Dagur - 07.06.1945, Side 1
ism m (F* ■ 1 kí
P^laUIC
XXVIII. árg.
Akureyri — fimmtudaginn 7. júní 1945.
23. tbl.
Kommúnistar blða ósigur i KaupfélagiSiglfirðinga
íslenzkir námsmenn í Ámeríku, telja
það misskilning, að amerískir háskól-
ar séu lakari en evrópiskir.
Samtal við Harald Kröyer, M. A., um 4 ára
námsdvöl í Kaliforníu.
Fengu aðeins 17 fulltrúa kjörna, en borg-
araflokkarnir 47 fulltrúa
Óstjórn þeirra á félaginu einsdæmi í sögu
íslenzkra samvinnumála
ANNÁLL
DAGS
-=r---===^=^- ■ '
27.—31. MAÍ. Stórárás Banda-
ríkjalflugfélaga á Yokohama. —
Borgin brennur að miklu leyti.
— Churchill kynnir hina
nýju stjórn i þinginu. —
Fulltrúar Verkamannaflokksins
famir úr stjóminni. Tilkynnt að
300 þús. brezkir hermenn hafi
fallið í styirjöldlinni til þessa. Bar-
dagar miffi Frakka og Sýrlend-
inga í Damaskus og víðar í Sýr-
landi.
1. JÚNÍ. Churchill biður De
Gaulle að kalla franskar hersveit-
ir í Sýrlandi til herbúða sinna til
þess að forðast árekstra við brezk-
ar hersveitir. Frakkar verða við
þessum tilmælum að mestu leytÍK
A. m. k. 500 menn hafa fallið í
Sýrlandi í óeirðunum. Iranstjóm
sendir stórveldunum orðsend-
ingu um að flytja á brott herlið
úr landinu.
2. JÚNÍ. Kyrrara í Sýrlandi og
Líbanon. De Gaulle ásakar Breta
fyrir afskiptasemá í Sýrlandi.
3. JÚNÍ. Vöm Japana á
Okiinawa að bila. Ósarnkomulag
á San Fransisco-ráðstefnunni um
neitunarvald stórveldanna. Bret-
ar og Bandaríkjamenn vilja
binda neátunarvaldið í Öryggis-
stofuninni við það eitt, að eitt
stórveldi geti fyrirbyggt aðgerðir
með neitun sinni, en Rússar
vilja, að eitt stóarveldi geti fyrir-
byggt að deilumálin verði rædd
í ráðinu.
4. JÚNÍ. Kyrrð komin á í Sýr-
landi. Ráð Arabaríkjanna kemur
saman á ráðstefnu til að ræða
SýrilandsmáLið. Hákon konungur
leggur af stað heimleiðis. Churc-
hill flytur fyrstu kosningaræð-
una, deilir harðlega á sósíaLista
og kommúnista.
5. JÚNÍ. Brezka sendinefndin
í San Fransisco gefur út yfiúlýs-
ingu um deiluna um neitunar-
valdið. Telur fráleitt, að Bretar
falli frá ákvörðun sinntí, kvartar
undan því að Rússar séu ekki
samvinnuþýðir. Fundur hers-
höfðingja Bandamanna í Berlín.
Þýzkalandi skipt í hemámssvæði.
Tillkynnt að Bretar og Banda-
ríkjamenn hafi látið Rússum í té
lieila flotadeild hecrskipa í árs-
byrjun 1944 og 20 þús. smálestir
flutriingaskipastóls.
6. JÚNÍ. Rússar stjóma aust-
urhluta Þýzkalands, Bretar norð-
vesturhlutanum, Frakkar vestur-
hlutanum og Bandaríkjamenn
suðvesturhlutanum. Berlín lýtur
sameiginlegri stjóm. Landamær-
in fyrst um sinn þau sömu og
1937.
N orðurlandssöf nunin:
5400 krónur söfnuðust
í Glæsibæjarhreppi
í upptalningu helztu gjafa í
Eyjafjarðarsýslu og á Akureyri
til Norðurlandasöfnunarinnar, í
síðasta tbl., féll niður að geta
um gjöf úr Glæsibæjarhreppi. —
Einstaklingar í hreppnum gáfu
kr. 3.400 í peningunvog talsvert
af nýjum og góðum fatnaði.
Hreppssjóður gaf kr. 2000. — Þá
gáfu og margir verkamenn í
hreppnum daglaun sín og er það
ekki meðtalið hér að ofan.
Haraldur Kröyer og frú hans
eru fyrir skömmu komin hingað
til lands eftir meira en 4 ára
námsdvöl við háskólann í Berke-
ley í Kallforníu. Haraldur fór ut-
an í október 1940 og lagði stund
á ensku og lauk B. A. prófi í
þeirri grein í marz 1943. Síðan
hefir hann lesið stjórnvísindi og
alþjóðarétt við sama háskóla og
lauk M. A. prófi í þeim greinum
í febrúar síðastliðnum. Dagur
kom að máli við Harald og
ræddi við hann um nám íslend-
inga í Ameríku.
— Þú hefir vitaskuld komið
fljúgandi heim?
Já, við fengum að fljúga yfir
hafið snemma í maí, samkvæmt
samkomulagi því, sem íslenzka
sendiráðið í Washington hafði
gert við amerísk yfirvöld um
loftflutninga íslendinga.
— Og ferðin hefir verið
skemmtileg?
Mjög skemnýtileg og þægileg.
Við fórum frá flugvelli í Maine-
fylki snemma morguns og kom-
um við á Labrador og Græn-
landi og lentum á Reykjanesi
seint um kvöld. Það er ekki erfitt
að ferðast við slíkar aðstæður.
— Hvað geturðu sagt okkur af
íslenzkum námsmönnum í Kali-
forníu?
Af þeim, er eg hafði kynni af,
er allt gott að frétta. Við vorum
25 íslendinga'r í Berkeley þegar
flest var, þar af einir fimjn héð-
an frá Akureyri, Halldór Þor-
steinsson, Aðalsteinn Sigurðsson,
Magnús Ingimundarson, Ragnar
Thorarensen og eg. Eg held að
óhætt sé að segja, að við höfum
allir kunnað vel við okkur.
— Eru þeir um kyrrt þar í
Berkeley?
Aðalsteinnn er nú kominn
heim fyrir löngu, en þeir Magn-
ús, Ragnar og Halldór munu
vera þar, eða í því nágrenni.
Magnús heldur áfram með sitt
verzlunarnám, en Halldór legg-
ur stund á leiklist, auk mála-
námsins, og dvelur nú við
Pasadena Playhouse, sem er
ágætur leikskóli. Annars les
hann frönsku og spænsku, sem
aðalnámsgreinir. Ragnar hefir
lokið námi í rafmagnsverkfræði
og mun komla heim í sumar.
— Hvað finnst ykkur um há-
skólann í Berkeley?
Eg held að við höfum verið
heppnir. Skólinn er annar stærsti
ríkisháskóli landsins, hafði um
30000 nemendur fyrir stríðið, og
í góðu áliti. Byggingar allar eru
mjög fullkomnar, bókasöfn
ágæt og rannsóknarstofur full-
komnar í bezta lagi. Aðstaða stú-
denta yfirleitt ágæt. Álit náms-
manna í Ameríku mun yfirleitt
vera það, að amerískir háskólar
séu sízt lakari en evrópiskir, en
vitaskuld eru þeir misjafnir.
Beztu ríkisháskólarnir í Amer-
íku eru áreiðanlega sambærileg-
ir við beztu háskóla í Evrópu.
Því hafa m'. a. haldið fram ís-
lenzkir námsmenn, sem hafa
dvalið bæði austan hafs og vestan
við nám. Yfirleitt má segja, að
mikið sé undir kennslukröftum
komið, og óhætt er að fullyrða,
að þessir amerísku háskólar hafa
mjög góðum kennslukröftum á
að skipa, m. a. hafa komið þang-
að fjölda margir vísindamenn og
kennarar frá Evrópu á undan-
förnum árum. og fengið þar em-
bætti. Það er því ástæðulaust að
gera lítið úr námi íslendinga
vestra. Hins vegar er það rétt, að
til eru þar lélegir skólar og hefði
verið þörf á því, að völ hefði ver-
ið á leiðbeiningum heima, og má
Á sunnudaginn kemur leggja
200 bændur úr Suður-Þingeyjar-
sýslu upp í ferðalag til Suður-
lands. Verður það fjölmennasta
hópferð sem þingeyskir bændur
hafa farið. Farið verður um Ak-
ureyri til Hóla á sunnudaginn
og síðan haldið áfram um Borg-
arfjörð, Hvanneyri, til Reykja-
víkur og þaðan austur yfir fjall,
austur í Fljótshlíð og e, t, v. alla
Deildarfundum í Kaupfólagi
Siglfirðinga lauk í fynrakvöld.
Úrslit í kosningum fulltrúa til
aðalfundar urðu þau, að komm-
únistar biðu hinn herfilegasta ó-
s'igur og verða því í algjörum
miinnihluta á aðalfundinum,
sem hefst x dag. Fengu aðeins 17
fulltrúa kjöma, en borgaraflokk-
amir, sem sameinuðust gegn
þeim, fengu 47 fulltrúa. Svo
megna fyrirlitningu hafa komm-
únistar hlotið af framferði sínu í
Siglufirði á því eina ári, sem þeir
hafa stjómað Kf. S., að aðeins 3
atkv. munaði til þess að þeir
fengju engan fulltrúa kjörinn.
Félagsmenn í Kaupfélagi Sigl-
firðinga hafa þar með kveðið
upp dóm yfir óstjórninni, sem
ríkt hefur í málefnum félagsins
að undanförnu undir hand-
HÉRAÐSMÓT
Ungmennasambands Eyja-
fjarðar á Hrafngili
n. k. sunnudag
Héraðsmót Ungmennasam-
bands Eyjafjarðar hefst að
Hrafnagili næstk. sunnudag kl. 2
e. h. Þar fara fram íþróttakeppn-
ir, ræðuhöld (meðal ræðumanna
er Þorst. Einarsson íþróttafull-
trúi), einsöngur o. fl. til skemmt-
unar og að lokum verður dansað.
Bifreiðaferðir verða frá Bifreiða-
stöð Akureyrar.
leið austur í Vík. Gert er ráð fyr-
ir að ferðin taki 10 daga. Farar-
stjóri er Jón H. Þorbergsson
bóndi á Laxamýri.
Þá eru vestfirzkir bændur að
undirbúa hópför hingað horður
í Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslur.
Er búizt við um 80—100 manna
hóp úr ísafjarðarsýsluin hingað
til bæjarins hinn 17. júní næstk.
leiðslu Þóroddar Guðmundsson-
ar. Hins vegar verða félagsmenn
enn að bíða þess eitt ár, að meiri-
hlutaaðstaða sú, er kommúnistar
fengu í stjórn félagsins í fyrra,
verði afnum|in með öllu, því að á
aðalfundi þeim, sem í hönd fer,
eiga þeir ekki, lögum samkvæmt,
að ganga úr stjórninni, heldur
mun það vera fulltrúi Alþýðu-
flokksins, sem væntanlega verð-
ur þá endurkjörin nú. Þótt sigl-
firzkir samvinnumenn verði enn
um sinn að súpa seyðið af því,
að kommúnistar náðu meiri-
hlutaaðstöðu í félaginu í fyrra —
þó aðeins með því að beita sín-
um alkunnu einræðis- og fanta-
brögðum — er líklegt, að úrslit-
in í fulltrúakosningunumi verði
til þess að hernill verði settur á
brask þeirra og brölt með fjár-
muni félagsins, en saga þeirra í
þeim efnum mun vera einsdæmi.
Af þeim fregnum, sem borist
hafa um þessi mál frá Siglufirði
að undanförnu er svo að sjá, sem
mjóu hafi munað að kommúnist-
um tækist að koma þessu blóm-
lega fyrirtæki fyrir kattarnef á
éinu. ári. Samkvæmt þeiin upp-
lýsingum, sem birzt hafa í sigl-
firzkum blöðum er sú saga í
stuttu máli þessi:
í ljós kom nú eftir áramótin,
að vörurýrnun hjá félaginu varð
meiri, en dæmi munu til, og al-
gjörlega óeðlileg, eða 11%. Nam
sú upphæð alls um 130 þúsund
krónum. Af þessu leiddi, að fé-
lagið tapaði í einu mesta veltu-
ári íslenzkrar verzlunar, og sam-
kvæmt frásögn þessara blaða
mun það nær ekkert greiða í
eigin sjóði eða til félagsmanna.
— Ein hin fyrsta stjórnarfram-
kvæmd þeirra var að ráða sem
aðalbókhaldara, pakkhúsmann
hjá PVA hér á Akureyri, þrátt
fyrir andmæli kaupfélagsstjór-
ans, en maður þessi hafði enga
bókhaldsþekkingu til að bera.
Er hins vegar þægur flokksmað-
ur. Telja blöðin, að bókfærslan
hafi verið meira en lítið athuga-
verð, og enda lítt að furða, svo
sem til hennar var stofnað. Þá
réðust kommúnistarnir í stjórn-
inni í það, sem frægt er orðið,
að kaupa síldarsöltunai'stöð af
dánarbúi Ingvars Guðjónssonar
fyrir miklu hærra verð en eðli-
legt var. Síðan hefur Þóroddur
Framhald á 8. sfðu
Framhald á 5. síðu.
Skemmfi- og kynningarferðir bænda
Norðlenzkir bændur f jölmenna til Suður-
lands. Vestfirzkir bændur til Eyjaf jarðar