Dagur - 02.08.1945, Síða 4
4
D AGUR
Fimmtudaginn 2. ágúst 1945
DAGUR
Ritotjóri: Haukur Snorrason.
Aígreiðslu og innheimtu annast:
Marinó H. Pétursson.
Skriístofa í Hafnarstræti 87. — Sími 166.
Blaðið kemur út á hverjum íimmtudegi.
Árgangurinn kostar kr. 15.00.
Prentverk Odds Björnssonar.
Þýðingarmikil straumhvörf
jg|NGIN TÍÐINDI munu hafa vakið öllu meiri
athygli um lieim allan síðustu dagana en
hinn mikla' og glæsilega sigur Alþýðuflokksins
brezka í þingkosningunum síðustu þar á landi.
Vafalaust tákna þeir atburðir þýðingarmeiri
straumhvörf og tímamót í brezkum stjórnmálum
— og þar með heimspólitíkinn allri — en auðvelt
er að gera sér grein fyrir í fljótu bragði. En eitt
er þó þegar vitað og ljóst orðið: Tími sérréttinda-
stéttanna og hinnar skefjalausu auð- og einstakl-
ingshyggju er þegar liðinn og kemur aldrei aftur.
Alþýða þjóðlandanna, sem borið hefir liita og
þunga dagsins í hinum ægilegu átökum við hina
kvalaþyrstu og morðsjúku villimenn 20. aldar-
innar, heimtar nú að fullu sinn hluta sigurlaun-
anna — sína hlutdeild í gæðum þessa heims og
stjórnarfari landanna. Og mikið gleðiefni má
það vera öllum frjálshuga mönnum, að slík haní-
skipti einnar hinnar þróttmestu og'gagnmerk-
ustu þjóðar nútímans skuli gerast svo ótvírætt og
óvéfengjanlega undir merkjum fulls lýðræðis og
þingræðis. Englendingar hafa í þingkosningum
jressum hafnað hinni austrænu einræðis- og of-
bgldisstefnu kommúnismans svo gersamlega, að
aðeins tveir frambjóðendur þess flokks hlutu
sæti í þingsal brezka. parlamentisins. Skýrari gat
sú dómsniðurstaða vissulega ekki orðið — sízt á
þeim tímum, sem nú eru, þegar ætla már að
nokkuð sé tekið að fyrnast yfir hina hörmulegu
og óglæsilegu þátttöku Rússa í upphafi ófriðar-
ins, en hin mikilsverða og auðnudrjúga hlutdeild
þeirra í stríðslokunum sé mönnum hins vegar
enn í fersku minni.
✓
íyrEÐ KOSNINGAÚRSLITUM þessum hefir
1 brezka þjóðin lýst því yfir svo glöggt sem
verða má, að hún óski að hverfa til sams konar
stjórnarfars og menningarlegrar þróunar og átti
sér stað hér á Norðurlöndum síðustu árin fyrir
síðari heimsstyrjöldina, og ennfremur í Ástralíu
og annars staðar þar, er flokkar verkamanna og
bænda hafa náð að taka höndum saman til þess
að vinna að hagsmuna- og menningarmálum allr-
ar alþýðu þessara landa á friðsamlegan og alger-
lega lýðræðislegan hátt. Hér á landi horfði úrn
skeið mjög giftusamlega um þetta samstarf, þótt
það væri rofið fyrr en skyldi og algerlega að ófyr-
irsynju. Og sennilega kemst aldrei eðlilegt og
nauðsynlegt jafnvægi á stjórnarfar og þjóðmála-
þróun íslenzku þjóðarinnar fyrr en slíkt samstarf
tekst aftur og þá á öruggara grundvelli og í rík-
ara mæli en nokkru sinni áður.
|?N FYRST DREPIÐ hefir verið á stjórnmála-
horfur hér á landi á annað borð, er fróðlegt
að atliuga það, að þeir tveir stjórnmálaflokkar,
sem mestu eru nú ráðandi í samsteypustjórninni,
Sjálfstæðisflokkurinn og Sósíalistaflokkurinn,
eiga báðir sammerkt í því, að þeir hafa nýlega
skipt um nafngiftir - breitt yfir nöfn og númer
— til þess að freista þess á þann hátt að forða sér
undan ábyrgð og dómi sinna fyrri verka og
óþægilegri sögu. Og samvi^ka beggja er svo vika-
liðug, að Morgunblaðið, liöfuðmálgagn Sjálf-
stæðisflokksins, klígjar ekki við því t. d. að bera
mikið lof á kosninga-„prógram“ íhaldsflokksins
brezka hvern daginn á fætur öðrum, áður en
kosningaúrslitin voru kunn, en daginn eftir að
vitað er orðið, að flokkurinn hefir beðið herfi-
legan ósigur í kosningunum, orðar þetta sama
blað það svo, að stefnuskrá Verkamannaflokksins
brezka — þar sem þjóðnýting og ríkisrekstur voru
Hinn 25..apríl sl. mættust herir Bandamanna í Torgau í
Þýzkalandi. — Myndin sýnir rússneska og ameríska
hermenn við það tækifæri.
Sögulegur fundur
Ólafur hefði átt að vera þar
nærstaddur!
jyTAÐUR ER NEFNDUR Winston
Churchill og á heima í Englandi
og mun hafa ráðið þar einhverju um
opinber mál allt fram að allra síðustu
tfmum. M. a. mun hann hafa ráðið
allmiklu um kosninga-„prógram“
íhaldsflokksins brezka, talað eitthvað
fyrir hann í kosningahríðinni og jafn-
vel hve þessi maður vera formaður
flokksins enn þann dag í dag. —
Morgunblaðið á íslandi lýsti sl. föstu-
dag af mikilli víðsýni og stórhug
„ný/u viðhorfi", sem skapazt hafi í
heiminum í sambandi við heimsstyrj-
öldina og úrslit hennar. Kemst blaðið
m. a. svo að orði í tilefni af þessu, að
það hafi þegar verið „auðsætt í kosn-
ingabaráttu brezka Ihaldsflokksins,
að hann skildi ekki þetta nýja við-
horf“. (Raunar hafði blaðið komizt
að allt annarri niðurstöðu, áður en
kosningáúrslitin voru kunn orðin, og
þá algerlega verið á sama máli og
Winston þessi). — Nefndur flokks-
foringi er sagður vera orðinn gamall
maður og aflóga, og er því sízt nokk-
urt furðuefni, þótt hann kunni að hafa
verið eitthvað út é þekju á stríðsárun-
um og ekki áttað sig eins vel á gangi,
úrslitum og áhrifum styrjaldarinnar
eins og Morgunblaðið, hvað þá held-
ur hinn íslenzki kollega hans sjálfur,
Ólafur Thors forsætisráðherra, sem
skipað hefir málum hins þjóðlega
íhaldsflokks hér á landi á sama tima-
bili, en með ólíkt meiri fyrirhyggju og
skilningi á hinu „nýja viðhorfi" en
gamalmennið brezka. Um þetta efni
farast Morgunblaðinu orð á þessa
leið í nefndri forystugrein:
„Ef brezki íhaldsflokkurinn
hefði tekið upp sams konar eða
svipaða baráttu og Sjálfstæðis-
flokkurinn hér á landi, myndu
aðalatriðin — hafi verið „frjáls-
lynd“ og „án allra öfga“, a. m. k.
í aðalatriðum! Vel rnælt hjá
blaði, sem fram að þessu hefir þó
talið sig höfuðmálgagn einka-
framtaksins gegn ríkisrekstri og
þjóðnýtingu! Og á hinn bóginn
gjalda svo kommúnistablöðin
hér með þögninni samþykki sitt
við hvers konar óreiðu og stór-
svikum braskaraliðsins í höfuð-
staðnum og fást ekki einu sinni
til þess að ræða slík „smámál og
aukaatriði“, þegar livasslega er á
þau deilt á opinberum vett-
vangi. Slík er barátta þessara
flokka fyrir nýjum og betri
heimi á þessum f'yrstu reynslu-
og sköpunartímum hins endur-
reista íslenzka lýðvcldis!
kosningaúrslitin í Bretlandi hafa
orðið á allt annan veg“.
Já, svo sannarlega: Mikil höfuð-
ógæfa var það annars, að það skyldi
vera Winston en ekki Ólafur, sem
réði stefnu og áróðri íhaldsflokksins
í kosningunum ensku. Ef brezka
heimsveldið hefði nú bara notað ann-
arar eins forystu og íslenzka lýðveld-
ið, svona í styrjaldarlokin, þá hefði
veraldarsagan sjálfsagt ráðist á allt
annan og betri veg en nú eru nokkrar
horfur á! Sú er bersýnilega skoðun
Morgunblaðsins, og vér erum auðvit-
að öldungis á sama máli!
„Réttar ályktanir“. ,
TjÁ SEGIR ENNFREMUR í nefndri
forystugrein Morgunblaðsins sl.
föstudag: „Kosningaúrslitin í Bret-
landi hafa einnig sinn boðskap að
flytja þeim fáu Sjálfstæðismönnum,
sem hafa ekki enn áttað sig á jnýja
tímanum og eru því með nöldur í
garð ríkisstjórnarinnar. Væri vel, að
þeir drægju sem fyrst réttar ályktan-
ir af reynslu íhaldsflokksins brezka".
Og enn stendur þar: „Brezka Ihalds-
flokknum fataðist eins og Framsókn-
arflokknum hér. Þvi fór sem fór“. —
Um fyrra atriðið er það að segja, að
þetta er í fyrsta og eina skiptið, sem
vér höfum heyrt Morgunblaðið minn-
ast á „nöldur" innan Sjálfstæðis-
flokksins í garð núverandi ríkisstjórn-
ar og er jafngott, að slíkir nöldrarar
fái orð í eyra hjá blaðinu. Þarna mun
átt við þá Sjálfstæðismenn, sem fella
sig misjafnlega vel við það t. d., að
sjá höfuðmálgagn hinnar „frjálsu
verzlunar", „einstaklingsframtaksins“
o. s. frv. hér á Islandi mæla hart fram
með samvinnu við kommúnista, (sem
Englendingar vilja þó auðsýnilega
hvorki sjá né heyra) þjóðnýtingu,
ríkisrekstri og öðru slíku og kalla
stefnuskrá flokks, sem beitir sér sér-
staklega fyrir slíkum ráðstöfunum —
og opinberum afskiptum ríkisvaldsins
af atvinnurekstri og framkvæmdum
einstaklinganna á glestum sviðum —
bæði „frjálslynda" og „án allra
öfga“, eins og Morgunblaðið telur nú
stefnu brezka Verkamannaflokksins
vera. — Um síðara atriðið má hins
vegar segja það til skýringar, að sam-
vinnuflokkurinn brezki — sem helzt
svarar til Framsóknarflokksins hér —
hefir nú um langt skeið haft náið og
öruggt samband og samstarf við Al-
þýðuflokkinn þar í landi og fylgdi
honum trúlega að málum í nýafstöðn-
um kosningum. Alexander ráðherra
er t. d. einn helzti forvígismaður
brezku kaupfélaganna og flokks
þeirra. Er ekki að efa það, að Morg-
unblaðið sé fært um að draga „réttar
ályktanir“ af þessu, ekki síður en öðr-
um lærdómum kosningaúrslitanna í
Bretlandi, eftir að því hefir verið bent
á þessar staðreyndir.
(Framhald á 5. síðu).
Silkisokkar í glösum!
Nýjasta tízka á sviði sokkaframleiðslunnar er
mjög merkileg, því að hér er alls ekki um að ræða
sokka, eins og við þekkjum þá, heldur vökva,
hinn svoneinda leggja-farða (leg-make-up).
Það eru Améríkumenn, sem hafa byrjað fram-
leiðslu á þessu, og eru slíkir ,,silkisokkar“ mikið
notaðir þar í landi.
Farðinn er í glösum, sem stendur á: „hristist
áður en brúkað er“, ásamt fleirum fyrirsögnum
um notkun.
Baðmúllarhnoðri eða svampur er notaður til
þess að maka leggi'na í þessu, en það verður að
gerast vel, svo að ,,sokkarnir“ verði ekki flekk-
óttir. Farðinn verður þurr á skammri stundu, og
er þá strokið ylir með þurrum lÖfanum eða mjúk-
um klút.
Þessir „sokkar" eru töluvert misjafnlega end-
ingargóðir. — Sumir endast 3 daga, aðrir skemur
og enn aðrir lengur. — Sumir þola vatn, þannig,
að (ihætt, er að lara í sund, og láta þá sólina
þurrka sig á eftir.
Eins og að líkum lætur eru „sokkar“ þessir litl-
ar skjólflíkur, enda einungis notaðir á heitum
sumardögum.
Ekki hefi eg enn orðið vör við þessa umræddu
„silkisokka” í íslenskum verzlunum, en þeirra
verður eflaust ekki langt að bíða.
P.
★
Snotur kvöld-
klæðnaður. Jakk-
inn er prjónaður
en pilsið er úr
þunnu, svörtu ull-
arefni.
★ ,
SKIRNAR-DUKUR.
Eg heyrði eitt sinn getið um konu, sem saum-
aði afar sérkennilegan dúk.
Dúkurinn sjálfur var, í.raun réttri, ákaflega
alþýðlegur og blátt áfrani — hvítur lín-dúkur.
Þegar fyrsta barn þessarar konu var skírt,
breiddi hún dúkinn á borð. Prestinum, skírnar-
vottunum og öðrum viðstoddum var þá fenginn
blýantur í hönd, og það látið skrifa nöfn sín skýr-
um stöfum á dúkinn. Þetta var gert óreglulega,
þannig, að sumir rituðu í þetta hornið og aðrir í
hitt. '
Konan þakkaði fyrir, og síðar, er tími gafst
henni, saumaði hún nafn hins nýskírða barns
síns í dúkinn miðjan ásamt mánaðardegi og ár-
tali, og saumaði síðan ofan í hin rituðu nöfn
kunningja sinna. — Dúkinn átti barnið að eiga
til minja.
Þetta fannst mér svo smellin hugmynd, að eg
mátti til með að segja ykkur frá henni.
P.
★
Það er hollt að liafa fataskipti undir svefn, sofa
í öðrum fötum en verið er í á daginn. Til þess
eru náttkjólar eða náttföt.
Sokkar eru orðnir jafn óhreinir eftir.l dag og
skyrta eftir 3 eða nærföt eftir 8!
★
»'
Skreytir þú vængi fuglsins með
gulli, mun hann aldrei framar
svífa með skýjunum.
Tagore,