Dagur


Dagur - 17.05.1945, Qupperneq 5

Dagur - 17.05.1945, Qupperneq 5
Fimmtudaginn 17. maí 1945 ÐA6UR 5 Vinir oorsins. Nu ætla ég að skreppa spöl- korn með ykkur aftur í tím-1 ann. Það er annar sunnudagur í góu 1944. Sólskin — og þíð- vindii af suðrt. Hinn slyngi skíðakennari, Hermann Stefáns- son, fer með hóp ungra skíða- manna austur á fannbreiður Vaðlaheiðar og kennir þeim þar listir sínar. Horfnar eru nú fyrir löngu vetrarleiðir feðra vorra og afa á þeim slóðum, er þeir renndu sér á skíðum sínum ská- lialllt ofan heiðina með sín hundrað pund á bakinu, alla leið ofan á jafnsléttu. Þannig notfærðu þeir sér skíðaíþróttina, gömlu mennirnir, í baráttunni fyrir lífinu. — Gera íþróttamenn vorir nú öllu betur? Ég er staddur á gangstéttinni framan við Útibú K. E. A. í Hafnarstræt'i 20. Miðaldra mað- ur víkur sér að mér, heilsar mér og dregur upp veski sitt og segir: „Ég hef alltaf ætlað mér að buga einhverju lítdlræði að íþróttahús- inu,“ og um leið réttir hann mér fimmtíu krónur og bætir við: „Þegar féð er komið í þínar hendur, þá er það tryggt, að það kemst til skila. En þú mátt ekki láta nokkurs staðar nafns míns getið. Ég erekki vanurþvíaðhafa liátt um það, þó að ég gefi fáein- ar krónur.“ — Þannig færa hinir fátæku — hugsjónunum, fórnir sínar. Endurminhingar löngu . lið- inna ára vakna á ný. Hann segir mér frá ýmsum æfintýrum, er hann var ungur, þá iðkaði hann glímu og hafði yndi af öðrum íþróttum, og einn var hann af stofnendum Ungmennafélags Svarfdæla. Og nú biður hann miig að færa höll æskunnar þessa fóm æskuvona sinna. ■JÍMANS MIKLA elfa streymir út í hafið endallaust, sem eng- inn þekkir. Og nú er komið fram á miðvikudaginn í síðustu viku vetrar 1944. Bæjarpóstur- inn, Kjartan Ólafsson, kemur með bréf til mín, réttir mér það og segir um leið: „Heldurðu að þú vildiir vera svo vænn að taka þetta bréf af mér?“ En svo tekur Kjartan jafnan til orða, er hann færir mér bréf. Ég virði fyrir mér utanáskrift bréfsins, sem er 'óvenju sér- kennilleg, svo að ég varð seinni til svars en skyldi. Kjartan end- urtekur því beiðni sína og er nú nokkuð ákveðnari í rómnum en áður. Ég opna því bréfið í skyndá og að honum viðstöddum, það kemur þá í ljós, að það er frá Sigurði Draumland, og hefir inni að halda hundrað króna seðil til íþróttahússins. Ég skal nú lofa ykkur að heyra bréfið, það hlljóðar svo: „Sæll og blessaður. Sendi þér 100 krónur til íþróttahússins, svo að hægt að greiða eitthyað fyrir niðurrifi þess, ef fólk bogn- ar á að styrkja það til fullnustu." En svo skiptir Sigurður algjör- lega um tón í lok bréfsins, vendir kvæði sínu í kross og segir: „Ann- ars mega peningarnir ganga til uppbyggingarinnar. . . .“ Þessi málalok Sigurðar líka mér miklu betur, og er nú féð komið til uppbyggingar íþrótta- hússins. Og haf þú nú, Sigurður, hinar beztu þakkir fyrir gjöfina. ■^IÐ vitum það öll, að það hef- ur gengið óskaplega seint að koma íþróttahússbyggingunni þetta áleiðis, sem hún er nú komin. En oft eru betri hygg- inna ráð en hraður gangur, og tjáir eigi að fást um orðinn hlut. Ég hef aldrei orðið var við neina bognun í fari Akureyringa um að reisa hölil æskunnar upp frá grunni. Að minnsta kosti hefur þess eigi orðið vart, þegar um sÖlu „íþróttamála“ er að ræða, og skal ég færa sönnur á mál mliltt síðar. Og ef bygginga- meistarar vorir hefðu fengið að ráða útlifci og gera uppdrátt að höll æskunnar, hefði hún orðið öðruvísi til að sja, en nú er raun- in á. Jæja þá, nú skal ég sanna mál mitt, hvað snertir vinsældir „íþróttamála“, en eins og allir vita rennur ágóðinn til íþrótta- hússins. Ég notaði hverja stund, sem gafst, meðan á prentaradeil- unni stóð, til þess að vinna fyrir málefnið og koma „íþróttamál- um“ til hinna mörgu og góðu kaupenda. Viðtökumar voru hinar ágaetustu eins og nú skal greina frá með fáum dæmum og í sem fæstum orðum: Eyþór Tómasson, kaupmaður og trésmíðameistari, greiddi rit- ið með eitt hundrað krónum. Ekki að tala um rftinna. Hrólfur Sturlaugsson, raf- virkjameistari, tengdasonur Öl- afs Magnússonar, sundkennara, greiddi fimmtíu krónur fyrir ritið. Kristján Kristjánsson, forstjóri B. S. A., sagðist myndi greiða „íþróttamáP1 eins og sór sýndist og vert væri og greiddi þau með eitit hundrað krónum. Og að skilnaði segir Kristján við mig: „Svo getur þú komið til mín, þegar þú þarft að gefa út „íþróttamál“ næst.“ Em slík fyr- irheit góð, þegar um er að ræða eigi ótraustari mann en Kristján er. Ósjálfrátt dettur mér Sigur- jón að Álafossi í hug, þegar ég hugsa um athafnir og dugnað Kristjáns Kristjánssonar. Þið álítið nú kannski, sem vonlegt er, að íslenzkir bændur hafi lítinn áhuga fyrir smáriti, sem einungis er gefið út til ágóða fyrir íþróttastarfsemi á Akureyri. En þeir hugsa líka um málefnið, og meðal þeiirra er Húsavíkurbréf. Aðalfundur K. Þ. — Aflabrögð.1 — Friðanins Minnzt. — Nýtt blað. Aðalfundur Kaupfélags Þing- eyinga var haldinn í Húsavík dagana 27.-29. apríl sl. Var þetta 64. aðalfundur félagsins. — Fundinn sátu 65 fulltrúar frá 17 deildum aúk félagsstjórnar, end- urskoðenda og forstjóra. — Vöru- sala félagsins á árinu sem leið nam krv3.211.594.00 í búðum þess, og hafði aukizt um 134 þúsund. Auk þess seldi félagið innlendar vörur til neytenda og beitusíld fyrir 386 þiisund. — Stofnsjóður félagsmanna er nú 220 þiiund og hefir aukizt á ár- inu um 39>/2 þús. Varasjóðir fé- lagsins eru-617 þúsund og hækk- uðu á árinu um 134 þúsund. — Ákveðið var að greiða félags- mönnum 8% í arð af ágóða- skyldum viðskiptum þeirra. Af þessu voru 3% lögð í stofnsjóð, en 5% útborguð. Á árinu var lokið við viðgerð og endurbætur á húsinu „Garð- ar“ og þar á neðstu hæð opnuð sölubúð með skó- og vefnaðar- vörur hinn 9. júlí sl. Úr Menn- ingarsjóði félagsins voru veittir þessir styrkir: Til Sýslubóka- safnsins kr. 1000.00. Til skóg- ræktar kr. 1000.00. Til viðgerðar á bókhlöðunni í Húsavík kr. 5000.00. Til Búnaðarsambands Þingeyinga til bændafarar kr. 1000.00. — Fundurinn samþykkti að félagið keypti 25 þúsund kr. hlutafé í fyrirhuguðu útgerðar- félagi hér í Húsavík, að því til- skyldu að félagið verði stofnað fyrir apríllok 1946. Fundurinn fól stjórninni að láta rannsaka nú þegar skilyrði til mjólkur- vinnslustöðvar hér í Húsavík. Fundurinn samþykkti tillögu um að skora á ríkisstjórnina, að hefja nú þegar á þessu ári undir- búning að byggingu áburðar- verksmiðju. Fáist það liins vegar ekki framgengt, var funduimn hvetjandi þess, að SÍS. og deildir þess tækju málið í sínar hendur, einnig að finna vini vorsins. Hér er eitt dæmi: Stórbóndinn á Espihóli í Eyja- firði, Kristinn Jakobsson, sonur Jakobs skipstjóra Jakobssonar hér í bæ, greiddi fimmtíu krón- ur fyrir „íþróttamál". Þetta er staðreynd. Það er svo til - ætlazt, að í hverju hefti „íþróttamála“ verði jáfnan þátturinn „Vinir vors- ins“. Þar mun ég geta þessara vökumanna, — vina vorsins, og þeirra annarra, er til þess hafa unnið í hvert sinn. Og vissulega munu „íþróttamáP' engum sinna velgerðamanna gleyma. Vinir mínir! Þið, sem kaupið „íþróttamál“ og hafið hjálpað mér með ýmsu móti til að koma þeim út. Vit- ið þið, hvað þið eruð að gera? ----Þið emð að vinna með vor- inu, framtíðinni og lífinu. — Viinir vorsins! Bömin njóta gjaf- mildi yðar. Vísir er risinn a? fullkominni æskuhölll á Akur- eyri. Verið öll í Guðs friði. Skrifað á sumardaginn fyrsta 1945. Jón Benedikltsson, prenUri. að fengnum þeim tryggingum og aðstoð frá ríkinu, sem Búnaðar- jingið gerði tillögur um. Sam- rykkt var áskorun til sauðfjár- sjúkdómanefndar að hún vinni að því, að lokið verði nú þegar á næsta liausti fjárskiptum á svæð- inu milli Jökulsár og Skjálfanda- fljóts, en á því svæði eru nú tveir hreppar með sjúkan fjárstofn. Mývatnssveit og Bárðardalur. Endurkosnir í stjórn K. Þ. voru reir: Björn Sigtryggsson bóndi á Brún og Illugi Jónsson bóndi í Reykjahlíð. Fulltrúar á aðalfund SIS.: Þórhallur Sigtryggsson framkvæmdastjóri, Karl Krist- jánsson oddviti og Baldur Bald- vinsson oddviti á Ófeigsstöðum. Kosin var á fundinum þriggja manna nefnd til þess að gera. til- lögur um skemmti og fræðslu- mál á félagssvæðinu. í nefndina voru kosnir: Jónas Baldursson Lundarbrekku, Jón Sigurðsson Felli og Pétur Jónsson Reykja- ilíð. — F.ins og venja hefir verið var sameiginleg kaffidrykkja fundardagana fyrir fulltrúa og fundargesti og sátu þar í einu yf- ir 100 manns. Fóru þar fram ræðuhöld og kvæðaupplestur. I tvö kvöld voru skemmtiatriði í samkomuhúsinu, fyrra kvöldið kvikmynd, en síðara kvöldið söng karlakórinn „Þrymur“. • í apríl var hér í Húsavík al- gjörlega aflalaust. í þeim fáu róðrum sem farnir voru urðu sjó- menn að gefa með sér. • Á uppstigningardag var friðar- ins í Norðurálfu minnst hér með guðsþjónustu. Seinna um daginn var aftur gengið í kirkju óg söng þá Kirkjukór Húsavíkur undir stjórn Friðriks A. Friðrikssonar og Júlíus Havsteen sýslumaður hélt ræðu. Auglýst var áður um daginn, að kirkjugestum gæfist tækifæri við kirkjudyrnar að styrkja með peningagjöfum hjálparvana Norðurlandabörn. Margir Hús- víkingar gáfu mjög myndarlegar gjafir. Þó fóru þar nokkrir inn, sem ekki réttu fram hönd sína til hjálpar klæðlausum og sveltandi börnum. • Hinn fyrsta maí hóf nýtt blað göngu sína hér, og var selt á göt- um kauptúnsins. Þykist heita „Þingey“ og er gefið út af komm- únistum. Efni þess að mestu leyti (Framhald á 8. síðu). ERLEND TÍÐINDI (Framhald af 2. síðu). talsins, sum aðeins 6 ára. Eitt þeirra fletti upp erminni og sýndi mér númerið: B-6030. Það var tattóerað á holdið. Fleiri sýndu mér sín númer. Þau fylgja þeim til grafar. Eldri maður, sem stóð við hliðina á mér sagði: „Þetta eru börnin, — óvinir rík- isins". Eg gat talið rifbeinin í gegn- um þunnar skyrturnar. Maður- inn hélt áfram að tala: „Eg heiti Charles Richer, prófessor við i Sorbonne-háskóla," sagði hann. Börnin héldu dauðahaldi í hendina á mér og störðu á mig. Við gengum yfir garðinn, margir stöðvuðu okkur, vildu snerta mig og tala við mig. Það voru prófessorar frá Póllandi, læknar frá Vínarborg, rnenn frá ýmsum Evrópulöndum. Við gengum inn í sjúkrahúsið. Það var yfirfullt. Læknirinn sagði að 200 hefðu dáið daginn áður. Eg spurði urn dauðaorsök^ ina. Hann yppti öxlum: „Berkl- ar, hungur, þreyta, og margir hafa enga löngun til að lifa." .... Við gengum enn um garðinn. Læknarnir, Frakkinn og Tékkinn voru sammála um, að 6000 hefðu dáið í marz. Kers- heimer, Þjóðverjinn, bætti við, að þegar Pólverjarnir komu þangað fyrst árið 1939, klæðlitlir og hungraðir, hafi dáið um 900 á dag. Fimm menn héldu því fram, að Buchenwald væri skárstu fangabúðirnar i Þýzka- landi. Þeir töluðu af reynslu Þeir höfðu verið í hinum. Dr. Heller spurði hvort eg vildi sjá líkbrennsluna. Hann sagði, að mér mundi þykja það söguleg sjón, því að Þjóðverjar hefðu verið orðnir kokslausir þessa síðustu daga. Vildi eg kannske líta á bakgarðinn? Jú, gjarnan. Læknirinn sagði börn- unum að vera kyrrum. Við geng- um inn í bakgarðinn. Hann var umgirtur átta feta háum múr- vegg. Gólfið var steinsteypt. Þar voru tveir staflar af líkum, eins og skógviðarkestir. Þau voru mögur og hvít. Nokkur þeirra voru með skelfilega áverka þótt ekki væri hægt að sjá, að mikið hold væri til þess að skemma. Nokkur voru með kúlugöt á höfðinu, en það hafði blætt lítið. Öll voru nakin, nema tvö. Eg reyndi að kasta tölu á þau og komst að þeirri niðurstöðu, að þarna lægju meira en 500 menn og drengir í tveimur, skipuleg- um stöflum. Þarna var þýzkur fjórhjólavagn, á honum voru að minnsta kosti 50, en eg gat ekki talið þá nákvæmlega. Fötin lágu í hrúgu úti í horni. Leit út fyrir að flestir hefðu dáið úr hungri, þeir höfðu ekki verið líflátnir. En það skiptir raunar ekki máli. Morð höfðu verið framin Buch- enwald. Drottinn einn veit hve margir menn og drengir hafa dá- ið þar á síðustu tólf árum. í gær voru 20 þúsund menn í fanga- búðunum. Áður höfðu verið þar a. m. k. 60 þúsund. Hvað var orðið af þeim? Eg bið yður að trúa því, sem eg hefi sagt yður urn Buchen- wald. Eg hefi skýrt frá því, sem eg sá og heyrði og þó aðeins frá litlum hluta þess. Um það sem eg hefi ekki sagt frá, á eg engin orð. Dauðir menn eru ekki sjaldgæf sjón í stríði, en dauðir menn lifandi, tuttugu þúsund þeirra. Það er önnur saga.... Og landið umhverfis var fag- urt og frjósamt og Þjóðverjarnir voru holdugir og prúðbúnir. Amerískir hervagnar brunuðu fram hjá með þýzka stríðsfanga. Bráðlega mundu þeir lifa á amerískum hermannaskammti og fá meira í eina máltíð heldur en fangarnir í Buchenwald fengu á fjórum sólarhringum. . . (Lausl. þýtt).

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.