Dagur - 14.02.1946, Qupperneq 1
Hvað gerðist á lokuðum
þingfundum í haust?
„Furðuleg tíðindi,“
segir Þjóðviljinn!
Margs verða hjúin vís þá
hjónin deila.
I»essi orð hafa sannast marg
sinnis í kosningahríð „Þjóð-
viljans" og „MorgunbÍaðsins“,
en þó nninu ekki öll kurl
komin til grafar enn. M. a.
upplýsir „Þjóðviljinn" liinn
1. febr. sl„ að „furðulegum
tíðindum" úr sölum Alþingis
frá þvlí í haust hafi verið hald-
ið leyndum íyrir þjóðinni. —
Þessar upplýsingar er að finna
í greinarstúf um hinn ný-
k j örna bæ jars t j órnarmeiri -
hluti Sjálfstæðisflokksins í
Rvík, er blaðið nefnir „áhöfn-
ina á galeiðunni“! Segist bl'að-
inu svo frá, er það er að ávarpa
einn bæjarfulltrúann (Gunn-
ar Thoroddsen):
Hann veit hvað gerðist
í sölum Alþingis í október og
nóvember. Honum er ljóst, að
hefði þjóðin fengið nákvæma
vitneskju af þeim furðulegu
tíðindum, sem áttu sér stað á
þessu tímabili, þá hefði dóm-
ur liennar yíir forystuliði
I: Sjálfstæðisf lokksins orðið
þyngri en nokkur getur gert
sér í hugarlund. Og hann ótt-
ast að fyrr en varir kunni að
reka að því, að hulunni verði
svipt burtu og forkólfar pen-
ingavaldsins standi afhjúpaðir
frammi fyrir alþjóð ....
Hann getur reitt sig á, að tíð-
indin í sölutn Alþingis í h'aust
verða á allra vitorði áður en
langt urfi líður. . . . “
Hvað er blaðið að tara
þarna? Þessar dylgjur um sam-
starfsflokkinn í ríkisstjórn-
inni gefa heldur ófagra hug-
mynd um heilindin í stjórnar-
starfinu og alvöru í öllum
„nýsköpunar“-fagurgalanum.
Eru kommúnistar að undir-
búa brottför sína úr ríkis-
stjórninni, — yfirgefa hið
sökkvandi skip stjórnarsam-
starfsins?
Áður en langt tim líður
;verður greint frá „lurðuleg-
um tiíðindum", segir „Þjóð-
viljinn“. Menn bíða og sjá
;;hvað setur.
Páll Bergsson
75 ára
Páll Bergsson, nú.til heimilis
í Helga magra stræti hér í bæ,
varð 75 ára þann 11. þ. m. Hann
fæddist á Atlastöðum í’Svarfaðar-
dal 11. f'ebr. 1871, og voru for-
eldrar lians Bergur Bergsson,
bóndi á Hæringsstöðum þar í
sveit, og kona .hans, Guðrún
Pálsdóttir. Páll Bergsson stund-
aði nám í Möðruvallaskóla og
tók ]rar burtfararpróf vorið 1893
eftir tveggja vetra nám. Var hann
jafnan efstur í sínum bekk vegna
ágætrar greindar og iðni við
námið. Síðar gerðist hann út-
gerðarmaður og kaupmaður í
Ólafsfirði 'frá 1897 til 1916 og
síðan í Hrísey til 1930. Hann var
hreppsnefndaroddviti í Ólafs-
firði frá 1898 til 1908 og hrepp-
GUR
XXIX. árg.
Akureyri, fimmtudaginn 14. febrúar 1946
9. tbl.
Útsvör í sælustað Sjálfstæðisfl. eru lilutfallslega
inikið hærri en liér í bæ
Dómur Hæstaréttar í Siglufjarðarmálinu fallinn.
Kommúnista-klíkan í stjórn Kaupfélags
Siglfirðinga dæmd í stórsektir fyrir af-
glöp sín og lögleysur
Dómttr Hæstaréttar í „Kaup-
félagsmálinu“ svonefnda var
kveðinn upp sl. mánudag. Stað-
festi Hæstiréttur í öllum atrið-
um hinn þunga dóm, sem
kommúnistaklíkan í stjórn í’é-
lagsins hlaut í undþrétti fyrir
allar hinar fáheyrðu lögleysur
sínar, fjársukk, ofbeldi og yfir-
gang, þann stutta tíma, sem hún
gat rázkað að eigin vild með mál-
efni félagsins og eigur, en niður-
stöður undirréttardómsins hafa
áður verið raktar all-ítarlega hér
í blaðinu. Auk þess gerði Hæsti-
réttur áfrýendum málsins, þeim
Þóroddi Guðmundssyni komm-
únistaþingmanni,
Athugasemd
í blaðinu „Alþýðumaðurinn",
sem kom. út í gær, er grein, sem
kallast: „Hví ekki sannleikann?"
í grein þessari er sagt, að það
hali verið munnlega um það
samið á milli hinna nýkjörnu
bæjarfulltrúa Alþýðuflokksins,
Framsóknarflokksins og Sosial-
istaflokksins, að Þorsteinn Stef-
ánsson yrði settur bæjarstjóri
fyrst um sinn, meðan leitað
væri eftir bæjarstjóraefni, sem
flokkarnir yrðu ásáttir um.
Er hér farið rangt með af
greinarhöfundi. Við höfðum
enga munnlega samninga gert
um þetta, en við höfðum lýst.
því yfir, að við myndum kjósa
þann bæjarstjóra, sem við teld-
um hæfastan í stöðuna af þeim,
sem völ væri á.
Akureyri, 13. febrúar 1946.
Þorsteinn M. Jónsson.
Jakob Frímannsson.
Marteinn Sigurðss,on.
stjóp þar frá 1910 til 1916.
Hann átti sæti í landsdómi og í
yfirfasteignámatsnefnd frá 1916
til 1935 og í fasteignamatsnefnd
frá 1938. Sýslunefndarmaður var
hann alls í 24 ár og hreppstjóri í
Hrísey frá 1927 til 1939. Hann
var stofnandi Bátaábyrgðarfélags
F.yfirðinga og formaður þess frá
1907 til 1916. Enn var hann for-
maður sparisjóðs í Hrísey frá
1917 til 1939.
Öll þéssi mörgu trúnaðarstörf
hefir Páll leyst af hendi á farsæl-
an hátt, og bera þau þess vott, að
sveitungar hans hafa jafnan haft
mikið traust á honum.
(Framhald á 8. síðu).
II,. að greiða núverandi stjórn-
armeðlimum K. F. S. 2000.00 kr.
í málskostnað fyrir Hæstarétti.
Forsendur þessa Hæstaréttar-
dóms eru mjög langar og ítarleg-
ar, og er þar skilmerkilega rakin
ofbeldis- og lögbrotasaga komm-
únista í kaupfélaginu. — Það er
fyrirfram vitað, að málgögn
kommúnista munu hvergi spara
ófrægingarnar og níðið um æðsta
dómstól þjóðarinnar í tilefni
dómkvaðningar þessarar, því að
ljóst er, að slíkir kumpánar kalla
það allt lög, sem þeir drýgja
sjálfir, en hitt ólög að dirfast að
rísa gegn vilja þeirra eða einka-
hagsmunum í nokkru efni, hvað
þá heldur að draga þá til ábyrgð-
ar fyrir athæfi sitt og dæma af-
hrot þeirra eftir ,,borgaralegum“
lögum.
Hafa hækkað röskar 7 milljónir króna á
þessu ári, en sjöfaldazt síðan fyrir stríð
------*-------
Framkvæmdir á vegum bæjarins þó miklum mun
minni hlutfallslega þar en hér
Merkur Norðlendingur
fimmtugur
Sveinbjörn Jónsson bygginga-
meistari, nú forstjóri og aðaleig-
andi Ofnasmiðjunnar h.f. í
Reykjavík, varð 50 ára sl. mánu-
dag. Er hann Eyfirðingúr að ætt
og uppruna og l jölmörgum Ak-
ureyringum að góðu kunnur eft-
ir langa veru og mikil störf hér
í bænum og nágrenninu á árum
áður. Sveinbjörn hefir nú um
skeið verið búsettur í Reykjavík
og haft þar margvísleg störf og
framkvæmdir með höndum. M.
a. átti hann mikinn þá11 í stofn-
un Rafhaverksmiðjunnar íHafn-
arfirði og hefir ávallt síðan átt
(Framhald á 8. síðu).
F.ins og menn mun reka minni
til héldu Sjálístæðismenn hér á
Akureyi i því mjög á lofti fyrir
bæ j arst j órnarkosn ingarnar, bæði
í blaði sínu og á mannfundum,
að glöggt mætti marka yfirburði
íhaldsstefnunnar á því, hversn
iniklu betur Reykjavíkurbæ sé
stjórnað af Sjálfstæðismeirihlut-
anurn þar en t. d. Akureyrarbæ,
þar sem! samvinnumenn séu vel
á veg komnir að leggja allt í
kalda kol með áhrifum sínum á
stjórn bæjarfélagsins á undan-
förnum árum. Ein höfuðrök-
semd þeirra í þessu e4'ni var sú,
að útsvör hér séu miklu hærri
tiltölulega en í „Paradís íhalds-
ins“, sjálfum höfuðstaðnum,
enda séu þau að því komin að
níða allan kjark úr „einkafram-
Vinnudeila í aðsigi?
Dagsbrún hefir birt skýrslu
um kaupkröfur í sambandi við
uppsögn samninga við atvinnu-
rekendur. Aðalkröfur félagsins
eru þessar: Grunnkaup almennr-
dagvinnu verði kr. 2.71
ar
takinu“ og brjóta allt athalnalíf
hér á bak aftur — nema starfsemi
Kaupfélags Eyfirðinga! Þessum
áróðri varð aðeins haldið fram í
krafti þeirrar staðreyndar, að
ekki fékkst gengið frá fjárhags-
áætlun Reykjavíkurbæjar fyrir
kosningarnar, en fráfarandi bæj-
arstjórn hér hafði sína áætlun
hins vegar þegar tilbúna fyrir
næsta ár, og var þar vitanlega
um verulega hækkun útsvara að
ræða frá síðasta fjárhagstímabili,
svo sem væata mátti. Frumvarp
íhaldsmeirihlutans í Reykjavík
mun að vísu liafa verið lagt fyrir
bæjarstjórnarfund þar rétt fyrir
kosningarnar, en því var hins
vegar vendilega lialdið leyndu
fyrir kjósendum og andstöðu-
blöðum bæjarstjórnar-meirihlut-
ans, t. d. „Tímanúm" neitað um
að fá að sjá það.
*
ar
Nú éru kosningarnar hins veg-
um garð gengnar, og frurn-
varp þetta hefir loks verið birt
almenningi. Samkv. því munu
útsvör þau, sem Reykvíkingum
Vinna, sem greidd liefir verið. er ætlað að bera á þessu ári, verða
með k''. 2.75, verði nú kr. 2.90.
Þungavinnutaxtinn hækki í kr.
3.20. Tilfærslur verði gerðar
milli taxta, veigamest að steypu-
vinna verði greidd með kr. 2.90.
um 39,6 milj. kr„ þegar með er
talin hin venjulega 10% hækkun
frá áætlunarupphæðinni. Ef út-
tvörin í Reykjavík væru aðeins
álíka há tikölulega eins og bæj-
Öll yfirvinna verði greidd með, arstjórn gerir ráð fyrir að þau
100% álagi, en
vinnutaxti afnuminn.
gildandi
eftir-
Fj
Hryggileg sjóslys
í stórviðrinu um síðastliðna helgi
iórir fiskibátar farast með allri áhöfn
Síðastliðinn laugardag gekk
aftakaveður yfir landið, einkum
þó sunnan- og vestanvert og haf-
ið fyrir vestan land. Margt fiski-
skipa var á sjó, og fengu ýmis
þeirra þung áföll og björguðust
nauðuglega til hafna, en fjórir
fiskibátar fórust með allri áhöfn:
Geir frá Keflavík með 5 mönn-
um, Marz Ifrá Bolungavík með 5
mönnum, Magni frá Norðfirði
með 3 mönnum og loks Aldan
frá Seyðisfirði með 5 manna
áhöfn. Þá tók og tvo menn út af
vélbátnum Hauk Eyjólfssyni írá
Gerðum og drukknuðu þeir báð-
ir. Fleiri bátar misstu og menn
útbyrðis, en þeim varð bjargað,
áður en stórslys var orðið.
Stórt skarð er hér enn höggvið
í hóp hinna vösku sjómanna
þjóðarinnar, og á margur eftir-
lifandi um sárt að binda eftir
þessa hörmulegu atburði.
verði hér á næsta ári, ættu þau
að vera 23-24 milj. kr„ eða hér
um 'bil 16 milj. kr. lægri en
íhaldsstjórninni í „sælustaðnum“
þóknast nú að krefja þegna sína
urn sem skattpening til bæjarins
á næsta ári. í annan stað ættu út-
svör okkar Akureyringa að vera
rösklega 5 milj. kr. í stað fullra
3 milj„ ef þau væru hlutfallslega
jal'nhá og í „sælustaðnum“, þar
eð íbúaf jöldi Reykjavíkur er um
714 sinnum meiri en Akureyrar.
Er viðbúið, að „einkaframtak-
inu“ hér myndi þykja allþörngt
fyrir dyrum, ef slík upphæð væri
árlega af því heimtuð til þarfa
bæjarfélagsins. Verður þó naum-
ast um það deilt, að hlutfallslega
hafa verið hér miklu meiri fram-
kvæmdir af bæjarfélagsins hálfu
en í Reykjavík undanfarin ár, og
mun svo enn reynast.
(Framhald á 8. síðu).