Dagur - 05.07.1945, Síða 2
2
DA9U&
Sukkið og óstjórnin í
Kaupfélagi Sigífirðinga
Allt fyrir neytendurna, segir »Verkamaðurinn«
Kommúnistar náðu yfirráðun-
um í Kaupfélagi Siglfirðinga í
fyrra méð því að viðhafa allskon-
ar fantabrögð. *
Á einu einasta ári eru þeir
orðnir landfrægir fyrir óstjórn
sína á félaginu. Alveg sýnilegt,
ef þeir yrðu látnir ráða áfram,
mundu þeir leggja kaupfélagið í
rústir.
Svo var sukkið og óreiðan
dæmalaus tfndir stjórn kommún-
ista, að eftir áramót konr í ljós
að vörurýrnun í félaginu var
nokkuð á annað hundrað þús-
und króna eða 11 af hundraði.
Aðalbókhaldara réð hin
kommúnistiska stjórnMalgjörlega
, þekkingarlausan mann á því
sviði, aðeins af því að hann var
þægt verkfæri kommúnista til
hvers er vera skyldi. Þessum bók-
haldara þröngvuðu þeir upp á
^ kaupfélagsstjórann honum þvert
um geð. Má nærri fara, hvernig
bókfærslan hafi verið eins og í
pottinn var búið.
Hin kommúnistiska stjórn
réðst í að kaupa síldarsöltunar-
stöð, sem mælt er að hafi verið
hæfilega metin á 250 þús. kr., en
það þótti stjórninni ekki nógu
hátt verð og gaf fyrir hana 360
þús. kr. Af hvaða ástæðum hún
sprengdi • verðið svo ' gífurlega
upp fyrir sjálfri sér, eða því fé-
lagi, sem hún hafði tekið að sér
að stjórna, er ókunnugt og lík-
lega óskiljanlegt, nema hún hafi
vitandi vits viljað skaða félagið.
Nú skyldi maður ætla, að
kommúnistar í kaupfélagsstjórn-
inni hefðu lagt nokkra áherzlu
á að nota hina dýru söltunarstöð
félaginu til framdráttar. En það
er nú öðru nær. Stjórnin leigir
kommúnistasprautu einni á
Siglufirði, eða félagsskap, sem
hún hefir stofnað, .söltunarstöð-
ina til afnota, svo að þessi félags-
skapur kommúnista geti rekið
hana áem gróðafyrirtæki á kostn-
að kaupfélagsins, er situr uppi
með hina dýru eign, en mun fá
litla leigu eftir hana.
Fleiri braskfyrirtæki hafa
kommúnistar á Siglufirði með
höndum, sem þeir láta kaupfé-
lagið blæða fyrir. Ennfremur
hafa þeir þröngvað allskonar
vörurusli upp á félagið, sem það
hefir ekkert með að gera og* er í
ráðaleysi með.
Þegar allt þetta sukk og öll
þessi óreiða var orðin félags-
mönnum í Kf. S. ljós, leizt þeim
ekki á blikuna, sem ekki var von,
og tóku höndum saman um að
hrinda óstjórninni af höndum
sér. Við kosningu á fulltrúum til
aðalfundar fengu kommúnistar
ekki nema lítinn hluta, sem þeir
þóttust geta treyst til stuðnings
sér til að halda áfram óreiðunni
og skemmdarstarfinu í kaupfé-
laginu. Eins og kunnugt er, hafa
aðalfundir kaupfélaganna æðsta
vald í öllum málefnum félag-
anna. Til aðalfundar Kaupfélags
Siglfirðinga voru fulltrúar kosn-
ir að réttum lögum og sam-
kvæmt lýðræðislegum reglum.
En úrslit kosninganna verða
þau, að kommúnistar eru sýni-
lega í stórkostlegum minnihluta
og stjórn félagsins því orðin
minnihluta-stjórn. Það var því
siðferðisleg skylda hennar, úr því
svo var komið, að segja af sér
þegar í stað og gefa hinum ný-
kjörnu fulltrúum færi á að kjósa
nýja stjórn.
Ef hin kommúnistiska kaup-
félagsstjórn hefði tekið þetta ráð,
sem henni var skylt að gera,
hefði hún sýnt, að hún virti lýð-
ræðishugsjónina að nokkru. Það
hefði líka verið verulegur stuðn-
ingur við þau ummæli Ólafs
Thors, að hann treysti sér ekki
til að halda uppi lýðræði í land-
inu, nema með hjálp kommún-
ista sinna. En hér fór á annan
veg. í stað þess að beygja sig fyr-
ir lýðræðisreglunni, tók kaupfé-
lagsstjórnin til þeirra ráða að
berja vilja mikils meirihluta fé-
lagsmanna niðúr með ofbeldi.
Hún rak 29 hinna nýkjörnu full-
trúa úr kaupfélaginu og auk þess
41 aðra félagsmenn án allra
saka, nema þeirra einna að vera
ekki kommnistar eða auðsveipar
undirlægjur þeirra.
Þetta ofbeldisverk er mælt að
kommnistar á Siglufirði hafi
framið eftir ráðleggingu Áka
ráðherra, sem er náinn samstarfs-
bróðir Ólafs Thors í ríkisstjórn-
inni.
Málið liggur Jjannig ljóst fyr-
ir: Að innræti eru foringjar
kommúnista ofbeldisfullir ein-
ræðissinnar, sent ekki skirrast
við að kúga meirihluta til hlýðni
við minnihluta, hVar sein Jreir
komast höndum undir og telja
sér flokkslegan ávinning að.
Gildir þetta jafnt í samvinnu-
vinnufélögum, verklýðsfélögum
og í ríkisstjórn.
Dæmið frá Siglufirði sannar
þetta og gerir að markleysu það
munnfleipur formanns Sjálf-
stæðisflokksins, að kommúnistar
séu sú hjálparhella, sem lýðræði
á íslandi byggist á í framtíðinni.
Staðreyndirnar frá Siglufirði
hafa leitt þann sannleika í Ijós,
sem mörgum var að vísu kunnur
áður, að kommúnistar eru þess
albúnir að gerast böðlar þjóðar-
viljans, ef allir lýðræðissinnar í
landinu eru ekki vel á verði gegn
ofbeldisfullu einræðisbrölti
þeirra.
Allt þetta gerist í sömu and-
ránni og framhleypnasta áróð-
urstæki Ólafs Thors er að reyna
að telja lesendum Morgunblaðs-
ins trú um, að einræðishneigð
sé ekki til í stjórnarliðinu.
Samvinnumenn á Siglufirði
tóku málið réttum tökum. Þeir
brutu ofbeldistilraun kommún-
únista á bak aftur og gerðu sín-
ar ráðstafanir á aðalfundi til
bjargar kaupfélagi sínu á þann
hátt, sem áður hefir verið frá
skýrt í þessu blaði.
En kommúnistar voru ekki að-
gerðalausir. Þeir héldu^sinn að-
alfund sérstaklega og munu hafa
kosið þar sína fulltrúa til að
mæta á aðalfund SÍS á Lauga-
vatni. Fulltrúar KRON á Jieim
fundi fóru Jaéss á leit, að frestað
væri að taka gild kjörbréf full-
trúa frá Kf. S., sem kjörbréfa-
rtefnd hafði ekkert fundið við að
athuga, því að von væri á full-
trúum frá minnihlutanum í
kaupfélaginu. Sést á Jaessu, að
samband hefir verið á milli
kommúnista á Siglufirði og
flokksforustunnar í Reykjavík
um aðfarir kommúnista á Siglu-
firði. Þessi málaleitun var vitan-
lega að engu höfð, enda komu
minnihluta-fulltrúarnir aldrei
til aðalfundar SÍS. Hafa ef til
vill áttað sig á, að Jreir væru
farnir að leika skrípaleik.
•
Nú víkur sögunni til mál-
gagns kommúnista á Akurevri.
,,Verkamaðurinn“ .sá, að þörf var
á, að hann tæki upp vörn fyrir
atferli samherja sinna á Siglu-
firði, því vitanlega fór það ekki
framhjá blaðinu, að framferði
þeirra vakti hvarvetna óhug og
fyrirlitningu meðal allra lands-
manna, að undanteknum ofstæk-
isfyllstu sósíalistum, sem telja
sér öll meðul leyfileg' til að ná
tilgangi sínum, og ef til vill allra
versta soranum í Sjálfstæðis-
flokknum, sem leggur ýdauðlegt
hatur á kaupfélögin.
Þessi vörn „Verkamannsins"
mun alveg einstök í sinni röð.
Hún er á Jiann veg, að kommún-
istar á Siglufirði miði allt við
heill og farsæld neytendanna í
kaupfélaginu þar. Öll stjórn
þeirra á félaginu liafi snúizt um
þetta eitt. En þetta hafi. hinir
borgaralega sinnuðu félagsmenn
ekki þolað, og þess vegna hafi
þeir hafið klofnings- og sundr-
ungarstarf í Kf. S., svo að konnn-
únistar hefðu ekki frið til að
vinna fyrir neytendurna.
Samkvæmt þessari kenningu
„Verkamannsins" er það gert
vegna néytendanna í Kf. S. að
láta meira en 1/10 hluta vöru-
magns félagsins hverfa sýnum og
gufa upp.
Vegna neytendanna er bók-
færslan í kapfélaginu hofð í því
argasta ólági, sem hugsast getur.
Sem dæmi má nefna, að einum
hinum brottrekna er gefið að
sök, að hann hafi engin viðskipti
haft við félagið, það sem af er
þessu ári; hann hafi Jrví verið í
félaginu aðeins að yfirvarpi. Eigi
að síður hefir þessi félagsmaður
undir höndum búnka af úttekt-
arnótum frá þessu tímabili.
Hann vill fá að líta í viðskipta-
bækur félagsins. Þar sér hann
nafn sitt og annað ekki, engin
viðskipti hans bókfærð. Fyrir
þessa vanrækslu í bókhaldi er
hann rekinn úr félaginu, og
margt er sagt eftir þessu.
Eftir frásögn „Verkamanns-
ins“ er það í þágu neytendanna,
að Kf. S. er látið leggja í brask-
fyrirtæki kommúnista við Gils-
laug í Fljótum, þó að kaupfélag-
ið hafi ekkert nema skaða af
þeirri þátttöku. Ennfremur á
það að vera gert fyrir neytend-
urna, að kommúnistar hrúga alls
konar vörurusli í kaupfélagið til
hagnaðar fyrir sjálfa sig, en til
fjárhagslegs tjóns fyrir félagið.
Svo þegar sterkur meirihluti
félagsmanna tekur rögg á sig til
að afmá allan þenna ósóma að
svo miklu leyti sem það er ekki
orðið of seint, þá kalla kommún-
istar Jrað klofnings- og sundrung-
arstarfsemi og að verið sé að
hnekkja hagsmunum neytend-
anna.
F.n hvers kVmar fádæma rugl
er Jjetta urn hagsmuni neytend-
anna,-sem kommúnistar Jaykjast
vilja vernda? Eru J)að ekki ein-
♦
Fimmtudaginn 5. júlí 1945
mitt neytendur í Kaupfélagi
Siglfirðinga, sem sjálfir hafa ris-
ið upp til andstöðu við sukkið
og óreiðuna, sem kommúnistar
hafa komið til leiðar í félaginu,
og Jrað einmitt til bjargar hags-
munum sínum gegn yfirgangi og
yfirtroðslum hinna kommúnis-
tisku afla, sem ráðið hafa yfir fé-
lagsmálunum um sinn?
Treystir „Verkamaðurinn“ sér
að halda því fram, að neytendur
séu ekki aðrir en nokkrar komm-
únistasprautur?
Vörn „Verkamannsins" er ónýt
og vérri en engin. Kommúnist-
um verður’ aldrei framar trúað
fyrir að stjórna kaupfélagi eftir
Jiá reynslu, sem fengin er af
stjórn þeirra á Kaupfélagi Sigl-
firðinga.
Mlll IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIII 111(11 lllll ■1111111111111111111111111111111111111III IIIIIUIIIIIIIIIIUIIIIIillllllllllllllllllll llll||»
• • -
Prjónakonur! Prjónakonur!
Get bætt við nokkrum prjónakonum í haust. Bjart og gott i
i vinnupláss. Hátt kaup. Þær stúlkur, sent áður hafa talað við. I
[ mig viðvíkjandi atvinnu í haust eða næsta vetur, gjöri svo vel i
i og láti mig vita nánar næstu daga, milli kl. 2 og 6 e. h.
/ E
Prjónastofa Asgríms Stefánssonar í
= Hafnarstrati 85 — Akureyri \
7iiiii 11111111111111111111111111iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiifiiiiiii;
Miiiiiiin ii iii iiiiiiiin iii ii iiiii iii ii iii iii ii 111111111111111111111111111 in mni 111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 iii iii iiiiu,|k
| TILKYNNING
Viðskiptaráðið hefir ákveðið að hámarksálagn- j
[ ing á innfluttar rafmagnseldavélar megi hæst vera 1
| 20% (ein álagning). J
I Þurfi að skipta álagnmgunni ber innflytjanda [
[ að tilkynna þeim er hann selur hvaða útsöluverð i
Í megi hæst vera.
Ákvæði þessi ganga í gildi frá og með 22. júní [
I 1945. • |
Reykjavík, 22. júní 1945.
1 VERÐLAGSSTJÓRINN. I
2 x
?i|iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii11111111111jiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiii?
«iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiijiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiilii,iiil„B
| NÝKOMIÐ:
Borðdúkadregilh
og matarservíeltur I
i
I Kaupfélag Eyfirðinga |
— Vefnaðarvörudeildin
NOTIÐ SJAFNAR-VÖRUR
'—>
f