Dagur - 31.01.1946, Síða 1
Aðalfundur Akureyrar-
deildar KEA
1685 Akureyringar í kaup-
félaginu.
Aðalfundur Akureyrardeildar
KEA var haldinn í Samkomu-
húsi bæjarins sl. þriðjudags-
kvöld. Fundurinn var mjög fjöl-
sóttur.
Deildarstjórinn, Sigtr. Þor-
steinsson, gaf yfirlit um hag
deildarinnar. Sjóður hennar
nemur nú uni 24 þús. kr. Tala
deildarmanna óx mjög ört á ár-
inu. 228 nýir menn gengu í fé-
lagið en 59 úr jrví vegna dauðs-
lalla, hrottflutnings o. s. frv.
Hefir tala deildarmanna á árinu
hækkað um 169 og eru nú 1685
Akureyringar í félaginu.
Jakob Frímannsson, fram-
kvæmdastjóri KEA, flutti
skýrslu frá Félagsráðsfúndi og
greindi frá hag félagsins, að því
leyti, sem nú er kunnugt, en
reikningsuppgjöri fyrir sl. ár er
ekki lokið. Einnig drap hann á
framkvæmdir þær, sem félagið
liefir nú með höndum og þær,
semj ráðist verður í á þessu ári.
Nefndi hann m. a. þátttöku fé-
lagsins í véla- og viðgerðaiðnað-
inum, fyrirlmgaða bílaverzlun,
þátttöku í skipakaupum og
skipaleigum samvinnufélaganna,
byggingu kjötbúðar og fiskbúð-
ar á Oddeyri o. fl.
Nokkrar umræður urðu á
fundinum um heimsendingu
mjólkui. Jónas Kristjánsson,
Mjólkursamlagsstjóri, sk.ýrði frá
því, að Samlagið mundi hefja
heimsendingu mjólkurinnar
strax og hægt væri að fá flöskur
og tappa.
Sigtr. Þorsteinsson var endur-
kjörinn deildarstjóri og Snorri
Sigfússon var endurkjörinn í Fé-
lagsráð. Þá fór framl kosning 88
fulltrúa á aðalfund félagsins.
Að lokum var sýnd ensk kvik-
ntynd um upphaf samvinnu-
hreyfingarinnar þar í landi.
Furðulegur fréttaflutn-
ingur Alþýðumannsins
,Alþýðumaðurinn“, sem út
kom í gær, miklast að vonum yf-
ir sigri flokksins í bæjarstjórnar-
kosningunum og fer ekki illa á
því, en hitt er furðulegt, að blað-
ið skuli grípa á lofti slúðursögur
þær, sem íhaldsmenn breiða nú
út um bæinn um ,,kosningasvik“
Framsóknarrúanna. Tilgangur
íhaldsins með þessu er auðsær:
Að breiða yfir skömm flokksins
vegna útstrikana á efsta manni
D-listans. Tilgangur „Alþýðu-
mannsins" með þessum frétta-
flutningi er hins vegar all-tor-
skilinn. Blaðið feitletrar fyrir-
sögn um „hroðalega kosningu"
hjá Framsóknarfl. og talar um
„stórfelld kosningasvik". Allt er
Jretta slúður og ósannindi, svo
sem úrslit kosninganna, er birt
eru í blaðinu í dag, sýna.
Engin breyting varð á röð að-
almanna og varamanna á B-list-
anum, og þótt srriávægilegar til-
færslur væru gerðar, námu þær
ekki meiru en því, að efsti mað-
ur listans hlaut 750 atkv., en
annar maður 712 atkv.
Á Sjálfstæðislistanum féll 1.
maður í 3. sæti, og er það í fyllsta
máta óheiðarlegur málflutning-
ur að bera útkomu B-listans
saman við þau ósköp.
Framsókiiarmenn unnu glæsilegan kosninga-
sigur í sjálfu liöfuðvígi stjórnarflokkanna
Alþýðuflokkurinn sigraði í bæjar-
stjórnarkosningunum á Akureyri
Fylgi flokksins stendur traustum fótum
í flestum kaupstöðum og kauptúnum
Kommúnistar og jafnaðarmenn töpuðu fylgi í Rvík
Sjálfstæðisflokkurinn tapaði á annað
hundrað atkvæðum og er nú ekki lengur
stærsti flokkur bæjarins
Framsóknarmenn fengu þrjá fulltrúa kjörna; .töp-
uðu 28 atkvæðum frá síðustu kosningum
Klukkan rösklega þrjú, aðfara- iistu kosningum, en heldur 3
nótt s. 1. mánudags var lokið við fulltrúum í bæjarstjórninni, svo
að telja atkvæði kjósenda í bæj- sem atkvæðamagn hans 1942 og
arstjórnarkosningunum hér. Á
kjörskrá vom alls 3789 kjósend-
ur og greiddu 3124 þeirra atkv.
Flokkarnir skiptu nteð sér
3085 atkvæðum, en 16 seðlar
voru ógildir og 23 auðir.
Úrslitin munu yfirleitt ekki
hafa komið mönnum á óvart
nem'a að því leyti sem Alþýðu-
Iflokkurinn fékk mun hærri at-
kvæðatölu en búizt var við og 2
fulltrúa kjörna. Hlaut hann þar
með fulltrúann, sem barizt var
um og Framsóknarmenn höfðu
áður, en svo sem kunnugt er
fengu Framsóknarmenn 4 full-
trúa kjörna 1942 af því að Sjálf-
stæðismenn gengu Jrá klofnir til
kosninga og eyðilögðu listar
þeirra mikið atkvæðamagn. Má
segja, að Alþýðuflokkurinn sé
betur að Jressum fulltrúa kom-
inn en báðir hinir flokkarnir,
serhj börðust við Framsóknar-
menn um Jretta sæti. Sjálfstæðis-
flokkurinn og Skjaldborg fengu
hina hraklegustu útreið. í kosn-
ingunni. Flokkarnir töpuðu 104
atkv. frá síðustu kosningum og
eru nú ekki lenguy stærsti flokk-
ur bæjarins. Þar við bætist, að
svo megn óánægja og ósani-
komulag var ríkjandi innan
flokksins, að foringjalið Skjald-
borgar og Sjálfstæðis strikaði
andstæðingana út á víxl með
j>eim afleiðingum, að Indriði
Helgason, efsti maður D-listans,
er nú 3. fulltrúi flokksins í bæj-
arstjórninni og munaði mjóu að
hann félli alveg, en Svavar Guð-
mundsson situr á tróni efsta
mjanns.
Framsóknarílokkurinn má eft-
ir atvikum una úrslitunum vel.
Hann hefir, þrátt fyrir hatraman
áróður og nýsköpunarskrum
hinna flokkanna, haldið -fylgi
sínu í sæmilegu horfi; hefir að
vísu tapað 28 atkvæðum frá síð-
nú réttlætir.
Uiu kommúniista er J>að að
segja ,að þeir rnunu hafa orðið
fyrir miklum vonbrigðum. Þeir
hafa að vísu aukið fylgi sitt í
hlutfalli við fjölgun kjósenda,
en ekki bætt við sig fulltrúa í
bæjarstjórninni hér fremur en í
Reykjavík. Er sýnilega af þeim
mesti völlurinn og munu aliir
lýðræðissinnar fagna því.
Úrslitin urðu Jressi:
A-listi, Alþýðufl. 684 atkv. 2
fulltr. (272 atkv. 1 ftr. 1942).
B-listi, Framsóknarfl. 774 at-
kv. 3 fulltr. (802 atkv. 4 ftr.).
C-listi, Sósíalistafl. 819 atkv.
3 ftr. (608 3 ftr.).
D-listi, Sjálfstæðisfl. og Skjald-
byrginga 808 atkv. 3 fulltr. (912
atkv. 3 ftr.).
Átkvæðatölur bæjarfulltrú-
anna og varamannanna eru þess-
ar:
Af A-lista; Aðahnenn:
1. Friðjón Skarphéðinsson
682 19/22 atkv.
2. Steindór Steindórsson 645
13/22 atkv.
Varmenn:
Bragi Sigurjónsson 613 13/22.
B-listi. Aðalmenn:
1. Jakob Frímannsson 750
12/22.
2. Þorsteinn M. Jónsson 712
4/11.
3. Marteinn Sigurðsson 683
17/22.
Varamenn:
Guðm. Guðlaugss. 647 18/22.
Dr. Kristinn Guðmundsson
619 1/22.
C-listi. Aðalmenn:
1. Steingr. Aðalsteinsson 816
14/22.
2. Tryggvi Helgason 777
11/22.
3. Elísabet Firíksdóttir 740
12/22.
(Framhald á 8. síðu).
IJRSLIT bæjar- og sveitar-
stjórnarkosninganna, sem
fram fóru um land allt sl. sunnu-
dag, eru nú kunn orðin og hægt
að gera sér nokkrá grein fyrir
fylgi flokkanna í kaupstöðunum.
Mesta athygli vöktu óefað úr-
slitin í Reykjavík, þar sem Fram-
sóknarmenn unnu rnjög glæsi-
legan sigur með Jrví að auka
kjörfylgi sitt í höfuðstaðnunr —
höfuðvígi stjórnarflokkanna —
um nærri 71%, og fá fulltrúa
kjörinn í bæjarstjórnina, þrátt
fyrir hatramman áróður andstæð-
inganna og hrakspár. Gekk sá
áróður jafnvel svo langt, að einn
af frambjóðendum Sjálfstæðis-
manna í Reykjavík (og prófessor
við Háskóla íslands) líkti fram-
boði Framsóknarmanna í
Reykjavík við Jrað að nazistar
byðu sig franr til þings í Pól-
landi! Aðrar aðfarir voru eftir
þessu. Koirfmúnistar og jafnað-
armenn töpuðu fylgi í Reykja-
vi'k, miðað við aukningu at-
kvæðanragns frá kosningununr
1942, en Sjálfstæðismenn, sem
lréldu nreirihlutaaðstöðu sinni í
bæjarstjórninni, juku fylgi sitt
unr 23.5% miðað við kosning-
arnar 1942, en unr 1.5% ef rrrið-
að er við aukningu á kjörskrá.
Úrslitin urðu nánar tiltekið
þessi í Iröfuðstaðnum.
Reykjavík.
Aukning atkvæðamagns á
kjörskrá, miðað við kosnT 1942,
var 22%.
Alþýðuflokkur 3952 atkv. 2
fulltr. Aukning 19%.
Framsóknarflokkur 1615 atkv.
1 fulltr. Aukning 71%.
Sósíalistar 6946 atkv. 4 fulltr.
Aukning 16%.
Sjállstæðismenn 11833 atkv. 8
l’ulltr. Aukning 23.5%.
Eins og sjá má af Jressu hefir
fylgi kommúnista og jafnaðar-
nranna í höfuðstaðnum raun-
verulega hrakað, nriðað við fjölg-
un kjósenda síðan 1942, en fylgi
Franrsóknarnranna stórunr auk-
izt. Er þetta hin glæsilegasta út-
konra eftir allan hinn látlausa
áróður gegn Framsóknarflokkn-
um og allt skrunrið unr nýsköp-
unina.
Úrlist í öðrum kaupstöðum
urðu þessi:
Akiranes.
Álþýðuflokkur 317 atkv. 3 fulltr.
(312 atkv. 3 ftr. 1942).
Framsóknarflokkur 97 atkv. 1
fulltr. (115 atkv. 1 ftr.).
Sósíalistar 183 atkv. 1 fulltr. (Bauð
ekki fram 1942).
Sjálfstæðisflokkur 437 atkv. 4 full-
tr. (405 atkv. 5 ftr.).
Sjálfstæðisflokkurinn hefir tapað
meirihlutaaðstöðu sinni í bæjarstjórn
Akraness.
Hafnarfjörður.
Alþýðuflokkur 1186 atkv.. 5 fulltr.
(987 atkv. 5 ftr.).
Sjálfstæðisflokkur 773 atkv. 3 ftr.
(785 atkv. 4 ftr.).
Sósíalistar 278 atkv. 1 ftr. (Enginn
listi 1942, en þá fékk utanfl.listi 129
atkv. og 1 ftr.
ísafjörður.
Alþýðuflokkur 666 atkv. 4 fulltr.
(714 atkv. 5 ftr.).
Sjálfstæðisflokkur 535 atkv. 4 full-
tr. (378 atkv. 2 ftr.).
Sósíalistar 251 atkv. 1 fulltr. (Eng-
inn listi 1942, en óháðir hlutu þá 257
atkv. og 2 ftr.).
Alþýðuflokkurinn tapaði meiri-
hlutaaðstöðu sinni í ísafirði.
N eskaupstaður.
Alþýðuflokkur 134 atkv. 2 fulltr.
(152 atkv. 3 ftr.).
Framsóknarflokkur 87 atkv. 1 full-
tr. (87 atkv. 1 ftr.).
Sósíalistar 293 atkv. 5 fulltr. (178
atkv. 3 ftr.).
Sjálfstæðisflokkur 83 atkv. 1 fulltr.
(105 atkv. 2 ftr.).
Seyðisfjörður.
Alþýðuflokkur 56 atkv. 1 fulltr.
Sami AA-listi 62 atkv. 1 fulltr.
(119 atkv. 3 ftr.).
Framsóknarflokkur 74 atkv. 1 full-
tr. (77 atkv. 1 ftr.).
Sósíalistar 92 atkv. 2 ftr. (59 atkv.
1 ftr.).
Sjálfstæðisflokkur 153 atkv. 4 ftr.
(190 atkv. 4 ftr.).
Siglufjörður.
Alþýðuflokkur 473 atkv. 3 fulltr.
(Alþýðufl. og komm. 1942 698 atkv.
4 ftr.).
Framsóknarflokkur 142 atkv. 1 full-
tr. (286 atkv. 2 ftr.).
Sósíalistar 495 atkv. 3 fulltr. (Sjá
Alþýðufl.).
Sjálfstæðisflokkur 360 atkv. 2 fúll-
tr. (331 atkv. 2 ftr. Óháðir 157 atkv.
1 ftr.).
Vestmannaeyjar.
Alþýðuflokkur 375 atkv. 2 fulltr.
(200 atkv. 1 ftr.).
Framsóknarflokkur 157 atkv. eng-
inn ftr. (249 atkv. 1 ftr.).
Sósíalistar '572 atkv. 3 fulltr. (463
atkv. 2 ftr.).
Sjálfstæðisflokkur 726 atkv. 4 full-
tr. (839 atkv. 5 ftr.).
Ólafsfjörður.
Alþýðuflokkur 87 atkv. 1 fulltr.
Framsóknarflokkur 135 atkv. 2
fulltr.
(Framhald á 8. síðu).