu síðan, sé lokið aðal-
i’undi Héraðssambands S.-Þing-
eyinga. Fundurinn var haldinn
á Laugum og sóttu hann 20
i’ulltrúar frá 10 ungmenna- og
íþróttafélögum.
Á sl. ári var hafizt handa um
rniklar og nauðsyneglar endur-
bætur á íþróttavellinum að
Laugum, sem á að verða aðal-
íþróttavöllur sambandsins í
framtíðinni. Var nokkrum þús.
tróna varið til þessa, en þó nrik-
ið ógert enn, til þess, að völlur-
inn sé fullger og vel viðunandi.
Fundurinn'var einhuga um, að
eggja kapp á að fullgera hann
á þessu sumri, enda er rætt um
rað áður, að landsmót UMFÍ.
verði háð þarna að ári, svo fram-
arlega að þar verðiorðinsæmileg
aðstaða til slíks fnóts þá. Lofað
refir verið styrk úr íþróttasjóði
til vallarins, og vera má, að til
i’leiri aðila verði leitað um fram-
lag.
Samb.stjórn var falið að ráða
fastan íþróttakennara fyrir sam-
bandið, ef fært verður talið fjár-
hagsins vegna.
Einnig var stjórninni falið að
gangast fyrir hátíðahöldum í
réraðinu, 17. júní nk.
Þá var samþ. eftirfarandi tih
laga: „Fundurinn samþ. að fela
stjórn HSÞ. að leita samkomu-
lags við Héraðssamb. Eyfirðinga,
um íþróttakeppni milli sam-
bandanna, nú í sumar, ef ástæð
ur leyfa, og í komandi framtíð.“
Ráðgert var að senda kepp-
endur á íslandsglímuna, og líka
var fyrirhugað glímumót innan
sýslunnar áður.
Kosnir voru fulltlúar til að
mæta á þingi ÍSÍ. í sumar. —
Fundurinn samþ. og, að senda
þeim sra Þorgrími Sigurðssyni
og Þorgeiri Sveinbjarnarsyni —
sem báðir voru í stjórn samb.
áður, en fluttu burt á þessu ári —
árnaðaróskir og þakkir fyrir vel
unnin störf í þágu sambandsins
og íþróttamála í héraðinu á
liðnum árum.
Stjórn HSÞ. skipa nú:
Jón Sigurðss., Arnarvatni, for-
maður, og meðstjórnendur: Har-
aldur og Sigfús Jónssynir á Ein-
arsstöðum, Hlöðver Hlöðversson
á Björgum og Eysteinn Sigur-
jónsson, Húsavík.
----Við þökkum góðar fréttir
úr Þingeyjarsýslu — og væntum
mikils af samstarfi héraðssam-
bandanna austan og vestan
Vaðlaheiðar á næstu árum.
Akureyri:
Námsmeyjar Gagnfræðaskóla
Ak. sýndu fimleika í íþróttahús-
inu sl. laugardag, að lokinni
skólauppsögn undir stjórn ung-
frú Þórhöllu Þorsteinsdóttur.
Var þar sinn hópur úr hverjum
bekk, rúml. 20 úr þeim fyrsta en
hálfu færri úr hvorum hinna.
Hjá öllum hópunum gætti rösk-
leika og áhuga og samtökin
voru furðugóð. Undirspil Áskels
Jónssonar gerði svo sitt til að
auka léttleika í hreyfingum — og
yndi af æfingunum — bæði þeim
er sýndu og hinum, sem á
horfðu. Æfingarnar voru fjöl-
breyttar, og sumar svo erfiðar,
að með gætni þarf að fara, þar
sem unglingsstúlkur eiga í hlut.
Sum hoppin með undirspilinu
voru svo létt og undravel sam-
ræmd, að auðsjáanlega geta þess-
ar fiml.stúlkur bætt við léttleika
og mýkt t. d. í gangi, niðurstökk-
•um frá slá o. s. frv. -— Sumar
stúlkurnar þarna, leystu allt
mjög vel af hendi og geta eftir
íkum að dærna orðið reglulegar
fimleika-stjörnur," með tíman-
um, — og það er nú ekki versta
,,stjörnu“-tegundin!
Sýningin var skemmtileg og
árangur starfsins í fimleikasaln-
um í vetur sýndi að stjórnin
myndi að mörgu leyti góð. En
eins og okkur fleirum, fimleika-
kennurum, hættir tií, virtist ung-
frú Þórhalla láta þess um of lítið
gæta í fyrirskipunum sínum
hvers eðlis hver æfing er, tala af
tilbreytingalítið og óþarflega
hátt. Hvass og rámsterkur þarf
kennarinn stundum að vera í
fimleikatímum, en á sýningu er
þess oft síður þörf og til bóta er,
að sem minnst gæti þá stjórnar-
innar.
Áhorfendur voru svo margir,
sem húsrúm leyfði, en þarna er
ekki um sýningarsal að ræða.
Vonandi sjáum við brýna þörf
hans fyrr en varir, og finnum
kraft hjá okkur til að koma hon-
um upp, svo sem áætlað er á
þessum stað.----
Fimleikaflokkur Tryggva Þor-
steinssonar — úr „Þór“ — endur-
tók sýningu sína í Hótel Norður-
iand 6. þ. m. og fékk ágætar við--
tökur áhorfenda. — Á uppstign-
ingardag fór hópurinn fram í
Kristneshæli og sýndi þar á grasi
— eða sinuþófa — sunnan undir
„Hælinu“.
•
Hraðkeppnimót í knattspyrnu,
innan ÍBA, fór fram sl. sunnud.
Kepptu 6 flokkar frá 3 félögum.
Sigurvegari varð A-lið K. A. með
6 stig. A-lið frá Þór og ÍMA
höfðu 2 stig hvort. ÍMA sá um
framkvæmd mótsins. Ýtarleg frá-
sögn af mótinu bíður næsta
blaðs.
Er til viðtals
alla virka daga,
nema laugardaga
kl. 1—2 e h. í
Skipagötu 3.
Sími 497.
E. B. Malmquist.
Píanó
Tilboð óskast í mjög
vandað píanó. Til sýnis
( Brekkugötu 13. efri hæð