Dagur - 29.11.1945, Qupperneq 8
Fimmtud. 29. nóv. 1945
8
Úr bæ og byggð
□ RÚN.: 59451257. = 2.
HULD 594511307
I. O. O. F. 127113081/2 - 9 = 0
Kirkjan: Messað á Akureyri n. k.
sunnudag kl. 2 e. h. (Aðventa. Ferm-
ingarbörn beðin að mæta.)
Hjúktunarfél. „Hjálpin" heldur
skemmtisamkomu í þinghúsi Saur-
bæjarhreps laugardaginn 1. des. n.k.
og hefst kl. 9.30 e. h. Til skemmtun-
ar verður: Hlutavelta og dans.
Gjafir til Nýja Sjúkrahússins: Frá
N. N. kr. 300.00. — I. B. kr. 100.00.
Með þökkum móttekið. Guðm. Karl
Pétursson.
Kosningaskrifstofa Framsóknarfl.
er í afgreiðslu Dags, Hafnarstræti 87,
sími 166. — Fulltrúi flokksins til við-
tals þar daglega frá kl. 4—6.30 síðd.
Flokksmenn góðfúslega beðnir að
hafa tal af skrifstofunni.
Hirm 15. þ. m. sæmdi forseti Is-
lands Friðrik J. Rafnar vígslubiskup
stórriddarakrossi hinnar íslenzku
fálkaorðu.
Dansleikur. Kvenfél. Framtíðin
hefir opinberan dansleik í Samkomu-
húsi bæjarins laugard. 1. des. næstk.
Hefst kl. 10 e. h. — Fjögra manna
hljómsveit leikur. — Aðgöngumiðar
seldir á sama stað frá kl. 5—7 á laug-
ardag og eftir kl.‘ 8. Ágóðinn rennur
til jólaglaðnings gamalmenna.
Sjötíu ára afmæli Búnaðarfélags
Hrafnagilshrepps var hátíðlegt hald-
ið með samkomu að Hrafnagili sl.
laugardagskvöld. Fjölmennt var, og
var skemmt með ræðuhöldum og
söng og að lokum var dans stiginn til
kl. 5 að morgni. Samkoman fór vel
fram og voru samkomugestir hinir
ánægðustu.
Barnastúkan Sakleysið. Fundur á
sunnud. kl. 1 e. h. á venjulegum stað.
Leiknefnd skemmtir. Fjölmennið.
Frá starfinu i Zion. Næstkomandi
sunnudag, kl. 8.30 síðd. flytur Ólafur
Olafsson erindi um síra Jón Jónsson
lærða í Möðrufelli. Allir velkomnir.
Kristniboðsfélagið.
Leiðrétting. A 5. síðu blaðsins, í
grein B. Stef. um Einar Árnason á
Eyrarlandi, hefir orðið sú leiðinlega
prentvilla, að Margrét, kona Einars,
er nefnd Einarsdóttir, á að vera Ei-
ríksdóttir. Leiðréttist þetta hér með.
Konur í Húsmæðraskólafélagi Ak-
ureyrar og aðrar, sem ætla að gefa
muni á bazar félagsins, eru vinsam-
lega beðnar að koma þeim í einhvern
eftirtalinna staða: Aðalstræti 80,
Munkaþverárstræti 9, Oddeyrargötu
24, Brekkugfötu 43, Fjólugötu 1 eða
Skipagötu 4, efstu hæð, fyrir næstk.
mánaðamót.
Aheit á Strandarkirkju: Frá X. kr.
25.00.
Iþróttaþáttur o. fl. bíður næsta
blaðs.
«iiii iiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiniiiiiminiiiiiiiiiiMiiiiiiiii.uk
NÝJA-BÍÓ
I sýnir í kvöld kl. 9:
I Fyrir föðurlandið !
(Flight for freedom)
i með Rosalind Russel, Fred I
| Mac Murray og Herbert \
\ Marshall í aðalhlutverkum. i
*11 'iiiiimmiiiiiimimmimmmiiimmmmimmmmimimmmimmimimm*
Skrautritum
aðeins á bækur, sem keyptar
eru hjá okkur.
Bókabúð Akureyrar.
TAPAST HEFIR
grábröndóttur köttiir (högni),
hvítur á bringu og fótum. —
Skilist gegn fundarlaunum í
Aðalstræti 8, sími 412.
JL
AGUR
Ljósgrár vetrarfrakki,
nýr, til sölu og sýnis á
Saumastofu Gefjunar.
Herstöðvar í Norður-
Evrópu.
(Framhald af 1. síðu).
ríkjanna og Rússlands, þar sem
togast er á um hernaðarlegt ör-
yggi þessara stórvelda í norðaust-
urhorni Evrópu, og er einn þátt-
ur í tafli stórveldanna að ná sem
beztri aðstöðu um hnöttinn al 1-
an. Hermt er, að Bandaríkja-
stjórn hafi í septembermánuði
sl. krafizt réttiuda til þess að
koma á fót flota- og flugstöðvum
á íslandi, og skylcli þetta vera
framlag Islands til sameinuðu
þjóðánna." Síðan er greint frá
því hvaða stöðvar sé hér um að
ræða. Síðan segir:
,,Á meðan íslenzka stjórnin
hikandi hugleiddi þessa tillögu,
lét Moskva í veðri vaka (more
than hinted) að Rússar kynnu að
telja það nauðsynlcgt — einnig í
þágu sameinuðu þjóðanna — að
fara fram á bækistöðvar á hinum
eyðilegu, norsku Spitzbergen-
eyjum.
Veðurstöðvar.
Áhugi Rússa fyrir eyjunum er
ekki nýtilkominn. Rússar liafa
átt þar kolanámur og rússneskir
verkamenn störfuðu þar um
hríð. Hvers konar flug- og flota-
stöðvar væri hægt að stofnsetja.á
Spitzbergen, er mál út af fyrir
sig, en eyjarnar eru að minnsta
kosti mikilsvirði sém veðurat-
hugunarstöð fyrir stór haf- og
landssvæði á þessum hjara.“
Síðan segir, að þótt Bandarík-
in hafi virtzt vera að flytja her
sinn á brott frá íslandi, hafi
stjórnin þó, eftir að hafa ráðgast
við Breta, sent íslandi varlega
orðaða nótu, þar sem farið var
fram á herstöðvar. Jafnframt
hafi Bretar verið fullvissaðir um,
að slíkar stöðvar mundu jafnan
verða til þess að auka örýggi
Stóra-Bretlands. ísland hafi aldr-
ei sagt Möndulveldunum stríð á
íiendur, jafnvel ekki þegar mik
il áherzla var á það lögð eftir
Jaltafundinn. í Reykjavík vai
álitið að slík vfirlvsing væri
hlægileg af hálfu vopnlausrar
þjóðar. Síðar var sagt, að stjórn-
arvöld í Washington hefðu talið
að herstöðvar gætu verið fram-
lag landsins til heimsfriðarins.
Þessari hugmynd var ekki tekið
með neinum fögnuði af íslend-
ingum, að því góðar heimildir
í Osló telja. íslendingar voru
ekki vissir um hvort betra væri,
að láta Bandaríkin ein, eða f’okk
þjóða, stjórna stöðvum' þessum,
en munu þó hallazt að hinum
fyrrnefndu frekar en samsteypu,
sem næði þá einnig til Rúss-
lands.
Viðhorf Rússa stöðvar samninga.
Samningaumleitunum var
haldið áfram og árangurinn um
það bil að verða heyrinkunnur,
þegar fréttist um áhuga Rússa
fyrir Spitzbergen. Síðan virðist
allt hafa staðið í stað, en enginn
— einkum Norðurlöndin —
er sérstaklega ánægður. Margar
lausafregnir hafa verið á kreiki
um að af völdum þessara tauga-
aflrauna ætli Rússar ekki ein-
ungis að verða kyrrir á Borgund-
arhólmi, heldur líka krefjast
stöðva á Gotlandi.....
Síðan er sagt að þessi mál öll
valdi áhyggjum á Norðurlönd-
um og mörgum finnist öryggis-
ráðið vera orðin skrítin stofnun,
ef nota eigi það til þess að dylja
það, að stórveldin taki herstöð-
var, þar sem þeim sýnist.
Þetta eru aðalatriðin úr grein
N. Y. Times. Hvað er raunveru-
lega að gerast á bak við tjöldin?
Hvers vegna leggur stjórnin ekki
spilin á borðið? Hverjum er
leyndin í hag, ef satt er, að
Bandaríkin hafi lyrir sitt leyti,
samþykkt, að orðsendingar þær,
sem á milli hafa farið, væru birt-
ar? Þetta eru spurningar
sem menn brjóta heilann um og'
er sumum þeirra raunar ekki
sérlega vandsvarað.
Það tilkynnist ættingjum og vinum, að konan mín, LAUF-
EY JÓSEFSDÓTTIR, er andaðist aðfaranótt 21. þ. m., verð-
ur jarðsett að Möðruvöllum þriðjudaginn 4. des. kl. 12 á hád.
Ölvisgerði 26. nóvember 1945.
Páll Guðmundsson.
i SICÍÐ ABUXUR
karlm. og kvenna
Bakpokar
— Fokdreifar
(Framhald af 4. síðu).
spítalabygginguna í fjögur ár. Er
þarna dálaglega á málunum haldið,
því að Jakob var kosinn í spítala-
nefndina i marzmánuði sl. eftir að
fjórðungsspítalahugmyndin hafði loks
sigrað á Alþingi þá skömmu áður. Þar
með var kleyft orðið að hefja fram-
kvæmdir hér í þeim anda, sem nú er
byrjað á, og velja spítalanum stað,
sem hæfði þeim breyttu viðhorfum
er þá sköpuðust. Þegar þetta er lagt
við hliðina á afrekum Svavars í þessu
máli, sem teljast, eftir nákvæma at-
hugun, vera eitt greinarkorn í Islend-
ingi, verður óskiljanlegt að hann
skuli ætla bæjarbúa svo blinda, að
þeir vilji skipta á honum og Jakob
Frímannssyni, sem hann lýsir sem al-
veg óvenjulega og nærri yfirnáttúr-
lega áhrifamiklum manni.
Frumleg tillaga.
gV. G. telur að nota beri gömlu spí-
talabygginguna fyrir elliheimili.
Þetta er nýstárlega tillaga og höfum
vér ekki heyrt hennar getið fyrr.
Virðist mega af því ráða, að Sv. G.
eigi einu áhugamálinu fleira en áður
var vitað. Rétt er þó að benda hon-
um á það, að fráleitt munu Fram-
sóknarmenn fylgja honum í þessu
máli og ekki er öldungis víst, að
áhugamenn og konur bæjarfélagsins
um þetta mál, fyllist neinni sérstakri
hrifningu yfir þessari hugkvæmni
bankastjórans;
SPEGLAR
nýkomnir
Vöruhásið hl
Brauns VerzEun
Páll Sigurgeirsson.
Tilbúin
Sængurver
Koddaver
Lök
Brauns Verzlun
Páll Sigurgeirsson
mjög vönduð
Verzlunin Eyjafjörður h.f.
TVÖ HERBERGI,
ásamt ’igangi að eldhúsi ef
óskað ei, til leigu í Glerár-
þorpi. Upplýs. í benzsínaf-
greiðslu KEA.
Á SÍÐASTLIÐNU VORI
tapaðist rauður hestur, grá-
leitur í tagl og fax. Mark:
heilrifað hægra, sneitt aftan
vinstra (ógreinil.). Gæfur,
ójárnaður, 6 vetra. — Þeir,
sem hafa orðið hestsins var-
ir, vinsaml. geri mér aðvart.
Tryggvi Haraldsson,
Hafnarstræti 66, Akureyri.
FÖT, SEM NÝ,
á 17 ára dreng, til sölu með
tækifærisverði í Sniðgötu 1
(niðri).
Margar jólabækurnar eru komnar
Þjóðsögur Ólafs Davíðssonar, 3 bindi, ób. 165.00, rexin 225.00
Ritsafn Jóns Trausta, 7 bindi, ób. 333.00, skinnb. 550.00
Sjósókn, endurm. Erl. Björnss., ób. 60.00, rexin 80.00, skinnb. 100.00
Völuspá fornritanna, E. Kerulf, ób. 40.00, shirtb. 50.00, skinnb. 80.00
Ljóðmæli Jónasar Hallgr., skrautútgáfa, skinnb. 310.00
Vídalínspostilla, skinnb. 140.00
Brennu-Njálssaga, með myndum, ób. 120.00, shirt. 133.00, alsk. 270.00
Ármann á Alþingi, ób. 96.00, skinnb. 162.00
Ritsafn Jóns Thoroddsens, skinnb. 115.00
Vor um alla veröld, Nordahl Grieg, ób. 30.00, shirt. 42.00
LJrvalsljóð, Steph. G. Steph., alskinn 25.00
Island í myndum, rexin 50.00
íslenzk-dönsk orðabók Sigfúsar Blöndals, alskinn 750.00
Afmælisdagabók með stjörnuspám, rexin 33.00
Afmælisdagar með vísum, alskinn 50.00
Bóndinn í Kreml, ævisaga Stalins
Heimskringla Snorra Sturlusonar, ób. 150.00, shirt. 180.00, alsk. 270.00
Alþingishátíðin, ib. 120.00
Þúsund og ein nótt, I., II., III. bindi
Símon í Norðurhlíð, e. Guðrúnu Lárusdóttur, ób. 32.00, rexin 43.00
Margrét Smiðsdóttir, ób. 30.00, shirt. 42.00
íslenzkar þjóðsögur og ævintýri, E. Ól. Sveinss., ób. 65.00, sk.b. 105.00
Drekakyn, e. Pearl S. Buck, ób. 35.00, rexin 50.00
Bertel Thorvaldsen, ævisaga, ób. 75.00, skinnb. 105.00
Undur veraldar
Sálin hans Jóns míns, Davíð Stefánsson, ób. 18.00
í óbyggðum Austur-Grænlands, ób. 20.00, ib. 28.00
Norðmenn héldu heim, ób. 18.00
Kona manns, ób. 18.00
Æskuævintýri Tómasar Jefferssonar Bandaríkjaforseta, ib. 26.00
Tveir hjúkrunarnemar, ib. 22.00; Pollyana, ib. 28.00
Órabelgur, ób. 16.00, ib. 20.00; Keli og Sammi, ib. 28.00
Hjartabani, ib. 20.00; Undraflugvélin, ib. 11.00
Klói, ib. 27.00; Sumarleyfi Ingibjargar, ib. 14.00
Litla músin og stóra músin,ib. 12.00; EskimóadrengurinnKaju,ib.20.00
Ritsafn Ólafar frá Hlöðum, ób. 30.00, skinnb. 88.00
Þyrnar, Þorst. Erl., ób. 65.00, skinnb. 105.00, alskinn 120.00
Kvæði Bjarna Thorarensen, alskinn 45.00
Fífulogar, e. Erlu, shirt. 28.00, skinnb. 45.00
Ný ljóð, eftir Guðfinnu frá Hömrum, ób. 25.00
Sálmabókin, ib. 35.00 og 40.00
Sendum gegn póstki öfu um allt land.
Bókabúð Akureyrar 105.