Dagur - 21.02.1946, Side 3
Fimmtudaginn 21. febrúar 1946
D A G U R
3
Gunnar Gunnarsson:
Minjasafn Austurlands á Hallormsstað
Skýrsla formanns á aðalfundi 1. desember 1945
1. Vegfra fjarvistar formanns
var ekki hægt að koma því við
að halda aðalfund fyrir vetur-
nætur, eins og skipulagsskrá
safnsins gerir ráð fyrir, enda
hafði stjórnin þá nýverið haldið
fund, svo þess gerðist síður þörf.
1943:
2. Vegna fráfalls gjaldkera
hafði til þessa farizt fyrir að lagð-
ir yrðu fram reikningar safnsins.
Tók formaður að sér að gera þá
úr garði fyrir aðalfund og er út-
koman sem hér segir:
1. Ávísun frá G. G., lögð inn í Landsb., Eskifirði
2. Ávísanahefti og burðargjald ..................
3. Gjöf frá Gunnari Bóassyni, Reyðarfirði . . . .
4. Vextir hjá Landsb. 1943 ......................
Ut
2.00
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
16.
17.
18.
19.
20.
21.
22.
23.
24.
25.
26.
27.
1944:
Frá Menningarsjóði Kaupfélags Héraðsbúa..........
Kostn. af ferðal. Ragnars Ásgeirssonar, róðun...
Munir og burðargjald á vegum hans ..............
Frá sýslunefnd Suður-Múlasýslu .................
Munir keyptir ó uppboði að Heyskálum ...........
Ferðakostn. Þórodds Guðm. á aðalfund KHB, Rf. . .
Frá Búnaðarsambandi Austurlands ................
Afföll hjá Lb. af ávísun Bún.s. Austurl. á Bún.b. . .
Munir keyptir á uppboði í Kollsstaðagerði.......
Blómsveigur á kistu frú Sigrúnar P. Blöndal ....
Gjöf til að mæta kostnaði við 14. lið...........
Vextir hjá Landsb. 1944 ........................
1945:
Af 1000 kr. veitingu 1944 frá Sambandi austfirzkra
kvenna, greitt 23. 2. 1945 .....................
Frá sýslunefnd Norður-Múlasýslu ’44, gr. 30. 6. ’45
Frá Búnaðarsambandi Austurlands ................
Kostnaður við flutning safnsins 17. 9. ’45 .....
Gjöf til að mæta kostnaði við 20. lið...........
Munir keyptir af Kristbj. Kristjánsd., Litla-Sf. . .
Munir, sem Ragnar Ásgeirsson keypti 1945 .......
Frá Ungmenna- ög iþróttasambandi Austurlands . .
Frá Kaufélagi Vopnfirðinga .....................
Afföll hjá Lb. á ávísun Kf. Vopnf. á SÍS, Rvík . .
Inneign í Utbúi Landsbanka Islands, Eskifirði ....
160.00
1010.00
25.20
60.00
3.75
195.00
157.00
180.00
70.00
280.00
13.34
7803.85
Inn
500.00
200.00
2.07
2000.00
200.00
1500.00
157.00
21.07
500.00
200.00
1500.00
180.00
1000.00
2000.00
*Samtals kr. 9960.14 9960.14
* Samkvæmt ósk formanns lief ég farið yfir ofanritaðan reikning ásamt
tilheyrandi fylgiskjölum og ekkert fundið við hann að athuga.
Skriðuklaustri, 1. desember 1945.
(Sign.:) Erlingur Þ. Sveinsson.
3. Eins og sjá má af ofan til-
færðum reikningi um tekjur og
gjöld safnsins á þeim tveim ár-
um sem það nú á að baki sér,
hafa því áskotnazt alís kr.
9960.14 og þó reyndar a. m. k.
fram yfir það: ógreitt af veitingu
SAK 1944 kr. 500.00, og 500.00
kr. frá sýslunefnd Norður-Múla-
sýslu 1945, sem ekki enn hafa
borizt safninu.* Urn veitingu frá
Suður-Múlasýslu í ár, ef nokkur
er, er formanni til þessa ókunn-
ugt.## Af Jressum innborguðu
kr. 9960.14 hafa verið greiddar
kr. 1580.20 fyrir hina og Jressa
muni, kr. 576.09 hafa farið í
ýmsan annan kostnað (sem hefur
Jró ekki lent á gjöfum opinberra
stofnana með hærri upphæð en
kr. 239.09); eftir verða Jrá kr.
7803.85, sem Minjasalnið á inni
hjá Landsbanka íslands á Eski-
firði. Þeir þrír aðilar, er skipa í
stjórn safnsins sinn manninn
hver, hafa stutt það í þessu hlut-
falli:
1. Bún-samb. Austurl. kr. 3000
2. Ungm.-og íþróttasamb.
Austurlands — 1000
3. Samb. austf. kvenna (að
viðb. loforði um aðrar
500 kr.) - 500
Kr. 4500
* Barst form. 6. 12.
## Myndarleg veiting mun fyrir
hendi. — Form.
Er frantlag Jressara aðila — kr.
4500.00 — tæpur helmingur þess
fjár, er safninu hefir áskotnazt,
en af öðrunr gefendum standa
fremst og hafa reynst safninu
bezt Kaupfélag Héraðsbúa og
Kauplélag Vopnfirðinga með kr.
2000.00 hvort, og fer Búnaðar-
sambandið eitt fram úr Jreim.
Styrkbeiðnum stjórnarinnar á
þessu ári hafa synjað Samband
austfirzkra kvenna, Kaupfélag
Austfjarða á Seyðisfirði og Kaup-
félag Héraðsbúa, en frá nokkr-
um aðilum öðrum, sem sótt var
til, hefir ekki enn borizt svar og
þar á meðal Austfirðingafélagið
í Reykjavík.
4. Að beinum styrkveitingum
frátöldum hefir bezt stutt minja-
safnið Búnaðarfélag íslands, sem
í þr jú haust hefir lánað því sinn
ágæta ráðunaut, lierra Ragnar
Ásgeirsson, fyrsta haustið til
skrafs og ráðagerða um skipulag
safnsins, en tvö síðastliðin haust
einnig til ferðalaga, sem liafa
reynzt safninu með afbrigðum
fengsæl. Hefir ráðunauturinn
ferðast safninu nær því að kostn-
aðarlausu og mun minjasafnið
varla fá fullþakkað Búnaðarfé-
lagi tslands og honum þessa
ágætu stoð. Hefir enginn einn
maður til Jiessa reynzt safninu
jafn Jrarfur, enda fer hjá ráðu-
nautnum saman kunnátta, áhugi
og ferðaþol. Mun safnið ekki
eiga lítið undir því að það megi
njóta leiðbeiftingar og hjálpar
þessa mæta manns einnig fram-
vegis, og væri vel ef nærstaddir
aðilar reyndust safninu ekki
miður en Búnaðarfélag íslands
hefir gert til þessa.
5. Eins og Jregar var getið hafa
verið keyptir munir til safnsins
fyrir samtals kr. 1580.20. en
eignaskrá þess sýnir að Jrað á þeg-
ar 248 rnuni skrásetta, endá liafa
margir gefið safninu muni og
mun þakkarspjald eins fljótt og
við verður komið sent til 50—60
gefenda. Virðing á mununr
safnsins er engin til enn og lík-
lega verður örðugt að meta Jrað
til fjár, en ekki þótti fært að
tryggja Jrað gegn eldsvoða fyrir
minna en kr. 15000.00, og hefir
beiðni um að tryggja Jrað fyrir
þá upphæð verið send Bruna-
bótafélagi Islands, en svar við
henni ókomið.
6. Þó að allmargir hafi viljað
hafa eitthvað fyrir muni Jrá, er
ráðunauturinn á ferðalögum sín-
um ágirntist handa safninu, hafa
þó ýmsir fengið honum munina
endurgjaldslaust og einstaka
maður og kona ótilkvödd fært
safninu gjafir. Þó er ekki því að
leyna, að formanni hafa verið
það nokkur vonbrigði, hve til-
tölulega fáir hala fært safninu
gjafir. Vonandi á þetta fyrir sér
að breytast, þegar menn fara að
skilja betur tilgang og þýðingu
safnsins og sjá að því vex fiskur
um hrygg þrátt l'yrir fullmikið
tómlæti manna, er hæglega gætu
auðgað Jrað að góðum gjöfum og
um leið tryggt sér að hlutir, sem
þeim er annt um, fari ekki for-
görðum.
7- í aprílmánuði þ. á. barst
formanni „Útskrift úr sýslufund-
argjörð Norður-Múlasýsslu, árið
1945“, að efni til sem hér segir:
„63. 1 sambandi við styrkveit-
ingu til Minjasafns Austurlands
vill sýslunefndin vekja athygli á
nauðsyn þess að reglur verði
settar um starf safnsins og stjórn
[>ess.. Telur sýslunefnd æskilegt
að stjórn safnsins geri uppkast
að reglugerð fyrir Minjasafn
Austurlands, sem lagt verði fyrir
Fjórðungsþing Austurlands til
staðfestingar á næsta sumri. Sam
þykkt með öllum atkvæðum.
64. Sýslunefnd bendir á Burst-
arfell í Vopnafirði, sem vel val
inn stað fyrir Minjasafn Austur
lands en eins og kunnugt er hefir
ríkið keypt bæinn í því augna-
m,iði að hann verði varðveittur
og haldið við, sem sýnishorni af
fornri húsagerð. Færi vel á að
einmitt slíkur staður yrði valinn
sem geymlsustaður fyrir Minja-
safn, og beinir sýslunefndin því
til stjórnar Minjasafns Austur
lands að athuga möguleika fyrir
því að svo mætti verða. Sam
þykkt samhljóða." f
Formaður mæltist til við aðal-
fund að mega svara ádrepu þess-
ari með svohljóðandi bréfi.
Leyft einróma):
,,Út af „Útskrift úr sýslufund-
rgerð Norður-Múlasýslu, árið
1945“, sem mér barst seint í apr-
íl Jr. á, skal eg fyrir hönd Minja-
safn Austurlands á Hallormsstað
— en svo heitir minjasafnið fullu
nafni — leyfa mér að gera Jressar
athugasemdir:
Áhrærandi lið 63: Fyrsta verk
stjórnar minjasafnsins á fyrsta að-
alfundi hennar haustið 1943 var
vitanlega að semja skipulagsskrá
fyrir safnið. Skipulagsskrá þessi
var fjölrituð með aðstoð Búnað-
arfélags íslands, og var látin
fylgja — eða átti að fylgja — öll-
um umsóknum frá minjarsafn-
inu, enda hafði hún verið lögð
fyrir aðalfund sambanda Jreirra,
er að safninu standa, og höfðu
þau ekkert haft við hana að at-
huga. Hafi skipulagsskráin ekki
fylgt fyrstu umsókn Minjasafns
Austuríands til sýshmefndar
Norður-Múlasýslu, er um mis-
gáning að ræða, senr stjórnin
biðst velvirðingar á og sem hér
með er úr lrætt. Hins vegar er
stjórn Minjasafns Austurlands
þess ekki um komin að viður-
kenna neinn aðila æðri sér um
ráðstafanir vegna minjasafnsins,
og skipulagsskráin virðist henni
fullgild eftir að vera samþykkt
af aðalfundi sambanda þeirra, er
að safninu standa. En fari sýslu-
nefndin fram á það, mun hver
stjórnarmeðlimur fyrir sig fús til
að leggja fyrir samband Jrað, er
ber ábyrgð á umboði hans eða
hennar, hver þau tilmæli eða
áskorun, er sýslunefndinni mætti
Jróknazt.
Áhrærandi lið 64: Eins og sjá
má af yfirskrift skipulagsskrár-
innar er hið fulla nafn safnsins
eiginlega Minjasafn Austurlands
á Hallorm&stað, enda var hin
lyrsta stjórn safnsins örugglega
sammála um Jrað, að um aðra
staði gæti ekki veriðaðræða;
Hallormsstaður væri sá staður,
þar sem flestir innan héraðs og
utan myndu hafa tækifæri til að
njóta safnsins, og hægast mundi
jafnan að koma við umsjá og eft-
irliti þar á stað. Þá hefir
það enn tengt safnið og framtíð
Jress fastar við Hallormsstað, að
skógrækt ríkisins hefir af mikilli
rausn ánafnað safninu skógar-
spildu, fagra og væna, þar sent
það má reisa gömul hús eftir
getu og safnhús og enda girða
spildttna og rækta ltana með
gróðursetningu trjáa og runna
eins og fegurst og haganlegast
þykir. Um bæinn á Burstarfelli
er það að segja, að ekki er annað
vitað en ábúandi j^rðarinnar
eigi að hafa þar íbúð, en þó
svo væri ekki myndu hús af því
tagi ekki geyma gamla muni,
bækur og handrit eins vel og
tryggilega og ætlazt er til um slík
söfn, og eldshætta mundi þár allt-
. af verða ærin, svo sem bezt
mundi koma fram ef tryggja
ætti munina þar. Og sem sagt —
hvað sem öðru líður: Eftir að
sambönd þau, er að safninu
standa hafa samþykkt skipulags-
skrá Minjasafns Austurlands á
Hallonnsstað, telur stjórnin
skýldu sína að hvika ekki frá
henni, sízt í verulegum atriðum
og mun ekki gera, nema einróma
samþykktir sarribandanna komi
til.“
8. Formaður Minjasafns Aust-
urlands á Hallormsstað hefir
borizt tilkynning um að tillaga
um, samvinnu hafi komið fram á
fundi í Menningarfélagi Austur-
Skaftfellinga þ. 29 .nóv. f. á., og
verið santjrykkt með öllum at-
kvæðum. Tillagan var svohljóð-
andi:
„Fundur í Menningarfélagi
Austur-Skaftfellinga, haldinn á
Höfn í Hornafirði 29. nóv. 1944,
telur rétt að Austur-Skaftfelling-
ar gerist aðili að stofnun byggða-
salns á Hallormsstað tneð Jreint
skildaga þó, að munum þeim,
sent héðan úr sýslu safnazt.
verði haldið senr sérstakri deild
í safninu og að þeim skuli skilað
hingað aftur ef Austur-Skaftfell-
ingar skyldu síðar stofna eigið
byggasafn."
Leggur formaður til, að minja-
safnið taki Jressu góða boði nreð
þökkum og hefir ekkert við skil-
dagann að athuga, enda verður
fróðlegt að sjá Múlasýslur og
Austur-Skaftafellssýslu nrætast í
sal eða sölum safnsins og reyna,
hvor ríkari er að menningarverð-
mætum og örlátari á geymslu-
verða hluti.
9. Stjórn Minjasafns Austur-
lands telur sig hafa farið gæti-
lega með fé Jrað, sem henni hefir
verið trúað fyrir, og komið hefir
fyrir að hún hefir gengið frá
kauputn, sem hún þóttist ekki
að fullu geta varið, svo sem ástatt
er um fjárhag safnsins. Væri
æskilegt að það þyrfti ekki að
endurtaka sig. Hefir stjórnin
augastað á einu og öðru, sem hún
telur sig ekki geta ráðið við í bili,
en úr því gætu menn og stofnan-
ir með fjárráð hæglega bætt.
10. Vegna þess að geymslupláss
það sem Húsmæðraskólinn á
Hallormsstað gat lánáð safninu
þótti ekki tryggilegt, ef eldsvoða
bæri að höndum og ekki var í
bili fáanleg önnur betri geymsla
þar á stað, var samþykkt á síðasta
stjórnarfundi að taka boði for-
manns unr áð lána herbergi und-
ir muni safnsins því að kostnað-
arlausu, þangað til fyrirhuguð
viðbygging leyfði húsmæðraskól-
anttm að Ija Jrví stofu eða safnið
sjálft gæti byggt yfir sig, sem er
ósk og von stjórnarinnar að megi
verða áður langt líður. Til þess
þarf Jró. vitanlega ríflegri fjár-
framlög en safnið hingað til hef-
ir átt við að búa, enda getur for-
maður ekki dulið undrun síria
yfir því, hve sínkir einstaklingar
hafa reynzt á framlög, sem þeir
á Jressum veltiárum þó varla
myndu hafa fundið til, þessu
menningar- og nytjamáli til
styrktar. Ef almenningur á Aust-
urlandi vildi leggja á sig þá eng-
an veginn óbærilegu hugraun.
að gera sér ljóst, hve ntikla
ánægju og gagnþeir sjálfir
og niðjar Jreirra myndu hafa af
góðu og vel settu tninjasafni,
væri vitanlega í lófa lagið að
byggja gott hús yfir minjasafnið
þegar á næsta ári. Formaður lít-
ur svo á, að það sé ekki með öllu
skammlaust fyrir landsfjórðung-
inn, að það verði látið dragast
von úr viti, einkum þar sem
stjófnin hefir orð ráðunautsins
fyrir því, að þrátt fyrir tómlæti
manna yfirleitt muni ekkert
byggðasafn hérlent betur á veg
komið en Minjasafn Austur-
lands með sína 248 muni, sem
Jrað hefir aflað/sér á tveirn árum
með kr. 2156.29 tilkostnaði.
Skriðuklaustri, 1. des.1945.
N