Dagur - 06.12.1945, Blaðsíða 2

Dagur - 06.12.1945, Blaðsíða 2
2 DAGUR Fimmtudaginn 6. desember 1945 Frá Akureyri. I fimleikahúsi Akmeyrar er nú starfsemin í fullum gangi. — Þar er byrjað kl. 8.40 og lialdið áfram — tafalítið — til kl. 10 á kvöldin. Barnaskólinn, Gagn- fræðaskólinn og Húsmæðraskól- inn hafa þar tíma á daginn. Síð- an taka við liópar í badminton, — sem er skemmtileg íþrótt og mörgum aðgengileg, en nokkuð dýr. Barnaskóladrengir í fi. og 7. bekk liafa glímuæf. einu sinni í viku. Á kvöldin liafa íþróttafél. sína tíma: fiml. karla og kvenna, og handknattleik í fleiri flokk- um. Eru þar stundum háðir skarpir kappleikir og skemmti- legir, t. d. fyrra mánud. piltar úr G. A. móti b-liði Þórs. Vann G. A. með 22 : 19 — svo að sjá má, að eitthvað hefir nú verið að- hafst. Þá eru sameiginlegir tímar með K. A. og Þór í frjálsum íþróttum, glímu og knattspyrnu. Á fimmtud. eru æfingar (Þór) í þjóðdönsum og vikivökum, helzt með álfadans fyrir augum — þeg- ar meira dimmir skemmdegið. Til fyrirmyndar má telja að stúlkur frá einni saumastofu bæjarins hafa samið um að fá fimleikakennslu í húsinu einn tíma í viku og eru byrjaðar fyrir nokkru. Sömuleiðis hafa kennar- ar frá G. A., I. A. og B. A. sam- einað sig um einn tíma í viku — til undirbúnings næsta kappleik, segja sumir!! „Old boys“-flokkur tók til starfa sl. þriðjudag. Um 500 manns alls mæta til æfinga í húsinu suma daga. En það er enn rúm fyrir fleiri í mörgum flokkum. ★ Skátarnir á Akureyri og víðar liafa eitt og annað fyrir stafni: sín próf að leysa við steikarpönn- ur, erfiða hnúta og fánameðferð, framkvæmdir við húsbyggingar, smáföndur o. fl. o. fl. Marga stund afla þeirsjálfumséránægju og gleði við vel unnið starf,'sem ella kynni að fara til ónýtis eða jafnvel ills. Útilegur skátanna og ferðalög venja við frelsi og' gleði, sem þó fylgir rík ábyrgð jafnan. Heill stefnu þeirra! — Hér fylgir smásögn um nýunnið afrek skátanna á Akureyri. H já skátum er til nokkurs kon- ar hæfnispróf í því livort maður er fær um að taka þátt í löngum gönguferðalögum eða ekki. Öll- um skátum er frjálst að reyna vfð prófin, en enginn skyldugur. Prófraunir eru þessar: Skáti yngri en 13 ára gangi 40 km. og mest 50 km. Skálti yngri en 14 ára gangi minnst 40 km. og mest 60 krn. Skáti yngri en 16 ára gangi minnst 50 km. og mest 70 km. Skáti yngri en 18 ára gangi minnst 60 krn. og mest 80 km. Skáti yngri en 18 ára gangi minnst 70 km. og mest 100 km. Hámarkstími er 24 klst. og miðast við greiðfært land. Sunnudaginn 22. nóv. luku 10 skátar prófi í að ganga 50 km. með léttan ferðaútbúngð á bak- inu. Voru þetta drengir á aldrin- um 12—15 ára, en einn fullorð- inn skáti fór með þeim til eftir- lits. Gengið var sem leið liggur fram að Kaupangi og síðan fram Eyjafjörð að austan, fram að Möðruvöllum. Þar var farið vestur yfir ána og síðan gengið eftir þjóðveginum til Akureyrar. Drengirnir luku göngunni á 10 tímum og komu heim mátu- lega þreyttir og harðánægðir vegna þess að þeir höfðu fram- kvæmt áætlun sína og fundið þróttinn í sjálfum sér um leið og þeir skoðuðu fagurt hérað. En j)ó Jressarar gönguferðar sé getið hér, er það engan veginn nýlunda að skátar leggi land undir fót, heldur eru ferðalög og útilíf sterkur þáttur í félagslífi þeirra. Á síðastliðinu sumri gengu t. d. all fjölmennir skáta- liópar á Vindheimajökul, Súlur, Vaðlaheiði og fjöllin beggja megin Ljósavatnsskarðs auk þess sem eldri skátarnir fóru lengri ferðalög. ★ Frá Siglufirði. í blaðinu „Neista“ á Siglufirði 22. jr. m. er sagt frá heimsókn Magna í Höfðahverfi til Siglu- fjarðar þá um sl. helgi og kapp- leika þeirra í knattspyrnu við K. S. Kepptu félögin í ágætu veðri á laugardag, 17. þ. m. Var leikur þeirra skarpur og gérð mörg hættuleg upphlaup. Talið í blaðinu að liðin hafi verið nokkuð ámóta en niðurstaða varð þó sú, að K. S. vann með 2 : 0. Á sunnud. fór fram annar leik- ur. Vindur var nokkur, og allan leikinn í hag Magna-mönnum. Sókn K. S. var ekki svo heilsteypt sem daginn áður, en Magni víst í essinu sínu. Skoruðu þeir 3 mörk í l'yrri hálfleik en K. S. ekkert. Þrátt fyrir ákveðna við- leitni beggja aðila í síðari hálf- leik varð ekkert mark skorað. Lauk Jrví leik með sigri Magna með 3 : 0 mörkum. Dómari var Helgi Sveinsson. — Leikirnir fóru vel fram. Áhorfendur voni margir og virtust skennnta sér ágætlega. — Magnamenn dvöldu á Siglufirði í boði K. S. og láta mjög vel yfir viðtökunum. Eins lætur sá, er ritar í „Neista“ mjög vel yfir að hægt var að fá þessa heiinsókn og keppni og vill meira af slíku Gott er það. Albert Kristjánsson bóndi að Páfastöðum í Skaga- firði varð áttræður 28. nóvem- ber. Hann er eyfirzkrar ættar, fæddur að Kotá við Akureyri, en alinn að mestu upp í Svarfaðar- dal. Hann er einn þeirra manna, sem brotizt hafa úr fátækt og umkomuleysi til manndóms og þroska. Hann hefir búið að Páfa- stöðum allan sinn búskap, yfir hálfa öld, stórbætt jörð sína og húsað prýðilega ,svo að þar er nú eitt hið myndarlegasta heimili í sveit. Albert Kristjánsson hefir jafnan sýnt mikla framsækni og félagslund í málefnum sveitar og héraðs, kjörinn til fjölda trúnað- arstarfa þar, enda talinn meðal fyrirmanna í bændastétt Skaga- f jarðar. Það er merkilegt um A. K., að hann mun einn hinn stjörnu- lróðasti maður meðal ólærðra manna í þeirri grein, og á fjölda bóka um þau efni. A. K. hefir verið sæmdur ridd- arakrossi liinnar ísl. E"álkaorðu og einnig kjörinn heiðursfélagi í Kaupfélagi Skagfirðinga. Fróðleéur bæklingur. Stjórn Kaup- félags Siglfirðinga hefir gefið út í bæklingsformi réttarskjölin í kaup- félagsmálinu þar. Er þar að finna markverðan fróðleik um stjórn kommúnista á félaginu og félagsmála- þroska forráðamanna þeirra. Bækl- ingurinn fæst í Bókaverzl. Eddu og á afgr. Dags. Bók ársins 1945 ÓDÁÐAHRAUN eftir ÓLAF JÓNSSON framkvæmdarstj. Ræktunarfél. Norðurlands með um 300 myndum er komin i bókaverzlanir. Útsýn norðaustur yfir Vonarskarð Bárðarbunga í baksýn. Bak við staka fellið á miðri myndinni eru vatnaskil. Um svæðið næst á myndinni kvíslast ylvolgir lækir. Meðfram þeim er talsverður gróður.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.