Dagur - 06.12.1945, Side 7

Dagur - 06.12.1945, Side 7
Fimmtudaginn 6. desember 1945 DA6UR 7 Vanilludropar Möndludropar Krademommudropar Sætar möndlur Súccat Hjartarsalt Vanillutöílur Sultur Eggjaduft Kardemommur, heilar og steyttar Síróp Púðursykur Sveskjur Þurrkuð Epli Þurrkaðar Ferskjur Kaupfélag Eyfirðinga Nýlenduvörudeild og útibú Kuldafakkar mell gœrafóðrl Sklnnstakkar Stormbldssur Skinnhúfur Leistar og Vettlingar Kaupfjelag Eyf irðinga Vefnaðarvörudeild. SKÍÐI Amerísk hickory-skíði með og án stálkanta Splitkein-skíði Skíðabönd (Kandahar) Skíðaáburður Kaupfélag Eyfirðinga Járn- og glervörudeild. Jiffy Floor Cleaner £r. 1.25 pakkinn % Leysist upp í 9 ltr. al lieitu vatni. Hreinsar litu og alls konar ó- hreinindi af gólfdúkum CHMBKHMHKHKHWHKHKHWHWKKHKHWHMHKHMHMHMKMWKHKHMHKHWHKHK Notið Sjafnarvörur o« fleiru. / Kaupfélag Eyfirðinga. Nýlenduvörudeild og útibú. Strásykurbirgðir eru mjög takmarkaðar. Dragið ekki að kaupa út á skömmtunar- miðana! Kaupfélag Eyfirðinga Nýlenduvörud. og útibú. Amerísk Kerfi nýkomin, margir litir Kaupfélag Eyfirðinga Nýlenduvörudeild og útibú. KHKHKHKHKHKHKHKHKBKBKHKHKf Saumur Þönglabakkaprestakall. (Framhald). Áriö 1703 lór fram fyrsta reglulegt manntal hér á landi, þá voru 38 menn í Þönglabakkasókn, 36 á Flateyjardal og 5 í Flatey. Árið 1712 fer fram jarðamat þeirra Árna Magnússonar og Páls Vídalíns í þessum sveitum, í jarðamatsbók þeirra er utaldir þessir bœir, sumir þá í eyði, flestir vegna „plágunnar", sem mun vera stóraból- an, sem gekk hér á landi 1707. í Þönglabakkasókn: Keflavík, Botn, Hóll, Þönglabakki, Háagerði, Brim- nes, Eyri, Brekka, Þverá, Tindriða- staðir, Kussungsstaðir, Gil, Jórunnar- staðir, Kúsveinsstaðir, Kaðalstaðir, Amórsstaðir, um síðasta býlið er það tekið fram að þar hafi aðeins verið búið í fá ár og muni ekki Jyyggjast aftur og hefir það rætst. Á Flateyjar- dal voru þessi býli: Vík, Jökulsá, Brettingsstaðir, Brettingsstaðasel, Hof og Eyri. A þessum bæjum var öllum búið 1703 þá manntalið var tekið, en 1712 er Brettingsstaðasel í eyði. I Flatey voru þá aðeins 4 býli: Neðribær, Útibær, Uppbær og Kross- hús, auk þess er nefnt fornt eyðibýli, Arnargerði, en engar sagnir séu til um byggð á því. í Flatey hafa á 18., 19. og 20. öld bætst við nokkur býli, eru þau þessi: Nýibær, fyrst getið ár- ið 1785, eru þar þá hjón, Björn Björnsson og Halldóra Gunnlaugs- dóttir, Gyðugerði 1852, þá búa þar Davíð Jónsson og Gyða Finnboga- dóttir., Helgabær 1858, byggður af Itelga Helgasyni og Þuríði Guðna- dóttur. Þessi bær lagðist í eyði, en á rústum hans byggði Jón Elíasson nýtt býli 1896 og kallaði Útgarða, stóð það til ársins 1933, en þá brann íbúð- arhúsið og var ekki byggt upp aftur. Næsta býli, sem byggt er í Flatey, er Bjarg, af Friðbirni Gíslasyni, árið 1904. Árið 1907 bætast við tvö býli í Flatey, Baldurshagi, byggður af Baldvin Friðfinnssyni og Miðgarður, byggður af Jóhanni Stefánssyni. 1912 byggði Guðni Jónsson nýtt býli og kallaði Garðshorn. Arið 1916 byggði Baldvin Friðfinnsson annað býli i Rlatey og nefndi Sæland, hafði hann þá selt Baldurshaga, en ekki stóð Sæ- land í það sinn nema i 5 ár, því að 1921 reif Baldvin býlið og flutti til Húsavíkur og reisti það þar, hefir hann byggt þar upp tvívegis og er hann einn duglegasti nýbýlasmiður þar um slóðir. Sæland var aftur byggt upp af Sigurði Jónssyni 1925. Þá byggði Árni Guðjónsson nýbýli í Flatey 1926 og nefndi það Sigtún. 1934 reisti Hinrik Sveinsson nýtt hús í Flatey, sem hann nefndi Sólvelli. Árið 1939 byggði Hólmgeir Árnason nýbýli í Flatey og kallaði Grund. Ár- ið 1941 byggði Tómas Kristjánsson nýbýli og nefndi það Sólbakka. 1942 hyggði Tómas Árnason nýtt býli í Flatey og nefndi það Knararberg. (Framhald). B. J. B. n ý k o m i n n Kaupfélag Eyfirðinga járn- og glervörudeild. «HKHKHKHKHKHKBKHKHKHKHKHK Happdrætti Háskólans Síðasti dráttur ársins 10 desember! Dregnir verðá 2009 vinningar fyrir kr. 746.000.00. Hæsti vinningur kr. 75.000.00. 1 vinningtír á kr. 25.000.00 1 vinningur á kr. 20.000.00 1 vinningur á kr. 10.000.00 2 vinningar á kr.- 5.000.00 10 vinningar á kr. 2.000.00 70 vinningar á kr. 1.000.00 Nokkrir fjórðungsmiðar til sölu. Endurnýjið fljótt!

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.